Besta sætið

Besta sætið

bestasaetid
Държава Исландия
Жанрове Спорт
Език EN
Епизоди 100
Последен 17.09.2026

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Епизоди

  • 17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll 17.09.2026 26мин
    Það er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki vilja koma og horfa á sitt lið spila á Laugardalsvelli?
  • Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg 16.09.2026 26мин
    Á rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins, stjórn félagsins sagði af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti. Alfreð fer hér yfir fyrsta rúma árið í starfi, samstarfið með Frey og önnur tengd mál. Meðal annars gullmolann sem félagið hefur klófest með einum mest spennandi sóknarmanni Skandinavíu að mati Alfreð sem var sjálfur markamaskína á sínum leikmannaferli.
  • 16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina 16.09.2026 28мин
    Kjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem hann þjálfaði síðustu ár. Einnig ræðir Kjartan um Bestu deildina og nýjan feril í pólitíkinni.
  • 15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum 15.09.2026 19мин
    Víkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem er búið að fá Pargo og svo er spurning hvort Tottenham nái loksins að skora í kvöld.
  • Dagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham 15.09.2026 19мин
    Dagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um framhaldið á ferlinum, sem og með landsliðinu, eftir langan og farsælan feril. Hún heldur þó öllu opnu.  Í viðtali við Vísi fer Dagný um víðan völl. Hún er flutt heim til Íslands og lék með Selfossi í Lengjudeildinni í lok sumars, og vill láta að sér kveða til að bæta umgjörð í fótbolta kvenna hér á landi. Hún segir sorglegt að sjá Ísland dragast þar aftur úr öðrum þjóðum sem séu allar að gefa í. Þá ræðir Dagný um sitt nýja hlutverk sem sérstakur sendiherra enska félagsins West Ham.
  • 11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester 11.09.2026 23мин
    Það er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri hlutanum er hörð. Baráttan um Manchester er svo aðalleikurinn í enska þessa helgina.
  • 10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona? 10.09.2026 25мин
    Yfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og umspilið í Lengjunni er galopið.
  • 9. sept - Er Mourinho enn nógu góður? 09.09.2026 26мин
    Jose Mourinho er mættur með látum í Meistaradeildina á nýjan leik. Liverpool á risaleik í Meistaradeildinni í kvöld á meðan Arsenal fer til Ítalíu. Umspilið í Lengjunni hefst í kvöld og svo er NFL-deildin að fara af stað með stórleik.
  • 8. sept - Meistaradeildin fer loksins í gang 08.09.2026 19мин
    Það er hátíðisdagur því Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld. Við hitum vel upp fyrir kvöldið þar sem Jose Mourinho snýr aftur með Real Madrid í keppnina og það með liði sem hann þjálfaði áður.
  • 7. sept - Arsenal með langbesta liðið 07.09.2026 22мин
    Arsenal sýndi mátt sinn og megin í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Svo gerum við upp Bestu karla en Víkingar eru með pálmann í höndunum og Keflavík verður í efri hlutanum. Valur og Stjarnan munu spila í neðri hlutanum. Mikill skellur fyrir bæði félög.
  • 4. sept - Risahelgi í boltanum 04.09.2026 26мин
    Lokaumferð deildarkeppni Bestu karla, lífsbaráttulaugardagur í Lengjunni og enski boltinn. Það þarf ekki að standa upp úr sófanum um helgina.
  • 3. sept - Handboltinn rúllar af stað í kvöld 03.09.2026 23мин
    Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Haukum og Val er spáð toppsætunum. Stjarnan heldur áfram að spila í Miðgarði og svo rennum við yfir bestu kaupin í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
  • 2. sept - Uppgjör á stórleik KR og Víkings 02.09.2026 24мин
    Risaleikur KR og Víkings í gær er eðlilega í brennidepli í þætti dagsins. Rúmlega 4.000 manns mættu á leikinn sem hófst klukkan 17.30 á þriðjudegi. Víkingur er með pálmann í höndunum eftir leikinn.
  • 1. september - Leikur ársins á Meistaravöllum 01.09.2026 23мин
    Það er allt á suðupunkti fyrir stórleik KR og Víkings í Bestu deild karla. Skemmdarverk unnin í skjóli nætur hafa kynt bálið enn frekar. Besta sætið hitar vel upp fyrir leikinn og spáir aðeins í spilin í enska boltanum.
  • 28. ágúst - Man. City verður meistari 28.08.2026 28мин
    Það er lítil bjartsýni fyrir landsleik kvöldsins í körfunni enda við ofurefli að etja. Handboltinn fer að rúlla af stað og Val er hvorki spáð titli í karla- né kvennaflokki. Það eru stórir leikir í Bestu deild karla og svo heldur enski boltinn áfram að rúlla.
  • 27. ágúst - Eini stuðningsmaður Zirkzee fundinn 27.08.2026 23мин
    UEFA ætlar að draga Infantino fyrir dómstóla, Víkingar spila um hálfan milljarð, Freyr blómstrar í Noregi og maður sem elskar knattspyrnumanninn Joshua Zirkzee í þætti dagsins.
  • 26. ágúst - Mun Arsenal valta yfir deildina? 26.08.2026 22мин
    Íþróttafréttamenn lélegir í golfi, sprungið dekk í Þakgili og umræða um enska boltann og meinta yfirburði Arsenal.
  • David Winnie: Sigrar með KR, fótbolti Óskars Hrafns og íþróttalögfræðin 14.08.2026 11мин
    Skotinn David Winnie var hér á Íslandi um fjögurra ára skeið frá 1998 til 2001 er hann lék með og þjálfaði svo karlalið KR í fótbolta. Hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótið árið 1998 og hjálpaði KR svo að enda 30 ára bið eftir Íslandsmeistaratitli er liðið varð tvöfaldur Íslandsmeistari á 100 ára afmælisárinu 1999. Hann á íslenska konu og kemur reglulega hingað til lands með tvo henni og tveimur sonum þeirra, þar sem þau eiga hér sumarbústað. KR taugin er til staðar og hann hefur fylgst með þeim svarthvítu síðan hann hætti og reynir iðulega að mæta á leik þegar hann er á klakanum. Við ræddum við Winnie um KR, gamla tíma og einnig feril hans í dag en hann starfar sem íþróttalögfræðingur á Bretlandi og var meðal annars dómari í svokölluðu Spygate máli Southampton.
  • Björn Berg: Áhyggjur af framtíð fjármála fótboltans 14.08.2026 13мин
    Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið Deloitte gaf út skýrslu í sumar þar sem áhyggjum er lýst yfir vegna heilbrigðis fjármála innan fótboltans til lengri tíma. Tekjur fara hækkandi víðast hvar, þá sérstaklega hjá stærri félögum, en á sama tíma vaxa skuldir gríðarlega. Samkvæmt skýrslunni sé of mikið hugsað til skamms frekar en lengri tíma. Þá kom fram í skýrslunni að taprekstur enskra úrvalsdeildarfélaga hafi aukist um 600 prósent frá 2023 til 2024, úr 135 milljóna taprekstri í 948 milljóna punda tap tímabilið eftir. Við ræddum þessa skýrslu við fjármálaráðgjafann og fótboltaáhugamanninn Björn Berg Gunnarsson sem kynnti sér málið. Þar er snert á misskiptingu, þenslu og framtíðarhorfum hvað fjármál innan fótboltans varðar.
  • 29. júlí - Infantino að gera allt vitlaust 29.07.2026 23мин
    Gianni Infantino, forseti FIFA, vill hleypa fjárfestum að kjötkötlum FIFA og það ætlar hann að gera með því að bjóða knattspyrnusamböndum gríðarmikla peninga. Óhætt er að segja að allt sé vitlaust út af þessu máli sem ekki sér fyrir endann á.

Популярен в

Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.