Úti
Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal
0
Helsta markmið þáttanna er að hvetja fólk til að byrja að hreyfa sig og fara í ævintýri. Þáttastjórnandinn tekur sín fyrstu skref í hjólreiðum og lærir af fólki sem veit meira um allt tengt hjólreiðum. Samhliða umfjöllun um hjólaæfingar er fjallað almennt um hjólreiðar, skipulagsmál og öryggi hjólreiðafólks. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti.
Επεισόδια
-
Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi 27.05.2026 1ώ 2λÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem kafa ofan í sögur, fólk og upplifanir úr íslenskri útivistarmenningu.Úti er í boði Peloton þar sem hægt er að versla frábæran ævintýraútbúnað.
-
69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig 07.05.2026 34λJæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð hjólasamfélaginu ævinlega þakklátur.Eins er ég þákklátur öllum styrktaraðilinum sem hafa komið að þessu verkefni, Pelaton er þar efst á blaði sem hefur staðið baki þáttunum núna í að verða ár, en þar má versla ýmiskonar ævintýraútbúnað.Það er annað ævintýri fram undan, endilega fylgist með.
-
68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf 01.04.2026 49λÍ þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á https://www.peloton.is/
-
67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur 18.03.2026 1ώ 9λÍ þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu. Í umsögnum eru mörg sem fagna þessum drögum en önnur sem benda á vankanta þess, þar á meðal er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir sem er viðmælandi í þætti dagsins. Í þættinum ræðum við þessi drög ásamt örðu þeim tengdum; fitufordóma og þyngdarhlutlausa nálgun.Hjólavarpið er í boði Peloton hjólreiða og útivistarverslun sem staðsett er í Klettagörðum 23. Þar má finna frábæran fatnað til að takast á við ævintýri við íslenskar aðstæður.
-
66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn 18.02.2026 25λMæja María Sæm Bjarkardóttir er handhafi Gullhjálmsins í ár sem er viðkenning veit þeim sem hafa lagt mikið til hjólasamfélagsins á Íslandi. Hún var í fyrstu tilnefnd og síðar kosinn í kostningu á vegum Hjólavarpsins og Hjólreiðasambands Íslands. Í þættinum tökum við aðeins stöðuna á Mæju, en hún hefur áður komið til mín eða í þætti 46. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is @pelotoniceland
-
65. Rafmagnshjól 04.02.2026 45λÉg og Hafsteinn Ægir rennum yfir helstu málaflokka sem snúa að rafmagnshjólum og hvað maður ætti að pæla í þegar maður ætlar að kaupa eitt slíkt.Endilega deilið með vinum og félögum sem spyrja um rafmagnshjól.Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem má finna frábær hjól og geggjað ævintýradót. Þá má finna í Klettagörðum ef þú vilt kíkja í heimsókn.
-
64. Uppgjörið 2025 14.01.2026 1ώ 27λÍ þessum þætti förum við yfir allt sem gerðist á hjólaárinu 25, gleymdum samt helling en gerðum okkar besta. Þau Auðunn, Ása, Bríet og Magne kíktu til mín í Podcaststöðina og við rendum yfir árið bæði það súra og það sæta. Eins tilkynnum við um þann aðila sem hlýtur Gullhjálminn árið 2025.Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is
-
63. „Gaman að vera með erfiða samkeppnisaðila“ - Einar Bárða og nýja keppnin Cuckoo 17.12.2025 1ώ 38λYfirferð yfir nýja gravel keppni sem bætist við flóruna næsta sumar. Við rennum yfir aðdragandann og síðan helstu einkenni þessarar nýju keppni. Í lokinn rennum við aðeins yfir sveitastjórnarmálin í ljósi kostninga sem verða næsta vor.Hjólavarpið er í boði Pelaton reiðhjóla- og útivistarverslunar. Pelaton er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin.
-
62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí 10.12.2025 48λÍ þessum þætti veltum við upp áskorunum vetrarhjólreiða. Við ræðum hvernig best sé að laga sig að breyttum aðstæðum þegar myrkrið lengist og göturnar verða hálar. Gestur þáttarins er Hafsteinn Ægir Geirsson deilir reynslu sinni af búnaði, vetrardekkjum, lýsingu og viðhaldi sem gera hjólið traustara yfir köldustu mánuðina. Einnig förum við yfir hvernig hægt er að halda hvatningunni gangandi, skipuleggja æfingar yfir veturinn og nýta hjólreiðar allt árið um kring. Reynum líka aðeins yfir nýjustu vendingar í malarhjólreiðunum en í næsta þætti ætlum við að heyra meira af því.Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.
