Ljósmæðrarýmið
Hafdís og Oddný
0
Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu.
Епизоди
-
#26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar 03.09.2026 58минÍ þætti vikunnar fáið þið að heyra þrjár mismunandi fæðingarsögur sem við lesum fyrir ykkur og ræðum!Gangsetning á LSH, þrátt fyrir upphafleg plön um að eiga á Selfossi, heimafæðing sem tók líka óvænta stefnu og tvíburafæðing við miklar bráða aðstæður.Við förum um víðan völl en “take home message” er kannski að þú getur haft óskir fyrir fæðinguna án þess að halda svo fast í þær að allt hrynji ef planið breytist.Njótið vel 🤎Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirÖndun í fæðingu:https://www.sofabordaelska.is/ondun -
#25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni? 27.08.2026 1ч 2минJákvæðni í fæðingu getur skipt sköpum 💛✨Í þessum þætti kemur Sigríður til okkar og segir frá sinni fæðingarreynslu, meðal annars hvernig hún hélt í jákvæðnina og hvernig maðurinn hennar var duglegur að minna hana á hana alla leiðina 😄Við tölum um mikilvægi þess að skapa ró, öryggi og góða stemningu í fæðingu – og hvernig það getur stutt við losun oxýtósíns, hormónsins sem gegnir svo mikilvægu hlutverki í fæðingu.Og svo… herðanuddið! 🙌 Sigríður deilir trixi sem virkaði ótrúlega vel fyrir hana og við förum aðeins nánar í það í kringum 33. mínútu. Kannski eitthvað sem vert er að skrifa niður fyrir fæðinguna? 👀Þáttur um jákvæðni, stuðning, oxýtósín, góð trix og það að finna sína eigin leið í gegnum fæðinguna 💛 -
#24 Fæðingarplan, er það sniðugt? 21.08.2026 47минÞetta getur verið hot topic hvort þú eigir að gera fæðingarplan eða leyfa þér bara að go with the flow…?Við kryfjum þetta til mergjar í þætti vikunnar þangað til þetta er orðið kýrskýrt.Linkur á myndband um öndun í fæðingu:https://www.sofabordaelska.is/ondunVertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar 13.08.2026 1ч 15минElsku Alexandra, þroskaþjálfi og mikill snillingur, kom til okkar í svo skemmtilegt spjall um sínar tvær ólíku heimafæðingar.Hvað varð til þess að hún valdi heimafæðingu?Hvernig gengu þær fyrir sig?Áður en hún varð ólétt af fyrsta barni var hún frekar hrædd við að fæða, en eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði val um hvar og hvernig hún fæddi barnið sitt, byrjaði hún að vera spennt fyrir fæðingunni.Hún átti góða upplifun þrátt fyrir krefjandi lokakafla í fyrri fæðingu, sem endurtók sig heldur betur ekki í seinni fæðingunni.Njótið vel 🤎Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita 07.08.2026 51минMænudeyfing, mænurótardeyfing, utanbastdeyfing eða hvað sem þú vilt kalla hana, hér kemur góð umfjöllun um kosti, galla, fylgikvilla og verkun deyfinga í fæðingum á Íslandi. Hvenær er best að fá sér deyfingu?Hvað breytist þegar ég fæ mér deyfingu?Og margt margt fleira.Og ekki hafa neinar áhyggjur, að sjálfsögðu tölum við um kúk og piss líka og hlæjum mikið mikið af sjálfum okkur í leiðinni. Allt sem ÞÚ þarft að vita til að taka upplýsta ákvörðun fyrir þig og þína fæðingu!Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#21 Hildur Grímsdóttir 30.07.2026 1ч 26минTW Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu.Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund yndislegs lítils drengs við mömmu og pabba. Að auki á Hildur 4 skemmtilegar upplifanir af fæðingum sem allar eiga sameiginlegt að byrja með keimlíkum hætti.Mannleg, skemmtileg, einlæg og hress, það er Hildur Gríms sem deilir með okkur fæðingum og fleiru í þætti dagsins. -
#20 Arna Ýr 16.07.2026 1ч 53минArna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli. Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A.Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti.Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss með fyrsta barn, bað fæðingar og auðvitað blómafæðingarlaugin fræga? Er það óraunhæft eða á færi allra með góðum undirbúningi að eiga góða fæðingarupplifun?Ræðum þetta og margt fleira í þætti dagsins -
#19 Foreldrajátningar 09.07.2026 45минHefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli. -
