Hið yfirnáttúrulega
Ghost Network®
0
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
Епизоди
-
119. Galdrar - nornir - álög 14.09.2026 10минÍ þessum þætti tölum við um galdra, hreinsanir, hugarfar og ásetning. Hvað við erum að gera og galdra fram þessa dagana og förum yfir í extreme nornir og nornamenningu sem finnst að mestu erlendis.Galdrar, álög og bölvanir hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og endurspegla ríka þörf mannsins fyrir að skilja, stjórna eða hafa áhrif á umhverfi sitt með yfirnáttúrulegum leiðum.Nútímanornir eru oftast andlegir leiðbeinendur sem vinna með náttúruna, kristalla, jurtir og heilunar orku til að hjálpa fólki í daglegu lífi. En svo eru aðrar "nornir" sem fara aðeins lengra og vilja vinna með dekkri öfl, þær eru ekki að þessu að heillindum og gera allskonar til þess að hafa pening af fólki og setja smá skugga á orðið norn.Sumar af þessum sem starfa sem norn og eru bara atvinnunornir þær hafa farið aðeins út af veginum og fara galdrarnir að snúast um að setja á álög fyrir viðskiptavini, sem í nútímasamhengi þýðir að beina orku og ásetning á ákveðinn farveg fyrir fólk.Algengt er að nornir séu fengnar til að framkvæma ástargaldra, laða að peninga og velgengni í viðskiptum, eða búa til sérstaka varnargaldra fyrir heimili.Á sama tíma er jafnvel enn stærri markaður í því að setja á OG taka af álög og bölvanir og taka fúlgu fjár fyrir.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
118. Íslenskar draugasögur - Poltregeist draugar 07.09.2026 16минÍslenskar draugasögur eiga sér djúpar rætur í þjóðarsálinni og endurspegla lifnaðarhætti, einangrun og harðbýla náttúru landsins í gegnum aldirnar. En sumir draugar skilja eftir sig meiri spurningar en aðrir og eru eftirminnilegri.Vorið 1964 á sveitabænum Saurum í Austur Húnavatnssýslu gerðist eitthvað sem skók allt íslenska samfélagið. Þetta var ekki hefðbundin sending í leit að hefnd, heldur fágætt og ofsafengið dæmi um ærsladraug eða poltergeist á íslenskum sveitabæ.Draugagangurinn var svakalegur og vitnin mörg, þetta mál varð að algeru fjölmiðlafári og varð rannsóknarefni. Hlutir flugu um loftið, þungir skápar ultu um koll og ískaldur gustur fyllti baðstofuna á meðan fjölmiðlar, prestar og sálarrannsakendur fylgdust agndofa með.Í þættinum í dag köfum við ofan í magnaðasta draugagang nútímasögunnar á Íslandi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
117. Sólgos, sólmyrkvi, fullt tungl - Jörðin er að ganga í gegnum mikla orkubreytingu. 31.08.2026 9минJörðin og alheimurinn eru að ganga í gegnum gríðarlega orkubreytingu!Við höfum nýlega upplifað bæði sólmyrkva og tunglsmyrkva, en í yfirnáttúrulegum skilningi eru þetta ekki bara stjarnfræðilegir atburðir heldur öflugar gáttir. Sólmyrkvinn táknar dramatísk þáttaskil þar sem ljósið víkur augnablik fyrir skugganum, sem neyðir okkur til að horfast í augu við okkar eigin dökku hliðar og loka gömlum dyrum. Tunglsmyrkvinn fylgir svo í kjölfarið með tilfinningalega úthreinsun, þar sem hlutir sem hafa verið faldir í undirdjúpunum koma upp á yfirborðið.Á sama tíma er eitthvað stórfellt að gerast í hinu ósýnilega orkusviði jarðarinnar. Schumann resonance, sem oft er kölluð hjartsláttur jarðar, hefur verið að sýna óvenjulega tinda og sveiflur. Þessi náttúrulega rafsegultíðni jarðar, sem venjulega slær í rólegum 7,83 hertzum, virðist vera að rjúka upp, og margir trúa því að jörðin sé að hækka tíðni sína. Þegar þessi tæknilegi hjartsláttur jarðar mætir kosmísku orkunni frá smyrkvanum, þá finnum við það beint á eigin skinni. Það lýsir sér í skrýtnum draumum, skyndilegri þreytu, höfuðverk eða tilfinningu um að tíma brenglun.Við erum bókstaflega að tengjast nýrri orku, endurforrita okkar eigin tíðni og stíga inn í hærra meðvitundarstig. Spurningin er bara: hefur þú fundið fyrir orkunni?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
