Var afa mínum slaufað?

Var afa mínum slaufað?

RÚV Hlaðvörp
País Estados Unidos
Géneros Society & Culture, Arts, Documentary, Books
Idioma IS
Episodios 4
Último 21.04.2025

Rithöfundurinn Kristmann Guðmundsson var á sínum tíma einn þekktasti rithöfundur Íslands. Hann var um tíma metsöluhöfundur víða í Evrópu og bækur hans þýddar á nærri 40 tungumál. En af hverju veit enginn hver hann er lengur? Umtal fylgdi honum alla tíð og um hann gengu rætnar slúðursögur, en hann sagði þær vera sprottnar úr viðjum kommúnista. En hvað er satt? Var Kristmann fórnarlamb skipulagðrar rógherferðar eða þjáðist hann af ofsóknarbrjálæði?

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Episodios

• 4. þáttur 21.04.2025 42m
Voru kommúnistar með skipulegan róg gegn Kristmanni eða þjáðist hann af ofsóknarbrjálæði? Var afa mínum slaufað? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
• 3. þáttur 20.04.2025 42m
Slúður um ástarlíf Kristmanns var látlaust hér á landi. Sögur af öllum 9 hjónaböndum hans og örlögum þeirra gengu manna á milli. Kristmann endar í Hveragerði þar sem víglína kalda stríðsins liggur um skáldagötuna þar sem kalda menningarstríðið hafði áhrif rétt eins og annarsstaðar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
• 2. þáttur 18.04.2025 38m
Kristmann Guðmundsson sló í gegn í Noregi og var þýddur á fjölda tungumála innan Evrópu og utan. Senn leið að því að Kristmann sneri heim en þá trúðu Íslendingar tæpast frásögnum af vinsældum hans. Það voru kjaftasögur á reiki. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
• 1. þáttur 17.04.2025 39m
Í fyrsta þætti lítum við á uppvaxtarárin og persónuleika Kristmanns sem var stór og fyrirferðamikill. Hvað leiddi til þess að Kristmann fór til Noregs? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Popular en

Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.