-
61. Efni 26.11.2025 34λÍ þætti dagsins förum við yfir helstu efnin sem eru í reiðhjólum. Stál, ál og koltrefjar - vonandi lærum við eitthvað á þessum þætti.Hjólavarpið er í boði Pelaton, hjólreiða- og útivistarverslun í Klettagörðum. Þar má finna frábær hjól og vörur tengdar hjólreiðum.
-
60. „Það voru mistök að taka þessi lyf“ - afbrigðilegar niðurstöður Þorsteins Bárðarsonar 05.11.2025 1ώ 9λÍ þessum þætti ræðum við umtalaðasta íslenska hjólamál þessa árs, Þorsteinn Bárðarson hefur verið úrskurðaður í bráðabirgðabann eftir að lyfjapróf sýndi tilvist fjögurra efna sem öll eru á bannlista WADA – þar á meðal Ligandrol, Ostarine og RAD140. Eins hefur Þorsteinn sjálfur gefið út yfirlýsingu þar sem hann gengst við því að hafa notið þessi efni.Gestur þáttarins er lyfjafræðingurinn Ingimar Jónsson, sem útskýrir hvernig þessi efni virka, af hverju þau eru bönnuð, og lyfjaeftirliti í íþróttum. Við köfum aðeins í þetta mál og tölum líka almennt um viðfangsefnið.Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is .
-
59. „Ógeðslega gott að næstum því missa eitthvað“ með B-boy Hot Take @Reynisson 22.10.2025 1ώ 25λÍ þætti dagsins kemur enginn annar en Böðvar Tandri Reynisson, hann hefur verið virkur í hreyfingu, þjálfun og næringafræði og við förum yfir þessi viðfangsefni í þættinum.Böddi hefur verið virkur í athugasemdum um næringu og hreyfingu á samfélagsmiðlum og við förum dálítið yfir stemninguna í þessu.Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is @pelotonicelandHjólavarpið er líka í boði Fors.is, þið fáið 15% afslátt með því að nota HJOLAVARPID15
-
58. Viku á undan Tour de France 07.10.2025 1ώ 6λFélagarnir Magnús Fjalar Guðmundsson og Bjarni Birgisson, eigendur hjólreiðaverslunarinnar Peloton, létu drauminn rætast og hjóluðu þvert yfir Frakkland – sömu leið og farin er í Tour de France. Í þættinum fjöllum við um þetta ævintýri, hvernig þeir undirbjuggu sig fyrir 3.338 kílómetra og 51.550 metra hækkun á þremur vikum, áskoranirnar sem fylgdu – og einnig um rekstur á hjólaverslun og hjólastemninguna á Íslandi og hvernig hún er að þróast.Hjólavarpið er í boði Peloton reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.Eins mæli ég með að chékka á Fors þau eru með geggjuð gel og allskonar bætiefnakruðerí sem er vert að gluða í sig, 15% afsláttur ef þú notar: HJOLAVARPID15
-
57. Fjallahjólin kalla - RIFT MTB yfirferðin 24.09.2025 1ώ 28λÍ þessum þætti förum ég og Erlingur nágranni, vinur og hjólafélagi yfir þetta 5 daga hjólaævintýri sem Rift MTB er. Fjallahjólakeppni sem fer fram í og í kringum Akureyri. Keppnin er skipulögð af Lauf. Í þættinum förum við yfir alla dagana, hvernig okkur gekk og svo svona hvað okkur fannst stand uppúr.Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem þú færð allt fyrir hjólreiðarnar.Eins mæli ég með Fors þar getur þú fengið 15% afslátt ef þú slærð inn HJOLVARPID15
-
56. RIFT MTB SPECIAL with Starla Teddergreen and Lauren Zimmer 10.09.2025 51λWe’re heading into the rugged landscapes of The Rift MTB 5 day stage race. I sat down at the end of Day 4 with two riders who were leading the race. By the close of Day 5, they had claimed every single stage and the overall victory: Starla Teddergreen and Lauren Zimmer.Starla is the co-owner of Distance to Empty, a not-for-profit dedicated to getting more women in Colorado onto gravel bikes. Living with MS, she’s turned cycling into both a personal fightback and a platform to empower others. She’s also no stranger to the podium and will represent Team USA at the upcoming MTB Marathon World Championships.Lauren is an elite mountain bike racer who’s represented Team USA in both 2024 and 2025. Off the bike, she coaches through Distance to Empty, guiding more women into the sport. Known for her speed, strength, and generosity, she’s a force on and off the trail.In this conversation, we dig into the race, their teamwork, the journey that brought them here, and what it really takes to not just win—but to lead, inspire, and lift others along the way.
