Gímaldið
Gímaldið
0
Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡
Епизоди
-
Ekkert óveðursský yfir Alþingi 14.09.2026 28минÍ fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, ræðir Aðalheiður Ámundadóttir við Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um þingstörfin framundan. Þórunn kannast ekki við ófrið sem boðaður hefur verið á haustþingi og finnur ekki fyrir honum innanhús á Alþingi. Hún ræðir hótanir og aðkast í garð þingmanna, starfið á Alþingi og hvernig hún býr sig undir erfiðar umræður í þinginu. Meðal efnis í þættinum:Er óveðurský yfir Alþingi þetta haustið?Hvernig forseti býr sig undir erfiðar umræður.Ofstopi, hótanir og hatursorðræða gegn þingmönnumFram að jólum hefjast allir þingfundir á sama tíma, kl.13:30. Þetta er tilraun þingforseta til að gera þingið að betri vinnustaðFarið verður í saumana á þingsköpunum og gerð atlaga að breytingum ef vilji og skýr markmið eru fyrir hendi.Fundarstjórn forseta: Stundum verða menn að fá að pústa.Eru allir jafn áfram um að þingstörfin gangi vel? Heimsókn þingforseta Úkraínu í ágúst og samstarf þingforseta.Er Alþingi úrelt tæknilega séð?Í lokin: þingstörf komandi viku og andlegt ástand flokkannaÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Margrét Einarsdóttir í viðtali: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“ 11.09.2026 27минHvað gerist ef við klárum ekki að innleiða bókun 35? Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og sérfræðingur Evrópurétti er í viðtali við Gímaldið og fer yfir þessa umtöluðu bókun. Umræður um Bókun 35 við EES – samninginn hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Íslendingar hafa skuldbundið sig til að innleiða þessa bókun en ekki staðið við það. Margrét segir mikilvægt að þingið innleiði Bókun 35 sem fyrst og segir málið ekki koma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu við á nokkurn hátt. Hún telur afleiðingarnar alvarlegar verði það ekki gert. Þá stefni í að málið verði tekið fyrir í EFTA dómstólnum og hún segir nánast gefið að íslenska ríkið tapi því.Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp um innleiðingu bókunarinnar á þingi í þessum mánuði. Þetta verður í fjórða skipti sem frumvarpið er lagt fram, tvisvar sinnum hefur það dagað uppi í tíð núverandi ríkisstjórnar og einu sinni í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Nú telja stjórnarflokkarnir brýnt að bókunin verði innleidd til að uppfylla skuldbindingar íslenska ríkisins gagnvart EES-samningnum. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur gert tortryggilegt að þörf sé á lögfestingu Bókunar 35 og er útlit fyrir að einhver átök verði um það á þingi. Í þættinum er farið yfir hvernig viðsnúningur í dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands síðustu ár hefur haft þau áhrif að nú er íslenska ríkið undir miklum þrýstingi að innleiða bókunina. Helga Arnardóttir hefur umsjón með þættinum. -
Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum 04.09.2026 32минGímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert við stefnum og hvers vegna. Af því tilefni verða birt hér á þessum vettvangi nokkur viðtöl sem við sem stöndum að Gímaldinu tökum hvert við annað. Í þessum þætti ræðir Eyrún Magnúsdóttir við samstarfskonu sína, Aðalheiði Ámundadóttur, stjórnmálaskýranda Gímaldsins. Aðalheiður er lögfræðimenntuð, starfaði um árabil sem blaðamaður og fréttastjóri á Fréttablaðinu, hefur kennt og stundað rannsóknir í lögfræði og starfað á Alþingi.Þær ræða hugmyndina á bak við Gímaldið, fjölmiðil sem vill hugsa fréttaflutning fyrst og fremst sem þjónustu við áskrifendur, frekar en kapphlaup um að vera fyrst með fréttirnar. Aðalheiður segir frá því hvers vegna áskriftarlíkanið skiptir svona miklu máli fyrir efnistök og fréttamat, hugmyndum sínum um Gímaldið sem samfélag með viðburðum, morgunkaffi og beinu samtali milli blaðamanna og lesenda. Loks ræðir hún áform fyrir pólitíska umfjöllun vetrarins: vikulegan þátt með viðtali og greiningu, reglulegan þingpistil og þróun fréttabréfs Gímaldsins.Aðalheiður og Eyrún fundu fljótt samhljóm þegar þær fóru að ræða framtíð íslenskrar fjölmiðlaÞjónusta sem kjarni Gímaldsins: að hugsa umfjöllun út frá því hverju hún skilar lesandanum, ekki hv mörgum smellum hún skilarHvernig tekjumódel fjölmiðils, auglýsingar, styrktaraðilar eða áskrifendur, hefur bein áhrif á fréttamat og efnistökDraumurinn um Gímaldið sem samfélag: viðburðir, morgunkaffi og milliliðalaust samtal milli blaðamanna og áskrifendaHvað varð um gömlu, líflegu Facebook-umræðuna á Íslandi og er hægt að endurskapa hana í minni og markvissari mynd?