Fílalag

Fílalag

Fílalag
Zemlja Iceland
Žanrovi Music, Music History, Music Commentary
Jezik IS
Epizode 371
Posljednja 29.05.2026

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi.

Epizode

  • These Days – Smurstöð sexunnar 29.05.2026 1h 8min
    Nico – These Days Bleiki pardusinn settur í hrærivél og stappaður niður í bleikt vax sem bráðnar í lavalampa sem varpar bjarma á kríthvít kinnbein sem tróna á stalli rúllukragabolskraga sem er svartari en gljáandi gítarnöglin í hendi unglingsins sem svífur í gegnum móðuna með sama andvara og fleytti Ódysseifi að hjara veraldar og til […]
  • Ljósvíkingurinn – Hann er útilegumaðurinn 22.05.2026 1h 15min
    Mugison – Ljósvíkingur KFC-sokkin augu horfa á þig úr Mount Rushmore Almannagjáar. Þú gengur ekki einn. Fjallageit jarmar yfir heiðarlönd. Þú hlýðir ekki einn. Skynfæri spennt, kroppurinn kaldur. Upp úr dalnum líður reykur. Þú gengur ekki einn. Ljósið. Eldsneytið. Krafturinn.
  • DARE – Stafrænt camouflage  15.05.2026 1h 6min
    Gorillaz ft. Shaun Ryder – DARE Alþjóðavæðing. Nótt. Flókið. Casio hljómborð. Þreyttur um kvöld. Teikna. Heimurinn er án hjarta en það má spartsla upp í holur hér og þar. Það má glærlakka yfir óskapnaðinn og gefa stílleysinu hjúp kúls. Það eru bara til þrír til fjórir persónuleikar. Við höldum að við séum allskonar en þegar […]
  • Betri tíð – Listin að lifa í stuði 08.05.2026 1h 6min
    Stuðmenn – Betri tíð Kýrnar leika við kvurn sinn fíngur. Ananas-hlunkum sturtað niður úr flugvél sem stýrt er af flugkappa í terlin-buxum. Laugardalslaug fyllt lakkrís-konfekti. Í stúkunni hvítir komma-kroppar. Í kvöld förum við á fílum til Skatmandú. Nepjan. Norpið. Puðið. Stuðið. Hor í nös, allar bragðtegundir regnbogans. Fuglinn sýngur. Sumarið er komið. Svona á það […]
  • Movin’ on Up – Öskur úr iðrum jarðar 31.12.2025 54min
    Primal Scream – Movin’ on Up Það er gott í vændum á nýju ári. Seiðkarlinn hrærir í potti og dregur upp lukkulegan spádóm handa þér væni minn. Þú munt stækka á nýju ári, vaxa um eitt númer, komast á næsta borð tölvuleiksins. Heill sé þér himnafaðir og allir jarðálfar púkalands því þessi stÆKKUN er mannkyni […]
  • Ef ég nenni – Ávöxtur í augnhæð 19.12.2025 1h 11min
    Helgi Björns – Ef ég nenni Slyddugremjan, rokið í hausnum, myrkrið í sálinni. Bless á þetta allt. Sýrustigið í maganum, slátturinn í brjóstinu, munnangrið. Verið þið sæl. Stundum þarf bara að taka stærstu gangstéttarhelluna og keyra hana í gegnum kjallaragluggann til að opna fyrir flæðið, andrýmið og orkuna. Helg eru jól, heilög sé sól, sú […]
  • Come On, Let’s Go – Kommon. Letsgó. 12.12.2025 49min
    Ritchie Valens – Come On, Let’s Go Hér fer fram hugmyndafræðileg fílun á andkvíðalyfinu sem gengið hefur undir nafninu rokk og ról. Farið er í frumfílun á fyrsta útgefna lagi Ritchie Valens sem hann samdi og tók upp þegar hann var sextán ára gamall og hefur hinn mergjaða titil: “Come On, Let’s Go”. “Öllu er […]
