LANGA - hlaðvarp

LANGA - hlaðvarp

Snorri Björns
Země Iceland
Žánry Health & Fitness
Jazyk IS
Epizody 98
Nejnovější 31.05.2026

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

Epizody

  • 88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA 31.05.2026 2h 8min
    Engir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… 2:39 maraþon… ???) til lyfjaeftirlitsins útaf peptíðum, Francesco Puppi efast um að 400km hlaup flokkist sem utanvegahlaup og Íslendingar munu valda skaða á Evrópumeistaramótinu næstu helgi.
  • DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine 22.05.2026 1h 36min
    Á ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá Afrekslandinu til þess að ræða um árangur íþróttafólks með tilliti til frammistöðuaukandi efna: Testesterón, HGH, EPO, örvandi efni (hvað ertu búin með marga kaffibolla í dag?) og insúlín - hefur þetta einhver áhrif? Eru allir á sterum? Eru lyfjaprófin að virka sem skildi? Munu Enhanced Games sýna að allir eru að dópa? Af hverju fá sumir undanþágur fyrir frammistöðuaukandi efnum?Ingimar er bjartsýnn, yfir meðalgreind og trúir á það góða í manneskjunni - rétt eins og hlustendur LANGA hlaðvarps. Eigið góða helgi!
  • 86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar 10.05.2026 1h 11min
    Hlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er viðkoma maraþonundirbúningi og þeirri staðreynd um hversu erfitt það er að framkvæma gott maraþon: Kolvetnainntaka, magaóþægindi, carbon skór, maraþon undir 1:59 á árinu, vafasöm hematókrítgildi, að fá ekki mynd af sér með Jakobi Ingebrigtsen (?), Íslandsmetið í hálfu maraþoni og allt hitt sem langhlauparar landsins hugsa um þegar þeir leggjast á koddann eftir erfiðan æfingadag.
  • 85. KRISTIAN BLUMMENFELT 07.05.2026 1h 16min
    Coming off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt.What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off multiple half Ironmans and Ironmans in the span of a couple of weeks? What happened to only running 2 marathons a year? When did the high-carb revolution hit the Norwegians? Can recent endurance performances be attributed to the super shoes and carbohydrates alone? Did Kristian hit the coach jackpot when he entered triathlon?We discuss the high-milage approach, cleaning up his diet while eating 7.000 calories, not being good at any sport as a kid but still wanting to be an Olympic champion, Norseman, Klæbo’s isolation tactics, training with the Ingebrigtsen brothers, almost not being accepted for class, knocking out a 1:08 half marathon in his off season, the possibility that he absorbs more calories from food than the average person, the 100+ VO2max test, deviating from the Norwegian measure-everything approach, and not signing with the Norwegian national team.
  • 84. Baldvin Þór Magnússon 30.04.2026 1h 5min
    Viðbrögð við sub2 maraþoni, kolvetni og carbon skór, uppgjör á fyrstu götumílunni, hvernig hleypur einhver 25 ára gaur maraþon á 2:05 (fjórði hraðasti tími Bandaríkjamanns), meiðslin, Nike samningurinn og vegferðin í átt að Birmingham 2026.
  • BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb? 27.04.2026 1h 36min
    Latsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas stal þrumunni og setti báða sub2 hlauparana í Adidas skó, lyfjaprófin 25 sem Sawe bað um aukalega til að sanna sakleysi sitt, ný tegund ofurskóa ryður sér rúms, eru fleiri sem geta hlaupið undir tveimur en eru með samning við vitlausan skóframleiðanda? Virkaði bicarb á keppnisdegi og hvað tóku þeir inn mörg grömm af kolvetnum? 
  • 82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón 23.04.2026 1h 38min
    Eru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max??Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og fyrirtæki. Snorri veitir hér sína skoðun á því hvort leikurinn snúist um að verða sá besti eða sá vinsælasti: hver ber ábyrgð á vinsældum íþróttamanns, fjölmiðlar eða íþróttamaðurinn sjálfur? Er það vinsælasti eða besti íþróttamaðurinn sem á peninginn skilið? Eru einstaklingar að þykjast vera sponsaðir? Eiga íþróttamenn peninga skilið yfir höfuð? Hverjir fá samninginn við Nike og Adidas? Hvað vilja fyrirtæki fá út úr samstarfi? Þarf að sýna frá öllu lífi sínu ef maður ætlar að hafa eitthvað upp úr íþróttinni? Eru fyrirtæki of varkár?Snorri rekur einnig samstarf sitt við Björgvin Karl (lirfan sem varð að fiðrildi), að hjálpa íþróttafólki sem fellur á lyfjaprófi og eigin raunir af því að fá annan séns í lífinu.
  • Hæsta VO2max Íslendings, KRISTIAN BLU óstöðvandi, leiðir til að bæta sig/meiðast og lygilegar mælingar 17.04.2026 2h 1min
    Hans fræðsla, þinn árangur.Latsi heldur uppi ábyrgri umræðu um hæstu VO2max mælingar Íslandssgöunnar (official), ástæðu (eintala) þess að Arnar hægði á sér undir lok 100km hlaupsins, konur sem hlaupa Boston maraþonið 🤨, tilraun Hlyns við hraðasta maraþon Íslendings, YFIRBURÐIR Kristians Blummenfelt og hrottalegar (leynilegar) hlaupaæfingar, lygilegar mjólkursýrumælingar og nokkrar leiðir til að hlaupa hraðar og meiðast.
  • Fraser mútar BKG, VO2max genafrík, KLÆBO, komdu þér á framfæri og Northaug í neyslu 09.04.2026 1h 57min
    Þurfa þessir íþróttamenn stanslausa styrki til þess að iðka íþróttina sína eða er hægt að taka málin í eigin hendur?Gunni Birgis og Björgvin Karl mæta nýklipptir í stúdíóið til að ræða ótrúlegan uppgang og vinsældir CrossFit, hvernig íslensku CrossFittararnir byggðu feril sinn á gríðarlegum vinsældum (og hvaða tækifæri opnuðu dyrnar að stóru samningunum), LYGILEGAR mútugreiðslur frá Matt Fraser til Bjögga, hvatningu til íþróttafólks um að trana sér meira fram, bekkjarbróðir Gunna mældist með hæsta VO2max í sögunni og varð heimsmeistari í hjólreiðum án þess að nenna því neitt sérstaklega, hard work vs. talent, Bjögga-bölvunin og byltan hans Klæbo, HEGGEN26, Ethereum vs. Bitcoin (fjárfestingarráðgjöf), Petter Northaug með ökklaband í heimagymminu og síðast en ekki síst - er kominn tími til að setja íþróttafólk utan á matvörur?
  • 79. Hlaupari með Íslandsmet í kraftlyftingum - Björn Margeirsson 02.04.2026 1h 38min
    Björn Margeirsson er einn af 5 systkinum sem öll eru doktorar. Hann er einn besti millivegalengdahlaupari Íslandssögunnar, lengdi upp í maraþonið og Laugaveginn, tók brautarmetið hans Þorbergs Inga og sneri sér svo að kraftlyftingum - þar sem Íslandsmetin fengu heldur engan frið.Bjössi er úr sveit og segir hlutina þess vegna eins og þeir eru. Eiga allir að flytja út 15 ára? Eru frjálsar að deyja út? Er CrossFit íþrótt? Af hverju vilja crossfittarar ekki lyfjapróf? Er hægt að fá athygli ef maður hleypur styttra en 10km?
  • 78. BONK æfingar, árangur út frá bakgarðinum, UTMB deilur, ketó og lexíur brautryðjandans - Elísabet Margeirs fer yfir áratug af ULTRA 27.03.2026 1h 53min
