Besta sætið
bestasaetid
0
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Osad
-
Rúnar Már Sigurjónsson: Sorgin að hætta, flakk um Austur-Evrópu, EM-gleðin og HM höggið 26.09.2026 27minSauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur átt viðburðarríkan fótboltaferil sem tekur senn enda. Ferillinn dró hann víða um heim og hann kunni hvað best við sig austan tjaldsins í Rúmeníu og Kasakstan. Rúnar Már neyðist til að hætta vegna þrálátra meiðsla sem hafa áhrif á hans daglega líf og því fylgir ákveðið sorgarferli. Hann fer yfir ferilinn í ítarlegu viðtali við íþróttadeild Sýnar. -
25.sept - Ekkert elsku mamma lengur 25.09.2026 19minBesta sætið var í landsliðsgír í dag enda spennandi helgi framundan fyrir íslenska karlalandsliðið sem hefur leik í Þjóðadeild UEFA á heimavelli á morgun. Ræddum líka frábæra leiki í Olís deildinni, Þjóðadeild og þau vandræði sem Valur er í. Ákveðin krísa á Hlíðarenda. Það og margt fleira í þætti dagsins. Góða helgi! -
24. sept - Loksins bolti á innipúkadegi 24.09.2026 19minÞað verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins. Andri Broddason átti sérlega erfitt með haustlægðina þegar hann þurfti að labba alla leið út í bíl í morgunsárið á meðan aðrir löbbuðu og hjóluðu í vinnuna. Lægðin hafði sín áhrif á landsliðin okkar sem færðu sig úr Laugardalnum inn í hallir að æfa í dag. Kvennalandsliðið, U21 landsliðið, Olís-deildin og stórleikir í Þjóðadeildinni í Besta sætinu þennan fimmtudaginn. -
23. sept - Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met 23.09.2026 19minÁkvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi leikur í Þjóðadeildinni voru til umræðu í Besta sætinu. Þar var einnig farið yfir leikina í Meistaradeild kvenna í fótbolta, þar sem fjöldi Íslendinga kom við sögu, og einvígin sem Breiðablik og FH hefja í dag í Evrópubikarnum. -
22. sept - Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í 22.09.2026 20minPólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson með ykkur í dag. -
21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka 21.09.2026 22minValur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson gerðu upp risastóra íþróttahelgi sem er að baki. Rígur er að myndast í Bakgarðshlaupum, Þróttur komst í Bestu deildina, Víkingur varð Íslandsmeistari og óvænt úrslit á Englandi. -
18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu? 18.09.2026 25minRosaleg helgi í sportinu og nóg að fara yfir. Lengjudeildarúrslit, Víkingur getur orðið meistari í Bestu karla, Bakgarðshlaup með Steinda og enski boltinn. -
17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll 17.09.2026 26minÞað er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki vilja koma og horfa á sitt lið spila á Laugardalsvelli? -
Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg 16.09.2026 26minÁ rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins, stjórn félagsins sagði af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti. Alfreð fer hér yfir fyrsta rúma árið í starfi, samstarfið með Frey og önnur tengd mál. Meðal annars gullmolann sem félagið hefur klófest með einum mest spennandi sóknarmanni Skandinavíu að mati Alfreð sem var sjálfur markamaskína á sínum leikmannaferli. -
16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina 16.09.2026 28minKjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem hann þjálfaði síðustu ár. Einnig ræðir Kjartan um Bestu deildina og nýjan feril í pólitíkinni. -
15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum 15.09.2026 19minVíkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem er búið að fá Pargo og svo er spurning hvort Tottenham nái loksins að skora í kvöld. -
Dagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham 15.09.2026 19minDagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um framhaldið á ferlinum, sem og með landsliðinu, eftir langan og farsælan feril. Hún heldur þó öllu opnu. Í viðtali við Vísi fer Dagný um víðan völl. Hún er flutt heim til Íslands og lék með Selfossi í Lengjudeildinni í lok sumars, og vill láta að sér kveða til að bæta umgjörð í fótbolta kvenna hér á landi. Hún segir sorglegt að sjá Ísland dragast þar aftur úr öðrum þjóðum sem séu allar að gefa í. Þá ræðir Dagný um sitt nýja hlutverk sem sérstakur sendiherra enska félagsins West Ham. -
11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester 11.09.2026 23minÞað er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri hlutanum er hörð. Baráttan um Manchester er svo aðalleikurinn í enska þessa helgina. -
10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona? 10.09.2026 25minYfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og umspilið í Lengjunni er galopið. -
9. sept - Er Mourinho enn nógu góður? 09.09.2026 26minJose Mourinho er mættur með látum í Meistaradeildina á nýjan leik. Liverpool á risaleik í Meistaradeildinni í kvöld á meðan Arsenal fer til Ítalíu. Umspilið í Lengjunni hefst í kvöld og svo er NFL-deildin að fara af stað með stórleik. -
8. sept - Meistaradeildin fer loksins í gang 08.09.2026 19minÞað er hátíðisdagur því Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld. Við hitum vel upp fyrir kvöldið þar sem Jose Mourinho snýr aftur með Real Madrid í keppnina og það með liði sem hann þjálfaði áður. -
7. sept - Arsenal með langbesta liðið 07.09.2026 22minArsenal sýndi mátt sinn og megin í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Svo gerum við upp Bestu karla en Víkingar eru með pálmann í höndunum og Keflavík verður í efri hlutanum. Valur og Stjarnan munu spila í neðri hlutanum. Mikill skellur fyrir bæði félög. -
4. sept - Risahelgi í boltanum 04.09.2026 26minLokaumferð deildarkeppni Bestu karla, lífsbaráttulaugardagur í Lengjunni og enski boltinn. Það þarf ekki að standa upp úr sófanum um helgina. -
3. sept - Handboltinn rúllar af stað í kvöld 03.09.2026 23minOlís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Haukum og Val er spáð toppsætunum. Stjarnan heldur áfram að spila í Miðgarði og svo rennum við yfir bestu kaupin í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. -
2. sept - Uppgjör á stórleik KR og Víkings 02.09.2026 24minRisaleikur KR og Víkings í gær er eðlilega í brennidepli í þætti dagsins. Rúmlega 4.000 manns mættu á leikinn sem hófst klukkan 17.30 á þriðjudegi. Víkingur er með pálmann í höndunum eftir leikinn.
Populaarne riigis
See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.