  • Brown Eyed Girl – Frum-fenið 28.11.2025 1h 13min
    Van Morrison – Brown Eyed Girl George W. Bush í baði. Þröstur á grein. Fáviti að spóla úti á Granda. Dalalæða og derringur. Og þú brúneyga stúlkan mín. Hlaupa og hlæja og detta. Leiddu mig í lundinn. Morgunroði, dögg. Dick Cheney klippir táneglur. Mín liljan fríð.
  • Brimful of Asha – Barmur plús harmur deilt með takmarkaleysi 14.11.2025 1h 9min
    Cornershop og Norman Cook – Brimful of Asha Rómúlus og Remus totta spena. Fjörutíu og fimm snúningar á mínútu. Níl flæðir yfir bakka sína. Villigöltur hleypur í skjól. Hlöður fyllast. Sósan flæðir. Tuttugu og níu ára grafískur hönnuður hálsbrýtur sig í stiga. Rjóminn flæðir. Varir brosa, mjaðmir dilla, froðu fleytt af glasabarmi. Spilakassar syngja. Smálán […]
  • Sweet Jane – Kontrapunktur kúlsins 03.10.2025 1h 15min
    Velvet Underground – Sweet Jane Starfsmaður vegabréfaeftirlits á JFK-flugvelli horfir rannsakandi en kæruleysislegum augum þráðbeint framhjá þér. Í belti hans 9mm Glock, í vasa hans valdið, pakki með sex þurrum Orbit-þiljum. Það má skera loftið með kauðalegum smjörhníf sem átta ára barn kom með heim úr smíðatíma. Það má skera loftið niður í þykkar lifrapylsusneiðar.  […]
  • Moonlight Shadow – Miðilsfundur á Myrká 26.09.2025 1h
    Mike Oldfield og Maggie Reilly – Moonlight Shadow Viðjulauf. Hvítir náttkjólar. Gólandi hundur. Skothvellur í fjarska og silkimjúkt myrkrið. Tonn hughrifa í eldspýtustokki. Heil veröld sem örbylgjumáltíð. Hvísl, þyngsli, sorg, gall. Þú gengur inn í blómabúð í leit að samúðarkorti og það er farið með þig á bakvið og fyrr en varði ertu í seftjörn […]
  • Fylgd – Áminning til labbakúta 19.09.2025 1h 10min
    Heimavarnarliðið – Fylgd Volkswagen bjöllur. Súld. Hagatorg. Gamla góða Keflavíkurgöngugreddan. Fegurð. Sveit í borg. Hólkvíðar skálmar undir heiðum himni. Bollasúpa. Breznev. Þjóðviljinn. Hermannajakkar. Ljóðabækur. Mussur þvegnar í læk þar sem nú er Smáralind. Lektorar. Billiard. Bartar og brjóstahaldarabrennur. Mundu, að þetta er landið þitt.
  • Serbinn – Segulsvið svitans 12.09.2025 56min
    Bubbi – Serbinn Fjörutíu metrar á sekúndu. Ekki vindhviða heldur beinstíf leiðsla af flæðandi draugum inn í himinhvel hugans. Lax í dauðakippum. Eggjarauð kokteilsósa. Ok uxans. Minkafeldur suður slavneska herrans. Hringar Salómons. Framundan er bara vegurinn. Ekki Nebraska-vegurinn hans Steina heldur eitthvað miklu naprara og tærara. Slétta melrakka og vofunnar í hvilftinni. “Glitrar grund og […]
  • Hotel California – Ernir. Síðari hluti. Vængir bráðna. 05.09.2025 1h 46min
    Eagles – Hotel California Lagið sem er fílað í dag ætti með réttu að vera síðasta lag sem Fílalag tekur fyrir (engar áhyggjur, það er það ekki, við erum rétt að byrja nýja seríu). Ástæða þess að það ætti að vera síðasta lagið sem við fílum er vegna þess að það er ósköp erfitt að […]
