Mjólkurhúsið

Mjólkurhúsið

U701
Land Iceland
Genrer Society & Culture
Sprog IS
Episoder 20
Seneste 29.05.2026

Mjólkurhúsið er podcast þar sem gestir deila sögum sínum af verkefnum, upphafi, áskorunum og því sem gerir ferðalagið þess virði. Samtöl á milli verka.

Episoder

  • #0 - Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka 06.02.2026 3min
    Inngangsþáttur að Mjólkurhúsinu þar sem Elí Þór, þáttastjórnandi, útskýrir hugmyndina að þáttaröðinni og hvers vegna áherslan er á ferlið, fólkið og samtölin á milli verka.
  • #1 - Þór Ragnarsson 06.02.2026 44min
    Elí Þór ræðir við Þór Ragnarsson um ferlið á bak við verkin, ákvarðanatöku og mikilvægi þess að leyfa hugmyndum að þróast á sínum eigin forsendum.
  • #2 - Sigrún Steindórsdóttir 06.02.2026 44min
    Elí Þór ræðir við Sigrúnu Steindórsdóttur um uppbyggingu Rammalausna Sigrúnar og ferðalag hennar frá námi í húsgagnasmíði yfir í rekstur eigin fyrirtækis.
  • #3 - Óskar Bjarnason 06.02.2026 40min
    Elí Þór ræðir við Óskar Bjarnason um hvernig hann endaði á Egilsstöðum, upphaf verkefnisins Bolholt og þau verkefni sem hann vinnur að í dag.
  • #4 – Díana Mjöll 13.02.2026 34min
    Elí Þór ræðir við Díönu Mjöll um að taka við Tanni Travel, kynslóðaskipti í rekstri og þá ábyrgð og þróun sem fylgir því að halda áfram fjölskyldufyrirtæki.
  • #5 - Davíð Kristinsson 20.02.2026 1t 21min
    #5 – Davíð Kristinsson Við hittum Davíð Kristinsson á Seyðisfirði og ræðum ævintýrin í næturlífinu í Danmörku, heimkomuna til Íslands og hvernig lífið leiddi hann austur. Samtal um að flytja sig á milli landa og lífskafla — og finna sinn stað á ný.
  • #6 - Elín Káradóttir 27.02.2026 1t 43min
    Elín Káradóttir segir frá leið sem byrjaði í Hróarstungu, lá suður og inn í fasteignasölu sem hún síðar keypti og byggði upp. Við ræðum rætur, að flytja aftur heim og nýtt verkefni á Egilsstöðum — Hjá Línu, fyrstu lúgusjoppuna þar í langan tíma. Þátturinn er aðeins lengri en vanalega, en samtalið fékk að taka þann tíma sem það þurfti.
  • #7 - Þorgeir Arason 06.03.2026 57min
    Þorgeir Arason og fjölskylda hans komu austur árið 2008 og hafa síðan þá verið hluti af samfélaginu á Egilsstöðum. Í þessum þætti ræðum við þjónustustarf prestsins, mörkin á milli vinnu og heimilis og hvernig það er að ala upp börn í sterku samfélagi. Samtal um nærveru, ábyrgð og hlutverk sem nær oft út fyrir lóðamörk kirkjunnar.
  • #8 - Auður Vala 13.03.2026 47min
    Auður Vala ræðir um metnað, ábyrgð og vinnuna sem liggur á bak við árangur í ólíkum verkefnum – og hvers vegna mikilvægt er að fara af heilum hug inn í það sem maður tekur sér fyrir hendur.
  • #9 - Kristdór (Kristó) 20.03.2026 46min
    Kristó rifjar upp leiðina sína inn í Dekkjahöllina, uppbyggingu rekstrar á Austurlandi og hvernig ástríða fyrir bílum, dekkjum og þjónustu hefur mótað lífið. Þetta er samtal um vinnu, samfélag og það að sleppa takinu án þess að missa sjálfan sig.
  • #10 - Guðjón Sigmundsson 27.03.2026 55min
    Guðjón úr Vaski ræðir uppvöxt, vinnulíf og uppbyggingu rekstrar þar sem þjónustulund, lausnamiðuð hugsun og seigla skipta öllu máli.
  • #11 - Gréta "bókakaffi" Sigurjónsdóttir 03.04.2026 1t 21min
    Gréta Jóna Sigurjónsdóttir ræðir um tónlistina, Dúkkulísur, kennslu, missi og hvernig Bókakaffi varð til. Þetta er samtal um sköpun, seiglu og samfélag.
  • #12 - Alda Ósk Harðardóttir 10.04.2026 45min
    Alda Ósk ræðir um uppvöxt á Egilsstöðum, leiðina inn í snyrtifræðina og hvernig hún byggði upp sinn eigin rekstur ung að árum. Þetta er samtal um þjónustu, staðartengsl, samfélag og lífið á milli verka.
  • #13 - Unnar Erlingsson 17.04.2026 1t 29min
    Unnar Erlingsson, grafískur hönnuður búsettur fyrir austan, ræðir um að flytja í nýjan landshluta, byggja upp líf og takast á við kafla sem breyttu miklu. Þetta er samtal um samfélag, seiglu og það hvernig ferlið mótar mann.
  • #14 - Hildur Þórisdóttir 24.04.2026 54min
    Hildur Þórisdóttir ræðir um lífið á Seyðisfirði, leiðina inn í sveitarstjórnarmál og hvað það þýðir að vinna fyrir samfélagið sitt. Persónuleg saga af fæðingu í ófærð opnar líka stærra samtal um samgöngur og öryggi á landsbyggðinni.
  • #15 - Björt Sigfinnsdóttir 01.05.2026 1t 10min
    Björt Sigfinnsdóttir ræðir tónlistina, LungA, Seyðisfjörð og hvernig menningarverkefni verða til í gegnum fólk, traust og samfélag. Hún segir frá fyrstu skrefum sínum í tónlist, uppbyggingu LungA hátíðarinnar og LungA skólans, og mikilvægi þess að skapa rými fyrir ungt fólk sem finnur sig ekki alltaf innan hefðbundinna kerfa.
  • #16 - Skúli Björn Gunnarsson 08.05.2026 59min
    Skúli Björn Gunnarsson ræðir 25 ár á Skriðuklaustri, uppbyggingu Gunnarsstofnunar, fornleifarannsóknir, menningarstarf og það sem tekur við þegar löngum kafla lýkur.
  • #17 - Garðar Valur 15.05.2026 1t 10min
    Garðar Valur ræðir leiðina úr bankastarfi yfir í tölvunarfræði, Austurnet og hugbúnaðarverkefni sem hafa vaxið upp á Egilsstöðum. Samtalið snýst um óvissu, frumkvöðlamenningu, samstarf og hvernig hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.
  • #18 - Björgvin "Bubbi" Elísson 22.05.2026 1t
    Björgvin Elísson, eða Bubbi, segir frá löngum og fjölbreyttum rekstrarferli á Héraði; frá hellusteypu og Bón og púst yfir í skiltagerð, Toppluti og Bara snilld í Fellabæ. Samtalið snýst um að prófa, læra með því að gera og finna tækifæri í litlu samfélagi.
  • #19 - Dagmar Ýr Stefánsdóttir 29.05.2026 1t 13min
    Dagmar ræðir uppvöxtinn á Jökuldal, heimavistina, leiðina í nám og störf og hvernig rætur, vinnusemi og samfélag hafa mótað hana. Samtalið fer líka inn á Austurbrú, sveitarstjórnarmál og framtíð Austurlands.