Stjörnuspekiskólinn

Stjörnuspekiskólinn

Gísli Hrafn Gunnarsson
Държава Исландия
Жанрове Education
Език IS
Епизоди 38
Последен 08.06.2026

Í þessu podcasti mun ég kenna stjörnuspeki. Stjörnuspekin er margslungið fag en mjög aðgengileg ef maður lærir hana í stigum og leggur grunninn vel. Ég ætla því að fara vel og vandlega yfir þá aðalþætti sem leggja grunninn að stjörnuspekinni og byggja ofan á það. Stjörnuspekin er túlkun hvers stjörnuspekings fyrir sig og því mun ég kenna stjörnuspekina eins og ég upplifi hana. Von mín með þessu podcasti er að hlustendur geti að lokum fylgt eftir stjörnuspeki útskýringum og skilið hvað sé verið að ræða.

Епизоди

  • 38. þáttur -Kompás þátturinn og lífið í kjölfarið 08.06.2026 1ч 21мин
    Ég fann köllun til að segja frá minni hlið eftir að hafa verið tekinn fyrir í Kompás í maí 2022, hérna á mínum vettvangi/podcasti fyrir ykkur hlustendum mínum, því þetta markaði gífurlega mína vegferð sem stjörnuspekingur en einnig í lífinu almennt. Ég tók þennan þátt upphaflega upp í apríl 2026 en eftir að Sölvi Tryggvason vildi fá okkur Elínu konuna mína til sín í podcastið sitt þá ákvað ég að bíða með að birta þetta þangað til eftir að það hafi verið gefið út.Ég er þarna í miðri vinnu við að setja upp úthornalista þannig það eru allskyns aukahljóð í upptökunni.
  • 37. þáttur - Norður og suður nóðan 12.11.2025 1ч 8мин
    Hérna fer ég yfir norður og suður nóðurnar í gegnum öll stjörnumerkin.
  • 36. þáttur - Orka meyjunnar 30.10.2025 1ч 11мин
    Í þessum þætti fer ég yfir orku meyjunnar.
  • 35. þáttur - Fyrsta viðtalið 18.10.2025 1ч 33мин
    Fyrsta viðtal stjörnuspekiskólans leit dagsins ljós þar sem Aðalheiður Sigursveinsdóttir bauðst til að mæta og ræða upplifun sína af því að mæta í stólinn og spegla masculin og feminin partana innra með sér. Ég fékk upptökubúnað lánaðan sem ég kunni ekki almennilega á og því eru hljóðgæðin töluvert verri en ég hefði viljað en engu að sýður þá vona ég að þið munið hafa gaman af.
  • 34. þáttur - Orka vatnsberans 05.10.2025 1ч 7мин
    Í þessum þætti tala ég ítarlega um orku vatnsberans en í upphafi þáttarins kynni ég hlustendur fyrir retreati sem verður núna helgina 23.-26. október á skálholtsbúðum. Ef áhugi er á að bóka hjá mér einkatíma þá getið þið fundið tíma hér:https://noona.is/gislihrafn
  • 33. þáttur - Tvö stjörnukort 29.09.2025 1ч 12мин
    Í þessum þætti tek ég fyrir uppgvötun mína á því að við séum ekki með einungis eitt stjörnukort heldur tvö, og að þessi tvö stjörnukort eru orkukort fyrir þá tvo einstaklinga sem eru innra með okkur. Í flestum tilvikum er samruni þessara beggja einstaklinga nánast algjör en í sumra tilvikum er þessi aðgreining mjög skýr. Í þættinum fjalla ég um þessa uppgvötun og leiðina að því að ná þessum tveimur pörtum í mér í samskipti og að lokum samvinnu.Hægt er að bóka hjá mér tíma í gegnum Noona:https://noona.is/gislihrafn
  • 32. þáttur - Stjörnukort Íslands 16.05.2025 53мин
    Í þessum þætti fer ég yfir stjörnukort Íslands, 17. júní 1944 kl. 14:00 á Þingvöllum.Fyrir ykkur sem viljið sjá mynd af stjörnukortinu þá getið þið farið inná facebook síðu Stjörnuspekiskólans eða einfaldlega flett því upp.
  • 31. þáttur - Orka ljónsins 09.01.2025 1ч 18мин
    Í þessum þætti fer ég yfir orku ljónsins.
  • 30. þáttur - Hugleiðingar: Að stýra eigin tíma 03.01.2025 51мин