Áform Aðalheiðar fyrir stjórnmálaumfjöllun vetrarins: vikulegur þáttur með viðtali og dýpri greiningu á einu máliReglulegur þingpistill sem gefur yfirsýn yfir stöðuna á Alþingi, stemningu og átök á bak við tjöldinAf hverju erlend stjórnmál, sérstaklega í Evrópu, eru orðin órjúfanlegur hluti af umfjöllun um íslensk stjórnmálHvernig lesendur og áskrifendur geta haft beint samband við Aðalheiði og af hverju hún vill endilega heyra frá þeimHefur þú ábendingu eða skoðun á því sem Aðalheiður fer yfir í þessum þætti? Sendu henni línu á [email protected] — eða almennar ábendingar á [email protected]. -
Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar 01.09.2026 29минEyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í kjölfar niðurstöðunnar og allt sem ekki má gleymast í uppgjöri umræðunnar.Umræðuefni og spurningar sem varpað er fram í þættinum:Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni?Báðar hreyfingarnar sitja uppi með niðurstöðuna. Hver þarf að axla ábyrgð og á hverju?Tilheyrir upplýsingaóreiða einhverju tómarúmi sem enginn ber ábyrgð á?Áfram Ísland hafði Brexit-handbókina á náttborðinu, en gleymdi SJÁ að læra af reynslunni? Evrópusinnar vanmátu tilfinningarnar og klikkuðu á samtakamættinum.Hvað má læra af baráttu Áfram Ísland?Hvernig verða herferðirnar gerðar upp og hvað við lærum af því að elta peningana?Hvað getum við sótt í smiðju Brexit um uppgjör umræðunnar og þátt fjölmiðla?Hvernig mótast viðhorf unga fólksins sem sveiflaðist til og frá í könnunum?Hverfa Evrópumálin nú ofan í skúffu eða eru þau komin til að vera?Eru ræðuhöld aftur komin í tísku? Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Brexit stundin runnin upp 28.08.2026 42минÍslenska þjóðin tekst á við fjórðu þjóðaratkvæðagreiðsluna á þessari öld á laugardag. Umræðan hefur verið bæði góð og slæm, en núna á lokasprettinum er ljóst að Brexit-augnablikið er runnið upp. Ósönnum fullyrðingum er haldið á lofti sem aldrei fyrr. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Helga Arnardóttir fara yfir stöðuna á lokaspretti baráttunnar. Þær ræða kappræður, skoðanakannanirnar, baráttuaðferðir, upplýsingaóreiðuna og lygarnar og ábyrgðarleysið sem fylgir þjóðaratkvæðagreiðslum. Engin könnun hefur sýnt marktækan eða afgerandi mun á fylkingum. Niðurstaðan mun ráðast á lokametrunum og því hverjir mæta á kjörstað.Kappræðurnar á RÚV skorti staðreyndavöktun en Kristrún tók hana að sér. Sólveig Anna með nýja sýn á stéttamun í íslensku samfélagi. Aldrei fyrr verið logið jafn mikið um orkumál.Ábyrgðarleysið er kerfisgalli þjóðaratkvæðagreiðslna: hver svarar fyrir lygarnar á sunnudaginn?Geta samfélagsmiðlar talist vettvangur lýðræðis af því allir hafa míkrófón?Er þjóðaratkvæðagreiðslan sjálf ef til vill ólýðræðisleg í eðli sínu?Bankastjóri Arion banka segir verðtrygginguna úrelta og lánasambandið óheilbrigt.Sama hvernig fer á laugardag: neytendamál, matarverð og vextir eru komin á kortiðÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.Athugið að í upphafi fór röng hljóðskrá inn en henni var skipt út eftir nokkrar mínútur. Hljóð í upphafi eldri hljóðskrár var brotið, við biðjumst velvirðingar á því. -
Benedikt Gíslason: Áhættan öll hjá þeim sem tekur verðtryggða lánið en lánveitandinn varinn 27.08.2026 34минVerðtryggingin er úrelt og barn síns tíma segir Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka sem telur hana flækja allan bankarekstur og vill draga verulega úr vægi hennar, jafnvel afnema að fullu. Hann segir þráláta verðbólgu afleiðingu þess að bankarnir geri upp í tveimur myntum, óverðtryggðum og verðtryggðum. Áhættan sé alfarið sett á lántakann en ekki lánveitandann og henni sé dreift ójafnt á milli kynslóða. Benedikt telur margt geta breyst við upptöku evru í íslensku lána umhverfi en segir sorglegt að við getum ekki tekið ákvörðun um afnám verðtryggingar sjálf því öll skilyrði fyrir því séu til staðar og aðstæður í íslensku efnahagskerfið séu verulega breyttar frá því verðtryggingin var sett árið 1979. Helga Arnardóttir ræddi við Benedikt Gíslason. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn 25.08.2026 32минHerdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, setur sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Herdísi um stöðuna í norskri pólitík og um það hvort Norðmenn eru eitthvað að pæla í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi og hvaða áhrif hún gæti haft. Meðal þess sem rætt er í þættinum:Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Noregs vilja ganga í Evrópusambandið, en frumkvæði að samtali um það yrði að koma frá grasrót VerkamannaflokksinsEvrópumálin hafa legið í láginni undanfarin ár en merki eru um að aukinn áhugi sé að myndastTollar á járnblendi hreyfðu við umræðu um stöðu EES-samningsinsSegi Íslendingar já í þjóðaratkvæðagreiðslu verður það klárlega innspýting og innblástur fyrir Norðmenn að fara inn í samtalið um framtíð EES og mögulega aðild að ESBÍ fyrsta skiptið síðan 1994 eru fleiri kjörnir fulltrúar opnir fyrir aðild og skoðanakannanir sýna breytingu meðal almenningsVerkamannaflokkurinn, flokkur forsætisráðherra, er klofinn í afstöðu til aðildar en Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, er yfirlýstur EvrópuflokkurNoregur situr ekki við borðið þegar stærstu ákvarðanir um varnarmál eru teknar og það ergir stjórnmálamenn sem vilja meira vægi Norðmanna í þeim ákvörðunum, vægi sem ekki fæst með EESÁhrifaleysi EES-samningsins hefur töluvert verið rætt í Noregi og sú staða sem upp gæti komið ef Noregur situr eftir í EES, bara með Lichtenstein – sem er á stærð við KópavogÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Valdið og miðin: ESB, auðlindir og undanþágur 23.08.2026 53минÍ nýrri álitsgerð þriggja prófessora í lögfræði við Háskólann í Reykjavík er fjallað um valdheimildir Evrópusambandsins og hvaðan þær koma, orkustefnu ESB, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, aðildarsamninga og aðildarviðræður. Svo eru rakin fjölmörg dæmi um undanþágur og sérlausnir sem ríki hafa samið um við ESB. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir rýna í álitsgerðina sem snertir á mörgum af heitustu ágreiningsefnum sumarsins. Í þættinum er meðal annars fjallað um:Hvaða reglur gilda um eignarréttindi innan ESB?Getur Evrópusambandið búið til valdheimildir fyrir sjálft sig?Hverju getur Evrópusambandið ráðið um auðlindir aðildarríkja? Er þorskur þjóðarauðkenni?Orkulöggjöfin er að mestu komin inn um EES, en heldur Ísland undanþágum sínum?Getur ESB ákveðið að leggja sæstreng til Íslands?Hvernig myndu þorskveiðar breytast ef Ísland gengi í ESB? Hvað yrði um samninga Íslands um makrílinn, norsk-íslensku síldina og kolmunna? Dönsku sumarhúsin, sænska snúsið, heimskautabændur og fiskimið Möltu - hvað kenna fordæmin um undanþágur?Álitsgerðina má lesa á vef Stjórnarráðsins en hana unnu þrír prófessorar við Háskólann í Reykjavík: Gunnar Þór Pétursson, Hafsteinn Dan Kristjánsson og Margrét Einarsdóttir. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Akademíski armur Áfram Ísland og Brexit-bragur á lokasprettinum 17.08.2026 52минHvenær er fundur fræðilegt innlegg í umræðu og hvenær er hann pólitískur áróðursfundur? Gímaldið hefur birt umfjöllun um fund nei- hreyfingarinnar Áfram Ísland með svissneskum lögfræðingi og fyrrverandi prófessor og dómara, Carl Baudenbacher, en sagan af einni lítilli bókun á sal innan Háskóla Íslands er með nokkrum ólíkindum svo ekki sé meira sagt, eins og rætt er um í þættinum. Tvær vikur eru í þjóðaratkvæðagreiðslu og ritstjórn Gímaldsins veltir fyrir sér stöðunni, næstu skrefum í baráttunni og hvaða tromp já og nei fylkingar eiga uppi í erminni á lokametrunum. Einnig: hverju tekur fólk mark á? hvaða upplýsingum er treystandi og er það virkilega þannig að fólk sé sent í heita potta gagngert til að veiða atkvæði?Helga Arnardóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir sjá um þáttinn. Meðal efnis í þættinum:Hátíðarsalur HÍ er eingöngu ætlaður viðburðum á vegum skólans sjálfs, Baudenbacher mátti tala hvar sem er annars staðar í húsnæði HÍ, honum var aldrei „úthýst".