Læknavarpið

Læknavarpið

Læknablaðið
Land Island
Genrer Health & Fitness, Medicine
Sprog IS
Episoder 26
Seneste 11.05.2026

Læknavarpið er hlaðvarp Læknablaðsins þar sem rætt er við lækna á faglegum og persónulegum nótum. Nýr þáttur með hverju nýju Læknablaði. Þáttastjórnandi er Kristborg Bóel Steindórsdóttir.

Episoder

  • Adam Erik Bauer: „Markmiðið er að rannsóknin skilji eitthvað nothæft eftir sig“ 11.05.2026 35min
    Adam Erik Bauer réttarefnafræðingur hefur starfað á rannsóknarstofu lyfja- og eiturefnafræði Háskóla Íslands frá árinu 2018. Þar vinnur hann nú að doktorsverkefni sínu en markmið þess er að skoða leiðir til þess að meta nýjungar og breytingar á íslenskum fíkniefnamarkaði og nota þær upplýsingar í þágu lýðheilsu. 
  • #3/2026 Frá Kenýa í læknisfræði – Alma Glóð Kristbergsdóttir, sérnámsgrunnlæknir á Landspítala. 08.04.2026 54min
    Alma Glóð Kristbergsdóttir er sérnámsgrunnlæknir á Landspítala. Leið hennar að læknisfræðinni er í senn óhefðbundin og heillandi. Það var undir lok menntaskóla sem hún áttaði sig á því hvert hugurinn stefndi, hana langaði til þess að hjálpa fólki. Það var svo tveggja mánaða dvöl í Kenýa sem veitti henni fullvissu um að stefnan væri rétt. Alma Glóð var gestur Læknavarpsins.
  • #2/2026 Per mentis innblásin af „sænska módelinu“ – Kristófer Sigurðsson 27.03.2026 28min
    Per mentis er geðlækningastofa sem býður þjónustu í almennum geðlækningum, þar á meðal greiningu og meðhöndlun taugaþroskaraskana á borð við ADHD. Þjónustan er veitt í teymisvinnu geðlækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga. Kristófer Sigurðsson, stofnandi Per mentis, er mikill talsmaður teymisvinnu innan heilbrigðiskerfisins. Hann var gestur Læknavarpins og hér að neðan má sjá stutt brot úr því viðtali.
  • #1/2026 Klíníkin Ármúla 07.01.2026 1t 5min
    Klíníkin Ármúla er læknamiðstöð þar sem framkvæmdar eru fjölbreyttar aðgerðir, bæði þar sem sjúklingar útskrifast samdægurs og einnig þær sem krefjast innlagnar. Þeir Hjálmar Þorsteinsson, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, Kristján Skúli Ásgeirsson, sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum, og Hrólfur Einarsson, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum, komu í Læknavarpið og sögðu frá ferlinu við stofnunina, starfseminni og baráttunni við kerfið.
  • #8/2025 Bjarni Geir Viðarsson og Guðrún Höskuldsdóttir. 04.12.2025 43min
    Bjarni Geir og Guðrún ræða stöðu mála í sérhæfðri offitumeðferð á Reykjalundi.
  • #7/2025. Steinarr, Þórður og Þórarinn eru íslenskir skurðlæknar sem reka Klíník í Svíþjóð. 04.11.2025 50min
    Steinarr Björnsson, Þórður Ægir Bjarnason og Þórarinn Kristmundsson segja frá vegferð sinni í Læknavarpinu.  
  • #6/2025. Soffía Guðrún Jónasdóttir – Beinkröm - skortur í alsnægtum. 06.10.2025 48min
    Soffía hefur í starfi sínu greint tíu börn með beinkröm hérlendis og segir að íslensk börn séu almennt ekki að fá nægjanlegt magna D-vítamíns. Hvað er til ráða?
  • #5/2025 Fehima Líf Purisevic og Katla Rut Robertsdóttir Kluvers um vita og Gulleggið. 03.09.2025 33min
    Þær Fehima Líf og Katla Rut komu í Læknavarpið á dögunum og sögðu frá því skemmtilega ævintýri þegar þær og tvær aðrar vinkonur úr menntaskóla komust í topp tíu í Gullegginu með hugmynd sína Vita.
  • #4/2025 - Gunnar Guðmundsson 03.07.2025 49min
    Gunnar Guðmundsson fær sínar bestu vísindahugmyndir á fjöllum.
  • #3/2025 Sæmundur Rögnvaldsson segir frá vísindastörfum sínum og framtíðarplönum 08.05.2025 42min
    Sæmundur Rögnvaldsson er nýdoktor og sérnámslæknir í lyflækningum. Hann var valinn Ungur vísindamaður Landspítala vorið 2025 og nú á dögunum fékk hann um 60 milljóna króna rannsóknarstyrk frá World Cancer Research Fund. Styrkur þessi er til þess að rannsaka tengsl næringar og líkamsþyngdar við forstig mergæxlis og þróun þess yfir í mergæxli.
  • #2/2025 - Margrét Aðalsteinsdóttir - Sátt og ánægð með störf mín hjá Læknafélaginu 07.03.2025 41min
    Það er óhætt að segja að Margrét Aðalsteinsdóttir sé flestum læknum kunnug, því hún hefur starfað á skrifstofu Læknafélags Íslands í meira en þrjá áratugi.Nú stendur Magga Aðal, eins og hún er kölluð af samstarfsfólki sínu, á tímamótum, því um mánaðamótin febrúar/mars hættir hún formlega störfum og fer á eftirlaun.
  • #1/2025 Halldór Bjarki Einarsson, heila- og taugaskurðlæknir um ferilinn. 03.01.2025 30min
