Víkings hlaðvarpið
Víkingur Media
0
Allt milli himins og jarðar sem tengist Víking og/eða fótbolta.
Epizody
-
Hverfisfélagið eins og kirkja 26.06.2026 51minÍ síðasta þætti Meðal fólks á Rás 1 var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, segir að mikið hafi verið gert til að fá fólk á völlinn sem hafi ekki brennandi áhuga á fótbolta. Félagið geti í dag gegnt því hlutverki sem kirkjan gegndi áður fyrr.Fyrir hvern fótboltaleik vinna tugir sjálfboðaliða tímum saman til að undirbúa allt sem þarf að undirbúa. Í síðasta þætti Meðal fólks var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.Þátturinn var fyrst fluttur á Rás 1 og er því endurfluttur hér á hlaðvarpi Víkinga. Þökkum RÚV fyrir heimsóknina ❤️🖤
-
Einar Guðnason 21.07.2025 1h 16minBjarki og Hörður settust niður með Einari Guðna og ræddu fótbolta, Black Sabbath, Svíþjóð og allt þar á milli.Einar Guðnason er tók nýlega við kvennaliði Víkings og þó flestir Víkingar viti hver hann er þá vildum við aðeins kynnast honum betur. Hvað er Einar búinn að vera að gera síðustu ár? Hvaðan kemur hann og hvernig fótbolta vill hann spila?Þú einfaldlega verður að hlusta. ❤️🖤
-
Tómas Þór og Halldór Smári Sigurðsson 29.03.2025 46minEftir áratugi í treyjunnni, 464 leiki, 2 Íslandsmeistaratitla, 4 bikara, Evrópuævintýri og ótrúlegt magn af Hamingju segjum við takk við Halldór Smára Sigurðsson. Herra Víkingur nær alls ekki utan um allt sem þú hefur gefið félaginu okkar. Takk Halldór Smári ❤️🖤
-
Tómas Þór og Arnar Gunnlaugsson 18.01.2025 50minTómas og Arnar fara yfir 6 ár af Hamingju í Hamingjunni. Tómas spyr Arnar spjörunum úr og sýnir honum myndir frá mikilvægum augnablikum á ferli Arnars sem þjálfara Víkings. Takk fyrir allt Arnar og gangi þér vel á nýjum vettvangi. Áfram Víkingur og áfram Ísland. 🖤❤️ Lag í byrjun er eftir Futuregrapher / Árna Grétar og heitir 303 Melody flow. Mælum með að kíkja á þann frábæra listamann. ❤️
-
Fyrirmyndirnar okkar: Sveindís Jane Jónsdóttir 28.06.2024 1h 27minFyrirmyndirnar okkar - þáttur 6 Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið. Hver er Sveindís Jane? Hvernig náði hún markmiðum sínum? Hvert er uppáhalds augnablikið á ferlinum hingað til? Í hvernig takkaskóm spilar Sveindís og margt fleira! Það var sannur heiður að fá að setjast niður með Sveindísi og ræða um það sem við elskum jú öll, fótbolta.
-
Fólkið okkar - Arnar Gunnlaugsson 19.03.2024 1h 30minLoksins náðum við í skottið á Arnari Gunnlaugssyni þjálfara meistaraflokks karla og stilltum honum upp fyrir framan hljóðnemann í Víkings stúdíóinu. Það er mjög viðeigandi að Hörður og Bjarki hafi grillað Arnar í 90 mínútur og fengu aðeins að kynnast manneskjunni Arnari Gunnlaugssyni betur. Aðeins öðruvísi viðtal en Arnar er kannski vanur, en dómur féll strax eftir viðtalið : "Strákar, þetta var helvíti gaman". Betri meðmæli fást ekki.
-
Fólkið okkar - Þórarinn Einar Engilbertsson 12.03.2024 58minSerían "Fólkið okkar" heldur áfram. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Hörður og Bjarki fengu Þórarinn Einar Engilbertsson (Tóta) í heimsókn og ræddu hvað þjálfarastarfið felur í sér og hver sýn Tóta er á þjálfun í yngri flokkunum.
-
Stelpurnar okkar : Gígja og Rakel 06.03.2024 55minStelpurnar okkar - Season 2 - Þáttur 1 Bjarki og Hörður fengu tvo leikmenn meistaraflokks í heimsókn. Gígja Valgerður Harðardóttir var byrjuð að spila fótbolta í meistaraflokki áður en Rakel Sigurðardóttir fæddist. Farið var yfir ferilinn, hvernig er að vera Víkingur, hvernig tilfinningin var fyrir Rakel að vera í stúkunni á sjálfum Bikarúrslitaleiknum þar sem hún hélt með Breiðablik og margt margt fleira. Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Gígja og Rakel. Áfram Víkingur ❤️🖤
-
Uppgjörið - John og Kristó 30.11.2023 1h 19minHörður og Bjarki náðu tali af John Andrews og Kristófer Sigurgeirssyni og fóru yfir stöðuna hjá Meistaraflokki kvenna. Í þættinum er meðal annars að finna : Hvernig fór sumarið 2023? Var John sáttur með árangurinn? Af hverju við Víkingar eigum ekki leikmann í A landsliði kvenna Yngri flokka þjálfun Gerðum smá grín að Kristó Mikil enska töluð af því að John krefst þess að öll viðtöl séu á ensku Hvaða leikmenn eru að koma upp En í stuttu máli þá var mikið hlegið, hefðum getað verið í 8 klukkutíma en látum rétt rúmlega klukkutíma duga.