Áfram Ísland hefði aldrei getað fengið Hátíðarsalinn. Þrír fyrrverandi og núverandi fræðimenn komu að þessari bókun, sem sögð var á vegum rannsóknarseturs sem hefur verið óvirkt í mörg ár og var skráð á rannsóknarverkefni sem tengist málinu ekki neitt.Baudenbacher gagnrýndi rektor HÍ, utanríkisráðuneytið og RÚV fyrir fálæti í færslu á Linkedin eftir Íslandsförina, en eyddi svo þeim hluta færslunnar og skildi einungis þakkarorð eftir.Skoðanakannanir sýna nokkuð jafna stöðu tveimur vikum fyrir atkvæðagreiðslu (51,5% já / 48,5% nei skv. Gallup), en óákveðnum fer fækkandi og afstaða fólks er að festast.Umræðan er sögð hafa harðnað og líkjast Brexit, jafnvel hlutlausar upplýsingar eru afgreiddar sem áróður, og lítill markaður virðist fyrir dýpri, faglega umfjöllun úr þessu.Stóru miðlarnir, einkum RÚV, hafa dregið úr efnislegri umfjöllun um kosti og galla aðildar. Tækifærið til að upplýsa þjóðina var í vor, ekki núna.Lokasprettur beggja fylkinga mun líklega snúast um „maður á mann"-aðferð og að koma fólki á kjörstað fremur en nýjar upplýsingarFjármál hreyfinganna eru ógagnsæ og enginn veit hve miklu er eytt í kosningabaráttuna.Nauðsynlegt að ná utan um hversu mikla frumvinnu fjölmiðlar vinna til að fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Full ástæða til að taka það saman að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Umfjöllun Gímaldsins má lesa hér: Fundurinn sem enginn sagðist halda og rannsóknarsetrin þrjú sem tengjast Áfram ÍslandÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst 09.08.2026 49минRósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi meirihluti kjósenda flokksins að segja já í atkvæðagreiðslunni. Rósa Björk segir forystu flokksins verða að leggja við hlustir og bregðast við viðhorfsbreytingunni í flokknum.Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Rósu Björk um Evrópumálin, landsmálin, ríkisstjórnina, NATO, móralinn í flokknum og framtíðina. Meðal þess sem kemur fram í þættinum:Formaðurinn vill halda dyrum opnum en ekki lokuðum. Forystan þurfi að leggja við hlustir þegar rúm 93% kjósenda VG ætla að segja já samkvæmt nýrri könnun og um 65% eru hlynnt aðild.Nokkrar kanónur í flokknum eru búnar að lýsa afstöðu sinni opinberlega. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi formaður ætlar að segja nei í ágúst, Stefán Pálsson starfar með Áfram Ísland og ungliðahreyfing flokksins starfar með ungum Sjálfstæðis- og Miðflokksmönnum í baráttu fyrir NEI. Formaðurinn segir fjölbreyttar skoðanir endurspegla lýðræðislegan styrk hreyfingarinnar.Lífskjör og staða alþjóðamála eigi stærstan þátt í viðhorfsbreytingu til ESB.Áherslur VG þurfi að heyrast við samningaborðið verði viðræðum haldið áfram: náttúruvernd, auðlindir, hagsmunir bænda, sjávarútvegsmál, réttindi vinnandi fólks og viðbrögð við tækninýjungum.Ríkisstjórnin hafi ekki haldið vel á málinu og Samfylkingin verið fjarverandi í kosningabaráttunni.Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir virkjanablæti, aukið atvinnuleysi, lakan árangur í efnahagsmálum og fyrir að bregðast ekki nógu kröftuglega við útlendingaandúð.NATO er að veikjast og ný bandalög gætu orðið til.Vinstri græn hafa rætt mikið um fortíðina og átt í uppgjöri. Nú vill formaðurinn snúa sér og flokknum að framtíðinni. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Lifir þjóðin ágúst af eða deyr hún úr leiðindum? 06.08.2026 1чRitstjórn Gímaldsins tekur stöðuna á kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rætt er um nýjustu skoðanakönnun, breytta taktík stjórnmálaflokkanna, fjármál og baráttuaðferðir já- og nei-hreyfinganna, hvort þjóðin sé orðin þreytt á málinu og hvort þögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í umræðunni sé skynsamleg.Eitthvað er að klikka hjá Áfram Ísland því stuðningur við nei eykst ekkert.Eldra fólk er að verða jákvæðara samkvæmt nýrri könnun á meðan tvær grímur renna á miðaldra fólk.Rúm 93 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna ætla að segja já í ágúst. Ungliðahreyfing og áhrifafólk í flokknum berst fyrir nei-hliðina.Sjálfstæðisflokkurinn biður flokksfólk að „fylgja eftir“ vinum og vinnufélögum fram að kosningum. Aðferðin minnir á pólitíska eltihrella.Hreyfingar sem þurfa ekki að gefa upp fjárframlög geta nú tekið við fé umfram það sem flokkar mega þiggja. Stjórnmálaflokkar hvetja fjársterka til að láta fé af hendi rakna.Opnir fundir henta ekki öllum hreyfingum. Evrópuhreyfingin ætlar að beita maður á mann aðferðinni en Sjá stendur fyrir opnum fundum.Kristrún Frostadóttir vill forðast mistök Davids Camerons og heldur sig til hlés.Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum og með henni eru Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Sér tækifæri fyrir landsbyggðina 29.07.2026 30минReinhard Reynisson, sérfræðingur í byggðamálum, segir að ný eyjastefna Evrópusambandsins, sú fyrsta sinnar tegundar, geti reynst mikilvægt innlegg fyrir Ísland í hugsanlegum aðildarviðræðum. Hún taki sérstaklega á aðstæðum sem eigi vel við íslenskan veruleika: einangrun, háum flutningskostnaði og litlum heimamörkuðum. Erla Hlynsdóttir ræðir við Reinhard um byggðamál í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Farið er yfir hvernig byggðastefna Evrópusambandsins virkar, hvaða sérkenni Íslands gætu skipt máli í hugsanlegum viðræðum og hvort byggðastefna ESB geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð.Í þættinum kemur meðal annars fram:Byggðamál eru ekki hefðbundinn málaflokkur heldur sjónarhorn sem á að tryggja jafnræði fólks óháð búsetu og hafa áhrif á stefnumótun á mörgum sviðum. Reinhard bendir á að Ísland búi yfir ákveðinni sérstöðu og nefnir nýja eyjastefnu Evrópusambandsins sem dæmi um að sambandið sé að bregðast við sérstökum aðstæðum eyjasamfélaga. Hann segir umræðuna um undanþágur oft villandi og telur í mörgum tilvikum fremur vera um að ræða eðlilega aðlögun reglna að ólíkum aðstæðum en eiginlegar undanþágur. Að hans mati byggja íslensk byggðastefna og byggðastefna ESB á svipuðum grunnhugmyndum um að jafna stöðu byggða, þótt ESB leggi jafnframt ríka áherslu á að styðja þau svæði sem verði undir í samkeppni hins sameiginlega markaðar. Reinhard telur líklegt að meiri andstaða við ESB á landsbyggðinni skýrist meðal annars af því að umræðan hafi að stórum hluta snúist um hagsmuni landbúnaðar og sjávarútvegs. Hann segir ekki unnt að fullyrða fyrirfram um áhrif ESB-aðildar á íslenskan landbúnað eða aðrar atvinnugreinar. Slíkt mat verði fyrst trúverðugt þegar fyrir liggi samningur sem hægt sé að greina. Reinhard nefnir Skotland sem dæmi um svæði sem hafi notið verulegs stuðnings úr byggðasjóðum ESB og segir jafnframt að Finnland, Svíþjóð og Írland séu þau ríki sem Íslendingar geti helst borið sig saman við þegar kemur að byggðamálum. Hann segir umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þurfa meiri stillingu og jarðtengingu. Kosið verði í ágúst um hvort hefja eigi aðildarviðræður en ekki um endanlegan aðildarsamning, sem sé ekki til staðar.Frá sjónarhóli byggðamála telur Reinhard að möguleg ESB-aðild geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð, meðal annars með auknum stuðningi við atvinnuuppbyggingu, búsetu og fjölbreytt atvinnulíf í dreifbýli.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040) -
„Skemmdarverk á lýðræðislegri umræðu“ – Gauti B. Eggertsson um staðreyndir og rangfærslur 23.07.2026 1ч 7минGauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum segir það hafa verið hálfgerða tilviljun að hann fór að leggja sig fram um að leiðrétta rangfærslur í umræðu um Evrópumál og þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann hefur á undanförnum mánuðum birt greinar og útreikninga sem varpa ljósi á fullyrðingar í umræðunni sem ekki standast skoðun. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Gauta um þessa staðreyndavöktun, sem fer mikið til fram á samfélagsmiðlum, og um ógnir við lýðræðislega umræðu.