Út að hlaupa
Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson
0
Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!
Episodios
-
#137 Einvígið á Vatnsendanum! 08.09.2026 1h 23mDorrit á Esjunni, Þórsmerkurþrennan og vaskir Eyjaskokksmenn sem gerðu sér ferð í dalinn. Þetta ásamt upphitun fyrir Vatnsenda einvígið og margt fleira á boðstólum í dag! -
#136 Hefur þú farið á Esjuna? 31.08.2026 1h 42mEldheitar Esju umræður, UTMB gert upp ásamt glóðvolgum hugleiðingum varðandi zone tvö. -
#135 Hlaupasumarið búið? 26.08.2026 1h 37mFórum yfir Reykjavíkurmaraþonið, ræddum við ísmanninn um nýtt íslandsmet og hvernig bicarb hefur áhrif á hann ásamt góðri skýrslu frá hlaupadagskrá.is. -
#134 Reykjavíkurmaraþon pepp! 17.08.2026 1h 39mFórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum árangur íslendinga á EM og hituðum ykkur vel upp fyrir Reykjavíkurmaraþonið! -
#133 Endurkoman 11.08.2026 1h 33mMættir aftur í Bose stúdíóið eftir stutt og gott sumarfrí. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum endurkomu Kingebrigtsen á brautina og framhaldið í hlaupum um allan heim! -
#132 Súldin styrkir! 24.07.2026 1h 20mVið fengum skýrslu frá Gunna Palla varðandi MÍ um helgina, ræddum 905 stigin hans Tobba, gerðum upp síðustu hlaup og fórum yfir þau sem framundan eru. Stravaliðurinn kom svo sterkur inn með allskonar skemmtilegum segmentum! -
#131 Daniel Pattis, Ítalski öðlingurinn! 23.07.2026 1h 4mVið fengum einn besta hlaupara heims um þessar mundir til þess að munda míkrafóninn í Bose stúdíóinu. Hann fór yfir það hvernig hann æfir, jafnvægi milli atvinnumannalífs og félagslífs, keppniskvíða og hvernig hann tekst á við stærstu keppnir í heimi! -
#130 Laugavegs uppgjör! 13.07.2026 1h 38mÍ þessum þætti snýst allt um Laugavegshlaupið sem var gert upp í allri sinni mynd. Við fórum einnig yfir íslandsmótið í 10 km hlaupi sem haldið var í Ármannshlaupinu um daginn. -
#129 Laugavegs upphitun! 07.07.2026 1h 41mAllt sem þú þarft að vita um Laugaveginn! -
#128 Elísa elskar Ítalíu! 02.07.2026 1h 38mElísa Kristins, hlaupadrottningin sjálf kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um frækinn sigur í Lavaredo, kom með predictions fyrir Laugarveginn og gerði upp síðustu hlaup á landinu! -
#127 Ísmaðurinn - alltaf í formi! 18.06.2026 1h 22mFengum Davíð Frey Magnússon í Bose stúdíóið sem gestastjórnanda. Fórum yfir hans stutta en magnaða hlaupaferil til þessa ásamt því að ræða það sem hefur verið á döfinni í íslensku hlaupasamfélagi! -
#126 EM uppgjör! 10.06.2026 1h 31mVið vinirnir hittumst í Bose stúdíóinu og gerðum upp EM í Slóveníu ásamt síðustu hlaupum innanlands! -
#125 Þú fokkar ekki í landsliðinu! 27.05.2026 1h 40mAndrea Kolbeins mætti í Bose stúdíóið í dag og gerði upp Golden trail ferðina á Ítalíu. Við tókum hlaupauppgjör síðustu hlaupa á íslandi og svöruðum spurningum úr sal! -
#124 Tove Tvennan! 18.05.2026 1h 34mTove Alexanderson mætir í Laugarveginn, stærstu fréttir ársins! Gerðum upp hlaup síðustu daga hér heima og snertum á Zegama veislunni miklu. -
#123 Búinn að krakka hlaupin! 13.05.2026 1h 29mAllt það helsta á dagskrá úr Bose stúdíóinu að vanda. Uppgjör á öllu því helsta úr hlaupum hérlendis og erlendis. -
#122 Bolirnir mættir! 08.05.2026 1h 22mVið strákarnir mættum í Bose stúdíóið til að gera upp Puffin run og Trabuco trail. Við heyrðum í Elísu og fengum prerace skýrslu frá La Palma og fórum yfir það sem framundan er í hlaupasenunni um heim allann! -
#121 Puffin run upphitun! 29.04.2026 1h 19mUppgjör síðustu hlaupa, Víðavangshlaup ÍR, Vecct Mílan, Vormaraþonið og hið ótrúlega London maraþon. Upphitun fyrir Puffin run og góð ráð til fellow hlaupara inn í sumarið! -
#120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli! 28.04.2026 1h 34mMagnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo margt margt fleira. Maggi er rosalega fróður á sínu sviði, algjör skyldu hlustun fyrir alla hlaupara landsins! -
#119 Gott hugarform! 22.04.2026 1h 33mNú er komið að því að hleypa af og blasta vetrarforminu því Víðavangshlaup ÍR er í fyrramálið! Við fengum hlaupadrottninguna Andreu Kolbeins í Bose stúdíóið til að fara yfir fyrstu keppni sumarsins! -
#118 Apríl þrennan! 09.04.2026 1h 13mÍ þættinum í dag ræddum við um komandi hlaup hér heima. Við fengum skýrslu frá Guðmundi í Vecct, fórum yfir orðabók hlauparans, ræddum beinar útsendingar í hlaupum á Íslandi og ræddum Evrópumet í götuhlaupi!
Popular en
Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.