Rokkland
RÚV
0
Rokkland er músík-magasín í útvarpi sem fjallar um tónlist líðandi stundar, segir sögur af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallar við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson.
Επεισόδια
-
Bubbi og við 07.06.2026 1ώ 50λBubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag. Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg – hann er alltaf þarna- eins og Esjan. Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum – alveg eins og hann hefur skoðun á öllu. Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær: "Tónlistina þarf ekkert að ræða. Hún er fyrir löngu handan þess að vera góð eða slæm – við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumarsólin, óaðskiljanlegur hluti af tilverunni hér". Rokkland vikunnar er þannig að samferðafólk Bubba – gamlir samstarfsfélagar og nýjir, og vinir eins og Guðmundur Pétursson, Jakob Smári Magnússon, Jón Óskar, Elín Hall, Ragga Gröndal, Ólafur Egill og Esther Talía, Þorleifur Guðjónsson, Stefán Jón Hafstein, Sigrún Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Inga Sólveig, Silja Aðalsteinsdóttir og Halla Tómasdóttir forseti íslands segja okkur frá sínum Bubba – Bubbi og ég - Bubbi og við.
-
Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP 31.05.2026 1ώ 51λÍ Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit. Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og Dóraog Döðlurnar. Rokkland heimsótti Miðstöðina í vikunni. Saxófónleikarinn Sonny Rollins lést í vikunni sem leið og Sigurður Flosason segir okkur aðeins frá Sonny Rollins sem var einn af þeim allra bestu og mikilvægustu – við höfum öll heyra hann spila án þess kannski að hafa pælt í því. En byrjum á Ívari Klausen (Ívar Andri Klausen) sem var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu um daginn. Ívar er að austan – tók þátt í Músíktilraunum á sínum tíma með hljómsveitinni Dopamine Machine, er að spila með hinum og þessum og er búinn að vera bassaleikari í MÚR árum saman.
-
Bob Dylan í 85 ár - Hver er þessi maður eiginlega? 24.05.2026 1ώ 50λBob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík. Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil. Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta – og líka um ástina. Síðan þá hefur margt gerst og Dylan hefur verið meira og minna á tónleikaferðalagi í næstum 40 ár – hann er t.d. að spila í allt suma í Bandaríkjunum. Plöturnar eru margar eins og raddirnar og karekterarnir sem hann hefur sýnt okkur gegnum tíðina. Hver er hann eiginlega þessi maður? Guðmundur Andri Thorsson er Dylan maður og hann er gestur Rokklands á morgun. Guðmundur þýddi sjálfsævisöguna Chronicles sem kom út fyrir nokkrum árum og þar er í bókarlok viðauki frá Guðmundi Andra – lagalisti sem hann setti saman. Við skoðum hann í Rokklandi og förum hingað og þangað.
-
G! 2025 17.05.2026 1ώ 54λ
-
Baldvin Hlynsson - Bjössi Basti og The Hangmen - Angine de Poitrine og Iron Maiden 10.05.2026 1ώ 52λÍ Rokklandi vikunnar kynnumst við rokkhljómsveitinni The Hangmen frá Los Angeles sem spilar á tónleikum í Tjarnarbíó næsta föstudagskvöld ásamt Dr. Gunna (Hljómsveitin Dr. Gunni – hOFFMAN og Bleiku Böstunum. Bjössi Basti (Bjorn Helgi Baldvinsson sem t.d. stofnaði X-ið á sínum tíma og er söngvari Bleiku Bastanna stendur að tónleikunum og segir okkur frá The Hangmen. Við skoðum aðeins kanadísku hljómsveitina Angine De Poitrine sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir skemmtilegt stærfræði-jazz-proggrokk – feluleik og áhugaverða búninga. Svo er það Baldvin Hlynsson sem er hljómsveitarstjóri í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu – upptökustjóri – lagasmiður og hljómborðsleikari í 70 ára afmælisbandi Bubba Morthens þar sem Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir er hljómsveitarstjóri. Við kynnumst Baldvin en það er margt í gangi hjá honum alla daga. Svo kemur Iron Maiden aðeins við sögu en splunkunýrri heimildarmynd um Iron Maiden sem var frumsýnd síðasta föstudag.
