Stjörnuspeki – Orkugreining

Stjörnuspeki – Orkugreining

stjornuspeki
País Islandia
Géneros Autoayuda, Educación
Idioma EN
Episodios 99
Último 07.09.2026

Vikulegur þáttur um stjörnuspeki þar sem við komum til með að endurvekja áhuga fólks á sjálfsþekkingu. Hver ertu? Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar, og hvernig getur þú unnið með þá. Nýr þáttur kemur út vikulega á öllum helstu streymisveitum.

Episodios

  • 107: Ef allir væru sama merkið / Dolly Parton 07.09.2026 44m
    1. Hvernig væri heimurinn ef allir væru sama stjörnumerkið?Hvað myndi gerast ef það væru bara hrútar á jörðinni? Eða bara steingeitur, fiskar eða ljón? Það kemur fljótt í ljós hvers vegna við þurfum á öllum 12 merkjunum að halda – hvert þeirra hefur sitt hlutverk og saman mynda þau ákveðna lífskeðju. 2. Ljónið kann að tala – en kann það að hlusta?Ljónið hefur sterka þörf fyrir að tjá sig, segja frá og láta ljós sitt skína. En þegar tvö sterk ljón hittast getur komið upp ákveðið vandamál: Hver ætlar eiginlega að hlusta þegar báðir vilja segja söguna? 3. Dolly Parton – hvernig getur þessi kona verið Steingeit og Meyja?Sól í Steingeit, tungl í Meyju og rísandi Meyja hljómar kannski ekki eins og augljós uppskrift að glimmeri, risastórum hárkollum og showbusiness. En þegar líf Dolly Parton er skoðað betur kemur jarðarorkan ótrúlega skýrt í ljós: vinnusemi, skipulag, viðskiptavit, þúsundir laga og heilt viðskiptaveldi. 4. Af hverju sagði Dolly Parton NEI við Elvis Presley?Elvis Presley vildi syngja „I Will Always Love You“, en til þess hefði Dolly þurft að gefa eftir stóran hluta höfundarréttarins. Hún neitaði. Árum síðar tók Whitney Houston lagið og ákvörðun Dolly reyndist henni gríðarlega verðmæt. Stundum sést Steingeitin og Meyjan best þegar kemur að stóru ákvörðununum. 5. Stjörnumerkið þitt segir langt frá því alla söguna.Dolly Parton er frábært dæmi um hvers vegna ekki er nóg að spyrja: „Hvaða merki ertu?“ Þegar stjörnukortið hennar er skoðað í heild – pláneturnar, húsin og afstöðurnar – kemur miklu stærri mynd í ljós. Þar sjáum við bæði skemmtikraftinn, viðskiptakonuna og konuna sem hefur látið gríðarlega gott af sér leiða.
  • 106 Gestur: Guðni Gunnarsson. Guðníska / Vald orðanna / Að taka ábyrgð á eigin lífi 21.08.2026 1h 34m
    Guðni Gunnarsson er gestur þáttarins og að þessu sinni förum við djúpt í mátt orðanna, ábyrgð, vitund og það að taka aftur valdið í eigin lífi. Hvað er „guðníska“? Erum við heppin eða gæfurík? Hvað þýðir það raunverulega að vilja eitthvað – og hversu mikil áhrif hafa orðin sem við notum á veruleikann okkar? Við skoðum líka stjörnukort Guðna og veltum fyrir okkur hvernig sterk Sporðdrekaorka, Merkúr og Mars endurspegla manninn, hugsunina og lífsstarfið. Þáttur um sjálfsþekkingu, heimild, viðnám, gagnrýni og muninn á því að þekkja viskuna – og að lifa hana. Hér eru nokkrir punktar um efni þáttarins. 1. „Þú ert ekki heppinn – þú ert gæfuríkur.