Grænvarpið

Grænvarpið

Landsvirkjun
Land Iceland
Genres Technology
Sprache EN-US
Folgen 45
Letzte 29.05.2026

Hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir.

Folgen

  • Konan í brúnni 29.05.2026 36Min.
    Ásbjörg er framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Landsvirkjun og konan í brúnni á einu mesta framkvæmdatímabili í sögu fyrirtækisins. Hún segir okkur frá því hvernig gengur og hvernig er að stýra svo mörgum og viðamiklum verkefnum. Þátturinn á YouTube.
  • Kraftur breytinga í orkugeiranum 30.04.2026 21Min.
    Selma Svavarsdóttir segir frá þróun KÍO og stöðu kvenna í orkugeiranum. Þar hefur konum fjölgað – sérstaklega í hópi stjórnenda – en enn er langt í land. Selma undirstrikar að fjölbreytileiki, sýnilegar fyrirmyndir og markviss vinna skipti sköpum fyrir betri ákvarðanatöku og framtíð greinarinnar. Þátturinn á YouTube.
  • Að borða fíl 20.03.2026 27Min.
    Hvernig á að flytja 28 vindmyllur í 400 hlutum eftir íslensku vegakerfi án þess að trufla vegfarendur of mikið? Sigurgeir og Gunnar Aron segja okkur allt um vindmylluflutningana frá Þorlákshöfn í Vaðölduver sem byrja núna í vor. Þátturinn á YouTube
  • Í nánum tengslum við nærsamfélagið 27.02.2026 9Min.
    Rætt er um mikilvægi opinna og traustra samskipta við nærsamfélagið í kringum aflstöðvar Landsvirkjunar. Hildur Vésteinsdóttir, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, fer yfir hvernig reglulegt samtal, fjölbreyttar samskiptaleiðir og gagnsæi stuðla að trausti og jákvæðum tengslum við íbúa og aðra hagsmunaaðila. Þátturinn á YouTube
  • Erlend verkefni Landsvirkjunar 28.01.2026 23Min.
    Sérþekking Landsvirkjunar í vatnsafli og jarðvarma er eftirsótt víða um heim. Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, segir okkur frá verkefnum Landsvirkjunar á erlendri grund. Það er nóg af tækifærum en stefna fyrirtækisins er að halda sig við verkefni á norðurslóðum, einkum í Kanada og á Grænlandi.
  • Nærsamfélag og vöktun á Austurlandi 23.12.2025 19Min.
    Vel hefur verið fylgst með áhrifum Kárahnjúkavirkjunar og Fljótsdalsstöðvar á samfélag og náttúru á Austurlandi í þau tæplega 20 ár sem liðin eru síðan stöðin var gangsett. Árni Óðinsson, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, hefur verið potturinn og pannan í þeirri vöktun og samskiptum við samfélagið á svæðinu síðustu 17 ár. Þátturinn á YouTube
  • Lengi má gott bæta 27.11.2025 17Min.
    Hildigunnur Jónsdóttir er forstöðumaður endurbótadeildar, sem hefur viðamikil verkefni með höndum innan Landsvirkjunar og sér til þess að aflstöðvarnar séu í toppstandi, auk þess að bregðast við ófyrirsjáanlegum bilunum og atburðum í rekstri. Endurbætur eru mikilvægur þáttur í því að nýta auðlindirnar sem best og tryggja að rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar sé eins áreiðanlegur og hægt er. Þátturinn á YouTube
  • Vatnsbúskapurinn skiptir sköpum 31.10.2025 21Min.
    Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið. Þátturinn á YouTube
  • Endurnýjanleg orkuvinnsla og umhverfismál 06.10.2025 12Min.
    Hvernig tengist orkuvinnsla Landsvirkjunar markmiðum heims um að sporna við hlýnun jarðar og hvernig tengjast þau markmið öðrum umhverfismálum? Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni, spjallaði við Ívar Pál um umhverfis- og loftslagsmál. Þátturinn á YouTube
  • Hvernig er að vera ung kona í Landsvirkjun? 29.08.2025 18Min.
    Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun – fyrir ungar konur? Á hverju vori kemur stór hópur háskólanema til sumarstarfa hjá Landsvirkjun. Sumir ílengjast svo í alls konar verkefnum sem tengjast náminu. Ívar Páll ræðir hér annars vegar við Öldu Ægisdóttur, sem sér meðal annars um gestastofur Landsvirkjunar og Bryndísi Brynjúlfsdóttur, sem starfaði framan af fyrir samskiptadeildina en er nú útskrifuð úr verkfræði og komin á bólakaf í verkefnastjórnun fyrir Vaðölduver. Þátturinn á YouTube
  • Orkan í Ástralíu - Einar Erlingsson 30.06.2025 39Min.
    Einar Erlingsson, verkefnastjóri í erlendum verkefnum, segir frá lífi sínu og starfi í Ástralíu, en hann dvaldi þar um tæplega sex ára skeið sem ráðgjafi við stærsta vatnsaflsverkefni í sögu landsins, í Snowy-fjöllum. Þátturinn á YouTube
  • Orkan í orkuskiptunum - Sigríður Mogensen og Haukur Ásberg Hilmarsson 02.06.2025 24Min.
    Þóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði. Þátturinn á YouTube
  • Jöklarnir og orkan - Magnús Tumi Guðmundsson 22.04.2025 24Min.
    Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði og formaður Jöklarannsóknafélags Íslands til 24 ára, ræðir við Ívar Pál um íslenskar jöklarannsóknir og gæfuríkt samstarf við Landsvirkjun. Þátturinn á YouTube
  • Samkjaftað um Samorku - Finnur Beck 26.03.2025 23Min.
    Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, segir okkur frá því helsta sem er að gerast hjá þessum þrítugu samtökum orku- og veitufyrirtækja á Íslandi – og það er ekki lítið. Fram undan eru framkvæmdir fyrir hundruð milljarða króna til að viðhalda þessum grundvallarkerfum sem enginn vill vera án en fæstir vilja þurfa að hugsa um. Þátturinn á YouTube
  • Farið yfir fjármálin - Rafnar Lárusson 20.02.2025 27Min.
    Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri Fjármála og upplýsingatækni, fór yfir fjármál Landsvirkjunar í þessum nýjasta þætti Grænvarpsins. Þátturinn á YouTube
  • Rabbað um rafmagnsreikninginn - Tinna Traustadóttir 20.01.2025 20Min.
    Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu, skýrir fyrir okkur þetta flókna skjal sem við fáum í hverjum mánuði: rafmagnsreikninginn. Hún fer líka yfir stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði og ýmislegt fleira. Þátturinn á YouTube
  • Jarðvarmi frá A-Ö - Bjarni Pálsson 20.12.2024 35Min.
    Bjarni Pálsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma. Í þessum þætti segir hann okkur frá ýmsum spennandi verkefnum sem framundan eru. Þátturinn á YouTube
  • Með doktorspróf í laxi – Sigurður Guðjónsson 19.11.2024 22Min.
    Sigurður Guðjónsson, fiskifræðingur, segir okkur hvernig seiðafleyta virkar, hver áhrif virkjaðra vatnsfalla á fiskistofna og veiði eru ásamt ýmsu fleiru. Þátturinn á YouTube
  • Hringrásarhagkerfið - Ívar Kristinn Jasonarson 27.09.2024 17Min.
    Ívar Kristinn Jasonarson, sérfræðingur hjá Loftslagi og grænum lausnum, segir okkur frá hringrásarhagkerfinu. Hvernig fellur starfsemi Landsvirkjunar að því? Þátturinn á YouTube
  • Viljum vera góðir grannar - Guðmundur Finnbogason 30.07.2024 30Min.
    Guðmundur Finnbogason, verkefnisstjóri Nærsamfélags og náttúru er fyrrum heimilisfræðikennari og skáti. Sú reynsla hefur nýst honum vel í vinnu með nærsamfélagi aflstöðva Landsvirkjunar. Guðmundur ræðir einmitt mikilvægi þess að vera góður granni, segir frá hundraðasta frisbígolfvelli landsins við Ljósafossstöð, Orkuslóðinni sem er að verða til á Þjórsársvæði - og hvernig sé best að elda nýveiddan silung undir berum himni. Þátturinn á YouTube