-
Björgvin Halldórsson kvaddur 03.05.2026 1ώ 53λRokkland dagsins er dálítið sérstakt vegna þess að þar verður útvarpað styttri útgáfu af útför Björgvin Halldórssonar sem var mikil tónlistarveisla eins og við var að búast. Björgvin (Bo Halldorson var lagður til hinstu hvílu á þriðjudaginn síðasta og mörg hundruð manns fylgdu honum síðustu metrana í Hallgrímskirkju. SÝN sá um beina útsendingu frá útförinni á Visi og við á Rás 2 fengum leyfi hjá Sýn og fjölskyldu Björgvins til að útvarpa hluta af útöförinni í Rokklandi í dag. Þau sem sungu í útförinni voru landslið og vinir Börgvins: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Páll Rósinkranz, mugison, Daníel Ágúst, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius– Fóstbræður og svo börnin hans 2 af þremur – Krummi Bjorgvinsson og Svala Björgvins. Andrea Ingvarsdottir söng með þeim. Óskar Einarsson spilaði á píanó og var tónlistarstjóri og Guðmundur Pétursson spilaði á gítar. Jakob Frímann talar og líka Ari Eldjárn. Prestur var Guðni Már Harðarsonsem stjórnaði öllu saman. Í lok þáttar eru svo brot frá nokkrum heimsóknum Björgvins í Rokkland gegnum tíðina ❤ 🎵
-
Jesse Welles og MÚR 26.04.2026 1ώ 50λÍ Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð. Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg. Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana.
-
Akranes krú - Tíbrá - Gaddavír - Bubbi - Falinn Gjóður 19.04.2026 1ώ 52λHljómsveitin Tíbrá frá Akranesi er jafn gömul U2 – var stofnuð árið 1976 og hefur verið starfandi með hléum síðan þá en var öflugust milli 1980 og 1990. Núna næsta laugardag ætlar Tíbrá að fagna 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi og Rokkland fór og hitti þá Eirík trommara og Flosa hljómborðsleikara á æfingu í vikunni! Rokkland spjallaði líka lítillega við sigursveit Músíktilrauna eftir sigurinn í Hörpu um daginn. Þetta eru þrír stákar í 10unda bekk sem kalla sig Galinn Gjóður og þeir hlusta aðallega segja þeir á Frank Zappa og Þursaflokkinn. Halldór Gunnars Pálsson segir okkur frá nýja laginu hans Bubba sem kom út í gær og heitir Við föllum – og Halldór er líka hljómsveutarstjóri Bubba á afmælistónleikunum sem verða í Laugardalshöll 6. Júní. Svo er það grjótmulningsvélin frá Akranesi – hljómsveitin Gaddavír sem sigraði í Wacken Metal Battle 2025 og tók þátt í Músíktilraunum fyrir áratug. Gaddavír fór út til þýskalands til að spila á Wacken Open Air – ásamt hljómsveitum frá 30 öðrum löndum í fyrra og var líka að senda frá sér plötuna Akranes krú. Brynjólfur Þór Guðmundsson Skagamaður og fréttamaður hér á RÚV er Wacken maður og hann ræddi við Gaddavír fyrir Rokkland.
-
TODMOBILE II 12.04.2026 2ώ 5λHljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til. Þorvaldur Bjarni heldur áfram að segja frá í Rokklandi vikunnar!