    Elísabet Margeirs með væææna yfirferð á hlaupasenunni allt frá því að hér varð hrun. Ekki nóg með að ryðja brautina fyrir ultrahlaupum á Íslandi þá er hún að auki með frábæra innsýn í hlaupasenuna úti um allan heim ásamt því að vera næringarfræðingur, hlaupahaldari og þjálfari. Við ræðum hvernig bakgarðurinn spilar inn í ótrúlegan árangur Elísu, BONK æfingarnar sem hefði mátt sleppa, hvað Elísabet sagði við Elísu til að ýta henni nokkra hringi í viðbót á ögurstundu, breytingar á mataræði hlaupara í gegnum tíðina („guð minn góður hvað ég er búin að vera vannærð í gegnum tíðina í þessum löngu hlaupum“), hvað Tobbi var að gera öðruvísi en allir hinir, dramað sem fylgir vinsældum UTMB og vöxtinn frá litlu derhúfu-nördasamfélagi í þjóðaríþrótt Íslendinga.
  • 77. Elísa Kristinsdóttir – Gott form, harður haus. 25.03.2026 1h 27min
    Elísa keppti í Chianti 75km síðustu helgi og sigldi sigrinum heim á móti Judith Wyder. Þetta er ekki eini UTMB sigurinn hennar síðan hún kom síðast í viðtal hjá LANGA og í millitíðinni var hún tekin inn í landsliðið, lenti í 11. sæti á HM og hljóp 10km undir 35 mín.Á sama tímabili fór hún í gegnum meiðsli og þjálfaraskipti sem við ræðum í þættinum ásamt ótrúlegri (og nákvæmri) kolvetnainntöku í Chianti, að líta ekki of mikið upp til Judith Wyder, hugarfarinu sem þarf til að ákveða að taka fram úr henni með tugi kílómetra eftir af hlaupinu, hvaða hugarleikfimi Elísa stundar í ultra halupum, hvernig henni tekst að ná öllu úr sér í hverju einasta keppnishlaupi, að vera hörð við sjálfa sig og af hverju hún þarf þjálfara.
  • 76. Hlauparar með myndavélar, KILIAN, Elísa & Andrea á móti heiminum, landsliðsvalið og Arnar Péturs stigahæstur 07.03.2026 1h 57min
    Synir LANGA, Egill Örn og Guðlaugur Ari, fara yfir liðna atburði og veisluna sem er í vændum:​Þarf að vera besti hlaupari landsins OG áhrifavaldur til þess að leggja íþróttina fyrir sig?​Óánægja með landsliðsvalið​Pendúllinn sveiflast: er FH að skemma partýið? Er brautin snúin aftur?​Annað hvort er Arnar Péturs í formi lífs síns eða að hlaupa á biluðu hlaupabretti.​Hvort myndirðu frekar: 27:40 í 10km eða 6:20:00 í 100km?​Elísa og Andrea keppa á móti bestu hlaupurum í heiminum eftir nokkra daga!​Hlynur Andrésson með sub29 í 10km og keppir stíft næstu vikur.​UFA Hype Train er bremsulaus.​SISU​Kilian Jornet gaf fólkinu nákvæmlega það sem það vildi. 2026 er árið.
  • 75. KLÆBO djúpköfun: yfirburðirnir, æfingarnar, spretturinn og afinn. 27.02.2026 2h 1min
    Það dugði ekki minna til en að fá ólympíufarann, og fyrrum keppniaut Klæbo, Sævar Birgisson til þess að kafa djúpt í árangur og yfirburði Johannes Høsflot Klæbo sem við erum að horfa upp á þessa dagana. Hvernig varð hann svona góður? Er eðlilegt að geta unnið bestu sprettarana og líka mestu úthaldsvélarnar? Er þetta grunsamlegt? Hvernig æfir hann? Af hverju gera hinir ekki bara eins og hann? Hver er afi hans og af hverju geta þeir tveir farið gegn kerfinu og sigrað heiminn? Sævar fer með stórleik í sögugreiningu og fróðleik, gegn misgáfulegum spurningum Snorra Björnssonar, í þessum þætti.
  • Á ég að létta mig til að verða betri? Hormónar, fituprósenta, Vo2max og þreyttir íþróttamenn. 20.02.2026 1h 31min