#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið 02.07.2026 1ч 34минÍ þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða.Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu.Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblástur.Njótið vel 🤎Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar 25.06.2026 1ч 13минMissir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir.Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum. Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst búin að sjá fyrir þér og plana lífið í kringum.Þessi þáttur er fyrir þig ef þú hefur upplifað fósturlát, misst snemma á meðgöngu, ert að ganga í gegnum missi núna eða vilt skilja betur reynslu þeirra sem hafa þurft að kveðja litla krílið sitt snemma á meðgöngu.Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara 18.06.2026 1ч 11минÍris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni.Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara? 11.06.2026 44минVið erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr.Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið?Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar?Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir?🎧 Njóttu vel!Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja? 03.04.2026 27минEr þetta að byrja… eða ekki alveg strax?Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið.Þegar líkaminn er að undirbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá.Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað. Rætt er um:– hvernig forstigið getur litið út – hvað er að gerast í líkamanum á þessu stigi– hvað er eðlilegt – hvað þú getur gert á þessu stigi til að vinna með líkamanum þínum Þetta er þáttur fyrir þig sem vilt skilja líkamann þinn betur og treysta ferlinu.Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga 26.03.2026 58минÍ þessum þætti tókum við gott spjall.Við svöruðum spurningum sem hlustendur hafa sent inn og fórum út í alls konar pælingar tengdar starfinu.Þetta er meðal annars það sem við ræðum:Fetal ejection reflexFylgjulosAf hverju við fórum í ljósmóðurfræðiHvað er skemmtilegast við vinnuna okkarSpangardeyfingu, er alltaf hægt að biðja um hanaVið endum svo á að lesa upp innsenda fæðingarsöguLéttur, einlægur og notalegur þáttur með smá fræðslu, smá spjalli og svo rúsínu í pylsuendanum.Við skemmtum okkur mjög vel og vonum að þið gerið það líka <3Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#12 Örþáttur - Að missa vatnið 23.03.2026 19минLegvatnið fer… Hvað gerum við næst?Hvað þýðir það þegar vatnið fer áður en samdrættir hefjast?Hvernig ættum við að bregðast við og hvað gerist næst?Allt þetta og meira um farið vatn í þessum örþætti ljósmæðrarýmisins.Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#11 Fæðingarsaga Sólbjartar 19.03.2026 46минSólbjört elskar að tala um fæðingar og við elskuðum að tala við hana um hennar fæðingu.Hún missti vatnið, verandi GBS beri og fór í gangsetningu í kjölfarið - sem endaði vitanlega með barni, þó að henni hafi ekki alltaf liðið eins og það myndi gerast neitt í náinni framtíð.Hlustið og njótið!Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirSólbjört Sigurðardóttir -
#10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðingu 16.03.2026 11минVissir þú að það er algengt að fá samdráttarverki eftir fæðingu?Af hverju eigum við ekki betra orð í íslensku talmáli? Eigum við að nota orðið eftirverkir?Hvers vegna koma þeir, hvenær og hvernig er best að höndla þá þegar þeir koma?Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu 09.03.2026 43минÍ þessum þætti ræðir Hafdís 5 hluti sem er kannski minna talað um þegar kemur að fæðingum og gæti komið mörgum á óvart.Við förum yfir:- Hvernig líkaminn tekur yfir í fæðingu- Hvernig fæðingarverkir eru oft öðruvísi en fólk ímyndar sérvernig hugurinn hefur áhrif á ferlið- Hversu óútreiknanlegar fæðingar geta verið- Hinn heimurinn sem maður fer í, í fæðinguAllt til þess að gefa þér betri innsýn í fæðingarferlið og hjálpa þér að mæta henni af meiri ró og trausti <3 Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal 02.03.2026 59минHulda Heiðdal segir okkur frá sinni upplifun af barneignarferlinu, sem var lituð þeirri staðreynd að hún var í mikilli yfirþyngd.Hún var í meðgöngueftirliti á LSH vegna þessa og var ráðlagt að fæða með keisaraskurði, en hana dreymdi um fæðingu um leggöng.Hulda ræðir sína upplifun, fitufordóma og margt fleira.Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirHulda og heilsa -
#7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar 23.02.2026 54минKatla sagði okkur á sinn einstaka hátt frá þremur mismunandi fæðingum. Fyrsta gangsetning í covid og blæðing eftir fæðingu, önnur heimafæðing á baðherbergisgólfinu og svo hröð þriðja fæðing á sjúkrahúsi.Þið sem þekkið til Kötlu vitið að hún er ekkert að skafa af hlutunum og það var engin undantekning hér.Njótði vel!Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirSystur og makar
Популярен в
Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.