Falsfréttir
Falsfréttir
0
Falsfréttir er podcast þar sem tvær systur, sem búa í sitthvoru landinu, spjalla saman um allt milli himins og jarðar. Þær ræða meðal annars æskudrama, persónulegar pælingar og djúpar hugsanir um lífið og tilveruna. Reglulega koma gestir í heimsókn og bæta nýjum sjónarhornum við samtölin. Oftast taka samræðurnar óvænta stefnu og verða að léttum en einlægum umræðum. Þátturinn er á íslensku og höfðar til áheyrenda sem meta góðan samtalstone og húmor.
Επεισόδια
-
#20 - Lokaþáttur / Leynigestur frá LA 31.03.2026 1ώ 17λJana litli gullkálfurinn okkar komin til okkar. Reyndum að hafa létt umræðuefni með en komumst ekki langt með það fyrir heilögu yappi en það er ekkert verra, er það nokkuð?Heyrumst aftur í sumar 🥺💓 -
#19 - Vandræðalegt 😬 17.03.2026 1ώ 26λSmá afsökunarkast aftur, hljóðið ekki alveg eins og vanalega en erum aðeins að aðlagast að taka upp í sama rými. Jú jú, stelpurnar SAMAN KOMNAR, HLIÐ VIÐ HLIÐ!Rosalegt. Njótið vel <3 -
#18 - Flórídamaður 🌫️ 10.03.2026 1ώ 13λElfa ríður á vaðið með fyrsta málið sitt. Auðvitað stödd í Flórída, en ekki hvar!Næsti þáttur verður hlið við hlið, ekki með Frikka Dór samt. -
#17 - Nostalgía 📼 03.03.2026 1ώ 45λNostalgía, mamma mia. Stígið inn í tímavél með okkur, haldið ykkur fast.. En gleymdum við einhverju??Þátturinn er í boði Tree Hut og CosRx 🫧 -
#16 - Ísland, gamla Ísland 🌬️🇮🇸🧊 24.02.2026 1ώ 20λBara hljóð í þetta sinn, því miður! Eitthvað vesen á þættinum but the show must go on. Elfa stjórnar í dag og allir að spenna beltin, það er skringilegt ferðalag framundan hjá ykkur. Top 3 listinn endalausi, rassgat Íslands og sundlaugar, nóg af sundlaugum.Ætli það verði ekki part 2 seinna þar sem Lovísa tekur sína random top 3 lista fyrir. -
EXTRAþáttur - Love Island All Stars 4 22.02.2026 1ώ 23λJójójó! Við erum búnar að helga okkur þessum leik. Fórum yfir síðustu vikuna á ástareyjunni miklu (þættir frá fös 13. feb - fimmt 19. feb) og fengum GEST! Sérfræðing af Skaganum, engan annan en Jóel TikTok Prodigy Jóhannsson!Njótið vel, þetta er alveg veisla. -
#15 - FALSSYSTIR 👯♀️ 17.02.2026 1ώ 47λLoksins komið að því, hitt miðjubarnið mætt í settið. Bæði systir okkar og frænka, ótrúlegt!Hear me out listi, hraðaspurningar og svo ævisagan mikla. Af nógu að taka hjá UdduBuddu. Lofum því. -
EXTRAþáttur - Love Island All Stars 3 14.02.2026 1ώ 7λUp to date gaaaang. Tölum um síðustu vikuna á ástareyjunni, eða alveg í gegnum fimmtudagsþáttinn 12. feb, let's goooo. -
#14 - Íslenska tungan 😛 10.02.2026 1ώ 17λÞessi er LITERALLY fyrir ömmu, ACTUALLY ekki fyrir fyrrum íslenskukennara Elfu. Mælum með að horfa á allavega byrjunina á þættinum til að skilja þetta kast hjá okkur. -
EXTRAþáttur - Love Island All Stars 2 07.02.2026 1ώ 5λMeira mess - og MOVIE NIGHT næsti þáttur, omg. Þessi sería er svo góð??? -
#13 - Eltihrellir 🥷🏼 03.02.2026 1ώ 16λLoksins eitt alvöru mál unnið vel (eða ágætlega og ÁN GERVIGREINDAR). Lovísa fær að slá um sig í íslenskunni og sýna sig aðeins á meðan Elfa skilur ekkert, eða kannski smá. Í samstarfi við Tree Hut og COSRx 🫧 -