    Sigurður Örn Ragnarsson, Siggi í Greenfit, ræðir hér kaloríur, íþróttir og hvar við förum út af sporinu: Testesterón, lægri fituprósenta, bætingar, endurheimt, hormónajafnvægi, beinheilsa, þreyta og orkuleysi, orkuþörf á hvíldardögum, æfingamagn og ótrúleg tölfræði þeirra bestu í heiminum.
  • KLÆBO ER FARINN, íþróttamenn eða áhrifavaldar, afrek eða athygli, hver er ábyrgð fréttamanna? - Gunnar Birgisson 16.02.2026 2h 4min
    Djúpköfun á árangri Johannes Klæbo: besta skíðagöngu- og sýklahræddasta íþróttamanni sögunnar. Afrek hans eru öll samkvæmt plani en afi hans og þjálfari lagði upp með að gera Klæbo að þeim besta í heiminum fyrir mörgum árum - þegar engar tölur bentu til þess að þarna væri „talent“ á ferðinni.Gunnar Birgisson mætir til þess að fræða okkur um afrek Klæbo og annarra Ólympíufara en við krefjum hann einnig um svör við valinu á Íþróttamanni ársins, hvernig Baldvin endaði í 17. sæti og hvort að íþróttamenn þurfi að vera duglegri við að láta bera á sér.Þessi þáttur er ekki bara smekkfullur heldur funheitur í þokkabót.
  • 72. Baldvin Þór – Tímamótaskref 25.01.2026 1h 28min
    Baldvin tók 10km tímann sinn úr 29:30 niður í 27:40 á aðeins nokkrum vikum. Íslandsmetið er núna 2 sekúndum frá landsmeti Breta og 8 sekúndum frá landsmeti Bandaríkjamanna. Baldvin lýsir sjálfstraustinu sem byggðist upp vikurnar fyrir hlaup, ákvörðuninni um að breyta keppnisrútínunni (sleppa koffíni, sleppa rauðrófusafa) og treysta sjálfum sér, hvort að hann hefði getað hlaupið þetta hraðar (svarið er já), léttinn við að koma í mark og afleiðingarnar dagana eftir. Við ræðum þessi tímamótaskref sem eru án vafa að setja feril Baldvins í veldisvöxt með tilheyrandi athygli almennings og styrktaraðila.
  • 71. Baldvin, double threshold og hugarfar heimsmeistara - Siggi og Latsi 19.01.2026 1h 45min
    Siggi og Latsi mættu með 13.000 efnaskiptapróf og glósubók undir beltinu til að athuga hvað sé hægt að læra af manninum sem þjálfaði upp fjóra heimsmeistara:Hugarfarið, magnið, ákefðin, kaloríurnar, hvíti djöfullinn og mjólkursýrumælingarnar, og hvernig þetta nýtist þér á þínum æfingum – ásamt greiningu á VO2max og mögulegum maraþontíma Baldvins Þórs eftir sögulegt 10km hlaup og vegferð Andreas Almgren úr 200m yfir í hálft maraþon (hrottaleg meiðslasaga yfir í besta hlaupara Evrópu).
  • 70. Svona verðuru heimsmeistari - í alvörunni. 16.01.2026 1h 19min
    Arild Tveiten tók við Kristian Blummenfelt árið 2011, sem þá var "not good at anything," og gerði hann að besta þríþrautarmanni heims. Þjálfunaraðferðir Arilds hafa getið af sér þrjá Ironman heimsmeistara til viðbótar og orðið heimsfrægar undir formerkjum The Norwegian Method.Arild leyfði norsku krökkunum ekki að efast í eina sekúndu um að þau gætu orðið best í heimi og ræðir í þættinum lykilinn að árangrinum: double threshold, freistinguna til að byggja upp hraða, Norwegian 4x4mín, álagsstýringu, mjólkursýrumælingar, krossþjálfun fyrir hlaupara og magn magn magn.
  • 69. Hlaup: aldrei stærri, aldrei hraðari. Vorri og Snorri með augun á 2026. 06.01.2026 2h 12min
    Yfirferð á árinu sem leið og hvaða bombur eru væntanlegar 2026. Greiningar á nýliðum, framförum, frammistöðum, óvæntum atburðum og vinsældum hlaupa á Íslandi - allt rökstutt með gögnum og góðum sögum. Viktor Orri mætti í stúdíóið í miklum gír, vægt til orða tekið.

Oblíbený v

Tento podcast se objevuje také v podcastových žebříčcích těchto zemí.