Samfélagið

Samfélagið

RÚV
Zemlja Island
Žanrovi Society & Culture
Jezik IS
Epizode 477
Posljednja 26.02.2026

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Epizode

  • Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna 26.02.2026 58min
    Í þessum síðasta þætti Samfélagsins veltum við fyrir okkur snúbúum – einstaklingum sem flytja til útlanda og snúa svo aftur. Karítas Hrundar Pálsdóttir, doktor í ritlist, hefur rannsakað snúbúa og svokallaðar snúbúabókmenntir. Hún kafar ofan í sálfræði snúbúa og birtingarmyndir þeirra í bókmenntum og ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða þennan áhugaverða hóp. Svo ætlum við að rifja upp einn eftirminnilegasta þátt Samfélagsins í nærmynd frá árinu 2010 þegar Leifur Hauksson og Hrafnhildur Halldórsdóttir heimsóttu þvottahús spítalanna á Tunguhálsi. Tónlist úr þættinum: Ásgeir Trausti Einarsson - Stranger.
  • Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris 25.02.2026 58min
    Rekstur dagblaðsins Reykjavík Grapevine er í járnum. Dagblaðið, sem kemur út á ensku, einu sinni til tvisvar í mánuði og hefur gert frá árinu 2003, hefur neyðst til að segja upp þremur blaðamönnum, en biðlar nú til almennings að halda því á lífi. Jón Trausti Sigurðarson, útgefandi, settist niður með okkur og fór yfir reksturinn, söguna og stöðu íslenskrar fjölmiðlaflóru. Við förum líka í heimsókn í nýtt húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Þar tók á móti okkur Eva Björg Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá félaginu og sagði frá starfseminni. Í lok þáttar rifjum við upp ársgamalt viðtal við Brynjar Karl Óttarsson, sögukennara við Menntaskólann á Akureyri. Hann var þá búinn að rannsaka gamlar bækur og skjöl bæði í kjallara Amtsbókasafnsin á Akureyri og í hirslum Menntaskólans - og þessa yfirlega skilaði nokkrum forvitnilegum uppgötvunum sem tengjast sögu ensku merkiskonunnar May Morris. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir.
  • Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi 19.02.2026 57min
    Barnaverndarkerfið hefur verið mikið til umræðu. Tómas Hrafn Sveinsson formaður umdæmisráðs barnaverndar Reykjavíkur ræddi við Fanneyju Birnu Jónsdóttur um stöðu barnaverndar í dag, uppbyggingu og gang kerfisins og feril málanna sem koma inn á borð barnaverndarnefnda. Og síðan ætlum við að fræðast aðeins um ferðaþjónustu í Grænlandi, eins og hún blasti við árið 2021. Við endurflytjum viðtal sem Þórhildur Ólafsdóttir tók hér í Samfélaginu við Hjört Smárason, sem var þá forstjóri Visit Greenland: um ferðaþjónustu og uppbyggingu hennar og lærdóminn sem Grænlendingar ætluðu að draga af íslensku ferðamannasprengingunni.
  • Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar 18.02.2026 59min
    Við byrjum þáttinn á gervigreindinni. Eyrún Magnúsdóttir gervigreindarfréttaritari Samfélagsins ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá því sem ber hæst í gervigreindarumræðunni þessa dagana. Í dag segir hún okkur frá meintum tímamótum í þróun gervigreindar, þegar gervigreindin byrjaði að forrita sjálfa sig – og hvaða áhrif það gæti haft á daglegt líf fólks sem tengist gervigreind ekki neitt. Þá fáum við að kynnast verkefninu "Virk efri ár" á Akureyri sem er verkefni sem er ætlað íbúum Akureyrarbæjar sem eru 60 ára og eldri. Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við Héðin Svarfdal, verkefnastjóra lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ. Svo ætlum við að rifja upp garðyrkjupistil frá árinu 2011 þar sem rætt var um vetrarklippingar á trjám. Tónlist úr þættinum: PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover. Rae, Corinne Bailey - He Will Follow You With His Eyes (Radio Edit) (bonus track wav). Teitur Magnússon - Kamelgult.
  • Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi 12.02.2026 58min
    Í byrjun þáttar fáum við til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, til að fræða okkur um ávaxtaflugur. Svo heimsækjum við Christian Keldsen, framkvæmdarstjóra Sulisitsisut, félag atvinnurekenda í Grænlandi. Og að lokum rifjum við upp heimsókn okkar á kaffinördakaffihús á Akureyri sem farin var í október 2024. Tónlist úr þættinum: Canadian Brass - The flight of the bumblebee. Baker, Julien - A Dreamer's Holiday BIG THIEF - Mythological Beauty. DUSTY SPRINGFIELD - Spooky.
  • Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan 11.02.2026 58min
    Verð á rafmyntinni Bitcoin hefur sveiflast duglega niður á við síðustu mánuði. Í síðustu viku rifjuðum við upp samtal sem við áttum fyrir nokkrum árum við hagfræðinginn Björgvin Inga Ólafsson um rafmyntina, sem þá hafði risið mjög hátt. Nú er þessu öfugt farið og ætlum við að ræða aftur við Björgvin um ástæður þessarar niðursveiflu, traust á rafmyntum og um breytingar á notkun Bitcoin yfirleitt. Á Akureyri hefur lengi verið rætt um möguleika þess að bjóða uppá listnám á háskólastigi í bænum. Lítið hefur gerst í þeim efnum, þar til nú. Nú hafa Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafið samstarf og bráðlega verðuð boðið upp á námskeið í listum í háskólanum fyrir norðan. Gígja Hólmgeirsdóttir leit við á opnum kynningarfundi og forvitnaðist um verkefnið. Að endingu rifjum við upp úr Samfélaginu í nærmynd svokallað meindýrahorn sem var dagskrárliður í þættinum um skeið. Guðmundur Óli Scheving mætti til að ræða um fiskifluguna sem hér á landi má finna í fjórum mismunandi tegundum.
  • Afleiðingar ofbeldis í æsku, Grænland árið 1976 og Bitcoin sveiflur 05.02.2026 1h
    Rætt við þær Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði sem bæði börn og fullorðnir sem verða fyrir slíku geta leitað í. Þá lítum við um öxl og flytjum brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjölluðum um Grænland. Og í lok þáttar var rifjað upp viðtal við Björgvin Inga Ólafsson hagfræðing frá árinu 2021 um Bitcoin sem þá var í hæstu hæðum. Staðan hefur breyst umtalsvert núna en rafmyntin hefur fallið verulega í verði síðustu mánuði.
  • Eyðibyggðir, dagur í lífi stelpu í 9. bekk og Grænland árið 1976 04.02.2026 59min
    Fræðimenn á ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands vinna nú að umfangsmikilli rannsókn sem ber heitið Eyðibyggðir miðalda á Íslandi. Þar mætast sagnfræðin og fornleifafræðin meðal annars og varpa nýju ljósi á hvernig samfélag og byggð þróuðust á Íslandi á tímabilinu 1100-1400 (ellefu hundruð og fjórtánhunduð). Árni Daníel Júlíusson rannsóknarsérfræðingur við Sagnfræðistofnun háskólans ræðir við Fanneyju Birnu Jónsdóttur og leiðir okkur í allan sannleika um þessa yfirgripsmiklu rannsókn og hvernig ólíkum aðferðafræðingum tekst að vinna saman og komast að niðurstöðum. Við ætlum að heyra um dag í lífi stelpu í 9. bekk. Karólína Orradóttir er Akureyringur sem ætlar að lýsa fyrir okkur hefðbundnum degi hjá sér, en hún er námsmaður, félagsmálatröll, tónlistarnemi og ansi upptekin. Gígja Hólmgeirsdóttir talaði við Karólínu fyrir norðan. Og í lok þáttar ætlum við að líta um öxl og flytja brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjölluðum um Grænland. Tónlist úr þættinum: Nick Drake - Pink moon. Sume - Upernaaq
  • Almyrkvi á sólu, gervigreind í Davos og dagskrárbreytingar á Rás 1 30.01.2026 59min
    Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi þann tólfta ágúst. Það er í fyrsta sinn síðan 1954 sem hægt verður að sjá almyrkva hér á Íslandi. Hann mun sjást á vestasta hluta landsins, og má búast við að fólk flykkist að til að verða vitni af þessum atburði. Við sláum á þráðinn vestur á Snæfellsnes þar sem Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði ætlar að segja okkur af undirbúningi þar. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins kemur til okkar um miðbik þáttar. Alþjóðaefnahagsráðstefnan í Davos er nýafstaðin, en þar var mikið rætt um gervigreind. Eyrún segir okkur undan og ofan af því. Nú hyllir í breytingar hér í Samfélaginu, en dagskrárbreytingar verða á Rás1um mánaðamótin. Af því tilefni ætlum við að skyggnast til baka og hlusta á brot úr fyrstu þáttum Samfélagsins. Fanney Birna Jónsdóttir dagskrárstjóri Rásar 1 og Anna Marsibil Clausen ritstjóri hlaðvarpa ætla síðan að segja okkur af því sem framundan er. En fyrst er það almyrkvi á sólu. Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist í þættinum: Bogomil font og fleiri - Gæfunnar par. Teitur Magnússon - Sumargestur.
  • Vinnumansal, bráðnun jökla og umhverfismál 29.01.2026 56min
    Þrældómur nútímans er yfirskrift málþings sem ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International heldur í næstu viku. fjallað verður um hvernig vinnumansal birtist okkur á Íslandi og á heimsvísu. Við fáum Árna Kristjánsson Ungliða- og aðgerðastjóra og Heiðrúnu Völu Hilmarsdóttur ungliða til okkar í upphafi þáttar. Síðasta jökulár 2024 til 25 fór illa með jöklana okkar. Þeir rýrnuðu um fimmtán milljarða tonna og virðist sem nú herði á bráðnun þeirra. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem Andri Gunnarsson verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun og Þorsteinn Þorsteinsson, sérfræðingur á sviði jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands ætla að segja okkur frá um miðbið þáttar. Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur hefur verið fastagestur í Samfélaginu um árabil, undanfarin ár höfum við spilað lesna pistla aðra hverja viku, en í dag kemur hann í eigin persónu og við ætlum að líta yfir farinn veg. Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist í þættinum: Sugarcubes - Birthday. Laufey - Bewitched. Svavar Pétur Eysteinsson, Prins Póló - Gítarjukk í B dúr.
  • Aðlögun að loftslagsbreytingum, hlaðvarp um fornleifafræði og ADHD 28.01.2026 59min
    Loftslagsbreytingum fylgja ýmsar áskoranir sem þarf að bregðast við, meðal annars þarf að tryggja að húsin okkar standi aukið álag af sér. Það var til umræðu í erindi Elínar Þórólfsdóttur teymisstjóra hjá húsnæðis- og mannvirkjastofnun á málþingi um aðlögun að loftslagsbreytingum á dögunum. Við tölum við Elínu í upphafi þáttar. Heiðnar grafir á Íslandi, landnám Reykjavíkur og Grænland og Ameríka eru meðal umfjöllunarefnis Moldvarpsins, hlaðvarps sem fjallar um íslenska fornleifafræði. Fornleifafræðingarnir Arthur Knut Farestveit og Snædís Sunna Thorlacius halda Moldvarpinu úti og ætlum við að spjalla við þau um miðbik þáttar. Í lok þáttar fáum við Eddu Olgudóttur til okkar í sitt reglulega vísindaspjall. Umræðuefnið í dag eru heilsukvillar sem geta fylgt ADHD. En við byrjum á aðlögun að loftslagsbreytingum. Tónlist í þættinum: This must be the place - Talking Heads Time of the season - The Zombies Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
  • Smáforritið Bati, Persónuvernd í 25 ár, ljótt og flott umhverfi 27.01.2026 58min
    Í dag ætlum við að kynna okkur smáforritið Bata, sem hefur það markmið að styðja við fólk með fíknisjúkdóma. Þórdís Rögn Jónsdóttir, annar stofnenda fyrirtækisins Rekovy á bak við smáforritið, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur meira. Á morgun verður haldið upp á 25 ára afmæli Persónuverndar – stofnunin býður til afmælismálþings í Eddu, húsi stofnunar Árna Magnússonar, þar sem fjallað verður um stöðu persónuverndar í síbreytilegum heimi. Margt hefur breyst síðan stofnunin var sett á stofn og Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að kíkja við og spjalla um það. Síðan fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Tónlist úr þættinum: PAUL SIMON - You Can Call Me Al. OYAMA - Vinur vina minna.