116. Andlegt trúnó 24.08.2026 10минVið erum á persónulegum nótum i þessum þætti og segjum frá hvað við höfum verið að upplifa frá okkar andlegu hlið og ástundun í sumar. Lífið er allskonar og suma daga er maður í geggjuðu jafnvægi og með allt á hreinu, aðra daga er maður með allt niður um sig, í lárri tíðni að reyna að koma sér á andlega vagninn aftur og lyfta sér upp.Okkur finnst mikilvægt að lýsa raunveruleikanum eins og hann er hverju sinni og tala í einlægni.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegap.s. Við vonumst til að sjá ykkur á Heimsljósi 19-20 september!Linkur á Heimsljós:https://heimsljos.is/ -
115. Gunnar Dan - Ufo 202, kómísk uppljóstrun með Dr Phil og allt milli himins og jarðar. 19.08.2026 1ч 20минGunnar Dan vinur okkar hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum enda er hann aðal upplýsingaveita Íslendinga um það sem er að gerast í Ufo heiminum. Hann var að gefa út bókina sína Ufo 102 sem er hreint út sagt stórkostleg og full af fróðleik!Gunnar hefur upplifað margt í lífinu og andlega vakningin er að koma til hans af miklum krafti og tenging við hinn æðri mátt, hver sem þessi máttur er. Í þessum þætti förum við um víðan völl, ræðum um stýrðu uppljóstrnunina sem er vægast sagt kómísk þegar enginn annar en Dr Phil er kominn á settið. Við ræðum um Dmt og Ayahuasca í andlegum tilgangi og margt fleira.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaVið mælum svo sannarlega með að þið fylgist með honum Gunnari og Geimsýrunni þar sem hann segir okkur nánast daglega frá nýjum fréttum.Bókina Ufo 101 og Ufo 102 er að finna í öllum helstu bókasölum og bókasöfnum.Þið getið fylgt Gunnari á facebook og fengið nýjustu fréttir þar:https://www.facebook.com/gunnar.wiiumGeimsýran á youtube:https://www.youtube.com/@vottahusi1119Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskrift -
114. Afhverju eru þessir vísindamenn að deyja? 17.08.2026 11минRúmlega tíu toppvísindamenn með háleynilega öryggisvottun í geimvísindum og kjarnorkutækni hverfa eða finnast látnir við furðulegar aðstæður, spyrja netverjar sig, er þetta tilviljun? Sú staðreynd að eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings og FBI þurftu að skerast í leikinn þykir mörgum sanna að stjórnvöld séu að reyna að stýra umræðunni og hylma yfir sannleikanum.Nýjasta tilvikið er hann Joe Felz sem lést núna í sumar, hann safnaði og skjalfesti sjaldgæf fornrit og gamlar biblíur, sem vöktu mikla athygli.Það sem margir þessara vísindamanna og uppljóstrara eiga sameiginlegt er það að margir hafa gert yfirlýsingar um það að þau hafi ekki verið í sjálfsvígshugleiðingum og ef þau myndu finnast látin þá væri það ekki á þeirra vegum heldur einhver annar sem var þeim að bana. Það er stór undarlegt að margir þessara vísindamanna höfðu svipaðar sögur að segja, t.d. með það að fylgst hafi verið með þeim, sum höfðu verið fyrir hljóðbylgju árásum eða verið elt á röndum í einhvern tíma til þess mögulega að láta þau hljóma og líta út fyrir að hafa misst vitið og síðan "framið sjálfsvíg".Er þetta tilviljun? Eru þau öll látin? Eða er mögulega djúpríkið með þau í haldi að plotta eitthvað svakalegt.....?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