Í þættinum kemur meðal annars fram:Ummæli Ólafs Ragnars um 25% atvinnuleysi ungmenna í Finnlandi byggja á misskilningi um mælingu atvinnuþátttöku. Hann gagnrýnir að slíkar upplýsingar séu bornar á borð fyrir fyrrverandi forseta og telur að Ólafur myndi aldrei fara viljandi með slíkar fleipur. Það sé illa gert að láta ungt fólk fá það á tilfinninguna að ef Ísland gengur í ESB verði erfitt að fá vinnuVaxtakjör almennings myndu klárlega batna við upptöku evru, enda eru raunvextir á Íslandi þeir hæstu í Evrópu. „Það er bara einfaldlega rangt“ að halda öðru fram, segir Gauti í viðtalinuGauti tekur dæmi um 60 milljóna króna húsnæðislán til 25 ára. Mánaðarlegar afborganir miðað við jafngreiðslulán væru 333.000 kr. á mánuði miðað við raunvexti á Íslandi en aðeins 220.000 kr. á evrusvæðinu. Alls fara 40 milljónir í vexti yfir lánstímann „í krónulandi“ en aðeins 6 milljónir „í evrulandi“ en hér má lesa grein Gauta um dæmiðTalan um að Ísland hafi aðeins tekið upp 13% af regluverki ESB er röng og byggir á að telja litla tilskipun um svínapest jafn þunga og heildar bankalöggjöf ESBFjölmiðlum ber ekki skylda til að gefa röngum og réttum upplýsingum jafnt vægi„Ég vildi að Íslendingar myndu temja sér betra hóf í þjóðfélagsumræðu og sérstaklega bera virðingu fyrir því að stundum eru hlutirnir réttir og stundum eru rangir,“ segir GautiGauti gagnrýnir „nýstárlegar kenningar“ um verðlag og segir engar deilur ríkja innan hagfræði um hvernig skilgreina beri verðlag. Tilraunir til að endurskilgreina verðlag sem hlutfall af tekjum snúi einfaldlega kaupmætti á hvolf og kalli það verðlag. Það sé eins og að segja að verðlag sé lægra á Seltjarnarnesi en í Reykjavík af því að fólk á Seltjarnarnesi sé með hærri launHann segir vel hægt að rökstyðja það að vilja vera utan ESB, þótt hann sé ekki á þeirri skoðun. Rökstuðningur á báða bóga verði þó að byggja á staðreyndum Hann segir afstöðu sína um að Ísland eigi að ganga í ESB grundvallast á fullveldi og varnar- og öryggismálumÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040) -
Ekki íþróttakeppni þar sem stórþjóðir valta yfir smáþjóðir 18.07.2026 39минEr samstarf Evrópuþjóða eins og íþróttakeppni þar sem litlar þjóðir sitja alltaf eftir en þær stærri taka bikarinn? Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti sem meðal annars hefur starfað sem forstöðumaður lagaskrifstofu EFTA, segir að sú mynd standist ekki skoðun.Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Dóru um hvernig hlutirnir virka í Brussel: muninn á EES og EFTA, tveggja stoða kerfið, hversu háð Ísland er Noregi í EES-samstarfinu, hvernig lög og reglur verða til innan ESB og um áhrif og völd Íslands innan núverandi samstarfs. Meðal þess sem kemur fram í þættinum:Tveggja stoða kerfið: hlutverk Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsinsEr Ísland viðhengi við Noreg í EES-samstarfinu?Hvernig verða reglur innri markaðarins í Evrópðu til: framkvæmdastjórnin, Evrópuþingið og ráðherraráðiðAf hverju Evrópuþingmenn skipa sér í flokka eftir stjórnmálaskoðun, ekki þjóðerniLandbúnaður og sjávarútvegur: hvað stendur utan EES-samningsins?Mýtan um „íþróttakeppnina" og það af hverju sex þingsæti þýða ekki áhrifaleysiMalta sem dæmi: 89% Maltverja eru ánægð með ESB-aðild. Malta er með sex manna þingflokk á Evrópuþinginu og á forseta þingsins Er fullveldisumræðan séríslensk, eða er hún líka til í öðrum aðildarríkjum? Í Belgíu var umræðan akkúrat öfug, Belgar litu á það sem staðfestingu á fullveldi að verða aðilar að Evrópubandalaginu, forvera ESBÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040) -
Er bannað að tala um álagningu á Íslandi? 15.07.2026 30минSamkeppniseftirlitið er nú með verðhækkanir á matvöru og eldsneyti til skoðunar en hagsmunasamtök kveinka sér undan því í stað þess að hvetja til þess að verð lækki og þar með verðbólgan.Eyrún Magnúsdóttir og Helga Arnardóttir, nýr liðsmaður Gímaldsins, ræða um hátt matvöruverð, methagnað matvörurisanna og af hverju enginn virðist geta sagt upphátt að álagning þurfi að lækka.Matvöruverð á Íslandi er nánast alltaf í toppsætinu í Evrópu, eina samkeppnin í háu matvöruverði er Sviss sem er stundum hærra. Þrír aðilar, Hagar, Festi og Skel, eiga nánast allar matvöru- og eldsneytiskeðjur landsins og stýra þar með verði á tveimur vöruflokkum sem heimilin komast ekki hjá að kaupa.Verðlagseftirlit ASÍ mældi allt annað en hóflegar hækkanir 2020-2023: lambalæri +13,5%, mjólk +14%, ostur +18% og 200 gr. pakki af Góu hraunbitum hækkaði um 62% á þremur árum, langt umfram nokkra hráefnisskýringu.