Af stað

Af stað

RÚV Hlaðvörp
Държава Исландия
Жанрове Society & Culture, Places & Travel
Език IS
Епизоди 30
Последен 08.08.2025

Þættir þar sem sagt er frá ýmsum stöðum um allt land. Stöðum sem eiga sér sérstakt pláss í hjörtum viðmælenda. Þetta er önnur þáttaröðin af þessum persónulegu ferðaþáttum. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Епизоди

  • Svínanes 08.08.2025 15мин
    Sigurlaugur Ingólfsson, sagn- og fornleifafræðingur, segir frá jörðinni Svínanesi á sunnanverðum Vestfjörðum. Jörðin er komin í eyði en þar bjuggu forfeður hans áður, kynslóð fram af kynslóð.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Möðrudalur á Fjöllum 07.08.2025 15мин
    Urður Snædal, þýðandi og prófarkarlesari, segir frá minningum sínum úr Möðrudal á Fjöllum. Þar dvaldist hún ótalmörg sumur frá því hún var barn og foreldrar hennar ráku vegasjoppuna Fjallakaffi.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Spákonufell 06.08.2025 15мин
    Magnús B. Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri á Skagaströnd, segir frá Spákonufelli sem er einn af hans eftirlætisstöðum og hefur mikið gildi fyrir alla Skagstrendinga.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Laugavegur í Reykjavík 05.08.2025 15мин
    Kristinn Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands, segir frá Laugaveginum í Reykjavík og hvernig sú gata hefur verið miðpunkturinn í lífi hans og fjölskyldunnar í gegnum áratugina.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Húsin á Djúpavogi 04.08.2025 15мин
    Þorbjörg Sandholt skólastjóri á Djúpavogi, Obba eins og hún er alltaf kölluð, hugleiðir um sinn eftirlætisstað og spyr sig hvað gerir staði að uppáhaldi. Hún segir sérstaklega frá garðinum við hús ömmu sinnar í Grænuhlíð.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bæjarskersfjara 01.08.2025 15мин
    Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri í Sandgerðisskóla, segir frá tengslum sínum við Bæjarskersfjöruna í heimabæ sínum Sandgerði. Þar hefur hún átt margar góðar stundir og iðkar þar sjósund af kappi.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Ólafsdalur í Gilsfirði 31.07.2025 15мин
    Steinþór Logi Arnarsson, sauðfjárbóndi á Stórholti í Dölum og formaður Samtaka ungra bænda, segir frá Ólafsdal í Gilsfirði. Staðurinn á sér merka landbúnaðarsögu auk þess að vera sumarbeitarland fjárins á Stórholti.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Víkur 30.07.2025 15мин
    Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við ferðamáladeild Háskólans á Hólum, segir frá stað í grennd við heimaslóðir hans á Borgarfirði eystri, sem heimafólk kallar Víkur en er einnig þekktur sem Víknaslóðir.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Herjólfsdalur 29.07.2025 14мин
    Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir frá Herjólfsdal. Þaðan á hún margar góðar minningar úr bernsku og ekki síst frá Þjóðhátíð.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Svínavatn 28.07.2025 15мин
    Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks, segir frá Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu sem er í grennd við bæinn þar sem hún ólst upp.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Birkitréð í garðinum heima 25.07.2025 13мин
    Örn Eldjárn tónlistarmaður rifjar upp minningar sínar tengdar gömlu birkitré sem stendur í garðinum á æskuheimili hans að Tjörn í Svarfaðardal.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Strandir 24.07.2025 15мин
    Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, segir frá tengingum sínum við Strandir og hvernig þær hafa fengið hana til að hægja á sér og horfa inn á við.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Kollumúli í Lónsöræfum 23.07.2025 14мин
    Gunnlaugur Róbertsson, verkfræðingur sem býr á Höfn í Hornafirði, segir frá gönguleiðinni inn að Kollumúla í Lónsöræfum.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Hólar í Hjaltadal 22.07.2025 15мин
    Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, dregur upp mynd af Hólum í Hjaltadal. Staðurinn hefur haft mikil áhrif á líf hennar alveg frá því að hún var að alast upp í Skagafirði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Langisandur 21.07.2025 14мин
    Andrea Þórunn Björnsdóttir, amma Andrea eins og hún er oftast kölluð, hefur búið á Akranesi frá því hún var 23 ára. Hún segir frá Langasandi þar sem hún fer reglulega í heilsubótargöngu.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Kirkjuhvammur 18.07.2025 15мин
    Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, segir frá Kirkjuhvammi ofan við Hvammstanga. Staðurinn er mikilvægur í hugum íbúa og þaðan á Unnur margar minningar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Einkunnir 17.07.2025 15мин
    Gísli Einarsson fjölmiðlamaður lýsir fólkvanginum í Einkunnum, sem er uppáhaldsstaður hjá honum og fjölskyldunni, skammt fyrir ofan Borgarnes.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Drekagil 16.07.2025 15мин
    Rakel Hinriksdóttir, fjölmiðla- og listakona og formaður Sunn: samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, segir frá upplifun sinni af hálendinu þegar hún var skálavörður í Drekagili, austan Dyngjufjalla.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Heimsendi í Skaftá 15.07.2025 14мин
    Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður Kirkjubæjarstofu, segir frá gönguleiðinni niður að Heimsendaskerjum í Skaftá. Þangað fer hún til að sækja sér orku og hreinsa hugann.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Selskógur 14.07.2025 15мин
    Þorgeir Arason, sóknarprestur í Egilsstaðaprestakalli, segir frá Selskógi sem er útivistarparadís í grennd við Egilsstaði.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Популярен в

Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.