113. Tvífarar 10.08.2026 11минEigum við okkur öll tvífara? Einhver sem gengur um á jörðinni sem er alveg eins en hefur ekki hugmynd um það?Í þessum þætti ætlum við að tala um tvífara. Er þetta fyrirbæri bara algjörlega tilviljunarkennt eða er eitthvað yfirnáttúrulegt á bakvið það?Paul McCartney lenti í slæmu bílslysi Þegar Bítlarnir voru á hátindi frægðar sinnar og vilja margir meina að hann hafi látist í slysinu og var fenginn tvífari til að taka við. Stórt samsærismál hefur verið um söngkonuna Avril Lavigne að hún hafi í raun látist ung og að tvífari hafi tekið hennar stað.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
112. Er jörðin flöt? 03.08.2026 10минÍ þessum áskriftarþætti ætlum við að tala um jörðina. Er jörðin stór blár hnöttur eða er hún mögulega eins og risastór pönnukaka með glerhvelfingu yfir sér? Er ísveggurinn á suðurpólnum að passa upp á að við förum ekki fram af jörðinni og leynast mögulega löngu horfnir mengingaheimar á bak við hann?Við ætlum að ræða allar þessar pælingar og margar fleiri Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti!www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
111. Voru risaeðlur kannski bara drekar? 27.07.2026 10минVið vorum að keyra frá Blönduósi til Reykjavíkur og vorum í svo miklu stuði að ræða um allskonar yfirnáttúrulega hluti að við ákváðum að skella í þátt á leiðinni. Hljóðgæðin eru því ekki þau bestu, en þetta er hrár og ótrúlega skemmtilegur þáttur þar sem við ræðum um stóru spurninguna.....Voru risaeðlur mögulega bara drekar?Ef við setjum upp samsærisgleraugun og skoðum söguna út frá þeirri kenningu að risaeðlur og drekar hafi verið sama fyrirbærið, þá breytist opinbera tímalínan algjörlega. Samsæriskenningin gengur út á það að risaeðlur hafi ekki dáið út fyrir 66 milljónum ára, heldur hafi vísindasamfélagið hulið þann sannleika að menn og risaeðlur lifðu hlið við hlið fram á miðaldir og að þessi dýr hafi einfaldlega verið kölluð „drekar“.Sterkasta vopn þessarar kenningar er sú staðreynd að nánast allir menningarheimar sögunnar, sem höfðu engin samskipti sín á milli, eiga sjálfstæðar sögur og myndir af risavöxnum eðlum. Frá Kína til Evrópu, og frá frumbyggjum Ameríku til Egyptalands, teiknaði fólk skriðdýr með langa hálsa, sterka hala og ógnvænlegar klær löngu áður en nútíma steingerfingafræði hófst á 19. öld. Spurningin sem samsæriskenningamenn spyrja er: Hvernig gátu allar þessar ólíku þjóðir lýst sömu dýrunum svona nákvæmlega ef þær sáu þær aldrei lifandi?Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti!www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
110. Þórunn - Nornin í þér 22.07.2026 1ч 29минÞórunn Kristín lýsir sér sjálfri sem rammíslenskri norn. Hún hefur iðkað þessi fræði lengi og er höfundur bókarinnar Nornin í þér þar sem hún deilir m.a. eigin reynslu og þeirri andlegu þekkingu sem hefur fylgt mönnunum í gegnum aldirnar.Við ræðum allt milli himins og jarðar, hvernig hún fann innri nornina í sér og hvað varð til þess að hún virkjaði næmnina og byrjaði að sjá heiminn í gegnum augu nornarinnar og svörum spurningunni hvað er að vera norn?Bókin er leiðarvísir sem á að hjálpa lesendum að finna sinn innri styrk, tengjast náttúrunni og hleypa „norninni“ innra með sér út. Þórunn lítur á nornir sem heilara, grasalækna og fólk sem vill skilja eftir sig fallegt ljós í heiminum. Í stað þess að fjalla um galdra sem einhverja óraunverulega bíómyndatöfra, kennir bókin hvernig hægt er að nýta ásetning, galdra og helgisiði við hversdagslegar athafnir til að bæta líf sitt og auka sjálfstraust.Nornin í þér er svo falleg bók sem allar nornir ættu að eiga!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur -
