Grjótkastið

Grjótkastið

Björn Ingi Hrafnsson
Държава Исландия
Език IS
Епизоди 67
Последен 10.09.2026

Grjótkastið er íslensk hlaðvarpsþáttaröð sem fjallar um málefni líðandi stundar. Þættirnir innihalda fréttaskýringar, pistla og viðtöl við ýmsa aðila. Dagbókarbrotum er einnig varpað fram í hverjum þætti.

Епизоди

  • Kreppa í kortunum 10.09.2026 52мин
    Kannski ekki skemmtiefni, en samt skylduhlustun. Agnar Tómas Möller og Þorbjörn Atli Sveinsson rýna í fjárlagafrumvarpið og möguleg áhrif þess, en líka í ískyggilega þróun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem margir telja vísbendingu um yfirvofandi alvarlega kreppu á Vesturlöndum og víðar.
  • Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB? 05.09.2026 38мин
    Frosti Logason og Hjörtur J. Guðmundsson ræða viðbrögðin við NEI-inu, ummæli stækkunarstjóra ESB, stöðu ríkisstjórnarinnar og utanríkisráðherrans sérstaklega, alla þá sem sáu feitt djobb í útlöndum í hillingum og margt fleira.
  • Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn 27.08.2026 19мин
    Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir tekur á sig gusur fyrir að fylgja sannfæringu sinni og er ríkisstjórnin öðrum þræði að fá á sig mælingu á laugardaginn?
  • Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild 25.08.2026 20мин
    Dr. Birgir Guðmundsson prófessor emeritus um mismunandi viðhorf íbúa landsbyggðarinnar gagnvart aðild að ESB og íbúa höfuðborgarsvæðisins, stöðu málsins innan stjórnmálaflokkanna, þátt fjölmiðla í aðdraganda þjóðaratkvæðis og margt fleira.
  • ESB vill Ísland inn til að þrýsta á Noreg 24.08.2026 34мин
    Fáir þekkja innviði Evrópusambandsins betur en Dr. Gunnar Pálsson sem starfaði í utanríkisþjónustu Íslands í fjörtíu ár og var meðal annars sendiherra hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu sjálfu. Hann veitir okkur einstaka innsýn í það valdatafl sem er að baki áhuga ESB á aðild Íslands og hvernig farið er með umsóknir ríkja og aðildarviðræður. Skylduhlustun.
  • Viðreisn hefur hina stjórnarflokkana að fíflum 22.08.2026 15мин
    Símtal dagsins er við Guðmund Fetram Sigurjónsson athafnamann á Ísafirði um komandi þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.
  • Hefur ESB-atkvæðagreiðslan áhrif á Peningastefnunefnd? 17.08.2026 49мин
    Skuggabankastjórnin kemur saman til að ræða stöðu og horfur, enda vaxtaákvörðun framundan í vikunni. Hefur þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB áhrif á þá sem sitja í peningastefnunefnd? Verða viðfangsefnin hin sömu í haust hvort sem þjóðin segir nei eða já? Ummæli forsætisráðherra um atvinnulífið og verðbólguna koma við sögu, sem og fjárlög næsta árs sem eiga að verða hallalaus. Þýðir það alvöru hagræðingu eða enn frekari skattahækkanir?
  • Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga 18.05.2026 48мин
    Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.
  • Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta 15.04.2026 42мин
    Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.
  • Baráttan um Ísland 09.04.2026 1ч 16мин
    Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.
  • Hvar ertu litla saklausa Ísland? 31.03.2026 1ч 14мин
    Í þessum þætti:Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna.Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar?Munu kjósendur vilja nota tækifærið og refsa stjórnarflokkunum fyrir sífellt óvinsælli ríkisstjórn?Af hverju fáum við ekki betri skóla og kennslu, þegar við setjum meira fjármagn í þennan málaflokk en aðrar þjóðir?Hamas-frétt Moggans og átök í undirheimunum, erum við að lenda á sama stað og hin Norðurlöndin?Solaris-málsóknin gegn formanni Sjálfstæðisflokksins, þingsályktunartillaga Karls Gauta ofl um bann við að hylja andlit í opinberu rými.Hundrað ára afmælis landsmálafélagsins Varðar minnst í nýrri bók.Hvað meinar Tony Blair með því að vinstrið verði að gera upp dálæti sitt á íslamistum, sem vilja ekki aðlagast vestrænum samfélögum?
  • Féllust seðlabankastjóra hendur? 24.03.2026 52мин
    Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?Í seinni hluta þáttarins koma þau Einar Jóhannes Guðnason og Signý Tryggvadóttir og ræða stöðu mála í Kópavogi og Hafnarfirði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, þar sem þau eru bæði í framboði.
  • Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum 16.03.2026 53мин
    Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.
  • Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum 24.11.2025 53мин
    Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.
  • Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkun 14.11.2025 1ч 16мин
    Skuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur sem telst skylduhlustun.
  • Það er töff að vera trúaður 04.11.2025 48мин
    Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í lagi að tala um trúna?
  • Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáli 31.10.2025
    Ómar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum fasteignamarkaði og deila pælingum sínum og stöðumati með þjóðinni.
  • Vinstri femínistar eiga ekki jafnréttisumræðuna 21.10.2025 50мин
    Félagsfræðingurinn Heiðdís Geirsdóttir og foreldrafræðingurinn og uppeldisráðgjafinn Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage ræða jafnréttismál í víðum skilningi, velferð og nám barna, símabann í skólum, leikskólamál í Kópavogi og í Reykjavík, skóla án aðgreiningar, líðan barnanna okkar og margt fleira í sérlega áhugaverðu spjalli.
  • Pólitísk vakning og ferðalag ungrar konu frá VG og Stundinni yfir í Miðflokkinn 14.10.2025 1ч 5мин
    Félagsfræðingurinn Hlédís Maren var í ungliðastarfi VG og blaðamaður á Stundinni, en lætur nú til sín taka í Miðflokknum og sat landsþing hans um helgina. Þar var líka hlaðvarparinn Þórarinn Hjartarson sem einnig er stjórnmálafræðingur og hnefaleikaþjálfari. Þau ræða aukinn áhuga ungs fólks á stjórnmálum, nýjar áherslur kvenna í jafnréttismálum, komandi sveitarstjórnarkosningar og margt fleira í stórfróðlegu spjalli sem vekja mun mikla athygli.
  • Hvað er eiginlega að gerast? 26.09.2025 58мин
    Er kreppa í kortunum samfara óvissu um stríðsátök? Hvers vegna gengur ekkert að ná verðbólgunni niður? Hvaða vandamál hrjáir íslenska hlutabréfamarkaðinn? Hvers vegna er ákveðnum hópi haldið nauðugum á leigumarkaði? Hvað er eiginlega framundan í efnahagsmálum heimsins og hvaða áhrif hefur það hér á landi. Agnar Tómas Möller fjárfestir og einn okkar helsti greinandi í þeim efnum svarar því á dýptina í áhugaverðu spjalli við Björn Inga Hrafnsson.

Популярен в

Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.