Víðsjá
RÚV
0
Víðsjá er íslenskur menningarþáttur sem fjallar um listir og menningu. Umsjónarmennirnir Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir varpa ljósi á það sem efst er á baugi hverju sinni, skoða menningu nær og fjær frá ólíkum sjónarhornum og setja skapandi miðla undir smásjána.
Osad
-
Hverafugl, Himna, viðkvæmni og Harðindi 02.07.2026 53minFreyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins sem býr í blómum. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, myndlistarmaður, kom við á sýningunni Himnu í Norræna húsinu og flytur hún rýni um sýninguna í þættinum. Tumi Árnason, tónlistarmaður, ferðaðist yfir fjöllin til Hveragerðis og heimsótti hátíðina Hverafugl sem fór fram um síðustu helgi og mun hann gefa okkur skýrslu af sinni upplifun. Við hringjum til útlanda og heyrum í íslenskum rithöfundi sem var að senda frá sér sína fyrstu skáldssögu. Vilhjálmur Pétursson á sigurbók Nýrra radda hjá Forlaginu og nefnist hún Harðindi og segir frá ævintýrum manns og merar í martraðarkenndum eftir-heimsenda-veruleika hér á Íslandi.
-
Davíð Þór á Gljúfrasteini 01.07.2026 50minÍ Víðsjá dagsins komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum, í sérstökum aukaþætti Aldrei las ég Laxness, um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæði hans.
-
Hermeto Pascoal, Jón Arason Hólabiskup og Jeff Parker 29.06.2026 54minÍ þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að fagna lífi hans, en á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra tónstíla á borð við; samba, choro, baiao, maracatu, marcha og frevo. Sigmar Þór Matthíasson, tónlistarmaður, er í forsvari fyrir þessa tónleika og ræðir við okkur um Hermeto. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, endar syrpu sína um íslenska ljóðlist miðalda í dag með Jóni Arasyni Hólabiskup. Jón orti um píslarsögu Krists en átti svo sjálfur eftir að upplifa að vera leiddur til aftöku. Undir lok þáttar kynnum við okkur síðan nýja plötu frá bandaríska tónlistarmanninum Jeff Parker og IVets hans sem nefnist Happy Today.
-
Umbreyting, Dugguvogur 42 og Lisa O'Neill 25.06.2026 53minUmbreyting eða Layover er sýning í Biðstofu Nýlistarsafnsins sem verður opnuð gestum og gangandi nú klukkan sex í Marshall húsi. Umbreyting er í senn sýning, sem og opin vinnustofa þar sem þau Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur vinna hörðum höndum að því að skrásetja gjörninga í gjörningaarkíf Nýlistarsafnsins en sýningin rekur einnig slóð hugmynda og listamanna sem hafa ferðast lengi eða komið stuttlega við á Íslandi og valdið óróa, hlátri eða hneykslun. Við gerum okkur ferð í Nýlistarsafnið. Við hugum einnig að örlögum Dugguvogs 42 en til stendur að rífa bygginguna til að koma fyrir tímabundinni hjáleið fyrir umferð á meðan framkvæmdir við Sæbrautarstokk standa yfir. Á byggingunni eru hins vegar verðmæt steypt lágmyndarverk listamannsins Gerðar Helgadóttur frá árunum 1971 til 1972. Við veltum fyrir okkur örlögum hússins og verðmætum verkanna í þættinum. Að lokum rifjum við upp innslag um breiðskífu írsku tónlistarkonunnar Lisu O'Neill, All of This is Chance.