109. Nauralink og Ai 20.07.2026 10минÍ þættinum í dag beinum við sjónum okkar að tækninni sem gæti breytt mannkyninu að eilífu og byrjum á því að skoða Neuralink. Þetta fyrirtæki Elon Musk vinnur að því að græða örsmáan tölvukubb beint í mannsheilann, sem í fyrstu á að hjálpa lömuðu fólki en stefnir á að tengja huga okkar beint við stafræna heiminn. Hinn helmingurinn af þessari jöfnu er gervigreindin, eða AI, sem er að þróast á ógnarhraða og á samkvæmt Musk eftir að verða manninum yfirsterkari nema við finnum leið til að hugsa og vinna á ljóshraða með henni. Þegar þessi tvö risastóru öfl mætast kvikna hinar hrollvekjandi samsæriskenningar sem við ræðum í þættinum. Við veltum fyrir okkur hvort Neuralink og AI verði notuð af stórfyrirtækjum til að ná algjörri hugarstýringu og fylgjast með hverri einustu hugsun okkar, og spyrjum hvað gerist ef tölvuþrjótar geta bókstaflega „hakkað“ meðvitund fólks. Erum við að horfa á stærsta framfaraspor sögunnar eða upphafið að dökku tækniræði þar sem frjáls vilji heyrir sögunni til?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
108. Cern og áhrif þess á okkur. 13.07.2026 10минÍ dag ætlum við að kafa ofan í einn dularfyllsta og umtalaðasta stað jarðarinnar: CERN, Evrópsku kjarnorkurannsóknastofnunina í Sviss. Þar neðanjarðar hvílir stærsti eindahraðall heims, þetta eru 27 kílómetra löng rör ofan í jörðinni þar sem vísindamenn láta atóm rekast saman á nánast ljóshraða til að skilja uppruna alheimsins og finna hina svokölluðu „guðseind“.En einmitt vegna þess hve rannsóknirnar eru flóknar og framandi, hefur CERN orðið að algjörri gróðrarstíu fyrir villtar samsæriskenningar. Sú lífsegasta segir að verið sé að opna gáttir yfir í aðrar víddir eða samhliða alheima, sem sumir telja þessi vísindatilraun sé að breyta tímalínunni okkar og gæti verið útskýringin á Mandela-effekt. En aðrir óttast að tilraunirnar skapi svarthol sem gætu gleypt jörðina, eða að vísindamennirnir séu að fást við myrk andleg öfl en kenningarnar fengu rækilega byr undir vængi þegar stytta af hindúaguðinum Shiva, guði eyðingarinnar, var reist fyrir utan höfuðstöðvarnar.Hvaða áhrif ætli Cern hafi á jörðina og okkur mannfólkið? Nú hefur verið slökkt á þessu tæki vegna "viðhalds" næstu 4 árin...... og telja margir að það muni valda því að allskonar erfiðir atburðir munu eiga sér stað og að þetta hafi mun meiri áhrif á okkur en vísindamenn vilja meina.Þú getur hlustað á þáttinn í fullri lengd inn á Patreon með því að gerast áskrifandi.www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
107. Oliver Tree, suðurskautið og samsæri innan tónlistarbransans. 06.07.2026 9минÍ þessum þætti segir Selma okkur frá tónlistamanninum Oliver Tree en honum tengjast nokkrar samsæriskenningar.Hann reyndi að slíta sig lausan úr elítunni og um leið og hann náði að slíta plötusamningi sínum lést hann í furðulegu þyrluslysi.Oliver gaf út heimildamynd um Suðurskautslandið og dvaldi þar í rúmt ár og sagðist hafa séð ótrúlegustu hluti þar og ekki jarðneska!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í ásrkiftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega -
106. Að falla í trans - transheilun, transmiðlun ofl. 29.06.2026 16минÍ þessum þætti ætlum við að ræða aðeins meira ýtarlega um hvað það er að falla í Trans hvort sem það ertengt miðlun eða heilun.Við ræðum örlítið ítarlegra okkar upplifun og svo fjöllum við einnig um nokkra fræga Trans miðla sem gerðu ótrúlega hluti í trans ástandi.Helen Duncan: Síðasta konan sem var dæmd fyrir að vera norn! Hún var öflugur transmiðill og svokallaður efnismiðill. Hún gat látið andana sem hún var að tengjast birtast fyrir framan sig og lenti í vandræðum þegar hún uppljóstraði óvart leynilegum hernaðar leyndarmálum.Chico Xavier Skrifaði 450 bækur á meðan hann var í Trans. Hann leysti meðal annars morðmál og var tilnefndur til Friðarverðlauna Nobels.Listinn yfir magna Transmilðla er klárlega langur og munum við eflaust taka fleirri þætti um þetta málefni.Komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