  • Arkitektúr, 5G og Húsmæðraþættir 26.01.2026 1h
    Við ætlum að halda áfram að ræða hið byggða umhverfi á Íslandi, eins og við höfum gert talsvert mikið síðustu vikur. Við höfum verið að reyna að skilja betur hvers vegna byggða umhverfið okkar er eins og það er, hvernig okkur líður í því og hvernig við tölum um það. Í dag fáum við sjónarhorn arkítekta, þegar Björg Torfadóttir, framkvæmdarstjóri Arkitektafélags Íslands sest hjá okkur til að ræða þessi mál. 5G er næsta skref í fjarskiptum hér á Íslandi og annars staðar í heiminum. 5G hefur verið kallað límið í fjórðu iðnbyltingunni og á að vera stökk frá fyrirrennurum sínum 2, 3 og 4G. Innviðauppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og stendur nú til að slökkva á síðustu 2G og 3G sendunum til að gera pláss fyrir nýja kerfið. Ólafur Magnússon frá fjarskiptafyrirtækinu NOVA kemur fræðir okkur um þetta á eftir. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, ætlar að flytja gullmola úr safni RÚV, eins og hún gerir hér í Samfélaginu annan hvern mánudag. Í dag rifjar hún upp gamlan dagskrárlið á Rás 1 sem bar nafnið Húsmæðraþættir. Tónlist í þættinum: Hjálmar - Kindin Einar. Hill, Lauryn - Can't take my eyes off you. Polo and Pan - Canopée. La Havas, Lianne - Disarray.
  • Óskarsverðlaunin á Youtube 2029, stefna í áfengis- og vímuvarnarmálum og endurheimt vistkerfa 23.01.2026 57min
    Nýlega var tilkynnt að Óskarsverðlaunin árið 2029 verða sýnd á Youtube, vídeómiðli í eigu Google. Hvað segir það okkur um umhverfi fjölmiðla og kvikmynda að einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins verði sýndur á miðlum tæknirisa? Við ætlum að velta þessu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, í upphafi þáttar. Á miðvikudaginn voru niðurstöður starfshóps um stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035 birtar til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Starfshópurinn hefur verið að störfum í næstum því tvö ár, enda voru verkefni hans stór; að kortleggja stöðu áfengis- og vímuefnamála á Íslandi og bregðast við stefnuleysi sem hefur ríkt í málaflokknum. Kristín I. Pálsdóttir, formaður starfshópsins, sest hjá okkur í dag og ræðir drögin. Gömul stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal á Mýrum í Borgarfirði var fjarlægð við lok síðasta árs. Markmiðið var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska, og gera meðal annars sjóbirtingi kleift að ganga upp ána. Fuglavernd stóð fyrir verkefninu í samstarfi við Land og skóg og Hafrannsóknastofnun. Við hringjum í Jóhannes Guðbrandsson frá Hafrannsóknastofnun við lok þáttar og fáum að heyra af þessu. Tónlist úr þættinum: ASAP Rocky - Punk Rocky (Lyrics!). Svavar Knútur Kristinsson - Soundtracks. Eels - Novocaine for the soul.