Á sama tíma margfaldaðist hagnaður risanna: Hagar fóru úr 2,7 ma. kr. hagnaði (2021) í 7,4 ma. kr. (2025), Festi úr 2,3 ma. í 6,2 ma.Hvað þýðir hugtakið hagnaðardrifin verðbólga (gróðaverðbólga)? Varað var við henni strax 2023 en nær enginn ræðir um hana.Forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, hefur sætt harðri aðför fyrir að benda á staðreyndir þar til Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra steig fram og varði stofnunina.Taktík hagsmunaaflanna er alltaf sú sama: sá efasemdum um tölurnar og varpa sökinni yfir á neytendur.Efla þarf málsvara neytenda. Neytendasamtökin og Verðlagseftirlit ASÍ þyrftu meiri athygli, og fjölmiðlar hafa dregið úr neytendablaðamennsku, meðal annars af ótta við að styggja stóra auglýsendur.Verðbólga mælist nú 5,2% en forsenduákvæði kjarasamninga miðast við 4,7%. Samt beinist umræðan nær eingöngu að því að tala niður launahækkanir, ekki að því að stórfyrirtæki lækki álagningu.Spurt er: ef hagsmunasamtök eins og SA vilja í alvöru forðast frekari launahækkanir, því beita þau sér þá ekki fyrir lægra vöruverði?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040) -
„Aðgangur að húsinu en ekki öllum herbergjum“ í styrkjakerfi ESB 07.07.2026 30минEvrópskir styrktarsjóðir eru langstærsta alþjóðlega uppspretta styrkja inn í íslenskt vísinda-, mennta- og menningarsamfélag og aðgangur Íslands að þeim er vel tryggður í gegnum EES-samninginn. Ísland hefur þó enga formlega aðkomu þegar áætlanir eru mótaðar, en það myndi breytast með inngöngu í ESB. Þetta segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, í viðtali við hlaðvarp Gímaldsins. Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar.Við aðild EES árið 1994 opnuðust dyr íslenska þekkingarsamfélagsins að umtalsverðum styrkfjárhæðum og hafa Íslendingar verið mjög farsælir með styrkveitingar á undanförnum áratugum.Árin 2021–2027 er áætlað að íslenska ríkið greiði rúmlega 5 milljarða í rannsóknaráætlanir ESB en heimtur Íslendinga við styrkveitingar hafa verið umtalsvert meiri síðustu áratugi. Aðild að ESB myndi litlu breyta í heildarsamhenginu við styrkveitingar en Íslendingar fengju loks sæti við borðið og tækju þátt í ákvarðanatöku sem nú er nær eingöngu í höndum aðildarríkja ESB. Aðild að ESB myndi einnig opna dyr Íslendinga fyrir svokölluðum uppbyggingarsjóðum sem hafa styrkt innviði ESB-ríkja sem standa efnahagslega verr og eru með veika innviði. Íslenska ríkið hefur greitt háar fjárhæðir í þessa sjóði en ekki haft aðgang að þeim. Sjóðirnir hafa veitt styrki til uppbyggingar vegakerfis, atvinnulífs og fleira. Aðild að ESB hefði áhrif á aðra málaflokka eins og mögulega innviðauppbyggingu í landinu. Kostnaður íslenska ríkisins myndi ekki aukast verulega við aðild að ESB miðað við þær fjárhæðir sem nú þegar eru greiddar til styrktaráætlana Evrópusambandsins vegna EES-samningsins. Umsjón: Helga ArnardóttirÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Kosningabaráttan: Geta gervimenni klofið þjóðina? 03.07.2026 43минEyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir fara yfir kosningabaráttuna sem nú er að taka á sig mynd vegna atkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þær ræða nýjar baráttuhreyfingar, gæði umræðunnar og þá hættu að erlend ríki reyni að hafa áhrif á niðurstöðuna með upplýsingaóreiðu.Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki um aðild?Hvaða þýðingu hafa nýju já- og nei- hreyfingarnar fyrir þjóðfélagsumræðuna?Verður venjulegt fólk fyrir háði og spotti í baráttunni?Geta Halldór Benjamín og Sólveig Anna verið saman í liði? Erum við óvart farin að rökræða við rússnesk gervimenni á netinu?Hvað kostar að kaupa hundrað þúsund „áhrif" á samfélagsmiðlum?Mun baráttan kljúfa þjóðina?