105. Akashic skrárnar og heilun með Stellu Levy 22.06.2026 19минÍ þessum þætti fáum við að vita ALLT um Akashic skrárnar, hvernig þær virka og hvernig unnið er með að heila þær og okkur. Við erum báðar í heilunarmeðferð hjá Stellu þar sem hún skoðaði okkar Akashic skrár og förum við yfir hvernig þetta virkar allt saman. Að okkar mati er þetta mögnuð og heildræn heilun á fyrrilífum og karma.Akashic skráin þín, eða sálarbókin þín, er eins og lifandi gagnagrunnur sem inniheldur ekki aðeins upplýsingar um þitt núverandi líf, eða upplýsingar um öll þau líf sem þú hefur lifað í fortíðinni og/eða hvað þú ætlar þér í framtíðinni, heldur allar aðrar tímalínur, allar leiðir sem ekki hafa verið nýttar og öll möguleg tækifæri þar á milli.Akashic skrárnar eru geymdar í eins konar (orku) bókasafni, í 5. víddinni, með upplýsingum sem innihalda allar upplýsingar um sál þína og ferðalag hennar frá upphafi. Þær spanna fyrri líf, núverandi holdgervinga og framtíðarmöguleika.Ansi mörg okkar eru með einhverskonar stíflur,lokur eða hindranir sem gefa okkur ekki fulla yfirsýn yfir val og ákvarðanir okkar og/eða hegðun. Þessar lokur gætu hafa verið gagnlegar á einhverjum tímapunkti í lífi okkar til að dafna, líða vel eða hreinlega til að geta lifað af, en eins mikið og þeir hjálpuðu okkur á einum tímapunkti, gætu þeir verið að hindra okkur núna. Að fá lestur á Akashic skránum getur á gætilegan og kærleiksríkan hátt fjarlægt þessar lokur og stíflur og minnt þig á sannleikann þinn á þínu sálarstigi, hver þú ert í raun og veru, ekki hver þú varðst vegna þrýstings frá fólki og/eða samfélagi.Akashic skrárnar hjálpa þér að læra, að skilja og heila tilfinningalegan sársauka. Og þannig getur sálin losað sig við marga hlekki, skugga, strengi og annað slíkt sem heldur aftur af henni og haldið áfram að þroskast og þannig færst nær næstu orkuvídd í þroska.Þú getur bókað tíma í heilun hjá Stellu hér:https://akashicheilun.com/Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
104. Stella Levy 17.06.2026 1ч 38минHin magnaða Stella kom í viðtal til okkar alla leið frá Noregi. Hún er norn af guðs náð og hefur sankað að sér allskonar námi í andlegum málefnum gegnum tíðinaHún hefur lært Usui reiki, angelic reiki (englaheilun) og dreka- og einhyrningaheilun. Einnig les hún í Akashic skrárnar (alheimsskrár sálarinnar). Hún leggur og les í tarot spil, talnaspeki og pendúl. Hún er vægast sagt alger viskubrunnur og það er okkur heiður að fá að kafa ofan í hennar visku, fræðast og læra!Stella hefur alla tíð verið skygn og næm og kippir sér ekkert upp við það að sjá ljósveru standa yfir sér í sturtunni. Hún er tengd drekaorku og segir okkur allt um þetta í þessum þætti.Stella er alger kærleiskmoli, ljósvera og nærveran hennar er svo heilandi.https://akashicheilun.com/Fylgist með henni á Tiktok undir notendanafninu: 19stella75https://www.instagram.com/stellajorunn/Komdu í áskrift og fáðu enn meira yfirnáttúrulegt efni til að hlusta á og fræðast umwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkarFáðu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt. Nýr þáttur alla mánudaga og ýmis aukaefni. GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift -
103. Samsæri tengt world cup, geimverur og allt það undarlega sem er í gangi þessa dagana. 15.06.2026 9минhæÞað er allskonar stór undarlegt í gangi þessa dagana og er stemningin í loftinu bara pínu skrítin að okkar mati. Maður veit ekkert hverju maður á að trúa lengur og sögusagnir og samsæri spretta fram úr öllum áttum, geimveru fréttir hjá þingmönnum og opinberum starfsmönnum, svakaleg vakning og allskonar, það er eiginlega bara allt í gangi!Við förum um víðan völl í þessum þætti, ræðum m.a. samsæriskenningar um world cup sem var að byrja og þar eru heldur betur dramatískar kenningar sem spennandi verður að sjá hvort munu rætast eður ey. Við tökum öllu með fyrirvara en skemmtum okkur konunglega að ræða þessi stór undarlegu og yfirnáttúrulegu mál.Komdu í áskrift og fáðu þætti í hverru viku!www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
