Moldvarpið

Moldvarpið

Moldvarpið
Riik Iceland
Žanrid History
Keel EN
Osad 22
Viimane 26.02.2026

Hlaðvarp um íslenska fornleifafræði. Fornleifafræðingarnir Arthur Knut Farestveit og Snædís Sunna Thorlacius fjalla vítt og breitt um íslenskar fornleifar, minjar og menningarsögu. Í hverjum þætti er ákveðið viðfangsefni tekið fyrir og sett í samhengi við samtímann, bæði fornleifanna og fornleifafræðinganna.

Osad

  • 21. Lög og regla II 26.02.2026 1t 38min
    Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins skoðum við nokkur dæmi um afleiðingar dóms og laga í fornleifum. Hvað skilur útilegumannahelli frá öðrum hellum? Hvað voru margir teknir af lífi á Íslandi og fyrir hvað? Og hvað í andskotanum var Erfðahyllingin? Arthur segir frá sniðugum útlaga í Eldvörpum og Snædís fjallar um 18. aldar morðmál sem tengist bæði Árbæjarsafni og Kópavogslæk. Útilegumenn, afturgöngur, sifjaspell og aftökur - hvað er hægt að biðja um meira? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði Þetta er síðasti þáttur Moldvarpsins í bili. Við þökkum fyrir samfylgdina - þangað til næst!
  • 20. Lög og regla I 19.02.2026 1t 12min
    Hvers vegna eru lög og regla? Þessi fyrri hluti umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins fjallar um þing og þingminjar. Við lærðum flest í grunnskóla að örfáir karlar úr efri stétt hittust á þingum til að semja lög og fella dóma sem síðan rötuðu á skinnhandrit sem mörg eru enn varðveitt í dag. En fyrir utan handritin, hvaða minjar skilja þessir fundir eftir sig? Hvað er dómhringur? Og hvar í ósköpunum var Lögberg?? Arthur fer yfir hvernig goðorð virkuðu og hvernig kerfið var dauðadæmt frá byrjun en Snædís talar um dularfullt samband vatns og þingstaða. Þau fá síðan bæði hausverk við að reyna að greiða úr ráðgátu um sérstaklega dularfullan hól á Þingvöllum. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 19. Klaustur á Íslandi II 12.02.2026 1t 23min
    Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um klaustur á Íslandi kíkjum við austur í Fljótsdal og förum yfir rannsóknina á Skriðuklaustri sem er eina klaustrið sem grafið hefur verið upp og rannsakað í heild sinni. Hvað fannst í rústum klaustursins? Hvað segja fornleifarnar okkur um starfsemi klaustra á Íslandi? Hvað fannst í klausturgarðinum sem kom öllum á óvart? Snædís fjallar um fornar lækningaraðferðir sem innihalda refagall, töfrasteina og að sleikja tær. Arthur tjáir sig um vonbrigðin sem fylgja því að finna reiknimyntir. Rætt um fjölbreytt notagildi kvikasilfurs, kapellu á móti álverinu í Straumsvík og besta hlaðborð landsins. ATH! Fyrir viðkvæma: smá grafísk umræða um líkamsleifar, sjúkdóma, áverka og beinagrindur frá 37:53 - 59:34 Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 18. Klaustur á Íslandi I 05.02.2026 1t 33min
    “Ora et labora” er mottó þessa fyrri hluta okkar um klaustur á Íslandi og helstu rannsóknir á þeim. Klausturtími Íslands var frá 1030 – 1554 (anno domini) eða heil 524 ár og því af nógu að taka! Hvað er klaustur og hvað fer þar fram? Voru klaustur á Íslandi frábrugðin öðrum klaustrum? Hvernig tengjast rómverskir flísaleggjarar íslensku messuhaldi? Og hvað í ósköpunum eru tveir hlutar fjórðungs smjörs mikið? Hollenskur biskup stígur á land í Viðey með vaxtöflur og Gleraugna-Pétur smíðar kamar í kirkjugarði. Snædís segir okkur frá Kirkjubæjarklaustri og valdeflandi nunnu sem gerði nákvæmlega það sem henni sýndist. Arthur segir frá upplifun sinni við að leita að klaustri á Þingeyrum þar sem hann fann aðallega ullarsokka og bíldekk. Hljóðið fyrstu 6 mínúturnar er smá slæmt en er gott restina af þættinum. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 17. Bergþórshvoll II 29.01.2026 57min
