Kaffitíminn með ASÍ-UNG
ASÍ-UNG
0
Kaffitíminn með ASÍ-UNG er vettvangur þar sem fjallað er um málefni íslensks vinnumarkaðar út frá sjónarhóli ungs fólks. Tekið er á réttindum, skyldum, stéttarfélögum og samfélagsmálum sem snerta ungt fólk á vinnumarkaði í dag. Þátturinn veitir innsýn bak við tjöldin í verkalýðshreyfingunni, fjallar um mál líðandi stundar og fær góða gesti í heimsókn. Markmiðið er að setja flókin mál vinnuréttarins fram á léttan og skemmtilegan hátt. Þátturinn er bæði fræðandi og aðgengilegur.
Епизоди
-
Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Georg Páll Skúlason 08.10.2026 19минKaffitíminn með ASÍ-UNG – Forsetaframboð: Georg Páll SkúlasonFramundan er þing Alþýðusambands Íslands þar sem meðal annars verður kosinn nýr forseti sambandsins.Af því tilefni fáum við forsetaframbjóðendurna í Kaffitímann með ASÍ-UNG til að kynnast þeim betur og heyra þeirra sýn á framtíð verkalýðshreyfingarinnar.Í þessum þætti ræðum við við Georg Pál Skúlason um ástæður framboðsins, hvað þurfi að breytast í starfi ASÍ og hvernig forseti hann vilji vera. Við förum meðal annars yfir stöðu ungs fólks innan hreyfingarinnar, valddreifingu, formlegt og óformlegt vald og hvernig hægt sé að tryggja breiða samstöðu án þess að það komi niður á getu sambandsins til að taka skýra afstöðu.Sömu meginspurningar eru lagðar fyrir báða frambjóðendur. -
Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Arnaldur Grétarsson 08.10.2026 21минKaffitíminn með ASÍ-UNG – Forsetaframboð: Arnaldur GrétarssonFramundan er þing Alþýðusambands Íslands þar sem meðal annars verður kosinn nýr forseti sambandsins.Af því tilefni fáum við forsetaframbjóðendurna í Kaffitímann með ASÍ-UNG til að kynnast þeim betur og heyra þeirra sýn á framtíð verkalýðshreyfingarinnar.Í þessum þætti ræðum við við Arnald Grétarsson um ástæður framboðsins, hvað þurfi að breytast í starfi ASÍ og hvernig forseti hann vilji vera. Við förum meðal annars yfir stöðu ungs fólks innan hreyfingarinnar, valddreifingu, formlegt og óformlegt vald og hvernig hægt sé að tryggja breiða samstöðu án þess að það komi niður á getu sambandsins til að taka skýra afstöðu.Sömu meginspurningar eru lagðar fyrir báða frambjóðendur. -
Fjórði sopinn - fræðslu- og tengsladagar 31.03.2026 1ч 1минÍ þessum þætti fara Elsa og Svanfríður yfir síðasta viðburð ASÍ-UNG sem haldinn var dagana 19. - 20. mars.Þær ræða húsnæðismál, menntamál, leikskólamál, barneignir og fleira -
Þriðji sopinn - leikskólamál 10.03.2026 39минÍ þessum þætti ræðum við leikskólamál og umræðuna sem hefur verið í fjölmiðlum. Skemmtileg og lifandi umræða -
Annar sopinn - réttindi, skyldur og stéttarfélög 22.02.2026 27минÍ þessum þætti ætlum við að spjalla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og fara aðeins yfir stéttarfélögin og hlutverk þeirra -
Fyrsti sopinn - hver, til hvers og afhverju? 21.02.2026 11минÍ þessum fyrsta þætti af Kaffitímanum með ASÍ-UNG förum við aðeins yfir það hver við erum, hvaðan við komum og hvert við ætlum að stefna
Популярен в
Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.