102. Draugagangur í Arthur Findlay 08.06.2026 14минArthur Findlay College sem er staðsettur í hinu glæsilega Stansted Hall á Englandi, er ekki aðeins þekktur fyrir kennslu í miðlun og andlegum málefnum heldur einnig fyrir að vera talið eitt af svokölluðum “hot spots” andlegra upplifana. Margir sem heimsækja staðinn lýsa honum sem „charged place“ eins og andrúmsloftið sé hlaðið sérstakri orku sem erfitt sé að útskýra.Í gegnum árin hafa nemendur og gestir sagt frá alls kyns furðulegum atvikum og upplifað allskonar skemmtilegan draugagang: ljós sem blikka án skýringar, skyndilegum kulda sem leggst yfir ákveðin svæði, óútskýrð hljóð og jafnvel húsgög sem hafa hreyfst af sjálfu sér. Aðrir hafa fundið fyrir nærveru ósýnilegra gesta eða séð skugga bregða fyrir.Við upplifðum allskonar yfirnáttúrulegt í skólanum og bekkjafélagar okkar urðu vitni af ótrúlegum draugagangi! Við segjum frá öllu þessu í þessum þætti.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
101. Ufo og alien disclosure - Hvað er verið að plana? 01.06.2026 9минUndanfarið hefur umræðan um UFO og opinbera birtingu og allskonar upplýsingar um geimverur aukist til muna, en á bak við tjöldin gæti verið að krauma dularfullt plan djúpríkisins og eru uppljóstrarar að segja að árið 2027 mun þetta "plan" koma upp á yfirborðið og þá hefst í raun leiksýningin.Það hefur verið talað um að djúpríkið sé búið að vera hægt og rólega að setja upp sviðsmynd og planta fræum í okkur "venjulega fólkið" og nú árið 2027 muni koma „innrás“ úr geimnum. Um er að ræða mögulega manngerða aðgerð þar sem valdamiklir aðilar nýta leynilega tækni (mögulega frá geimverum) til þess að sviðsetja alheimsógn úr geimnum.Markmiðið? Að skapa samfélagslegan ótta, sameina þjóðir undir eina stjórn og herða eftirlit með almenningi. Í þessum þætti skoðum við þetta og spyrjum okkur hvort árið 2027 verði stærsta tæknibrella sögunnar eða blákaldur veruleiki?Komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega -
100. Andleg árás – Spiritual Attack 27.05.2026 1ч 14минAndleg árás kemur fyrir flesta hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Það er mikilvægt að þekkja merkin og ná að breyta þessari neiðkvæðu orku áður en það nær tökum á þér.Þegar fólk byrjar að vakna andlega, styrkja innsæið sitt og tengjast hærri orku er oft sagt að það geti orðið næmara fyrir neikvæðum áhrifum sem reyna að skapa ótta, efa og orkuleysi.Andleg árás getur byrjað sem neikvæðar hugsanir, sjálfsefi, kvíði eða tilfinning eins og allt fari á versta veg. Sumir upplifa martraðir, orkuleisi eða að þeir missi tengingu við eigin kraft og ljós. Í andlegum kenningum er talað um að markmiðið sé að halda manneskju fasti í lágri tíðni svo hún nái ekki að vaxa andlega eða sjá eigin styrk.Margir trúa því að því meira ljós sem einstaklingur ber í sér, því meiri andleg átök geti hann upplifað. Þess vegna leggja margir áherslu á að vernda orkuna sína með hugleiðslu, bænum, orkubreinsun og því að forðast neikvæð áhrif. Einnig er talað um mikilvægi þess að hlusta á innsæið sitt og styrkja tenginguna við sjálfan sig og jákvæða orku.Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? Komdu í áksrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Популярен в
Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.