-
Brenninetla, Villistrákar og Henry Threadgill 23.06.2026 51minVið mælum okkur mót við meðlimi tríósins Brenninetlu; hljómsveit sem leikur djass og frjálsan spuna, en sækir líka áhrif í ýmsar aðrar áttir. Brenninetla lenti í örðu sæti í Músíktilraunum nú í vor og vinnur nú hörðum höndum að gerð sinnar fyrstu breiðskífu. En þeir félagar munu koma fram á tónleikum í Jazz Sunday Reykjavík tónleikaröðinni í Iðnó nú á sunnudag. Við ræðum við tríóið í þættinum. Gauti Kristmannsson bókmenntarýnir fjallar um þýðingu á bókinni Villistrákum eftir bandaríska rithöfundinn Williams S. Burroughs en hún segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur. Og að gefnu tilefni rifjum við upp umfjöllun um tónlistarmanninn Henry Threadgill og heyrum af óþægilegum samskiptum hans við Sikileysku mafíuna.
-
Fuglamál, skáldskaparlist á Grænlandi og G. Weller 22.06.2026 52minMarta María Jónsdóttir, rithöfundur og myndlistamaður, sendi frá sér skáldsögu nú á dögunum sem nefnist Fuglamál. Bókin er fjölskyldusaga sem segir frá ungu pari sem eignast nokkuð óvenjulegt barn, Ídu, sem talar tungum, fer í undarleg flogaköst og á sér ímyndaðan vin, fuglinn Pótó. Við ræðum við Mörtu Maríu um Fuglamál í þætti dagsins. Haukur Þorgeirsson rannsóknarprófessor fjallar um horfnu systurþjóð okkar Grænland og þá sérstaklega skáldskaparlistina sem þar var stunduð fyrr á öldum. Í lok þáttar rifjum við upp erindi frá árinu 2024 um huldutónlistarmanninn G. Weller.
-
Hverafugl, Arnhildur Pálmadóttir og Stomp, clap, hey 18.06.2026 50minHverafugl kallast ný hátíð sem sett verður í Hveragerði í næstu viku. Þar hafa listrænir stjórnendur, þau Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir stefnt saman tónlistarfólki úr ólíkum kimum tónlistarsenunnar. Hátíðin hefur verið lengi í undirbúningi með heimafólki og hluti efnisskránnar er tónlist tengd svæðinu en tónleikar munu einnig spretta upp á óvæntum stöðum um bæinn. Við ræðum við Ingibjörgu Ýr í þættinum. Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur þetta árið við hátíðlega athöfn í Höfða í gær, og mun það vera í fyrsta sinn sem arkitekt hlotnast sá heiður. Við höfum átt nokkur góð samtöl hér í þættinum við Arnhildi í gegnum tíðina, og við rifjum upp brot úr einu slíku. Stomp Clap Hey er hugtak yfir tónlistarfyrirbæri sem netverjar keppast nú um að skilgreina sem og að stimpla tiltekna listamenn með. Þetta á við um tónlist sem sækir í akústísk hljóðfæri, kassagítara, kontrabassa, bongótrommur, tambúrínur og þar fram eftir götunum og einkennast lög, sem tilheyra þessari tónlistarstefnu, gjarnan af stappi, klappi og samsöng þar sem orðið hey er kallað inn í tónlistina. Við tökum tónlistarfræðinginn Arnar Eggert Thoroddsen tali um þessa nýju en á sama tíma gömlu tónlistarstefnu.
-
Smáborg, háborg, Endurlit Hallsteins Sigurðssonar og listagyðjan 16.06.2026 52minUm næstu helgi verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum; Smáborg, háborg –Reykjavík í mynd. Þetta er yfirlitssýning á verkum sem endurspegla Reykjavíkurborg frá sjónarhorni listamanna á því 240 ára tímabili sem hún hefur verið til sem kauptún. Við gerum okkur ferð á Kjarvalsstaði í þættinum og náum tali af sýningarstjórunum þeim Markúsi Þór Andréssyni, Sigurði Trausta Traustasyni og Sunnu Ástþórsdóttur. Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli dagsins um listagyðjuna, innblástur, andatrú og ævintýri. Við sögu koma myndlistarkonan Tracy Emin og rithöfundurinn Astrid Lindgren. Einnig kynnum við okkur sýningu á ævistarfi Hallsteins Sigurðssonar á vinnustofu hans í Ystaseli 37. Sýningin kallast Endurlit og þar gefur að líta ólík verk úr áli, járni og steinsteypu ásamt skissum, heimildum og áður óséðu efni sem varpa ljósi á hugmynda vinnu og efnisrannsóknir. Það er Myndhöggvarafélagið í samstarfi við minningarsjóð Hallsteins og Listahátíð í reykjavík sem standa að sýningunni og sýningarstjórar eru Sean Patrick O’Brien og Ólöf Bóadóttir. Við ræðum við Ólöfu í þættinum.