EXTRAþáttur - Love Island All Stars 31.01.2026 1ώ 9λEinn audio only og klipptur í flýti en hey, gott innihald!! -
#12 - Raunveruleikaþættir 💓🎥🏝️ 27.01.2026 1ώ 11λOhhhhhh klikkuðum aðeins ''í byrjun''. Mjög erfitt að ýta á rauða takkann til að byrja að taka upp 🆘. Eins gott að þið séuð flest að horfa á Love Island annars þurfið þið að skippa hér og þar, gefum út sér aukaþátt í vikunni!Þátturinn er í boði Tree Hut og Skin1004 🫧 -
#11 - Falsmáltíð 🍕🥡🍨 20.01.2026 1ώ 39λMögulega TW fyrir seinni hluta þáttar, tölum mikið um mat!Í samstarfi við Senia.is færum við ykkur þátt um okkar skrítnu matarvenjur og nostalgíukast í þeim dúr. Byrjum samt á bresku slúðurhorni þar sem 1/3 af slúðurpakkanum eldist verr en mjólk í sólbaði. Tæklum það aftur í næsta þætti.Love you guys!! -
#10 - Systradýnamík 👯♀️ 13.01.2026 1ώ 19λFórum um víðan völl og smá hlé í seinni hálfleik útaf leiðinlegu ókláruðu máli hjá okkur. Við erum öll mannleg og myndum alveg leyfa ykkur að heyra ef við værum ekki drepleiðinlegar að ræða þetta. Styttist verulega í gestaþátt með öllum systrunum, það verður eitthvað alvöru chaos. Sem fyrr, í samstarfi við Senia.is - TreeHut, CosRX og Skin1004 <3 -
#9 - Sértrúarsöfnuðir ⛪️ 06.01.2026 1ώ 27λVið systur bjóðum ykkur með okkur ofan í smá kanínuholu. Við tökum fyrir sértrúarsöfnuði sem hafa vakið heimsathygli. Frá Manson-fjölskyldunni og Jonestown til Scientology, FLDS og Waco. Völd, áhrif og hversu auðvelt það getur verið fyrir suma að dragast inn í hættulega hugmyndafræði. Don't drink the Kool-Aid krakkar mínir. -
#8 - FALSdjamm 👯♀️🪩🥂 30.12.2025 2ώ 11λAnnar gestaþáttur! Fengum Valgerði vinkonu okkar til að fara aðeins yfir djammið með okkur í aðdraganda áramótanna. Lengsti þátturinn til þessa og litla ferðalagið sem þessi þáttur er. Hljómar eins og við eigum við vandamál að stríða en það er þá helst bara að vera kvíðasjúklingar, líklega. Lofum að við erum allar skárri en meðal Íslendingurinn. Hver kannast ekki við smá djammviskubit annars. Jæja, öl er böl, áfram gakk. GLEÐILEGT NÝTT ÁR! -
#7 - JólaFALS 🎄 23.12.2025 1ώ 12λByrjum á smá krassandi fregnum frá Los Angeles. Síðan tekur JólaJomman við, hvað er það? Þrif á Aðfangadag, Jól í útlöndum og má thrifta jólagjöf? -
#6 - New York City & P. Diddy 🗽🥯🏙️ 16.12.2025 1ώ 25λDrögum út vinningshafa í gjafaleiknum!!!Heimildarþættir eru sameiginlegt áhugamál okkar systra, okkur fannst því tilvalið að ræða aðeins The Reckoning. Ef svo ólíklega vill til að það hafi farið framhjá ykkur þá bjó Lovísa sko í New York þannig það tók ekki langan tíma að tileinka borginni þátt. Endar síðan á einni óvæntri rúsínu í pylsuendanum 🫢 -
#5 - Staðreyndir um FALS 📋💡🆕 09.12.2025 1ώ 21λNokkrar staðreyndir um okkur, sumar sturlaðar aðrar bara temmilega eðlilegar en bannað að dæma, sérstaklega ef þið eigið ekki systur á svipuðu reiki heh.
Δημοφιλές σε
Αυτό το podcast εμφανίζεται και στις λίστες podcasts αυτών των χωρών.