Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Útvarp Saga
Země Island
Jazyk IS
Epizody 1351
Nejnovější 21.10.2026

Opin og beinskeitt umræða um þjóðfélagsmál.

Epizody

  • Skipulagsmálin - Hjördís Vilhjálmsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson & Sigurður Örn Hilmarsson 21.10.2026 54min
    Hjördís Vilhjálmsdóttir ræðir um skipulagsmál við þingmennina Guðlaug Þór Þórðarson og Sigurð Örn Hilmarsson frá Sjálfstæðisflokknum.  -- 21. okt. 2026
  • Stjórnmálaumræðan - Pétur Gunnlaugsson & Guðbjörn Guðbjörnsson 21.10.2026 55min
    Pétur Gunnlaugsson ræðir við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara um stöðu stjórnmála í Evrópu, Rússland og ógnarvald.  -- 21. okt. 2026
  • Arnþrúður Karlsdóttir & Jón Gnarr 20.10.2026 1h 44min
    Arnþrúður Karlsdóttir fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður ræðir við Jón Gnarr þingmann sem er nú utan flokka um veru hans í Viðreisn og raunverulegar ástæður fyrir þeirri ákvörðun hans að yfirgefa þingflokkinn og gera sérstakan samning við Viðreisn samhliða því.  -- 20. okt. 2026
  • Arnþrúður Karlsdóttir & Arnar Þór Jónsson 19.10.2026 1h 3min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Arnar Þór Jónsson lögmann um erindi sem hann hefur sent stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um að sett verði á fót rannsóknarnefnd um störf Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Einnig fara þau yfir óánægjuna innan Viðreisnar og uppreisnina í Frakklandi og áhrif hennar á Evrópusambandið.  -- 19. okt. 2026
  • Arnþrúður og Pétur gefa miða 16.10.2026 1h 1min
    Arnþrúður og Pétur fara yfir helstu málin og gefa miða á tónleikana Á móti sól í Háskólabíói og Ingimars Eydal í Hörpu. -- 16. okt. 2026
  • Bakstursmaraþon - Arnþrúður Karlsdóttir, Lilja Katrín Gunnarsdóttir & Guðmundur R. Einarsson 15.10.2026 44min
    Góðgerðarviðburður framundan í heilan sólarhring. Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Lilju Katrínu Gunnarsdóttur og eiginmann hennar Guðmund R. Einarsson sem standa fyrir maraþoninu sem hefst kl. 12:00 á laugardaginn og varir í sólarhring. Viðburðurinn fer fram í sýningarsal HTH og Ormsson Lágmúla 8.  -- 15. okt. 2026
  • Tónlistarþáttur - Arnþrúður Karlsdóttir, Heimir Eyvindsson & Magni Ásgeirsson úr Á móti sól 15.10.2026 55min
    Hljómsveitin Á móti sól verður með 30 ára afmælistónleika í Háskólabíói föstudag og laugardag. Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Heimir Eyvindsson stofnanda hljómsveitarinnar og Magna Ásgeirsson.  -- 15. okt. 2026
  • Stjórnmálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Sigurjón Þórðarson 15.10.2026 54min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Sigurjón Þórðarson þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar - Sigurjón er jafnframt sjávarlíffræðingur og lýsir sinni skoðun á sjóðavísindunum í Hvalfyrði.  -- 15. okt. 2026
  • Skipulagsmálin - Hjördís Vilhjálmsdóttir, Páll Einarsson & Benedikt Gunnar Ófeigsson 14.10.2026 56min
    Umsjón Hjördís Vilhjálmsdóttir. Hún fær til sín 2 gesti þá Pál Einarsson prófessor emerítius við HÍ og doktor í jarðeðlisfræði ásamt Benedikt Gunnari Ófeigssyni jarðeðlisfræðingi og fagstjóra í aflögunarmælinum . Skipulagsmál út frá náttúruvám.  -- 14. okt. 2026
  • Arnþrúður Karlsdóttir & Guðmundur Ólafsson 14.10.2026 58min
    Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Ólafsson hagfræðingur ræða um muninn á hægri og vinstri stjórnmálaflokkum eða ertu slíkar stefnur orðnar úreltar? - Uppþotin og ástandið í Frakklandi og hverjir eru á bak við það. - Er bylting í uppsigi? - Umræða um Jónas frá Hriflu og hans kenningar í stjórnmálunum.  -- 14. okt. 2026