-
TODMOBILE 05.04.2026 1ώ 51λHljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til. Þeir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Eyþór Laxdal Arnalds höfðu þekkst frá 6-7 ára aldri og fyrsta hljómsveitin hans Þorvaldar sem hét Exodus spilaði í Stundinni okkar. Skúli Sverris spilaði á bassa í Exodus og Björk Guðmundsdóttir söng. Eyþór Arnalds stal Björk svo úr Exodus og í Tappa Tíkarrass. Seinna voru þeir Eyþór og Þorvaldur skólabræður í tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík og þriðja púslið í Todmobile framlínuna var svo söngkonan Andrea Gylfadóttir sem hafði slegið í gegn með hljómsveitinni Grafík og hafði lokið prófi sem óperusöngkona frá Söngskólanum í Reykjavík með hæstu einkun. Todmobile sló í gegn með fyrstu plötunni sinni- Betra en nokkuð annað sem kom út 1989 og þegar ÍTV voru afhent í fyrsta sinn árið 1994 fékk Todmobile næstum öll verðlaunin. Hljómsveitin hefur verið starfandi með hléum allar götur síðan 1988 og á undanförnum árum hefur Todmobile einbeitt sér að því að halda stóra tónleika í stærstu tónleikahúsum landsins. Þau hafa fengið erlendar stórstjörnur til samstarfs við sig – hetjur og átrúnaðargoð sérstaklega Þorvaldar Bjarna sem hefur mest verið við stýrið í Todmobile- Jon Anderson úr Yes og Steve Hacket úr Genesis - og núna síðast voru það Nik Kershaw – Midge Ure úr Ultravox og Tony Hadley úr Spandau Ballet. Þorvaldur Bjarni segir frá í Rokklandi vikunnar!
-
Víkingur Heiðar 29.03.2026 1ώ 51λGestur Rokklands þessa vikuna er enginn annar en píanósnillingurinn OKKAR – Víkingur Heiðar Ólafsson En Víkingur Heiðar er með 2 og hálfa milljón hlustenda á mánuði á Spotify - hann ferðast um heiminn þveran og endilangan og spilar í glæsilegustu tónleikahúsum heims – Carnegie Hall – Royal Albert Hall- og svo framvegis. Hann býr á Seltjarnarnesinu - spilar yfir 100 tónleika á ári í útlöndum - er dáður og virktur – gefur út hjá elsta plötufyrirtæki heims – hinu virta Deutche Grammophone. Hann hefur komið fram hjá Jools Holland á BBC – var í löngu viðtali hjá upptökustjóranum Rick Rubin fyrir skemmstu og þannig mætti lenggi halda áfram. Víkingur Heiðar er stórstjarna – og ekki bara í útlöndum vegna þess að við landar hans erum líka afskaplega hrifin af honum. Hann er að spila í Eldborg í Hörpu í næstu viku – þrisvar sinnum – miðvikudag – skírdag og laugardaginn fyrir páska. Hann gaf sér tíma til að koma í upptöku fyrir Rokkland í stúdíó 12 í stuttu stoppi hérna heima - hann stoppaði í tæpa tvo sólarhringa – var að koma frá París þar sem hann var að spila – og var á leiðinni til Bandaríkjanna til að spila nokkra tónleika – áður en hann kom svo aftur heim – og hann var veikur. Undir lok þáttarins förum við svo í Hljóðrita í Hafnarfiði og hlustum á Vintage Caravan ásamt Tómasi Jónssyni og Eyþóri Inga spila og syngja Deep Purple – en þeir eru með tónleika í Eldborg og Hofi núna í apríl þar sem þeir ætla að spila Deep Purple – og ég get sagt ykkur að það er ekki hægt að gera það betur en þeir gera það. Frábærir!
