Raunheimakastið (áður Kvíðakynslóðin)
Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir
0
ATH! Kvíðakynslóðin hlaðvarp var að breyta um nafn og heitir núna Raunheimakastið! Raunheimakastið mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga, og mikilvægi hinna "þriðju staða" í samfélaginu. Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og kynjafræðingur. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og vöntun á sjálfstæði barna.
Folgen
-
#22 Við þurfum að byggja upp sterka stráka - Bjarni Fritzson 15.05.2026 1Std. 24Min.Bjarni Fritzson er rithöfundur, þjálfari og námskeiðahaldari sem brennur fyrir velferð barna og ungmenna. Hann er höfundur fjölda bóka eins og Orra Óstöðvandi, Öflugir strákar og Tölvuheimurinn. Hann er núna í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík.Í þessum þætti ræðum við um hvernig við getum byggt upp sterka stráka, skaðleg áhrif samfélagsmiðla, símafrí í skólum og hvers vegna Bjarni ákvað að fara í pólitík. Þátturinn er í boði: Balance Phone: https://balancephone.is/Stafræn velferð: https://www.stafraenvelferd.is/Joybox.is: https://joybox.is/
-
#21 iPadar í skólum - Bergþóra Þórhallsdóttir 04.05.2026 1Std. 20Min.Í þessum þætti ræðum við við Bergþóru Þórhallsdóttur, verkefnastjóra hjá menntasviði Kópavogsbæjar.Við förum í gegnum innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum, hvernig stafræn borgarvitund er kennd, gervigreind í námi og samvinnu heimilis og skóla.Þátturinn er í boði: Balance Phone - https://balancephone.is/Stafræn velferð - https://www.stafraenvelferd.is/JoyBox.is - https://joybox.is/
-
#20 Símabönn bara virka - Kristján Ketill Stefánsson 18.04.2026 1Std. 27Min.Nýtt nafn! Nýtt logo! Frábær gestur!Í þessum þætti fengum við til okkar Kristján Ketil - Dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hvað segja gögnin okkur um tengsl snjalltækja við líðan og námsárangur barna og ungmenna?Við tölum um spjaldtölvur í skólum, símabönn, gagnreyndar námsaðferðir og menntatækni.Þátturinn er í boði: Balance PhoneStafræn velferðJoyBox.is
-
#19 - Skemmtilegra að heimsækja skóla sem eru símalausir - Þorgrímur Þráinsson 04.03.2026 52Min.Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og fyrirlesari kom í þáttinn til að ræða unglinga, lestur og snjalltæki. Hann ferðast um landið og heldur fyrirlestra fyrir 10. bekkinga um það hvernig maður getur orðið ástfanginn af lífinu.
-
#18 Þurfa börn snjallsíma?! 25.02.2026 1Std. 16Min.Í þættinum fáum við til okkar engan annan en Gunnar Helgason rithöfund og ræðum það hvort börn og ungmenni þurfi í alvörunni snjallsíma?
-
#17 Endurkoman: Nýjustu fréttir í samfélaginu og í heiminum 08.02.2026 38Min.Í þessum þætti fjöllum við um hvað hefur gerst í samfélaginu og í heiminum í þessum efnum síðan við byrjuðum með hlaðvarpið.
-
#16 - Tilfinningasnuðið. Ragga Nagli. 09.03.2025 55Min.Í þessum þætti fáum við til okkar enga aðra en Röggu Nagla. Við spjöllum um vítahringinn sem rústar svefninum okkar, einmanaleikann, gervidópamínið og þau vellíðunarhormón sem við gætum verið að fara á mis við.
-
#15 Hvað geta foreldrar gert? - Kristín Ólöf Grétarsdóttir 01.03.2025 47Min.Hvaða áhrif geta foreldrar haft á skólaumhverfi barna? Hvernig getum við gert alla skóla landsins snjallsímalausa? Kristín Ólöf Grétarsdóttir er foreldri tveggja drengja á grunnskólaaldri. Hún var formaður Foreldrafélags Áslandsskóla í sjö ár, situr í foreldraráði Hafnarfjarðar, er í stjórn Heimilis og skóla, og er menntaður kennari. Hún brennur fyrir að beina athygli að skjánotkun barna, því hún vill að skólar séu símalausir og hætti vanhugsaðri skjánotkun á skólatíma. Einnig situr hún í starfshóp á vegum menntamálaráðuneytisins um mótun leiðbeininga um viðeigandi og örugga farsímanotkun í grunnskólum
-
#14 Tengslarof vegna snjallsíma - Jón Pétur Zimsen 15.02.2025 1Std. 25Min.Jón Pétur Zimsen, þingmaður sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri, segir að snjallsímar hafi valdið tengslarofi hjá börnum og unglingum. Með 30 ára reynslu úr skólaumhverfinu hefur hann orðið var við miklar breytingar á börnum eftir að snjallsímar urðu algengir.
-
#13 Agaleysi í skólum - Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir 08.02.2025 1Std. 6Min.Sigrún Ólöf, skólastjóri Hörðuvalalskóla, kallaði nýlega eftir þjóðarátaki þar sem agaleysi í skólum er orðið óboðlegt. Hvar liggur rót þessa agaleysis? Hún var svo góð að koma í hljóðverið til okkar og ræða þessi málefni nánar við okkur.