-
55. Súlur Vertical - nýjasta útspil norðursins 27.08.2025 34λUmfjöllun um þessa nýjustu viðbót malarheimsins. Talað við góðkunningja þáttarins Hafdísi Sigurðardóttur og eins mótastjórann knáa Rögnvald Má Helgason.Þessi þáttur er unninn í samstarfi við Fors.is sem selur úrvals vítamín og fæðubótaefni. Þau eru með Kinetica orkugelin sem bragðast sjúllað vel, myndi prófa. Þú færð 15% afslátt af heildarkaupum á vefsíðunni hjá þeim ef þú notar kóðann: HJOLAVARPID15
-
54. Grefillinn yfirferð 13.08.2025 39λSmá yfirferð frá frábærri keppni, ný leið og allskyns snilld í gangi. Hafdís Sig. tók þetta kvennamegin í 200 km og hún kíkti í viðtal, heyrðum líka í Jóhönnu Bárðard. og mótastjóranum Mæju Sæm.Þátturinn er styrkur af Stillingu og snillingunum hjá Pedal.is.
-
53. Le Tour de France Special með Snorra Björns og Auðunn Eiríks 25.07.2025 1ώ 21λAð þessu sinni fékk ég hlaðvarpsfrömuðinn Snorra Björnsson og hjólaköttinn Auðunn Eiríksson til mín og við fórum aðeins yfir helstu stærðirnar í þessari keppni frönsku hjólakeppni. Í þættinum förum við aðeins yfir tengsl viðmælenda við hjóla síðan rennum við yfir helstu eigindir í þessari keppni og ástæður þess að öll ættu að horfa. Til viðbótar komum við að helstu keppendum þetta árið og þeim vendingum sem hafa átt sér stað í ár.Endilega hlustið ef þið viljið vita meira um Tour de France.Hjólavarpið fær stuðning frá Stillingu sem getur græjað hjól á hvaða bíl sem er, Happy Hydrate sem getur selt þér vörur sem bæta upp steinefnaskort og Pedal.is sem selur hjólavarning sem hentar við öll tilefni.
-
52. The Rift uppgjörið 23.07.2025 1ώ 11λÍ þættinum er farið yfir aðdraganda og undirbúning minn fyrir Riftið, eins tók ég upp mjög skrautlegt efni í brautinni sjálfri og er síðan með smá play-by-play brautarlýsingu. Eins er í þættinum viðtal við Dönu Rún Hákonard. markaðsstjóra Lauf eins heyrum við aðeins í Ingvari Ó. nýkríndum íslandsmeistara í malarhjólreiðum.Eftirfarandi aðilar stiðja við Hjólavarpið:Stilling - allt hjólatengt fyrir bílinnPedal.is - næs hjóladót Happy Hidrate - steinefni og söltBestu þakkir til Lauf sem hefur staðið þétt að baki Hjólavarpinu og verið mér innan handar í ýmsu baxi.Hjólavarpið er líka á insta endilega fylgiði því þar.
-
51. Nú er það gult - Rynkeby ævintýrið 02.07.2025 58λVið fáum Elvar Jóns. sem kemur og segir okkur frá Rynkeby. En á hverju ári fer galvaskur hópur fólks frá Íslandi á gulum hjólum og ferðast frá Danmörku til Parísar. Verkefnið snýr þó ekki bara að hreyfingu og heilsueflingu heldur er líka góðgerðarbatterí og eitthvað miklu meira.Hópurinn fer út núna á næstu dögum og hægt að fylgjast með þeim víða, eins er opið fyrir umsóknir og um að gera að henda sér á þetta tækifæri.https://www.team-rynkeby.is/https://www.instagram.com/teamrynkebyisland/Hjólavarpið er styrkt af Stillingu sem selur allskonar hjólafestingar á bíla, tilvalið til hjólaflutninga.
Δημοφιλές σε
Αυτό το podcast εμφανίζεται και στις λίστες podcasts αυτών των χωρών.