-
Atli Örvarsson 22.03.2026 1ώ 51λAtli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitalífið á Íslandi fyrir rúmum 30 árum – hætti í Sálinni hans Jóns Míns sem þá var vinsælasta hljómsveit landsins og fór til Ameríku í nám í hinum virta Berklee tónlistarháskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts. Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem við þekkjum flest – og Atli Örvarsson er í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heims. Hann hefur hlotið allskyns viðurkenningar - verið tilnefndur til Grammy verðlauna og fyrir tveimur árum hlaut hann Bafta verðlaun fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á Apple TV+. Atli er líka einn af sigurvegurum Músíktilrauna – sigraði 17 ára með Stuðkompaníinu sem hann var ásamt Kalla bróður sínum og fleiri strákum frá Akureyri. Lukkan hefur verið í liði með Atla – honum hefur gengið alveg ótrúlega vel, en hvað er þetta mikið lukka og hvað mikið af allt öðru? Við ætlum að kynnast Atla Örvarssyni í Rokklandi í dag – hann segir sjálfur sögu sína en hann verður á sviðinu í Hofi á Akureyri á skírdag með SinfoniuNord – stjórnar hljómsveitinni og músíkin er öll eftir hann.
-
Ragga 15.03.2026 1ώ 49λBorgarlistamaður 2025 – Ragga Gísla er gestur Rokklands þessa vikuna. Ragga úr Grýlunum og Stuðmönnum sem er búin að gleðja okkur Íslendinga með söng og músík og frumleigheitum ýmiskonar. Og Ragga á sér svo margar hliðar en hún er alltaf í tengingu við sjálfa sig. Hún veit hvað hún vill og er með stíl sem hefur einnkennt hana í áratugi. Ragga er söngkona/tónlistarmaður/tónmenntakennari/Stuðmaður/tónskáld/Grýla og svo margt fleira. Ragga er fyrirmynd kvenna í músík og kvenna almennt - hún stofnaði fyrstu kvennahljómsveitina á Íslandi og hún er mikill jafnréttissinni. Rokkland vikunnar er RögguRokkland!
-
TÞM - útrás Utangarðsmanna og Europe´s Biggest Gig 08.03.2026 1ώ 47λÍ Rokklandi dagsins/vikunnar kemur Daníel – Danny Pollock í heimsókn, en hann er búin að vera forstöðumaður TÞM Tónlistarþróunarmiðstöðiní meira en 20 ár á Grandanum í Reykjavík. Þar æfa um það bil 40 hljómsveitir alla daga í 15 æfingaherbergjum en nú er uppnám í tónlistarborginni Reykjavík vegna þess að TÞM missir húsnæðið í lok apríl og hvað þá? Við ætlum að spjalla um TÞM og líka gömlu hljómsveitina hans Danna, Utangarðsmenn - og útrásardrauma þeirra sem voru sannarlega til staðar fyrir 45 árum síðan. Og núna fyrir síðustu jól kom plata Utangarðsmanna – Geislvirkir út í viðhafnarútgáfu með aukaplötu sem er öll sungin á ensku. Europe´s Biggest Gig er sameiginlega útvarpsútsending 5 Evrópskra útvarpsstöðva sem átti sér stað síðasta þriðjudag og gengur út á að kynna nýja tónlist frá þessum 5 sömu löndum fyrir útvarpshlustendum þessarara sömu landa - 5 listamenn/hljómsveitir sem spiluðu LÆV í stúdíóum þessara fimm útvarpsstöðva sem voru BBC Radio One, RTÉ 2 á Írlandi, WDR 1 í þýskalandi og Antenna 3 í Portúgal. Okkar listamaður – þeas okkar Íslendinga og Rásar 2 var Spacestation Hver stöð fékk hálftíma til umráða og við heyrum okkar hluta af þessu prógrammi í Rokklandi.