  • Bómullarkynslóðin endurskoðuð og gervigreindarhæp 22.01.2026 55min
    Í dag ætlum við að líta um öxl og rifja upp eldri umfjallanir sem hafa staðið tímans tönn. Fyrst flytjum við pallborðsumræður sem við vorum með hér í Samfélaginu í september 2024 þar sem fjallað var um kynslóðir. Við fengum til okkar nokkra góða gesti af nokkrum kynslóðum, spjölluðum við þau um skilning þeirra á kynslóðarmun og meintan ríg milli kynslóða. Síðar í þættinum flytjum við viðtal við írskan gervigreindarsérfræðing sem við fluttum í mars árið 2025. Þar fjölluðum við um hugtakið gervigreindarhæp.
  • Mannvæn mannvirki, læsi, lestur og svefnleysi 21.01.2026 59min
    Hvers vegna líður okkur oft ekki vel í byggða umhverfinu okkar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig að þessa dagana, við í Samfélaginu þeirra á meðal. Við ætlum að halda áfram að fjalla um byggðarmál – í dag frá sjónarhorni arkítekta. Arnhildur Pálmadóttir arkítekt ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða mannvæn mannvirki, sjálfbærar byggingaraðferðir, fagurfræði, nostalgíu, skipulagsmál, og ýmislegt fleira. Síðan ætlum að ræða lestur og læsi. Hver er munurinn á þessu tvennu? Hvað þarf til að geta lesið sér til gagns? Hvað vitum við í raun og veru um stöðu læsis og lesturs á Íslandi? Sigríður Ólafsdóttir, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, ætlar að segja okkur meira. Og í lok þáttar er það hið vikulega vísindaspjall. Edda Olgudóttir kíkir við og segir okkur frá nýlegum rannsóknum á áhrifum svefnleysis á heilann.
  • Jöklar, sveitarstjórnarkosningar og kynjakvótalögin 20.01.2026 55min
    Okjökull fyrrverandi og Hofsjökull eystri eru viðfangsefni vísindagreinar sem birtist nýverið í alþjóðlega vísindaritinu annals of glaciology. Því var lýst yfir fyrir tólf árum að Okjökull væri horfinn. Hofsjökull eystri tórir enn, en talið að hann muni hverfa að óbreyttu eftir þrjátíu og fimm til fjörutíu ár. Eyjólfur Magnússon frá Jarðfræðistofnun háskóla íslands og Hrafnhildur Hannesdóttir frá Veðurstofu Íslands eru meðal höfunda greinarinnar. Við spjöllum við þau í upphafi þáttar. Við hringjum síðan austur á land og heyrum í Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sambandið er að fara af stað með átak til að auka þátttöku almennings í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Meira um það um miðbik þáttar. Við ræðum síðan jafnrétti kynjanna í lok þáttar. Í fyrra voru liðin fimmtán ár frá setningu laga um hlutföll kynja í stjórnum fyrirtækja. Þau fara fram á að hlutfall kvenna sé þar 40%. Ásta Dís Óladóttir prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fleiri birtu grein á dögunum í ritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Þar er farið yfir þróun mála frá setningu laganna fyrir fimmtán árum, áhrif þeirra og viðhorf til frekari aðgerða. Ásta Dís ætlar að segja okkur frá niðurstöðunum á eftir. En fyrst eru það jöklarnir. Tónlist í þættinum: Right Down the Line - Bonnie Raitt Heat Lightning - Mitski
  • Sjálfbærni, áhrif loftslagsbreytinga á hönnun samgönguinnviða og safn Annie Leifs 19.01.2026 59min
    Í dag ætlum við að taka púlsinn á sjálfbærnimálum. Stærsti sjálfbærniviðburður ársins er að nálgast, það er Janúarráðstefna Festu, miðstöðvar um sjálfbærni. Þema ráðstefnunnar í ár er umbreyting, en meðal annars verður fjallað um sjálfbærni á tímum geópólitískrar óvissu, loftslagsbreytinga og hraðrar tækniþróunar. Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu, kíkir til okkar í upphafi þátta til að segja okkur meira. Gera þarf ráð fyrir loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra í hönnun samgönguinnviða hjá Vegagerðinni. Páll Valdimar Kolka Jónsson, verkefnisstjóri umhverfismála, segir að hluti af því sé að sætta sig við óvissu í hönnunarferlinu. Við fáum að heyra betur af því á eftir. Í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafnið. Að þessu sinni ætlar Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skjalavörður að sýna og segja frá safni sem kemur frá Annie Leifs, eiginkonu Jóns Leifs tónskálds, dætrum þeirra og fjölskyldu.