    Í þessum seinni hluta höldum við áfram þar sem frá var horfið um fornleifarannsóknir á Bergþórshvoli og á Njáluslóðum. Hvað fann Kristján Eldjárn á Bergþórshvoli? Hvernig líta brunarústir út eftir 1000 ár? Svífur andi Hallgerðar langbrókar yfir Sæbrautinni? Mjaltakollur og fjósaskófla Njáls og Bergþóru. Gunnar á Hlíðarenda, Hjörtur bróðir hans og flottasti servíettuhringur Íslandssögunnar. Eru skilaboð Njálu þau að þeirra bíða hræðileg örlög sem hvorki hlusta á né virða konur? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 16. Bergþórshvoll I 22.01.2026 1t 8min
    Við tökum af skarið í þessum þætti! Í þessum fyrri hluta umfjöllunar okkar um fornleifarannsóknir á Bergþórshvoli förum við um víðan völl. Stóra spurningin er: hafa fundist vísindalegar sannanir sem styðja frásögn Brennu-Njáls sögu og ef svo, hverjar? Arfasátan alræmda og ummerki hennar. Hringadróttinshornið auðvitað á sínum stað. Rúnaprik með galdri og fornrómverskt meme koma við sögu. Langir starfstitlar og enn lengri greinatitlar. Fermingarveisla á Bergþórshvoli og að toppa of snemma. Hvern talarðu við ef þig vantar efnafræðing, nú hæstaréttardómara auðvitað! Hvað er sofnhús? Fannst skyrið sem Bergþóra sletti steingert í jörðu á Bergþórshvoli? Hvað er mýrarsmjör og er það gott á bragðið? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 15. Kristnitakan II 15.01.2026 1t 32min
    Við höldum áfram umfjöllun okkar um upphaf kristni í landinu og ræðum um nokkrar af elstu kirkjum og kirkjugörðum sem fundist hafa á Íslandi. Ræðum einnig um gripi sem benda til mögulegrar blöndunar á kristnum og heiðnum sið og reynum svo að draga þetta allt saman í lokin. Hver eru tengsl guðshúsa við smiðjur? Hversu hröð var kristnitakan? Hvað geta elstu kirkjugarðarnir sagt okkur um samfélag miðalda? Fundvísasti bóndi landsins, Arthur vill finna gröf Egils, lúxus strokleður í Reykholti, Þór eða Jesús eða garðálfur? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 14. Kristnitakan I 08.01.2026 1t 16min
    Við færum okkur úr heiðnum sið yfir í kristinn. Þorgeir ljósvetningagoði lagðist undir feld á Alþingi árið 1000 en þegar hann kom undan honum var Ísland orðin kristin þjóð. Var atburðarás kristnitökunnar virkilega svona einföld eða var eitthvað meira og flóknara í gangi? Geta fornleifar varpað ljósi á kristnitökuna? Hverjar eru elstu kirkjur landsins sem fornleifafræðingar hafa fundið? Eru til kirkjur frá því fyrir kristnitöku? Afskiptasemi Noregskonunga í 1000 ár, mikilvægi þess að snúa rétt á dómsdegi, mikið rætt um kirkjugarða…veggi..nei..garða! Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 13. Hof og heiðinn átrúnaður III 01.01.2026 1t 22min
    Í þriðja hluta umfjöllunar okkar um hof og heiðinn átrúnað fjöllum við um einn mest rannsakaða fornleifastað Íslands, Hofstaði í Mývatnssveit. Var þar ósköp venjulegt heimilishald á 10. öld eða fóru þar fram blót og fórnarathafnir? Nautshöfuðkúpur, kúluskítur og eggjaskurnir. Voru Mývetningar til forna frumkvöðlar í vistvænni sjálfbærni? Hvernig skarast heiðinn og kristinn siður á Hofstöðum og af hverju er staðurinn ekki nefndur í neinum fornum heimildum? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 12. Hof og heiðinn átrúnaður II 25.12.2025 45min