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Borgin, Bretland og Brexit á röngunni 27.06.2026 44минEyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða fyrstu hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík, tíu ára afmæli Brexit og óróa í breskum stjórnmálum, nýjan liðsmann Gímaldsins, áherslu á neytendaumfjöllun og nýja stjórnsýsluúttekt um Græna gímaldið.Hvað kemur í staðinn fyrir alla upplýsingafulltrúa borgarinnar?Verður upplýsingamiðluninni útvistað og mega borgarbúar búast við fleiri „labba og tala“-myndböndum? Hvaða mistök kostuðu breska Evrópusinna aðild að ESB?Breskur borgarstjóri verður næsti forsætisráðherraJá-eða-nei-fylkingar farnar að þjappa sér saman. Hvor fylkingin situr uppi með hræðsluáróðurinn um ESB?Hvað stendur í nýrri úttekt um Græna gímaldið og hvernig tengist hún tiltekt á skrifstofu borgarstjóra?Dýrasti matur í Evrópu og neytendaáherslur Gímaldsins Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur 24.06.2026 48минHvergi í Evrópu er dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana heldur áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili þar inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, en aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í ýmiss konar þjónustu heldur en í verði á matvörum. Verðskyn neytenda brenglast í verðbólgu segir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Ítarleg úttekt á matvöruverði og hækkunum undanfarinna ára. Viðmælendur í þættinum eru Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ og Brynhildur Pétursdóttur, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Þáttastjórnandi er Helga Arnardóttir blaðamaður og nýr liðsmaður Gímaldsins.Meðal þess sem fjallað er um í þættinum:Verðlag á Íslandi mælist 84% hærra en að meðaltali í 27 Evrópulöndum, samkvæmt úttekt Visku. Matvara er 55% dýrari en í ESB-ríkjunum, samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Hærri laun skýri ekki allan verðmuninn. Verðmunurinn sé nær tvöfaldur á við launamuninn, og ofurtollar og fákeppni skýri stóran hluta þess sem umfram er.Engin samkeppnislög ná yfir afurðastöðvar á Íslandi, sem mega því hafa með sér verðsamráð. Páll Gunnar Pálsson segir samningsstöðu bænda veika í því ljósi og hækkun á kjöti eftir 2022 viðvarandi meiri en í öðrum vöruflokkum.Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að lítil verðsamkeppni ríki á matvörumarkaði; samkeppnin snúist oft um önnur atriði á borð við útlit, stærð og fjölgun sjálfsafgreiðslukassa. Prís býður lægsta matvöruverðið, um 4% lægra, samkvæmt Verðlagseftirliti ASÍ.Hagnaður Haga, sem rekur meðal annars Bónus, var 7,4 milljarðar króna 2025 og hefur aukist um 4,7 milljarða á fimm árum. Hagnaður Festi, sem rekur Krónuna, var 6,2 milljarðar og jókst um 3,9 milljarða á sama tímabili, þar af var hagnaður Krónunnar einnar 2,9 milljarðar — tæpur helmingur af heildarhagnaði Festi.Viðar Ingason, hagfræðingur VR, segir laun venjulega hækka til að vinna upp verðbólgu sem þegar er orðin. Sambandið liggi alla jafna í báðar áttir, en algengara sé að það finnist frá verðlagi yfir í laun.Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, benti á hagnaðardrifna verðbólgu — svokallaða gróðaverðbólgu — strax árið 2023 þegar hann var hagfræðingur BHM.Samkeppniseftirlitið byggir á EES-samningnum og Páll Gunnar segir að án hans væri lítið sem ekkert samkeppniseftirlit á Íslandi.Að mati Hagfræðistofnunar myndi 25% lækkun matarverðs við ESB-aðild, eins og varð í Svíþjóð og Finnlandi, leiða strax til 3,5% lækkunar neysluverðs. Afnám tolla og annarra gjalda hefði umtalsverð áhrif til lækkunar.Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir verðskyn fólks brenglast í miklu verðbólguumhverfi. „Við þurfum þjóðarátak í nísku,“ segir Vilhjálmur Hilmarsson hjá Visku.Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þessi umfjöllun er opin en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. -
Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já 20.06.2026 14минLestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um: Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræðurmikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virkmótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefnu aðildarríkjaeldri og nýrri viðræðurammasamninganefndir Íslands og samráð innanlandsþjóðaratkvæðagreiðslu og stjórnarskrárbreytingarFullgildingu samnings á Alþingi og gildistökukosningar til EvrópuþingsinsHægt er að lesa fréttaskýringuna á vef Gímaldsins, skoða skýringarmyndir sem henni fylgja og lesa tengt efni. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þessi lestur er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Популярен в
Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.