Ljósmæðrarýmið
Hafdís og Oddný
0
Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu.
Epizode
-
#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja? 03.04.2026 27minEr þetta að byrja… eða ekki alveg strax?Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið.Þegar líkaminn er að undirbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá.Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað. Rætt er um:– hvernig forstigið getur litið út – hvað er að gerast í líkamanum á þessu stigi– hvað er eðlilegt – hvað þú getur gert á þessu stigi til að vinna með líkamanum þínum Þetta er þáttur fyrir þig sem vilt skilja líkamann þinn betur og treysta ferlinu.Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:
-
#13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga 26.03.2026 58minÍ þessum þætti tókum við gott spjall.Við svöruðum spurningum sem hlustendur hafa sent inn og fórum út í alls konar pælingar tengdar starfinu.Þetta er meðal annars það sem við ræðum:Fetal ejection reflexFylgjulosAf hverju við fórum í ljósmóðurfræðiHvað er skemmtilegast við vinnuna okkarSpangardeyfingu, er alltaf hægt að biðja um hanaVið endum svo á að lesa upp innsenda fæðingarsöguLéttur, einlægur og notalegur þáttur með smá fræðslu, smá spjalli og svo rúsínu í pylsuendanum.Við skemmtum okkur mjög vel og vonum að þið gerið það líka <3
-
#12 Örþáttur - Að missa vatnið 23.03.2026 19minLegvatnið fer… Hvað gerum við næst?Hvað þýðir það þegar vatnið fer áður en samdrættir hefjast?Hvernig ættum við að bregðast við og hvað gerist næst?Allt þetta og meira um farið vatn í þessum örþætti ljósmæðrarýmisins.Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir
-
#11 Fæðingarsaga Sólbjartar 19.03.2026 46minSólbjört elskar að tala um fæðingar og við elskuðum að tala við hana um hennar fæðingu.Hún missti vatnið, verandi GBS beri og fór í gangsetningu í kjölfarið - sem endaði vitanlega með barni, þó að henni hafi ekki alltaf liðið eins og það myndi gerast neitt í náinni framtíð.Hlustið og njótið!Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirSólbjört Sigurðardóttir
-
#10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðingu 16.03.2026 11minVissir þú að það er algengt að fá samdráttarverki eftir fæðingu?Af hverju eigum við ekki betra orð í íslensku talmáli? Eigum við að nota orðið eftirverkir?Hvers vegna koma þeir, hvenær og hvernig er best að höndla þá þegar þeir koma?Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir
-
#9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu 09.03.2026 43minÍ þessum þætti ræðir Hafdís 5 hluti sem er kannski minna talað um þegar kemur að fæðingum og gæti komið mörgum á óvart.Við förum yfir:- Hvernig líkaminn tekur yfir í fæðingu- Hvernig fæðingarverkir eru oft öðruvísi en fólk ímyndar sérvernig hugurinn hefur áhrif á ferlið- Hversu óútreiknanlegar fæðingar geta verið- Hinn heimurinn sem maður fer í, í fæðinguAllt til þess að gefa þér betri innsýn í fæðingarferlið og hjálpa þér að mæta henni af meiri ró og trausti <3 Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir
-
#8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal 02.03.2026 59minHulda Heiðdal segir okkur frá sinni upplifun af barneignarferlinu, sem var lituð þeirri staðreynd að hún var í mikilli yfirþyngd.Hún var í meðgöngueftirliti á LSH vegna þessa og var ráðlagt að fæða með keisaraskurði, en hana dreymdi um fæðingu um leggöng.Hulda ræðir sína upplifun, fitufordóma og margt fleira.Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirHulda og heilsa
-
#7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar 23.02.2026 54minKatla sagði okkur á sinn einstaka hátt frá þremur mismunandi fæðingum. Fyrsta gangsetning í covid og blæðing eftir fæðingu, önnur heimafæðing á baðherbergisgólfinu og svo hröð þriðja fæðing á sjúkrahúsi.Þið sem þekkið til Kötlu vitið að hún er ekkert að skafa af hlutunum og það var engin undantekning hér.Njótði vel!Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirSystur og makar
-
#6 Fæðingarsögur Helgu Möggu 16.02.2026 49minHelga Magga er ein hraustasta kona sem þið finnið og var "óþolandi heilbrigð" á sínum meðgöngum. Enda gekk hún alls ekki fyrir í gangsetningar röðinni fyrr en hún var að detta í 42 vikur. Allar þrjár fæðingarnar hennar voru settar af stað um það leiti.Sú bið var ekki skemmtileg, en fæðingarnar gengu vel og hún átti geggjaðar fæðingar. Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirHelga Magga
-
#5 Örþáttur - Slímtappinn 13.02.2026 7minHvað er þessi slímtappi? Hvaðan kom hann og hvert er hann að fara? Hlustið til að vita meira.Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir
-
#4 Fæðingarsögur Melkorku Rutar 09.02.2026 1h 20minFyrsti gestur Ljósmæðrarýmisins er Melkorka Rut Bjarnadóttir. Hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir en hún átti þriðja barnið sitt 3 dögum eftir að þátturinn var tekin upp!Melkorka leiddi okkur á skemmtilegan hátt í gegnum fyrstu tvær fæðingarnar sínar og ræddi væntingar og tilfinningar gagnvart þeirri þriðju, sem hún vissi ekki þá að var rétt handan við hornið. Hér var ekkert skilið eftir. Hlustið og njótið.Fylgið okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir
-
#3 Fæðingarsögur Hafdísar 01.02.2026 53minÍ þessum þætti deilir Hafdís, annar þáttastjórnenda Ljósmæðrarýmisins, sínum fæðingarsögum.Hún var orðin ljósmóðir þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og fer yfir upplifun sína af tveimur hröðum fæðingum og að lokum tvíburafæðingu sem var mögnuð á svo marga vegu.Þátturinn er persónulegur, einlægur og sýnir hversu fjölbreyttar fæðingar geta verið, jafnvel hjá sömu konu.
-
#2 Fæðingarsögur Oddnýjar 01.02.2026 45minÍ þessum þætti heyrum við fæðingarsögur Oddnýjar, annars þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins.Hún deilir sínum upplifunum af sínum ólíku fæðingum, fyrsta með löngum aðdraganda og mænurótardeyfingu, annarri sem gerðist hraðar og svo þriðju í Björkinni.Hún ræðir sína upplifun sem fæðandi kona en lítur líka til baka með ljósmæðragleraugun á sér.
-
#1 Hverjar erum við og af hverju ljósmæðrarýmið? 01.02.2026 14minÍ þessum fyrsta þætti kynnum við okkur og deilum segjum ykkur frá því hvernig Ljósmæðrarýmið varð til.Við ræðum hvernig orð og sögur geta haft lúmsk áhrif á viðhorf kvenna til fæðinga og hvers vegna okkur finnst mikilvægt að hækka rödd þeirra sem upplifa fæðingu sem jákvæða og styrkjandi.
Popularan u
Ovaj podcast se pojavljuje i u podcast listama ovih zemalja.