    Halldór Bjarki Einarsson er heila- og taugaskurðlæknir sem starfar við háskólasjúkrahúsið í Álaborg, en hefur frá því í júní tekið að sér afleysingar á Landspítalanum. Nýverið flutti hann erindi um uppgötvun sína á nýju afbrigði heilaæxlis en það var á fundi Félags um innkirtlafræði um sjúkdóma í heiladingli og nýrnahettum, sem haldinn var í sjötta sinn hér á landi í október síðastliðnum.
  • #09/2024 Ásgeir Haraldsson um ferilinn, vísindin, streptókokkana, barnalækningar og veturinn framundan 12.09.2024 1t
    „Ég vil vera til gagns,“ segir Ásgeir Haraldsson, barna- og ónæmislæknir, og fer yfir ferilinn og stöðu vísinda í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Síðasti vetur var Barnaspítalanum erfiður vegna streptókokkasýkinga. Hann segir mikilvægt að hafa varann á fyrir veturinn. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Stef: Doctor Victor
  • #7-8/2024 Hulda Brá Magnadóttir um ferillinn, lífið og brjósklosaðgerðirnar 08.07.2024 58min
    „Það stríðir gegn öllum mínum prinsippum fyrir íslenskt þjóðfélag að fólk þurfi að borga fyrir bakaðgerðirnar hjá okkur úr eigin vasa,“ segir Hulda Brá Magnadóttir, sem ásamt Guðrúnu Guðmundsdóttur, býður fyrstu skurðaðgerðir við brjósklosi utan Landspítala. Hulda Brá er fyrsta íslenska konan til að útskrifast sem heila- og taugaskurðlæknir. Hún segir frá ferli sínum í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins.
  • #6/2024 Sæmundur og Jón Gunnlaugur ræða vísindastörf sín, markmið og feril 25.06.2024 1t 19min
    „Við megum ekki gleyma að vísindi eru mjög góð fjárfesting,“ segir Sæmundur Rögnvaldsson Ungur vísindamaður Landspítala 2024. Jón Gunnlaugur Jónasson Heiðursvísindamaður Landspítala segir vísindastarf orðið flóknara með árunum. Þeir fara yfir þróunina, bakgrunn sinn, vísindin og markmið í Læknablaðinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Stef: Doctor Victor
  • #5/2024 Jóhann Jónsson segir frá nýrnaígræðslum á Íslandi 07.05.2024 35min
    „Ég myndi vilja að við gerðum allar nýrnaígræðslur sem sjúklingar okkar þurfa hér á Íslandi,“ segir Jóhann Jónsson læknir í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Jóhann hefur unnið bróðurpart starfsævinnar í Bandaríkjunum. Hann sleppti aldrei hendinni af Íslandi og vann að því í fríum sínum að koma líffæraígræðslum upp á Landspítala. Rúm 20 ár eru frá fyrstu aðgerðinni þar — sem hann einmitt gerði. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Stef: Doctor Victor
  • #3/2024 Ragna Kristín Guðbrandsdóttir að verða yngsti læknir landsins 05.03.2024 18min
    Ragna Kristín Guðbrandsdóttir er ung en þó komin á stað sem enginn annar Íslendingur hefur áður náð á hennar aldri. Hún er rétt við það að útskrifast sem læknir aðeins 23 ára gömul. Fædd aldamótaárið og með Íslandsmeistaratitil í klassískum kraftlyftingum. Veikindi föður hennar gáfu henni tilgang og kraft til að verða læknir. Hún fetar í fótspor móður sinnar sem er læknir og er ekki ein um það því yngri bróðir hennar stefnir sömu leið.  Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
  • #02/2024 Engilbert, Magnús og Tómas um geðskoðun 06.02.2024 1t 27min
    Við mat á geðrænum veikindum er lykilatriði að gera vandaða geðskoðun. Horfa þarf í útlit, hegðun og hugsun einstaklingsins. Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlæknisfræði og yfirlæknir á Landspítala, Tómas Hrafn Ágústsson, sérnámslæknir í geðlækningum og Magnús Haraldsson, geðlæknir á geðsviði Landspítala, fara klínískt og yfir aðferðafræði við geðskoðun í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
  • #02/2024 Michael Clausen um ofnæmi í vestrænum heimi 05.02.2024 37min
    „Aftur til náttúrunnar,“ segir Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir á Landspítala, að sé meginþema í lækningum nútímans. „Lífsstíllinn er lykilatriðið þegar kemur að heilsu,“ segir hann og hvetur fólk til að lifa nær náttúrunni og forðast efni sem trufla líkamsstarfsemina. Ofnæmi fari vaxandi í vestrænum heimi. Michael er gestur Læknavarpsins að þessu sinni. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
  • #01/2024 Hildur Guðjónsdóttir og endómetríósa 10.01.2024 41min
    Styrkja þarf utanumhald með konum sem þjást af endómetríósu hér á landi. Þetta segir Hildur Guðjónsdóttir kvensjúkdómalæknir nýkomin frá Svíþjóð þar sem hún vann með öflugu teymi að endómetríósu. Hildur er gestur Læknavarpsins, hlaðvarps Læknablaðsins og fer hún yfir einkenni og meðferð við þessum sjúkdómi sem hrjáir um tíundu hverja konu. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva

Populær i

Denne podcast optræder også i podcast-hitlister i disse lande.