    Í öðrum hluta umfjöllunar okkar um hof og heiðinn átrúnað skoðum við tvo staði sem mögulega tengjast heiðnum trúarathöfnum. Hvaða dularfullu atburðir áttu sér stað inni í Surtshelli? Var hlið milli tveggja heima á Höfn í Hornafirði? Lögreglan notar hunda til að þefa upp fíkniefni, en hvað með fornleifar? Arthur mætir aftur með Hringadróttinshornið, Snædís elskar að tala um hella. Hvernig kemur Halldór Laxness inn í þetta? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
  • 11. Hof og heiðinn átrúnaður I 18.12.2025 57min
    Fyrsti hluti af þremur um hof, heiðinn sið og þær fornleifar sem tengja má við trú og hugarheim fólks fyrir tíma kristni. Í þessum hluta einbeitum við okkur mest að rituðum heimildum um hofbyggingar og lýsingar á þeim athöfnum sem sagðar eru hafa gerst í og við hofin. En í lok þáttar fjöllum við um Rútshelli sem sagður var vera Óðinshof og “rannsókn” á honum. Hvað er hof? Voru þau til á Íslandi? Eru örnefni eins og Hofsstaðir eða Hofsós vísbending um að þar hafi staðið heiðin hof fyrir kristnitöku? Hvernig tengjast ofbeldisfullt morð á Kjalarnesi, IKEA húsgögn og Biblíusögur? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasj´óði
  • 10. Leitin að Pöpunum II 11.12.2025 57min
    Seinni hluti af umfjöllun okkar um Papana, víðförlu írsku einsetumunkana sem ferðuðust um Atlantshafið. Hverjar eru bestu vísbendingar sem fornleifafræðingar hafa fundið um Papa á Íslandi? Hvar er betra að leita Papa en einmitt í Papey? Arthur talar um áratuga langa rannsókn í Papey. Voru Papar í Færeyjum? Snædís kynnti sér kindaspörð úr vatnaseti í Færeyjum til að varpa ljósi á málið. Brjóst (já þannig brjóst) koma óvænt við sögu. Ágreiningur um baðker. Einnig segjum við frá háskalegri tilraun bresks ævintýramanns til að sannreyna hvort írskir munkar gátu siglt um höfin á skinnbátum. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 9. Leitin að Pöpunum I 04.12.2025 1t 13min
    Fyrri hluti af umfjöllun okkar um Papana, víðförlu írsku einsetumunkana sem ferðuðust um Atlantshafið. Íslendingabók og önnur forn rit staðhæfa að Papar hafi verið á Íslandi þegar norræna landnema rak á fjörur, en eru til fornleifafræðilegar sannanir fyrir veru þeirra á Íslandi? Og ef svo, hverjar? Hvar hafa fornleifafræðingar leitað þá uppi? Er hægt að treysta á ritheimildirnar eða er maðkur í mysunni? Byggðu Papar sér hús eða bjuggu þeir í hellum? Umfjöllun hefst frá 11:33 en fram að því spjöllum við um hvað hefur á daga okkar drifið frá síðasta þætti. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 8. Steinkista Páls biskups: Demba, djásn og dýrlingar 23.01.2025 1t 33min
    Steinkista Páls Jónssonar Skálholtsbiskups (d. 1211) var talin goðsögn eða með öllu týnd þar til hún fannst óvænt við fornleifarannsókn í Skálholti 1954. Hver var Páll biskup? Af hverju var hrúga af brenndum beinum í kistunni? Af hverju að grafa sig í 730 kg steinhnullungi? Hvernig týnist eða gleymist slík gröf? Snædís reynir að reikna út hvað bygging grafhýsis kostaði á 13. öld. Arthur verður að fá svör við því nákvæmlega hversu mikið af heilögum Þorláki var komið fyrir í heilaga Þorláksskríninu. Þessar vangaveltur og margt margt fleira í þessum þætti Moldvarpsins! Það er "fullkomlega egypzk stemming" í þessum þætti svo komið ykkur vel fyrir, heyrnatól í eyrun og popp í skál. Njótið! Moldvarpið fer eftir þennan þátt í pásu í einhvern tíma en við komum vonandi bráðlega aftur með brakandi fornt efni fyrir ykkur. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
