Fjármálakastið
Fjármálakastið
0
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
Epizode
-
Þáttur 114 - Viðtal við Ragnar Árnason prófessor í hagfræði 11.08.2026 45minÍ þessum þætti er rætt við Ragnar Árnason prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands. Rætt er um áhrif þess á sjávarútveginn ef Ísland myndi ganga í ESB, áhrif aukinnar skattlagningar stjórnvalda á sjávarútveginn, gang greinarinnar, ETS kerfið og fleira. ------------SamstarfsaðilarReykjavík FintechBella BooksAkademias -
Þáttur 113 - Viðtal við Má Wolfgang Mixa prófessor við HÍ 06.08.2026 50minÍ þessum þætti er rætt við Má Wolfgang Mixa prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um efnahagsmálin en stýrivaxtaákvörðun verður tilkynnt í lok mánaðar, einnig var rætt um hvort sameiningar á bankamarkaði séu mögulegar eftir að Samkeppniseftirlitið gaf út sína afstöðu til málsins og margt fleira.-----------SamstarfsaðilarAkademiasReykjavík Fintech -
Þáttur 112 - Rætt um horfur í ferðaþjónustunni við framkvæmdastjóra SAF 20.07.2026 49minÍ þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðu og horfur í greininni. Rætt er um fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda á greinina, boðaða neytendamarkaðssetningu, hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst blasir við greininni og margt fleira.-------------Þátturinn er í samstarfi við Reykjavík Fintech. -
Þáttur 111 - Spjall við Val Þór, meðstofnanda Taktikal 17.07.2026 41minÍ þessum þætti er rætt við Val Þór Gunnarsson meðstofnanda tæknifyrirtækisins Taktikal. Rætt er um vöxt og rekstur fyrirtækisins, nýsköpunargeirann, þá hröðu tækniþróun sem er að eiga sér stað um þessar mundir og hvaða áhrif hún mun hafa á rekstur fyrirtækja og margt fleira.----------Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech. -
Þáttur 110 - Viðtal við Hermann Guðmundsson forstjóra Kemi 09.07.2026 27minÍ þessum þætti er rætt um rekstur og vöxt fyrirtækisins Kemi sem Hermann Guðmundsson hefur stýrt um langt skeið. Rætt er um nýleg kaup Kemi á Fálkanum-Ísmar, vaxtartækifærin í geiranum á næstunni, nálgun Hermanns á rekstur og stjórnun fyrirtækja, efnahagsástandið og margt fleira.Vek athygli á fréttabréfi Fjármálakastsins en lesa má eldri bréf á fjarmalakastid.substack.com.Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech. -
Þáttur 109 - Viðtal: Fjártækni á Íslandi í sókn 02.07.2026 42minÍ þessum þætti er rætt við Gunnlaug Jónsson stofnanda og stjórnarformann Reykjavík Fintech. Rætt er um vöxtinn sem hefur átt sér stað í fjártæknigeiranum, einkum að undanförnu, starfsemi Fjártækniklasans, tækifærin í fjártækni og á sviði gervigreindar og margt fleira.Ég vil einnig vekja athygli á nýju fréttabréfi Fjármálakastsins. Hægt er að lesa bréfin og gerast áskrifandi á fjarmalakastid.substack.com.Fjármálakastið er í samstarfi við Reykjavik Fintech. Beiðnir um auglýsingar, styrki eða annars konar samstarf má senda á magdalena@reykjavikfintech.is. -
Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd 19.06.2026 42minÍ þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, vöxt hins opinbera og efnahagsmálin. -
Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion 11.06.2026 39minÍ þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira. -
Þáttur 106 - Efnahagsspjall við Agnar Tómas Möller 21.05.2026 30minÍ þessum þætti er rætt um ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 25 punkta. Einnig er rætt um efnahagsmálin, Opinber fjármál, sjávarútveginn og skuldabréfamarkaðinn. -
Þáttur 105 - Viðtal við Hreiðar Má Hermannsson, forstjóra Eikar 08.05.2026 34minÍ þessum þætti er rætt við Hreiðar Má Hermannsson forstjóra fasteignafélagsins Eikar. Rætt er um stöðu og horfur í rekstri Eikar, atvinnuhúsnæðismarkaðinn, horfur í efnahagsmálum og fleira. -
Þáttur 104 - Efnahagsspjall með Unu Jónsdóttur hjá Landsbankanum 21.04.2026 25minÍ þessum þætti er rætt um nýja Hagspá Landsbankans og efnahagsmálin. Rætt er við Unu Jónsdóttur aðalhagfræðing Landsbankans. -