-
#12 - Að alast upp undir allra augum 01.02.2025 33Min.Deilum við of miklu um börnin okkar? Ef þú myndir líta til baka, værir þú ánægð/ur með að þessi upplýsingar væru til um þig frá þinni barnæsku? Í þessum þætti ræðum við hugtakið „sharenting“, sem er sambland af orðunum „sharing“ og „parenting“. Hvar liggja mörkin? Hvað geta óvinveittir aðilar gert við myndir og upplýsingar barna? Og hvað segja börnin þegar þau eldast og uppgötva allt sem hefur verið deilt um þau á netinu?
-
#11 Hvað eru önnur lönd að gera? 25.01.2025 44Min.Í þessum þætti fer Kristín yfir sínar heimilisreglur um skjánotkun. Við ræðum einnig hvað önnur lönd eru að gera í tengslum við síma- og samfélagsmiðlabönn fyrir börn, og förum í gegnum það sem við höfum rætt í fyrri þáttum.
-
#10 Hér er ein pæling - Þórarinn Hjartarson 18.01.2025 52Min.Af hverju eyðum við – og börnin okkar – svo miklum tíma fyrir framan skjái í leit að ódýru og skjótvirku dópamíni? Hvað gerðist? Í þessum þætti fáum við frábæran gest, hann Þórarinn Hjartarson þáttarstjórnanda vinsæla hlaðvarpsins Ein pæling. Við ræðum um hvar við erum stödd og Þórarinn varpar ljósi á sína sýn á stöðuna í dag.
-
#9 Símar í skólum - Davíð Már Sigurðsson 13.01.2025 44Min.Hver eru helstu vandamál kennara þegar kemur að símanotkun barna? Gestur okkar í dag er Davíð Már Sigurðsson, sem er íþróttakennari og styrktarþjálfari með meistarapróf í íþróttaþjálfun, rannsóknum og kennarafræðum. Við ræðum um íþróttir barna og áhrif síma á skólaumhverfið. Eru spjaldtölvur og símar virkileg að hjálpa börnunum okkar í námi? Hvað þýðir að vera símalaus skóli? Lagar símabann öll okkar vandamál?
-
#8 Heimaró: frjáls leikur og flæði 29.12.2024 45Min.Í þessum þætti kemur Gunnhildur Jóhannsdóttir sérkennari og þroskaþjálfi í heimsókn til okkar og varpar ljósi á álag barna, séð með augum kennara. Við tölum um mikilvægi róar og næðis heimafyrir, færni barna til að vera í frjálsum leik í heimi þar sem börnum er stýrt meir og meir og vanda kennara eins og hún orðaði það: ,,Það er erfitt fyrir stærðfræðikennara að toppa Fortnite"
-
#7 Raunveruleiki barna í heimi snjallsíma - Skúli Bragi kemur í heimsókn 29.12.2024 52Min.Í þessum þætti fáum við Skúla Braga Geirdal í heimsókn til okkar. Hann er sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá fjölmiðlanefnd, heldur fyrirlestra og skrifar greinar til leiðbeiningar fyrir foreldra barna á tímum snjallsímavæðingar.
-
#6 Skjátími, heimilisreglur og rafíþróttir 29.12.2024 50Min.Í þessum þætti ræðum við um ólíka skjánotkun og tilgang hennar. Við opinberum eigin skjátíma, hvernig Anna Laufey notar stundum appið "the balanced phone", hvað okkur öllum finnst endurnærandi að fá "like" á samfélagsmiðlum og hvað skjátími er mikill upplifanaþjófur.
-
#5 Leikur barna og fullorðinna 17.12.2024 41Min.Hvernig brjótumst við út úr viðjum vanans og innleiðum meiri leik og útiveru í lífið okkar? Sabína Steinunn, íþrótta- og heilsufræðingur og áhugakona um hreyfifærni og þroska barna, kemur til okkar og eys úr viskubrunni sínum.
-
#4 Þorpið & leitin að þriðja staðnum 04.12.2024 44Min.Það segir að það taki heilt þorp að ala upp barn, en hvar er þorpið í dag? Og hvar eru svokallaðir „þriðju staðir“ – rými þar sem fólk kemur saman utan heimilis og vinnu? Anna og Kristín velta fyrir sér hlutverki þorpsins í nútímasamfélagi, þeim áskorunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir í dag og mikilvægi þess að skapa staði þar sem einstaklingar geta hist, tengst og byggt upp samhug innan samfélagsins.
-
#3 Samfélagsleg áhrif skjánotkunar 24.11.2024 1Std. 12Min.Í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest, hana Önnu Claessen. Anna er margreyndur markþjálfi, einkaþjálfari, fyrirlesari og skemmtikraftur, með sérþekkingu á viðfangsefnum eins og streitu, kulnun og sjálfsrækt. Við ræðum áhrif skjánotkunar á andlega og líkamlega heilsu, tengsl stafræns áreitis við streitu og kulnun, og hvernig við sem einstaklingar og samfélag getum tekist á við þessar áskoranir. Njótið!
Beliebt in
Dieser Podcast erscheint auch in den Podcast-Charts dieser Länder.