  • 7. Grænland og Ameríka II: Heppni og harmleikur 16.01.2025 1t 18min
    Í sjöunda þætti Moldvarpsins fjöllum við um Ingstad hjónin, hvernig þau fundu húsarústir norrænna landnema í L'Anse aux Meadows, Kanada og hvað fornleifarnar segja okkur um þetta ævintýranlega tímabil í mannkynssögunni. En af hverju gáfust víkingarnir upp á Ameríska draumnum? Aftur til Grænlands. Hvað ef að heill fataskápur af kjólum og höttum væri settur í frystikistu í 600 ár? Hvað með heilan bóndabæ? Af hverju hvarf norræna nýlendan á Grænlandi? Lirfur? Átök við Inúíta? Eða bara ísköld hagfræði? Af hverju tók enginn eftir því að hún hvarf? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
  • 6. Grænland og Ameríka I: Lögbrot og landafundir 11.01.2025 1t 12min
    Ef Ísland er ísskápur þá er Grænland frystikista. Var nóg fyrir Eirík rauða að gefa landinu aðlaðandi nafn til þess að fólk næmi land þar eða býr eitthvað meira að baki? Var annað fólk þar fyrir? Hafa fornleifafræðingar í alvöru bæði grafið upp bæ Eiríks á Íslandi OG Grænlandi? Hvað hefur verslun fílabeina í Afríku með Grænland að gera? Hvar var Vínland, hverjir voru svokallaðir "skrælingjar" og hvað voru Grænlendingar að sækja vestur? Arthur skilur ekki muninn á vínberjum og öðrum berjum, Snædís segir frá fyrsta fornleifauppgreftri Kristjáns Eldjárns forseta, þróun arkitektúrs á Grænlandi og margt fleira í þessum þætti Moldvarpsins um norrænar fornleifar á Grænlandi og Ameríku! Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
  • 5. Landnám Reykjavíkur II: Víkingaþorpið í Kvosinni 02.01.2025 1t
    Seinni hluti umfjöllunar okkar um landnámið í Reykjavík. Hvað fannst á Lækjargötu árið 2015 öllum að óvörum? Var kornrækt í Reykjavík á víkingaöld? Hvað varð um fyrstu íbúana og af hverju finnast þeir ekki? Rúnaristur, rostungar og rómverskir peningar. Snædís fræðir okkur um helsta óvin Arthurs frjókornin *hnerr*, og hvað þau segja okkur um umhverfi Reykjavíkur á landnámsöld. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
  • 4. Landnám Reykjavíkur I: Skáli Ingólfs fundinn? 26.12.2024 1t 12min
    Margir fornleifauppgreftir hafa farið fram í miðbæ Reykjavíkur á síðustu áratugum og þar er sífellt meira að koma í ljós um landnám svæðisins. Af hverju myndi Ingólfur velja Reykjavík af öllum stöðum? Hvernig fór landnámið fram? Hvað hafa margir skálar fundist í Kvosinni? Hvar er hægt að sjá elsta mannvirki á Íslandi? Öndvegissúlurnar, kolefnisaldursgreiningar, lattelepjandi landnámsmenn og margt margt fleira. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 3. Heiðnar grafir á Íslandi II: Mannabein og munir 19.12.2024 1t 43min
    Seinni hluti umfjöllunar okkar um heiðnar grafir á Íslandi (kuml) og hvað við getum lært af þeim um fyrstu kynslóðir fólks á Íslandi. Af hverju var fólk grafið með hluti og dýr? Hvað geta mannabein sagt okkur um einstaklinginn og samfélagið? Af hverju fannst Arthuri hola undir rafmagnsstaur svona grunsamleg? Hvað fann Snædís undir steini á Seyðisfirði? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
  • 2. Heiðnar grafir á Íslandi I: Á árabát til Ásgarðs 12.12.2024 1t 11min
    Fyrri hluti umfjöllunar okkar um heiðnar grafir á Íslandi og hvað við getum lært af þeim um fyrstu kynslóðir fólks á Íslandi. Hvað eru kuml? Hvernig finnast þau? Hvað segja Íslendingasögurnar um greftrun á víkingaöld? Af hverju að láta grafa sig í bát? Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði

Populaarne riigis

See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.