Þáttur 103 - Spjall um tækni og hugverkaiðnaðinn 17.04.2026 27minÍ þessum þætti er rætt við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rætt er um nýja atvinnustefnu stjórnvalda, framþróun á sviði gervigreindar og vöxt hugverkaiðnaðarins en Samtök iðnaðarins gáfu út skýrslu um það málefni á dögunum.----------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 102 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson 26.03.2026 32minÍ þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson sem starfaði lengi vel sem forstjóri Ölgerðarinnar sem nú heitir Bera. Rætt er um þær breytingar sem eru í farvatninu hjá fyrirtækinu, vaxtartækifærin hjá fyrirtækinu, nýtt hlutverk Andra Þórs innan fyrirtækisins, efnahagshorfur og ýmislegt fleira.----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 100 - Praktísk ráð í rekstri frá Sólveigu í Strata Advisory 20.02.2026 27minÍ þessum þætti er rætt við Sólveigu Gunnarsdóttur fjármálaráðgjafa og eiganda Strata Advisory. Rætt er um rekstur fyrirtækja, námskeiðið Praktík í rekstri sem ráðgjafarfyrirtækið stendur fyrir, efnahagsástandið, hvernig skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru að hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri og margt fleira.--------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 99 - Efnahagsspjall við Þórð Pálsson 09.02.2026 40minÍ þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt var um vaxtaákvörðunina í síðustu viku, stöðuna á vinnumarkaði, ríkisfjármálin, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á efnahagslífið, fjártækni og samruna á bankamarkaði.-----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 98 - Viðtal við Daða Kristjánsson hjá Visku sjóðum 03.02.2026 32minÍ þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt er um tækifærin á sviði gervigreindar um þessar mundir bæði fyrir fyrirtæki og starfsmenn, vaxtaákvörðun Seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun og fleira.-----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 97 - Björn Berg: „Gott að hafa ofnæmi fyrir skuldum“ 22.01.2026 51minÍ þessum þætti er rætt við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um persónuleg fjármál og markmiðasetningu í fjármálum. Hann segir að besta fjármálaráðið sem hann gefi fólki gjarnan er að þróa með sér ofnæmi fyrir því að skulda og kveðst ekki vera hrifinn af því viðhorfi sem virðist vera ríkjandi um að nánast ómögulegt sé fyrir fyrstu kaupendur að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þá er einnig rætt um hvernig foreldrar ættu að ræða við börnin sín um fjármál, efnahagsmálin og margt fleira. -----------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 96 - Spjall um skatta, regluverk og landeldi 15.01.2026 54minÍ fyrsta þætti ársins 2026 er rætt við Orra Hauksson stjórnarformann First Water og fyrrum forstjóra Símans. Farið var um víðan völl og meðal annars rætt um fjárfestingar í landeldi, starfsemi First Water og hvað sé á döfinni hjá fyrirtækinu. Þá var einnig rætt um erindi Orra á Skattadegi Deloitte, horfur í efnahagsmálunum og fleira. -------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 95 - Efnahagsspjall með Kára í Arion 27.10.2025 31minÍ þessum þætti var rætt um efnahagsmálin við Kára Friðriksson hagfræðing í Arion greiningu. Rætt var um áhrifin af biluninni á Grundartanga á efnahagslífið, áhrifin af falli Play á ferðaþjónustuna, vaxta og verðbólguhorfur og horfur á fasteignamarkaði í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Þá var farið yfir nýja Hagspá Arion banka og að lokum rætt um skýrslu bankans um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi.--------------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid -
Þáttur 94 - Yfirferð yfir Q2 uppgjörin með Helga Frímanns 17.09.2025 1h 14minFjármálakastið snýr aftur eftir smá sumarfrí og er þétt dagskrá fram undan í haust. Í þessum þætti er farið yfir allt það helsta sem fram kom í uppgjörum skráðu félaganna í Kauphöllinni fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi hjá New Iceland Advisors mætti í settið til Magdalenu Torfadóttur. Í þættinum er rætt um horfur í starfsemi allra félaganna og einnig hvernig markaðurinn í heild sinni muni þróast á næstunni. Þá er einnig rætt um hvaða nýskráningar gætu verið væntanlegar í Kauphöllina, tækifærin í landeldi og ýmislegt fleira.---------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Popularan u
Ovaj podcast se pojavljuje i u podcast listama ovih zemalja.