-
Öskudagar U2 - Elvis - Rosalía og Fela Kuti 01.03.2026 1ώ 49λU2 fær stærsta plássið í Rokklandi vikunnar en þessi gamla og merkilega hljómsveit frá Dublin sem á hvorki meira né minna en 50 ára afmæli í ár sendi algjörlega óvænt frá sér sér 6 laga plötu á Öskudag sem heitir einmity Days of Ash. Þessi plata er mikil fríðar-pólitík og ekki veitir okkur nú af þessa dagana en að berjast fyrir friði – tala fyrir honum og syngja um hann. U2 aðdáendur skoða plötuna með umsjónarmanni lag fyrir lag: Hildur Eir Bolladóttir prestur á Akureyri, Jón Knútur Ásmundsson á Reyðarfirði, Illugi Jökulsson, Helga Vala Helgadóttir og Arnar Eggert Thoroddsen. Svo ætlum við að skoða Fela Kuti sem hlaut dögunum Grammy verðlaun fyirr avistarfið - Lifetime Achievement Award fyrstur Afríkumanna og næstum 30 árum eftir að hann lést. Við beinum sjónum að Elvis myndinni sem er verið að sýna í kvikmyndahúsum í borginni þessa dagana – td. í kvöld. Baz Luhrman gerði þessa mynd sem er byggð upp á áður óséði efni frá árunum 1970-1972 að mestu. Olivia Dean var sigursælust á Bresku tónlistarverðlaununum (Brit Awards) sem voru afhent í Manchester í gærkvöldi. Björk var á svæðinu og steig á svið með vinkonu sinni Rosaliu sem hluta verðlaun sem „alþjóðlegur listamaður ársins“.
-
KK í 60 ár 22.02.2026 1ώ 51λTónlistarmaðurinn KK - Kristján Kristjánsson ætlar að fagna 70 árum á jörðinni með afmælistónleikum í Háskólabíó 8. maí. Þegar hann varð 60 ára fyrir áratug heimsótti hann Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið og ræddi við umsjónarmann um líf og störf Kristjáns. KK talaði um æskuna í Kaliforníu, pabbann sem týndist í Vietnam, um mömmu sína og systkini, um gítarana sína, unglingsárin á Íslandi, Bítlana, JJ Cale, Kris á Frakkastígnum, um Vegbúann, leikhúsið, útvarpið, Magga Eiríks, Bubba Morthens, eiginkonuna frá Akranesi, um óttann og margt fleira. Hann var með einn af gíturunum sínum með sér og spilaði nokkur lög eftir sig og aðra. Þessi þáttur er endurfluttur frá 2016.
-
Hver er Bad Bunny og hver er Ívar Ben? 15.02.2026 1ώ 49λÍ Rokklandi vikunnar kynnumst við Jarðfræðiprófessornum Ívari Ben sem var að senda frá sér sína fyrstu plötu – og á vinyl. Hann er búinn að vera að búa til lög árum saman en svo vatt þetta upp á sig og nú er komin út plata. En í fyrri hluta þáttarins kynnumst við Bad Bunny sem vakti mikla athygli fyrir skemmtiprógrammið sem boðið var upp á í hálfleik á Superbowl í bandaríska fótboltanum síðasta sunnudag – Ofurskálinni. Þetta 13 mínútna skemmtiatriði Bad Bunny frá Puerto Rico hefur skipt fólki í fylkingar og einn af þeim sem er óánægður er foringinn í hvíta-húsinu í Bandaríkjunum sem sagði á samfélagsmiðlinum sínum að þetta atriði hafi verið eitt það versta frá upphafi skemmtiatriða á Superbowl og móðgun við mikilleika Bandaríkjanna. Þá hafi dansatriðin verið ógeðsleg, sérstaklega fyrir börnin sem horfðu á. „það skilur enginn orð af því sem þessi gaur segir“ sagði hann líka – en hann söng á spænsku sem er hans tungumál og móðurmál eins og c.a. 45 milljóna bandaríkjamanna – c.a. 13% bandarísku þjóðarinnar.