  • Lyin’ eyes – Ernir. Fyrri hluti. Að þolmörkum 29.08.2025 1h 45min
    Eagles – Lyin’ Eyes Kjarnasamruni. Reykjanesbrautin. Daðrið í myrkrinu. Augun, köldu krumlurnar, kæfisvefnsgræjurnar. Skiptilyklar, kokteilar, seðlaveski, bros. Gardínur í vindinum. Marge Simpson með varalit. Perlurnar, tárin, orðin. Söngur hjartans. Magasár, móðurmjólk, úraníumstútur. Langdrægir kjarnaoddar, kók, dagblað, sófasett, hott hott á hesti. Út að þolmörkunum. Einu sinni enn. Hringdu bjöllunni, að hlið vítis, einu sinni enn. […]
  • Geislinn í vatninu – Seiglan og lopinn 30.05.2025 1h 6min
    Hjálmar – Geislinn í vatninu Á borðið er lagður pottréttur, pottþéttur og piparlagður. Flúðasveppirnir löngu orðnir hluti af sósunni. Hvaðan kom þessi brögðótta en samt basic himnasending? Stundum er stöðum líst þannig að Guð hafi yfirgefið þá. “God forsaken” nefnist þetta á ensku. Sama hvað má segja um Ísland væri líklega aldrei rétt að segja […]
  • Wonderful Tonight – Dýrinu klappað 23.05.2025 1h 17min
    Eric Clapton – Wonderful Tonight Hápunktur. Lágpunktur. Stærðfræðilegur ómöguleiki. Mjótt mitti, lint typpi, í hjartanu nagandi ótti. Armani, Rolex, enginn náungakærleikur. Laxá í Ásum, kókómjólk og happaþrenna, kláði. Ferrari, Stratocaster, Château Mouton Rothschild. Connor. Covid. Cocaine. Drukknun, sukk, ólukka. Peningar, klikkun, kynlíf, krossgötur. Mæða, æði, græðgi, blæðing. Depurð, fegurð, dökk og yfirgengileg. Himinn bólstraður leðri. […]
  • Superman – Kaðlastigi úr kúlheimum 16.05.2025 51min
    Trabant – Superman Tuttugu hestar hníga niður í miðri Ártúnsbrekku og leysast upp í grárri malbiks-súldinni í krampakenndum íslenska-dansflokks-hnykkjum. Gallajakka er rennt gegnum pre-reykingabanns íslenskt djamm-sumar og grafinn undir krossi að hausti. Neó-rómantísk tár falla og springa á köldum marmara eins og kristalskúlur í sjónvarpsmynd eftir Egil Eðvarðsson. Gult suð í höfði, veggur sem krefst […]
  • Don’t Know Much – Sölufuglinn 09.05.2025 1h
    Linda Ronstadt og Aaron Neville – Don’t Know Much Linda Ronstadt er svalan sem syngur fyrir Bandaríkin. Að vísu hefur hún misst röddina nú því hún þjáist af taugasjúkdómi sem veldur skjálfta í líkamanum – en hott hott á hesti hvað hún hefur skilað inn drjúgu ævistarfi. Hún hefur líka sungið allt mögulegt: rokk, kántrí, […]
  • Það er puð að vera strákur – Puðið og tuðið 02.05.2025 1h 3min
    Bjartmar Guðlaugsson – Það er puð að vera strákur Núna geta allir loksins sofnað rótt. Hvort sem þið eruð langt leidd af klámfíkn, fransk-rennilása-læst í gamer-stól eða að klára mastersgráðu í þróuðu hugvísindanámi þá verða hér leidd fyrir ykkur sönnunargögn af safaríkara taginu. Um er að ræða titilag af plötu með Bjartmari frá 1989, en […]

Popularan u

Ovaj podcast se pojavljuje i u podcast listama ovih zemalja.