  • Loðnuleiðangur Hafró og New European Bauhaus 16.01.2026 58min
    Fimm skip taka þátt í rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í næstu viku. Í honum á að kanna stöðu loðnustofnsins sem heldur til fyrir norðan landið þessa dagana. Niðurstöður verða nýttar til að veita ráðgjöf um hve mikla loðnu verður heimilt að veiða í ár. Loðnan er verðmætur fiskur og ríkir spenna fyrir niðurstöðunum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talar við Guðmund J. Óskarsson sviðsstjóra hjá Hafró um leiðangurinn og loðnuna sjálfa, sem er nokkuð frábrugðin öðrum fisktegundum sem við Íslendingar veiðum. New European Bauhaus er verkefni á vegum Evrópusambandsins þar sem markmiðið er að gera búsetuumhverfi borga og bæja sjálfbærara, fallegra og aðgengilegra. Hér á Íslandi eru byggingar og verkefni sem eru sagðar í anda New European Bauhaus, og sumir vonast jafnvel til þess að verkefnið geti lagað þau vandamál sem við erum að glíma við hér á Íslandi. En hvað er New European Bauhaus? Í dag fáum við til okkar tvo gesti frá félagssamtökunum Grænni byggð – sem taka þátt í verkefni sem tengist New European Bauhaus á Norðurslóðum – til að ræða þetta nánar. Það eru þær Katarzyna Jagodzinska framkvæmdastjóri og Elín Þórólfsdóttir stjórnarformaður Grænni byggðar. Tónlist: Bergman, Natalie - Shine Your Light On Me. Moses Hightower - Búum til börn. Parton, Dolly - These old bones. Girl in Red - Hemingway
  • Fornverk í Höfnum, aðlögun að loftslagsbreytingum og sjálfstæði Grænlands og auðlindir 15.01.2026 58min
    Þegar Sveinn Enok Jóhannsson kom sér upp heimili í Höfnum á Reykjanesskaga vildi hann læra að hlaða og lagfæra gamlar hleðslur í garðinum sínum. Þegar það reyndist erfitt að komast á námskeið brá hann á það ráð að finna sérfræðing, halda sjálfur námskeið og bjóða öðrum að koma og læra með sér. Heyrum af þessu á eftir. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, flytur okkur pistil um miðbik þáttar. Í dag fjallar hann um hvað það kostar að aðlaga samfélagið að loftslagsbreytingum. Og í lok þáttar ætlum við að rifja upp viðtal sem var flutt hér í Samfélaginu í mars síðastliðnum. Þá, fyrir næstum því ári síðan, var Grænland í brennidepli vegna yfirlýsinga Bandaríkjaforseta um að leggja landið undir sig. Síðan þá hefur forsetinn margítrekað vilja sinn til að ná yfirráðum yfir Grænlandi, nú af meiri krafti en áður. Í þessu ljósi finnst okkur tímabært að rifja upp viðtal Arnhildar Hálfdánardóttur við Rachael Lornu Johnstone, prófessor í lögfræði og sérfræðing í þjóðarrétti við Háskólann á Akureyri og Illisimatursafik-háskóla á Grænlandi, um sjálfstæði Grænlands og auðlindir. Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist í þættinum: Lovin' Feeling - French 79 Secret Garden - Lamomali Fer sem fer - Moses Hightower No Reason - Big Thief Pivfit Nunat - Sumé

Popularan u

Ovaj podcast se pojavljuje i u podcast listama ovih zemalja.