-
Elín Hall á ESNS 26 - Sú Ellen og Ási í Paradís - Hellfoss 2026 08.02.2026 1ώ 50λÍ seinni hluta Rokklands í dag kíkjum við í Sandgerði og heimsækjum feðgana Jóa og Ása – Jóa í Messoforte og Ása tromara son hans sem reka í Sandgerði Stúdíói Paradís sem er byggt á landi sem afi Ása – KK – hljómsveitarstjórinn KK (Kristján Kristjánsson – KK sextett) átti. Við heyrum spjall við Ása og strákana í hljómsveitinni Sú Ellen frá Neskaupsstað sem er jafn gömul Rás 2 og er búin að vera að taka upp plötu í Paradís. Þaðan lá leiðin á Selfoss á HELLFOSS – nýja þungarokkshátíð sem 12 hljómsveitir spiluðu á um helgina á Sviðinu á Selfossi. Dr. Spock – Une Misere – Volcanova – Slysh – Auðn og fleiri. Rokkland spjallaði við Rúnar Hroða Geirmundsson stjórnanda Hellfoss , Sigga Pönk -Smára Tarf – Finna á Prikinu og Óttar Proppé. Svo setjum smá fókus á Minnieapolis – ICE - Bruce Springsteen og Billy Bragg. En byrjum á Elínu Hall sem Rokkland spjallaði við á Eurosonic festival í háskólaborginni Groningen í Hollandi um miðjan janúar.
-
Kiddi Hjálmur - Baggalútur og Hljóðriti 01.02.2026 1ώ 51λUndanfarna fjóra sunnudaga hefur Sjónvarpið sýnt okkur bráðskemmtilega þætti um HlJóðrita – hljóðverið í Hafnarfirði sem er elsta starfandi hljóðver landsins - stofnað árið 1975 af nokkrum kraftmiklum ungum mönnum af miklum metnaði. Þættirnir segja sögu Hljóðrita – hvernig það skipti sköpum varðandi íslenska tónlist og útgáfu á sínum tíma en þar voru teknar upp allar vinsælustu plöturnar sem komu út á íslandi í áratug eða meira – Mannakorn – Spilverkið- Grýlunar – Villi Vill – Gunni Þórðar – Magnús Þór – Bubbi – Megas – Þeyr – Tappi Tíkarrass – Brunaliðið - Grafík – jólaplötur og svo framvegis. En tíminn leið og tímarnir breyttust – hljóðverum fjölgaði í borginni og um allt land og Hljóðriti missti flugið af ýmsum ástæðum. Það stóð til um tíma að loka alveg, rífa hljóðverið og breyta húsnæðinu í skrifstofur. En sem betur fer gerðist það ekki og það má segja að bjargvættur Hljóðrita sé rauðhærður eldhugi frá Keflavík sem heitir Guðmundur Kristinn Jónsson. Hann er búinn að ráða ríkjum í Hljóðrita í um 20 ár og Hljóðriti hefur verið hans heimavöllur meira en helming þess tíma sem Hljóðriti hefur verið aktífur. Í fjórða og síðasta Hljóðritaþættinum kemur vel fram hvað Kiddi – eins og hann er kallaður - Kiddi Hjálmur – Kiddi í Hljóðrita – Kiddi Baggalútur – Kiddi í Hljómskálanum – hefur haft mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf síðasta aldarfjórðunginn amk, en hann er lykilmaður í Hjálmum – Baggalúti – Hljómskálanum – Hljóðrita – Sigurði Guðmundssyni – Megasi og Senuþjófunum – Memfismafínunni - Ásgeiri Trausta – Árnýju Margréti og svo framvegis. Kiddi er gestur Rokklands þessa vikuna. Rokkland heimsótti hann í Hljóðrita.
-
Rokkland 2025 - brot frá árinu sem leið 11.01.2026 1ώ 50λÍ þessum þætti rifjum við upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum frá árinu sem var að kveðja. Við heyrum í Björk – Roslíu – Páli Óskari og benna Hemm hemm – Atla rock´n roll ferðalangi – Hafdísi Huld – Hildi Völu – Ellen kristjáns - Robert Plant og Led Zeppelin – Bryan Adams – Steinari Berg og Mugison t.d.
Δημοφιλές σε
Αυτό το podcast εμφανίζεται και στις λίστες podcasts αυτών των χωρών.