Pallborðið

Pallborðið

visir
Държава Исландия
Език EN
Епизоди 48
Последен 03.09.2026

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

Епизоди

  • Línurnar lagðar fyrir spennandi þing 03.09.2026 1ч 1мин
    Gera má ráð fyrir að þingveturinn hefjist með hvelli enda nóg um að vera í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, forsendur kjarasamninga eru brostnar og enn er óvíst hvernig fer með umsókn Íslands að Evrópusambandinu eftir að þjóðin hafnaði aðildarviðræðum.  Við snertum á þessum málum og mörgum öðrum í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.
  • Satt, logið og um­deildar aug­lýsingar 27.08.2026 51мин
    Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. Stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir mæta í fyrri hluta þáttarins og ræða upplýsingaóreiðu, samsæriskenningar og fullyrðingar í baráttunni sem tæplega standast skoðun.  Í síðari hluta munu Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona rýna í kosningabaráttuna frá ólíkum sjónarhornum, ræða umtalaðar auglýsingar og andlega líðan þjóðar. 
  • Hasar í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 26.08.2026 1ч 6мин
    Þriðja Pallborð fréttastofu Vísis að viðræðum fór fram í dag en þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá sem fulltrúar Já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd Nei-ara.
  • Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? 20.08.2026 1ч 1мин
    Evrópumálin eru enn í brennidepli í Pallborðinu. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að því hvað innganga í Evrópusambandið myndi þýða fyrir ungt fólk á Íslandi. Hvort ætti ungt fólk að kjósa já eða nei? Gestir eru Jóhannes Óli, María Malmquist, Magnea Gná og Steinar Ingi.
  • Já-arar og nei-arar í Pallborði 20.08.2026 59мин
    Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Gréta María Grétarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá mættu þeim Ernu Bjarnadóttur, stjórnarkonu í Heimsýn, og Júlíusi Viggó Ólafssyni frá Áfram Ísland í pallborðsumræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
  • Evrópusambandið: Nei eða já? 23.07.2026 55мин
    Rætt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu voru Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði.
  • Ofbeldisalda hjá ungmennum 20.03.2025 41мин
    Gestir Bjarka Sigurðssonar í Pallborðinu eru þau Hermann Austmar, faðir í Breiðholti, Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, Elísa Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur og Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar.
  • Um­ferðar­öryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld 13.03.2025 40мин
    Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur, Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar og Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi voru gestir Hallgerðar Kolbrúnar E. Jónsdóttur í Pallborðinu.
  • Hvar stendur Ís­land gagn­vart Trump, tollastríði og breyttri heims­mynd? 06.03.2025 43мин
    Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen voru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi. 
  • Brýnustu verkefnin í borginni 27.02.2025 48мин
    Berghildur Erla fékk til sín oddvita í Reykjavík til að ræða brýnustu verkefnin í borginni sem framundan eru. Gestir voru Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknar, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna.
  • Áslaug Arna og Guðrún í Pallborðinu 24.02.2025 54мин
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir, frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins, mættu í Pallborðið til Vésteins Arnar Péturssonar.
  • Fjórir berjast um for­manns­sætið í VR 18.02.2025 54мин
    Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og núverandi ráðgjafi hjá Aton, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Þorsteinn Skúli Sveinsson, sérfræðingur á mannauðs- og stefnusviði BYKO voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu þar sem formannskjör VR voru til umræðu.
  • Kjara­deila grunn­skóla- og leik­skóla­kennara 05.02.2025 46мин
    Þau Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla í Garðabæ, Kristófer Már Maronsson í málsóknarfélagi barna og formaður fræðslunefndar í Skagafirði og Jón Pétur Zimsen fyrrverandi kennari og skólastjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins voru gestir Berghildar Erlu í Pallborðinu á Vísi.
  • Handboltaæði runnið á þjóðina 22.01.2025 41мин
    Stefán Árni Pálsson hitar upp fyrir leik Íslands og Egyptalands og keppni í milliriðlum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla ásamt þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Bjarna Fritzsyni í Pallborðinu.
  • Sér­fræðingar rýna í stöðuna á loka­sprettinum 25.11.2024 55мин
    Margrét Helga Erlingsdóttir, fréttamaður, fær til sín þau Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, Eirík Bergmann, stjórmálafræðiprófessor við Bifröst, Huldu Þórisdóttur, prófessor í stjórnmálasálfræði við HÍ og Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema við Hí til að rýna í stöðuna á lokasprettinum.
  • Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar 18.11.2024 54мин
    Hlaðvarpsstjórnendur sem halda úti umfjöllun um kosningarnar mættu í myndver til þess að fara yfir stöðuna. Þórhallur Gunnarsson úr Bakherberginu, Kristín Gunnarsdóttir úr hlaðvarpinu Komið gott, Gísli Freyr Valdórsson hjá Þjóðmálum og Þórarinn Hjartarson sem heldur úti Einni Pælingu.
  • Hvalveiðafár og skóla- og heil­brigðis­mál 13.11.2024
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru gestir Pallborðsins í dag. Til umræðu voru meðal annars nýjustu vendingar í skoðanakönnunum og pólitíkinni og skóla- og heilbrigðismál, svo eitthvað sé nefnt. Pallborðinu stýrði Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður.
  • Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? 11.11.2024 49мин
    Í þetta skiptið tekur Berghildur Erla á móti Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Ölmu Möller landlækni í leyfi sem leiðir lista Samfylkingar í Kraganum, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmanni sem fer fyrir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Bergþóri Ólasyni, þingmanni og oddvita Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. 
  • For­menn Fram­sóknar, Flokks fólksins og Sam­fylkingar ræða málin 06.11.2024 56мин
    Nú er röðin komin að formönnum síðustu þriggja flokkanna sem bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum. Þetta eru Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Inga Sæland formaður Flokks fólksins sem mættu í settið til Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns.
  • Sjónum beint til vinstri 04.11.2024 47мин
    Margrét Helga Erlingsdóttir fékk til sín þær Svandísi Svavarsdóttur, formann Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, leiðtoga Sósíalistaflokks Íslands á sviði Alþingis og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformann Pírata.

Популярен в

Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.