    Hér í þessum þætti tala ég um mína dýpstu þrá um að geta stjórnað mínum eigin tíma, um hvernig samfélagið okkar er uppbyggt hvað varðar kröfu einstaklinga um tíma sinn, eða lífið sitt, og hvernig hægt sé að virða þetta fyrir sér með augum vatnsbera orkunnar. Að velta því fyrir sér hvort þetta sé eðlilegt eða það sem við myndum nokkurn tíman kjósa yfir okkur ef við áttuðum okkur á því að við höfðum val.
  • 29. þáttur - Allt sem á upphaf á sér stjörnukort 24.10.2024 50мин
    Í þessum þætti fjalla ég um mismunandi nýtingu stjörnukorta á öllum mögulegum sviðum lífsins. Að brúðkaupsdagurinn eigi sér stjörnukort, að ný atvinna eigi sér stjörnukort, að lönd eigi sér stjörnukort rétt eins og við einstaklingarnir.
  • 28. þáttur - Sálar plánetan 17.10.2024 47мин
    Í þessum þætti fer ég lauslega yfir upprunalegu tengingu mína við sálarorkuna og hvernig sálar plánetan barst mér hvernig ég túlka hana. Ég lýsi mikilvægi sálar plánetunnar hjá hverjum og einum og hvaða hlutverki hún gegnir í stjörnukorti hvers og eins.
  • 27. þáttur - Miðhimininn 10.10.2024 56мин
    Í þessum þætti reyni ég að koma miðhimninum vel frá mér þannig fólk geti skilið, tengt við og speglað við sitt eigið stjörnukort. Miðhimininn er ein mikilvægasta staðan til þess að skilja í stjörnukortunum okkar og hérna segi ég frá minni upplifun og reynslu af því hvernig þessi orkustöð virkar.
  • 26. þáttur - Hnígandinn 04.10.2024 34мин
    Í þessum þætti fer ég yfir hnígandann og hvers vegna hann er mikilvægur að tengjast innra með okkur öllum. Þar komust við í tengingu við raun karakterinn sem býr innra með okkur sjálfum og leiðin að hnígandanum er í gegnum traustið, gagnvart öðrum einstaklingum og síðan traustið gagnvart okkur sjálfum.
  • 25. þáttur - Rísandinn 26.09.2024 1ч 3мин
    Hérna í þessum þætti tek ég rísandann almennilega fyrir eins og hann birtist mér og hvers vegna hann er eins mikilvægur að skilja og fylgja og raunin er. Ég fer einnig lauslega yfir marsinn, hnígandann og venus, en einugis lítillega.
  • 24. þáttur - Orka steingeitarinnar 12.09.2024 1ч 15мин
    Í þessum klára ég orku krabbans þar sem ég fer yfir hvernig ég skildi krabba orkuna og síðan tek ég orku steingeitarinnar fyrir í heild sinni.
  • 23. þáttur - Orka krabbans 05.09.2024 1ч 17мин
    Í þessum þætti fer ég yfir orku krabbans eins og hún kemur til mín og ég upplifi hana.
  • 22. þáttur - Orka bogmannsins 22.08.2024 1ч 12мин
    Hérna í þessum þætti fer ég örlítið yfir það sem vantaði uppá í yfirferð minni á tvíburanum og síðan orku bogmannsins í heild sinni.
  • 21. þáttur - Orka tvíburans 15.08.2024 1ч 14мин
    Í þessum þætti fer ég yfir orku tvíburans.
  • 20. þáttur - Hugleiðingar: Að tileinka sér það sem pláneturnar segja til um 02.07.2024
    Ögn um tvíburaorkuna sem og bogamanninn. En síðan að sjálfskoðun, sjálfsvinnu, miðilsgáfu hvers og eins og að lokum hvers vegna staðsetning plánetnanna er mikilvæg. Allar pláneturnar eru orkustöðvar og því er mikilvægt að að huga að þeim merkjum sem pláneturnar í ykkar korti eru staðsettar því einungis þannig fáið þið orku til baka frá því sem þið gerið. Allavega eins og ég skil stjörnuspekina og upplifi sjálfur.
  • 19. þáttur - Hugleiðingar: Óður til stjörnukortsins 24.06.2024 52мин
    Erfiðlega gekk að taka upp tvíburaorkuna á vegu sem mér þótti ásættanleg þannig ég ákvað að henda í annan hugleiðingaþátt. Hérna tala ég frjálslega um stjörnukortið og mína trú og tilfinningu gagnvart því. Hvað það er merkilegt og hvers vegna það sé svona svakalega mikilvægt að skilja sem og þekkja það. Þá myndina sjálfa af stjörnukortinu.

Популярен в

Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.