Tbr Listinn
TBR
0
Íslenskt bókahlaðvarp þar sem fjallað er um bækur og bókmenntir. Þátturinn fjallar um íslenskar og erlendar bókmenntir, bæði nýjar og gamlar. Hér er rætt við höfunda, þýðendur og bókaunnendur, og veitt innsýn í bókakostinn. Hlaðvarpið er áhugavert fyrir alla sem vilja fylgjast með bókmenntaumræðu á Íslandi.
Episoder
-
Wicker - með Þorbjörgu 12.10.2026 57minJæja, stelpurnar skelltu sér í bíó þar sem enginn annar en Alexander Skarsgård var líka í salnum. Að sjálfsögðu fóru þær á Wicker en það var algjörlega henni Þorbjörgu að þakka að þær náðu miða á þennan viðburð, þar sem Þorbjörg var töluvert meira með puttann á púlsinum þann daginn! Við ræðum bókina og myndina, förum yfir hvað okkur fannst eins, hvað okkur fannst gott og hversu mikið við hlógum allann tímann. Við getum allar þrjár mælt heilshugar með myndinni, og svo er mjög gaman að lesa þessa stuttu bók líka. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn Þið finnið Þorbjörgu á: https://www.instagram.com/thorbjorgmatt/ -
Að banna bækur - Viðtal við Guðrúnu Steinþórsdóttur 05.10.2026 1t 9minNýliðin vika er tileinkuð bókum sem eru bannaðar og í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest til að ræða við um ritskoðun bóka og að banna bækur. Guðrún Steinþórsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari, spjallar við okkur um þann sið að banna bækur eða ritskoða þær á þeim skala að þær verða óaðgengilegar, þá sérstaklega barna- og ungmennabækur. Þetta er vandmeðfarið málefni sem er marglaga og flókið og tökum við dæmi bókina Villi Vampíra sem er nánast ekki hægt að nálgast í dag. Við förum yfir hvað okkur finnst persónulega um bókina en einnig ræðum við viðbrögð við bókmenntum sem fjalla um jaðarsetta hópa og erfið málefni eins og ofbeldi. Guðrún segir okkur frá ýmsum rannsóknum sem snúa að þessu viðfangsefni og tekur fram dæmi um mikil og ýkt viðbrögð við íslenskum verkum. Við förum um víðan völl og var þetta virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall. Við þökkum Guðrúnu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að deila með ykkur bókalistanum hennar. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn -
Haustlestur 27.09.2026 36minAlma og Fjóla fara yfir þær 120 bækur sem þær segjast ætla að lesa þetta haust. Listinn er alls ekki tæmandi og rosalega skemmtilegur og ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi þarna inn á milli allra bókanna. Einnig segja þær frá þeim bókum sem verða teknar fyrir í næstu þáttum þannig ef þið viljið taka slaginn með þeim getið þið nálgast bækurnar og lesið áður en þættirnir koma út! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn -
Getting In The Knickers Of The Nose Man - Örþáttur 24.09.2026 38min!!!ATH!!! Alls ekki fyrir lítil eyru. Sko...þessi þáttur er í raun bara nebba kynlíf og hláturskast. Góða skemmtun! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn -
The Knave And The Moon - Bókaumfjöllun 21.09.2026 56min-HÖSKULDARVIÐVÖRUN- Það má með sanni segja að The Knight And The Moth eftir Rachel Gillig hafi farið sem stormsveipur um bókatok á síðasta ári og því mikil spenna fyrir seinni hluta tvíleiksins. Við spjöllum hér um The Knave And The Moon og ræðum ritstílinn hennar Rachel að auki. Ef þið hafið ekki lesið bókina og viljið ekki að við eyðileggjum fyrir ykkur mælum við með að geyma þennan þátt þar til þið hafið lesið! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn -
Banging My Birthday Bear - örþáttur 16.09.2026 24minJæja þá er komið að því aftur... Alma segir okkur frá stuttsögunni Banging My Birthday Bear. Hún veit ekki alveg hvað hún er að segja og er pínu plotlaus, svona eins og "bókin" sem hún segir frá var. Hlustið á okkur hlæja og fíflast um þessa dásamlega fyndnu bók, þó hún eigi ekki beint að vera fyndin. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn -
Aumingi, mella, syndari og heilagur andi 13.09.2026 1t 11minVið fáum góðan gest til okkar í dag en engin önnur en Lilja Ósk snýr aftur til okkar! Lilja var að gefa út sína aðra bók og fyrstu skáldsöguna sína! Auðvitað þurftum við að lesa hana í hvelli og fá Lilju í heimsókn til að spyrja hana spjörunum úr! Við förum um víðan völl, hvernig karakterarnir urðu til, hvort var erfiðara skáldsaga eða sjálfsævisaga, persónuleika karaktera og svo margt annað. Við getum með sanni sagt að við mælum sterklega með þessari bók og takk Lilja fyrir að koma til okkar í smá spjall -
Pounded by poseidon - örþáttur 12.09.2026 17min -
Sumarið og hraðaspurningar 06.09.2026 55minVið erum komnar aftur! Í þessum þætti fara Alma og Fjóla yfir sumarið og taka svo laufléttar hraðaspurningar varðandi lestur og bækur. Við byrjum þriðju seríu með stæl með nýju logo eftir hana Daníelu, tattoo artista og bóka gellu, ásamt nýju stefi sem lýsir okkur stöllum í hnotskurn. Smá kaos, smá glimmer! Ein önnur breyting er sú að Anna Karen hefur tekið ákvörðun um að fókusa á önnur verkefni, enda af nógu að taka í sveitinni og hún algjör dugnaðarforkur, en við þökkum henni svo sannarlega og innilega fyrir tímann okkar saman! Við erum ótrúlega spenntar fyrir komandi mánuðum með ykkur og erum með fullt spennandi planað! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn Insta hjá Daníelu; dansadansss -
Sumarlestur! 01.06.2026 35minSíðasti þátturinn í seríu 2 hefur litið dagsins ljós! :( Alma og Fjóla setjast niður og ræða um stemninguna sem þær vilja hafa í lestrinum í sumar. Bæði í bókunum og í umhverfinu sem þær ætla að lesa í. Heyrst hefur að þær séu báðar að plana mikið ferða og sólarfrí, spurningin er bara hvort að veðurguðirnir hlusti á bænir þeirra og gefi þeim smá sól með lestrinum. Og auðvitað fóru þær í smá útirdúr um Dungeon Crawler Carl, því hvenær talar maður ekki um cultið sitt? Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
RDG Bókakarakterar og bóklegir hlutir 28.05.2026 49minAnna Karen og Fjóla standa vaktina að þessu sinni á meðan Alma spókar sig í sólinni á Spáni. Efni þáttarins að þessu sinni er létt bókaspjall og svo RDG eða R**a, drepa, giftast þar sem þemað eru bæði bókakarakterar og bókalegir hlutir eða aðstæður. Léttur og skemmtilegur þáttur að þessu sinni! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
Yesteryear - HÖSKULDARVIÐVÖRUN 18.05.2026 1t 20minAlma og Fjóla eru báðar nýbúnar með bók sem er sjóðheitt umræðuefni þessa dagana, en það er engin önnur en bókin Yesteryear eftir Caro Claire Burke! Stelpurnar gætu talað endalaust um bókina en hafa þó sett niður nokkur atriði sem þær ætla að tala um, einfaldlega því þær fengu ekki lengri upptökutíma. Annars sætu þær líklega ennþá í Kompunni á Borgarbókasafninu í Grófinni að tala um þessa bók... Þær eru sammála, ósammála og taka svo auðvitað nokkra útidúra, því hvað væru þættirnir án þeirra? Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
PÍB - Remarkably Bright Creatures 11.05.2026 49minVið erum strax komnar með annan þátt af poppkorn í blaðsíðunum! Í þetta sinn setjast Alma og Fjóla niður og ræða saman um bók og mynd; Remarkably Bright Creatures. Þær eru sammála um flest allt sem viðkemur bæði bók og mynd en við viljum endilega heyra hvað ykkur finnst! Kolkrabbar, menn að taka út þroska og bara allt væbið. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