“Hvað ef „heppni“ er ekki til? Guðni setur fram áhugaverða sýn á muninn á því að vera heppinn, lánsöm manneskja og gæfurík – og hvernig við sjálf tökum þátt í að skapa aðstæður lífs okkar. 2. „Ef þú ert bara að reyna – ætlarðu þá í raun að gera það?“Það er gríðarlegur munur á mig langar, ég ætla, ég reyni og ég vil. Í þættinum er farið djúpt í orðið „vilji“ og þá hugmynd að raunverulegur vilji birtist fyrst þegar við framkvæmum. 3. Hversu mikið vald ertu búinn að gefa öðrum yfir líðan þinni?Símtal sem þú „verður“ að svara. Skilaboð sem þú „átt“ að bregðast við. Ásakanir eða skoðanir annarra sem þú hleypir inn. Hvar liggja mörkin milli samskipta og þess að afhenda öðrum valdið yfir eigin lífi? 4. „Gagnrýni“ þýðir ekki það sem við höldum.Að rýna eitthvað til gagns er eitt. Að ráðast á, ásaka eða rífa niður er allt annað. En hvers vegna tökum við skoðanir annarra svona auðveldlega inn á okkur – og þurfum við yfirhöfuð að gera það? 5. Stjörnukort Guðna útskýrir ótrúlega margt.Sól og Satúrnus í Sporðdreka, Venus í Sporðdreka, Mars í Vatnsbera og sterkur Merkúr. Kortið sýnir mann sem vill fara alla leið niður á kjarnann, umbreyta veikleikum í styrk og hefur lítinn áhuga á yfirborðinu.
  • 105: Sjálfhverfa / Fullkomnunarárátta / Merkúr í elementum og merkjum 12.08.2026 1h 10m
  • 104: Niðurspírall, þunglyndi og hvernig einhverfa getur birst í fæðingarkorti. 05.08.2026 52m
  • 103: Höldum áfram með afstöður. Nú er það Neptúnus og Plútó. 21.07.2026 1h 3m
  • 102: Almennt spjall um stjörnuspeki og afstöður, Júpíter / Satúrnus og Úranus 05.07.2026 1h 11m
  • 101: Orkufræði og hugarástand / Hildur Björnsdóttir Borgarstjóri Reykjavíkur 04.06.2026 49m
  • 99: David Attenborough / Aðeins um húsin / Líf í hærri tíðni 30.05.2026 31m
  • 98: Michael Jackson / Tungl og Venus / Andstæður sem mynda togstreitu innra með okkur 23.05.2026 1h 2m
  • 97: Hvað er að vera með ótengdar plánetur, kóngurinn Björgvin Halldórsson og auðvitað morgunbollinn. 05.05.2026 46m
  • 96: Spennandi morgunbolli og Tiger Woods / Stjörnuspeki í vexti og spjall um Orkufræði. 22.04.2026 44m
  • 95: Hvað er Satúrnusarhringur / Pælingar frá diggum hlustanda / Neptúnusarorka 06.04.2026 55m
  • 94: Hvað leyfa merkin hvort öðru þegar um Sól og Tungl er að ræða. 30.03.2026 47m
  • 93: Keppendur á Vetrarólympíuleikum / Að vera í Hvergilandi / Og svo margt annað skemmtilegt. 25.03.2026 54m
  • 92: Vatnsberar / Davíð Oddsson / Jörð og loft og almennt spjall 16.03.2026 42m
  • 91: James Garnes / Gunnar Smári / Bragi Guðbrandsson / Hrúturinn og nýji tíminn ! 05.03.2026 42m
  • 90: HM þjálfarar / Bakkakot / krónprinsessan í Noregi og sonur hennar, vandræði þeirra greind ! 21.02.2026 46m
  • 89: Almennt spjall um stjörnuspeki og inngangur í stóru breytingarnar í heiminum ! 08.02.2026 53m
  • 88: Nýtt ár komið af stað og við sömuleiðis. Fyrsti þáttur 2026. 27.01.2026 1h
  • 87: Vatnið og Neptúnus, framkoma fólks ( rísandi ) og almennt spjall. 31.12.2025 51m

Popular en

Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.