  • Færeyjar - Pétur Gunnlaugsson & Jens Guð 13.10.2026 50min
    Pétur Gunnlaugsson ræðir við Jens Guð bloggara um helstu tíðindi frá Færeyjum og Grænlandi.  -- 13. okt. 2026
  • Vítissódamálið - Pétur Gunnlaugsson & Frosti Sigurjónsson 13.10.2026 59min
    Pétur Gunnlaugsson ræðir við Frosta Sigurjónsson rekstrarhagfræðing um umhverfismál og bókina Hitamál sem Frosti skrifaði. Rætt um Running Tide félagið og starfsemi þess sem varð að Röst sem stendur fyrir vítissóda tilraun í Hvalfirði.  -- 13. okt. 2026
  • Stjórnmálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Ögmundur Jónasson 12.10.2026 59min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Ögmund Jónasson fyrrverandi ráðherra, sagnfræðing og fv.fréttamann hjá RÚV um alþjóðastjórnmál, olíusamning Bandaríkjanna og Rússlands og utanríkismál Íslendinga, stöðuna innan Evrópusambandsins, átökin í Frakklandi og fleiri mál.  -- 12. okt. 2026
  • Stjórnmálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Bergþór Ólason 09.10.2026 52min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Bergþór Ólason þingmann Miðflokksins um stóru málin á Alþingi.  -- 9. okt. 2026
  • Hjördís Vilhjálmsdóttir, Jónas Atli Gunnarsson & Már Wolfang Mixa 07.10.2026 57min
    Hjördís Vilhjálmsdóttir verður með skipulagsmálin í dag og gestir hennar verða þeir Már Wolfgang Mixa prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og Jónas Atli Gunnarsson yfirlögfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - Þau ræða um margvíslega tölfræði sem tengist skipulagsmálum.  -- 7. okt. 2026
  • Arnþrúður Karlsdóttir & Guðbjörn Guðbjörnsson 07.10.2026 56min
    Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðingur ræðir um stór mál og smá, bæði hér á landi og erlendis, við Arnþrúði Karlsdóttur.  -- 7. okt. 2026
  • Utanríkismálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Njáll Trausti Friðbertsson 06.10.2026 1h
    Staðan í utanríkismálum í tilefni dagsins. Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Njál Trausta Friðbertsson þingmann Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi sem hefur setið fjölmarga NATO fundi og er í varnar og öryggisnefnd NATO.  -- 6. okt. 2026
  • Utanríkisstefna RÚV - Pétur Gunnlaugsson & Páll Vilhjálmsson 05.10.2026 54min
    Pétur Gunnlaugsson ræðir við Pál Vilhjálmsson um RÚV og stjórn þess. Er RÚV komið með sérstaka utanríkisstefnu vegna afstöðunnar til Ísrael?   - Hvernig metur Páll framgöngu Þorgerðar Katrínar, bókun 35, ESB og Kanadíski herinn.  -- 5. okt. 2026
  • Landsvirkjun - Arnþrúður Karlsdóttir & Kristinn Sigurjónsson 05.10.2026 53min
    Arnþrúður Karlsdóttir og Kristinn Sigurjónsson rafmagns- og efnaverkfærðingur skiptast á skoðunum um hvers vegna Hörður forstjóri Landsvirkjunar hafi hætt störfum. Kristinn segir að það sé kvennastefna hjá Landsvirkjun og verið sé að koma karlmönnum þar úr starfi og losni störf þar komi þau eingöngu í hendur kvenna. Arnþrúður hefur aðrar skýringar og bíður þátturinn upp á hressilegar samræður.  Mál sem alla varðar og mikilvægir fyrir íslenska hagsmuni til framtíðar í þessu glæsilega fyrirtæki Landsvirkjun, sem er í eigu landsmanna.  -- 5. okt. 2026
  • Kjaramálin - Pétur Gunnlaugsson & Sólveig Anna Jónsdóttir 02.10.2026 38min
    Pétur Gunnlaugsson og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.  -- 2. okt. 2026

Oblíbený v

Tento podcast se objevuje také v podcastových žebříčcích těchto zemí.