Bækur sem létu okkur gráta 04.05.2026 29minÞátturinn í dag er heldur rólegur og smá sár. Við förum yfir þær bækur sem hafa látið okkur gráta í gegnum tíðina. Við fórum samt ekki yfir allar, Alma og Fjóla væru enn í upptökum ef svo væri... Við viljum alltaf á okkur tárum bæta svo ef þið hafið grátibækur í farteskinu endilega deilið þeim með okkur! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
Bókakrydd kemur í heimsókn! 28.04.2026 57minÍ þessum þætti fáum við frábæran gest, en það er engin önnur en hún Íris sem rekur Bókakrydd. Við stelpurnar erum búnar að vera ansi forvitnar um Bókakrydd þar sem við erum rétt að fá smjörþefinn af þeim frábæru hlutum sem sem Íris ætlar sér. Við ræðum við hana um hvað Bókakrydd er, hvað er henni mikilvægt og hvert hún ætlar sér. Að sjálfsögðu förum við svo langt út fyrir umfjöllunarefnið eins og okkur einum er lagið! Við skulum öll bjóða Írisi og Bókakrydd velkomin í litla bókasamfélagið okkar! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn Bókakrydd getið þið svo nálgast á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; bokakrydd Insta; bokakrydd og svo að sjálfsögðu ef þið viljið fara í röð fyrir sumarpakkann hjá þeim; https://bokakrydd.is -
Poppkorn í blaðsíðunum 13.04.2026 43minÍ dag, eftir tveggja vikna pásu, kemur út nýr liður hjá okkur sem við erum að kalla Poppkorn í blaðsíðunum! Í þessum þáttum lesum við bók, horfum svo á myndina og ræðum bæði bók og mynd. Erum við sáttar við hvernig bókin kom út? Hvort fannst okkur betri platform fyrir söguna? Ná karakterarnir að skína í gegn? Var myndin jafnvel betri en bókin???? Umfjöllunarefni þáttarins er SPOILER Project Hail Mary en Alma og Fjóla lásu bókina, skelltu sér á myndina og ræða nú saman um hvað þeim fannst! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
Fyrsta bls - Síðasta bls 22.03.2026 1t 16minAlma og Fjóla tækla verkefnið "fyrsta blaðsíða - síðasta blaðsíða" sem stelpurnar settu sér fyrir fyrir nokkrum þáttum síðan. Alma var með bókina "The Nowhere Girls" og Fjóla var með bókina "The Inevitable Victorian Thing". Þetta voru eins ólíkar bækur og hugsast getur og sagan segir að Fjóla er ennþá mjög ringluð og Alma er enn meiri rauðsokka eftir þennan þátt. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
Kúrekarómans 16.03.2026 1t 6minÍ þessum þætti fengu þær Fjóla og Anna Karen það verkefni frá Ölmu að lesa eina kúrekarómans. Alma var stödd á bókamessu og var því fjarri góðu gamni (eða bara í öðru gamni). En hún skildi eftir þau fyrirmæli að við læsum Chasing the wild eftir Elliott Rose og ræddum svo í þætti. Við setjum höskuldar viðvörun á þennan þátt þar sem við förum frekar vel yfir söguna en einnig er um frekar gróft orðbragð á köflum þannig að við mælum með að hlusta ekki á þennan þátt í nálægð við ungmenni. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
Lestrarlægðar þerapíur 02.03.2026 46minFjóla og Alma fara í gegnum nokkur tips and tricks til að koma mani í gegnum erfiðu lestralægðirnar sem vilja stundum leggjast á man. Alma kemur einnig með nokkrar hugmyndir af bókum, sem er auðvelt að lesa, ef þið eruð alveg týnd í bókaflórunni! Gleymdum við einhverju eða viltu segja frá þínum aðferðum til að losna úr lægð? Segðu okkur frá því á samfélagsmiðlunum okkar! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn -
Bókahrollar 23.02.2026 1t 11minAlma og Anna Karen ræða saman um nokkra bókahrolla (e. bookish pet peeves) og fara yfir hvað fer verst í þær. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Populær i
Denne podcast optræder også i podcast-hitlister i disse lande.