-
Fólkið okkar - Viktor Bjarki Arnarsson 05.10.2023 1h 4minSerían "Fólkið okkar" er komin af stað. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Það var því heldur betur við hæfi að hitta á Viktor Bjarka sem tók nýlega við starfi yfirþjálfara yngri flokka Víkings. Viktor er Víkingur í húð og hár en kom víða við á ferlinum sem leikmaður og hefur undanfarin ár starfað við þjálfun. Hörður og Bjarki náðu tali af honum í dag og fóru yfir ferilinn, þjálfarastarfið og brekkuna og malarvöllinn í Hæðargarði. Velkominn heim Viktor!
-
Uppgjörið með Bjarka og Herði 28.09.2023 1h 33minBjarki og Hörður mættu "under the lights" í Víkings stúdíóið og fóru yfir tímabilið 2023 hjá Meistaraflokki kvenna. Farið var yfir Lengjubikarinn, Lengjudeildina og að sjálfsögðu Mjólkurbikarinn. Hver var markahæst í sumar? Hver átti flestar stoðsendingar? Hver fékk flest gul spjöld? Njótið vel.
-
Eftirpartý: 2-2 jafntefli við KR 20.09.2023 9minMarkús Árni fékk til sín þá Gísla Gottskálk & Þórð Ingason eftir 2-2 jafntefli við KR á heimavelli hamingjunnar í kvöld.
-
Eftirpartý: 5-3 sigur gegn Breiðablik 27.08.2023 18minAron Baldvin fékk til sín tvo úr starfsliði Víkings þá Sölva Geir & Guðjón Örn eftir 5-3 sigur okkar Víkinga gegn Breiðablik í kvöld.
-
Eftirpartý: Bikarúrslit 2023 here we come 16.08.2023 10minMarkús fékk til sín Ara Sigurpálsson & Aron Elís í spjall eftir 4-1 sigur gegn KR á Víkingsvelli og erum við að fara í fjórða bikarúrslitaleikinn í röð!
-
Eftirpartý: 6-1 sigur gegn HK 13.08.2023 13minAron Baldvin fékk til sín Viktor Örlyg & Gísla Gottskálk í spjall eftir 6-1 sigur gegn HK á Víkingsvelli.
-
Fyrirmyndirnar okkar: Glódís Perla Viggósdóttir 14.07.2023 1h 3minFyrirmyndirnar okkar - þáttur 5 Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður Bayern München og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið. Hörður og Hrafnhildur ræddu við Glódísi um upprunann í HK/Víking, tímabilið 2011 þegar hún skorar 14 mörk í 11 leikjum og spilar sem framherji, að byrja ung að spila með meistaraflokki, góð ráð fyrir yngri iðkendur og auðvitað hvað þarf til að ná árangri í fótbolta. Glódís Perla er augljóslega mjög metnaðarfull en á sama tíma skín af henni auðmýktin og þakklætið fyrir að fá að gera það sem hún er að gera í lífinu. Það var sannur heiður að fá að setjast niður með henni og ræða um það sem við elskum jú öll, fótbolta.
-
Eurovikes: Riga FC - Víkingur 13.07.2023 18minArnar Gunnlaugsson & Sölvi Geir Ottesen mættu í spjall fyrir leikinn gegn Riga FC.
-
Fyrirmyndirnar okkar: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 12.07.2023 59minFyrirmyndirnar okkar - þáttur 4 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Leverkusen (á láni frá Bayern München) og íslenska landsliðsins kíkti í Víkings stúdíóið og ræddi við Hörð og Hrafnhildi um ferilinn, að byrja ung í meistaraflokki, titlar, töp og hvað þarf til að ná árangri í fótbolta. Karólína er metnaðarfull fótboltakona sem ætlar að alla leið og það var sannur heiður að fá að setjast niður með henni og ræða um það sem við elskum, fótbolta.
-
Stelpurnar okkar: Elíza og Unnbjörg 11.07.2023 53minStelpurnar okkar - þáttur 9 Tímabæra umfjöllunin um fyrri hluta tímabilsins Blað var brotið í sögu Víkings podcastsins þegar Bjarki og Hörður tóku á móti Elízu og Unnbjörgu í sjálfri Hamingjustúkunni í Víkinni. Farið var yfir víðan völl eins og vanalega en þó reynt að halda fókus. Það reyndist sumum erfiðara en öðrum því meistaraflokkur karla var að æfa á aðalvellinum á meðan upptökum stóð. Klukkutími af hreinni Víkings ástríðu. Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Elíza og Unnbjörg. Áfram Víkingur
-
Stelpurnar okkar: Kolbrún Tinna og Linda Líf 06.07.2023 1h 26minStelpurnar okkar - þáttur 8 Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn. Við höldum áfram að kynna leikmenn í meistaraflokki kvenna. Til okkar kíktu Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir og Linda Líf Boama og eins og vanalega var rætt um allskonar. Sérstakar þakkir fá Bergdís og Katla fyrir að vera í sjúkraþjálfun hjá Dagmar ákkúrat á meðan á upptökum stóð. Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Kolbrún Tinna og Linda Líf.
Oblíbený v
Tento podcast se objevuje také v podcastových žebříčcích těchto zemí.