Popparasögur

Popparasögur

Vignir Egill Vigfússon
Land Iceland
Genrer Music, Music History, Music Interviews
Sprog IS
Episoder 13
Seneste 27.05.2026

Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.

Episoder

  • #14 | Haraldur Ari og leiðin frá Retro Stefson í sólóplötu 02.06.2026 43min
    Haraldur Ari Stefánsson sló í gegn með hljómsveitinni Retro Stefson. Hann hefur síðan getið sér gott orð sem leikari og mun gefa út sína fyrstu sólóplötu í haust. Í þessum þætti talar hann um tímann sinn með Retro Stefson, tímabilið sem þau bjuggu í Berlín, lokatónleikana, come-back, sviðsframkomu, ferðalögin um Evrópu, leikhúsið, söngleikina, áhrifavaldana, áskoranirnar, sólóplötuna, framtíðina og fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila 27.05.2026 1t 4min
    Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist allt frá því hann sló í gegn með plötunum Lucky One og Bein leið, snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Hann varð nýverið 70 ára og hefur verið að fagna þeim áfanga með tónleikum víða um land að undanförnu og mun gera það út árið. Í þessu spjalli segir hann frá því þegar hann þróaðist úr því að vera Kristur á Frakkastígnum yfir í það að vera KK. Frá buskinu í Skandinavíu, frá Vegbúanum, KK-bandinu, vináttunni og samstarfinu við Magga Eiríks, blúsinum, áhrifum í tónlist, ferðalögunum, samstarfinu við unga fólkið og mörgu fleira.Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #12 | Hrafn Thoroddsen og mæting er bæting 12.05.2026 48min
    Hrafn Thoroddsen hefur farið víða á síðustu rúmlega 30 árum í íslensku tónlistarlífi og verið í hljómsveitum eins og Ensími, Jet Black Joe og Warmland, Hérna segir hann frá því hvernig hann hætti í skóla 19 ára gamall eftir að hafa gengið til liðs við Jet Black Joe, þegar hann fór sveitaballarúntinn með Helga Björns og SSSól, stofnaði Ensími sem hann hefur verið í forsvari fyrir í 30 ár, upptökurnar með Steve Albini, samstarfið við Bubba, spillerí með Egó, túrana erlendis með Barða í Bang Gang, dúettinn Warmland, sólóplöturnar, Heima með Helga og margt fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #11 | Erna Hrönn og að taka stjórn á eigin lífi 05.05.2026 59min
    Erna Hrönn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu 20 ár. Henni hefur verið lýst sem ríkisbakrödd, hún hefur tekið þátt í 60 lögum í undankeppni Eurovision, tvisvar sinnum tekið þátt í keppninni sjálfri og syngur núna 80´s lög um land allt með hljómsveitinni Hr. Eydís svo fátt eitt sé nefnt. Hér fer hún yfir ferilinn og hvernig henni hefur aldrei liðið betur eftir að hafa tekist á við andlega og líkamlega erfiðleika. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #10 | Skálmöld og Börn Loka 28.04.2026 48min
    Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um samstarfið við Sinfó, sögurnar, textana, aðdáendurnar, samstarfið, framtíðina, mögulega plötu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #9 | Skálmöld og ótrúleg byrjun 28.04.2026 40min
    Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um e-mailið sem kom þessu af stað, fyrstu tónleikana, tónleikaferðirnar, markaðssetningu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #8 | Jónas Sig og Hafið er svart 21.04.2026 45min
    Þriðji og síðasta hluti viðtalsins við Jónas Sig.   Hér er rætt um hans langvinsælasta lag, Hafið er svart, hljómsveitina Dranga, Áhöfnina á Húna, tónleikamaraþon, Milda hjartað, textana, sögumanninn og nýju plötuna sem kemur vonandi út á þessu ári.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #7 | Jónas Sig og leiðin aftur á toppinn 21.04.2026 55min
    Annar hluti af þremur í viðtalinu við Jónas Sig.   Hérna segir hann frá leiðinni aftur á toppinn. Hvernig hann þurfti að takast á við sjálfan sig, fyrstu tónleikaferðinni um Ísland, lögin sem urðu til, Ritvélum framtíðarinnar og mörgu fleiru.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #6 | Jónas Sig og endurkoma Sólstrandargæjanna 14.04.2026 44min
    Jónas Sigurðsson hefur verið mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi.   En áður, fyrir rúmum 30 árum, sló hann í gegn með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum og þá sérstaklega laginu Rangur maður. Sú hljómsveit spilaði síðast saman árið 2001 en ætlar að koma saman á ný á Bræðslunni í sumar.Þetta er fyrsti hluti af þremur af viðtalinu við Jónas.Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #5 | Guðrún Árný Karlsdóttir 07.04.2026 1t 3min
    Guðrún Árný Karlsdóttir hefur verið ein vinsælasta söngkona landsins undanfarna áratugi. Hérna ræðir hún um Sing-Along, Söngkeppni framhaldsskólanna, Eurovision, Brekkusönginn, jarðarfarir, plöturnar sínar, tónmenntakennslu, framtíðina og fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon  
  • #4 | Hreimur Örn og endurkoma Lands og sona 02.04.2026 59min
    Seinni hluti viðtalsins við Hreim í Landi og sonum.Hérna ræðir hann um það fer að hægjast um hjá Landi og sonum, hvernig hann þurfti að enduruppgötva sig sem tónlistarmann, Þjóðhátíðarlögin og fyrstu viðtökunum á laginu Lífið er yndislegt, vinamissi og endurkomu Lands og sona í sumar.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #3 | Hreimur Örn og ævintýri í Bandaríkjunum 02.04.2026 59min
    Hreimur Örn Heimisson, Hreimur í Landi og sonum, hefur farið víða á sínum tónlistarferli.Í þessum fyrri hluta ræðir hann um það þegar Land og synir slógu í gegn á einni nóttu með laginu Vöðvastæltur, hvernig hljómsveitin fékk fimm plötu samning við útgáfufyrirtæki í Bandaríkjunum og misstu fljótt eftir árásina 11. september, hvernig honum bauðst að svíkja aðra meðlimi hljómsveitarinnar og hvernig þeim gekk að takast á við breyttan veruleika.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #2 | Aldrei fór ég suður 2026 | Seinni hluti 29.03.2026 46min
    Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.   Í þættinum er rætt við Skítamóral (Adda Fannar), Amabadama (Sölku Sól), Úlfur Úlfur (Arnar Freyr) og Spacestation (Björgvin).   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #1 | Aldrei fór ég suður 2026 | Fyrri hluti 29.03.2026 44min
    Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.   Í þættinum er rætt við Friðrik Dór, Pál Óskar, Kristján Frey, rokkstjóra Aldrei fór ég suður, og Kusk og Óvita, Kolbrúnu og Hrannar.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon