Morðcastið

Morðcastið

Unnur Borgþórsdóttir
País Islandia
Géneros Crimen Real, Comedia
Idioma IS
Episodios 327
Último 15.10.2026

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi.

Episodios

  • Orð dagsins er: Moldvarpa 15.10.2026 1h 2m
    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með okkur í ferðalag til Bandaríkjanna. Ferðalag sem við höfum farið í margoft, en það sem er óhefðbundið í dag er að mikið af málinu á sér stað undir mold og plexigleri. Algjörlega stórfurðulegt mál sem endar þó óvenju vel, svona miðað við þetta hlaðvarp allavega. Þáttur dagsins er í boði BL, Securitas, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Gjafabréf.is og Sassy.  Þolandi: Barbara Jane Mackle Gerandi: Gary Steven Krist og Ruth Eisemann-Schier.
  • Orð dagsins er: Nestisbox 08.10.2026 1h 8m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Hong Kong og segir frá hinni huggulegustu fjölskyldu, foreldrum og tveimur sonum, sem hafa átt hið huggulegasta líf. Það höldum við allavega en framvinda málsins lætur okkur sannarlega efast um það. Gríðarlega margar undarlegar u-beygjur eiga sér allavega stað, og enn fleiri undarleg innkaup og ákvarðanir. Þátturinn er í boði Nettó, Securitas, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Sassy og Gjafabréf.is Gerandi: Henry Chau og Angus Tse Chun-kei Þolendur: Chau Wing-ki (Glory Chau) og Siu Yuet-yee (Moon Siu) Fyrir óklipptan þátt eða áskriftarþátt þá mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
  • Orð dagsins er: Grandeur 01.10.2026 1h 15m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leiðina til Suður-Kóreu og segir okkur frá hópi vondra manna (og í smá einnar konu) sem hefði alveg getað tekið mjög margar frábærar ákvarðanir en tók í staðinn alltof margar hræðilegar ákvarðanir.  Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Gjafabref.is, Nettó, Sassy, BL, Fulltingi og Securitas. Gerendur: Kim Gi-hwan, Kim Hyun-yang, Kang Dong-un, Baek Byung-ok, Kang Moon-sub, Song Bung-un og Lee Kyung-sook. Þolendur: Frænka vinar Kim Gi-hwan, Miss Choi, Song Bong-un, Lee Jeong-su, hjónin herra So og frú Park, og Lee. Óklipptan þátt, sjónvarpsþátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid
  • Bókacastið X Morðcastið - Áður en ég brjálast 25.09.2026 26m
    Í þessum þætti ræðum við systur bókina Áður en ég brjálast eftir Soffíu Bjarnadóttur. 
  • Orð dagsins er: Brunnur 24.09.2026 52m
    Góðan daginn fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá hrottalegu máli sem tekur alltof langan tíma að upplýsa. Ungur maður vildi bara dansa við unga konu en það var að venju reiður maður sem fann sig knúinn til að eyðileggja það. Þátturinn er í boði: Nettó, Happy Hydrate, Óskaskrín, BL, Giggó, Fulltingi og Sassy Þolandi: Timothy Coggins Gerendur: Frankie Gebhardht og Bill Moore  
  • Orð dagsins er: Gistipartý 17.09.2026 1h 13m
    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og þar kynnumst við nokkrum einstaklingum í fjölkæru sambandi. Sem er vel, sérstaklega ef öll vita af því. Mikið kaos, margar spurningar og mikil undrun.  Þáttur dagsins er í boði Sassy, Happy Hydrate, BL, Giggó, Fulltingi, Óskaskrín og Nettó.  Þolandi: Desiree Sunford Gerandi: Marty Grismer. Allavega hann, kannski fleiri.
  • Orð dagsins er: Náttföt 10.09.2026 1h 7m
    Góðan daginn, þennan fallega fimmtudaginn.  Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Ástralíu og segir okkur frá konu sem fannst myrt og brunnin í röri. Í kjölfarið fer af stað röð atburða sem gefur okkur þó alveg merkilega fá svör. Eiginlega alveg óþolandi, og líka stórmerkilegt. Þolandi: Linda Agostini, amk í einhverju máli. Þátturinn var í boði: Sassy, Happy Hydrate, BL, Óskaskrín, Fulltingi, Giggó og Nettó.     Fyrir óklipptan þátt, sjónvarpsþátt eða áskriftarþætti þá mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
  • Orð dagsins er: Bartar 03.09.2026 1h 1m
    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.  Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá alveg svakalega undarlegu máli. Blautum þvotti í poka, andliti á glugga, konu á tánumog manni með alveg svakalega stóra barta. Allt hið undarlegasta og enginn veit neitt. Þáttur dagsins er í boði Sassy, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín og Giggó. Fyrir óklipptan þátt, áskriftarþætti og sjónvarpsþætti mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
  • Bókacastið X Morðcastið - Irpa 01.09.2026 32m
    Góðan daginn, þennan fallega lestrardaginn.  Í dag förum við yfir bókina Irpu eftir Hildi Knútsdóttur.  Fyrir sjónvarpsþáttinn getiði kíkt inná www.pardus.is/mordcastid
  • Orð dagsins er: Tanleysi 27.08.2026 1h 9m
    Góðan og glæsilegan fimmtudaginn.  Þáttur dagsins er aðeins kaotískur en það er einungis (ekki alveg kannski) vegna þess að málið er mjög kaotískt. Unnur fer með okkur í einskonar Evrópureisu hvar gamall kall tekur margar hræðilegar afleiðingar og margar konur eru fórnarlömb. Alltof týpískt. Þáttur dagsins er í boði Nettó, gjafabréf.is, Happy Hydrate, BL, Fulltingi, Giggó og Sassy.  Fyrir áskriftarþætti, óklippta vikuþætti og sjónvarpsþættina mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
  • Orð dagsins er: Nettókassi 20.08.2026 52m
    Góðan daginn, fimmtudaginn. Maður á leið í vinnu mjög snemma morguns rekst á kassa sem hann óskar mjög heitt að innihaldi matvöru úr Nettó. Hann gerði það ekki. Við sögu koma börn, fátækt, ömurð og buffalóar.  Í boði Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, BL, Óskaskrín, Giggó og Sassy. 
  • Orð dagsins er: Blómabeð 13.08.2026 47m
    Góðan daginn, almyrkvadaginn. Í dag er Unnur með okkur í Nýju Mexíkó, hvar fullorðinn maður flýr til Mexíkó með nýrri kærustu sinni. Eða hvað? Líklega alls ekki.  Þolandi: Craig Thetford Gerandi: Deana Thetford Í boði BL og MG, Nettó, Happy Hydrate, Sassy, Giggó, Fulltingi og Óskaskrín
  • Orð dagsins er: Særing 06.08.2026 54m
    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.  Maður fær í bakið, missir vinnuna og endar á einhvern ótrúlegan hátt á því að láta særa úr sér illu andana. Suma. Ekki alla. Þolandi: Christine Taylor Þátturinn er í boði: Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín, Sassy, Giggó, Fulltingi og BL.
  • Orð dagsins er: Skyndibitastaður 30.07.2026 56m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna, beinustu leið inná skyndbitastað til að fá okkur hamborgara og franskar. Það er þó ekki það eina sem við gerum í dag, því miður, því fjórir unglingar týnast og spurningarnar sem kvikna í kjölfarið eru óteljandi. Betra væri ef franskarnar væru óteljandi.  Í boði Giggó, Nettó, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi og Sassy.  Þolendur: Jayne Friedt, Mark Flemmonds, Ruth Shelton og Daniel Davis.
  • Orð dagsins er: Líkamsrækt 22.07.2026 43m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins er sögð saga af manni sem lét réttlætiskenndina þvælast heldur mikið fyrir sér. Eða hvað? Í boði Nettó, Sassy, Giggó, Happy Hydrate, Fulltingi og Nettó.  Þolandi: Jeffrey Dahmer og Jesse Anderson, og því miður fleiri auðvitað.  Gerandi: Christopher Scarver
  • Bókacastið X Morðcastið - Ótrúlega skynugar skepnur 20.07.2026 29m
    Í 9 þætti Bókacastsins ræðum við bókina Ótrúlega skynugar skepnur eftir höfundinn Shelby Van Pelt. 
  • Orð dagsins er: Fjölskylduást 16.07.2026 54m
    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og segir frá máli þar sem fjölskyldufaðir fer í vinnuna og allt hið venjulegasta. Þegar hann aftur á móti kemur heim eftir langan vinnudag er allt í skralli. Í verstu merkingu orðsins.  Þolandi: Stacey Holston, Devin Holston, Donald McGuire, og Tammie McGuire. Gerandi: Arron Lawson  Þátturinn er í boði Nettó, Fulltingi, Óskaskrín, Giggó, Sassy og Happy Hydrate.
  • Orð dagsins er: Ljósmyndari 09.07.2026 1h 22m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Ógurlega fríð og vongóð ung kona leggur af stað í módelferðalag í Frakklandi. Megið giska á það hvort útúr því komu góðar ljósmyndir eða ekki... Í boði Sassy, Giggó, Happy Hydrate, Nettó og Fulltingi.  Gerandi: Guillaume Mingaud ofl. Þolandi: Élodie Morel
  • Orð dagsins er: 4runner 02.07.2026 47m
    Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna, nánar til tekið til Knoxville. Nánar tiltekið reyndar í eitthvað ógeðslegt greni þar sem farið er hryllilega illa og ógeðslega með ungt kærustupar.  Í boði Sassy, Nettó, Giggó, Happy Hydrate og Fulltingi. Gerendur: Eric DeWayne Boyd: Letalvis Darnell Cobbins, Lemaricus Devall Davidson, George Geovonni Thomas og Vanessa Lynn Coleman.  Þolendur: Channon Gail Christian og Hugh Christopher Newsom.  
  • Orð dagsins er: Líkvökvi 25.06.2026 52m
    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins kynnumst við dáðadreng og dugnaðarforki í ríkjunum banda sem því miður átti alls ekki nægilega góða vini og kærustu. Innilega því miður.  Þátturinn var í boði: Fulltingi, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Giggó og Sassy.  Þolandi: Jason Sweeney Gerendur: Edward Batzig Nicholas og Domenic Coia

Popular en

Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.