-
Kichin, Njáluhöfundur og Himna 15.06.2026 50minÍ Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í þætti dagsins gerum við okkur ferð í Norræan húsið og tökum sýningarstjórann Thomas Pausz tali um Himnu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkur frá skáldunum sem sömdu Íslendingasögurnar og endar á Njáls sögu. Var höfundurinn einhver frændi Snorra Sturlusonar - eða kannski frænka hans? Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur en upphafi miðaðist galleríið við eina óræða mublu sem þau fundu í Góða hirðinum. Mublan fékk heimili í vinnustofu þeirra í Listaháskólanum og með tímanum umbreyttist hún í sýningarrými. Í fyrra fór Kichin svo í samstarf við listahátíð í Reykjavík og úr urðu sex sýningar sem hófu göngu sína við upphaf listahátiðar og opna með viku millibili fram í júlí. Í þættinum lítum við inn í Kling og Bang og fáum að heyra af verkefninu.
-
Við Djúpið, Óður til gleðinnar og fuglar í Flatey 11.06.2026 51minÍ þættinum sláum á þráðinn til Flateyjar og ræðum við, rithöfundinn og bókaútgefandann, Ragnar Helga Ólafsson sem siglir þar milli eyja, klifrar í klettum og vitjar fugla með fuglafræðingum. Við kynnum einnig til leiks nýjan myndlistarrýni. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir verður reglulega með okkur fram á sumarið og næsta vetur, og deilir með okkur upplifun sinni af sýningum sem okkur þykja einstaklega spennandi. Í dag heyrum við af sýningu sem sett var upp í Nýlistasafninu í tengslum við Listahátíð. Hún kallast Óður til gleðinnar og að baki henni stendur úkraínski listahópurinn Open Group. Við hugum einnig að Tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Hátíðin hefst í næstu viku á Ísafirði og að vanda verður flutt fjölbreytt klassísk tónlist úr ólíkum áttum. Greipur Gíslason er stjórnandi hátíðarinnar í ár og Sæunn Þorsteinsdóttir er listrænn stjórnandi. Við ræðum við Greip um hátíðinaí þættinum.
-
Aldrei las ég Laxness / Úngfrúin góða og Húsið 10.06.2026 53minÍ Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga mánaðarins er Úngfrúin góða og Húsið en hún er stutt verk sem Halldór skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlægur persónunum, samtöl og senur eru fáar og lesandi þarf sífellt að vera að púsla atburðunum saman í gegnum óbeinar upplýsingar héðan og þaðan svo erfitt er að ákveða hverju maður trúir og hverju ekki. Samlesari klúbbsins að þessu sinni er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. En síðasta haust birti hún grein í Morgunblaðinu með titilinn „Laxness hverfur úr skólum landsins“ og olli hún nokkru fjaðrafoki í samfélaginu og átti sinn þátt í að kveikja á þessum bókaklúbbi. Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður Heimsljós; dagsetning verður nánar auglýst síðar. Grafík; Silvía Sif Ólafsdóttir
-
Ísland í fjarska, Köngurváfa og Ingeborg Bachmann 09.06.2026 52minÍ Víðsjá dagsins höldum við á Listasafn Íslands og heimsækjum þar listfræðing og forverði til að forvitnast um málverkasafn danska 18. aldar greifans Otto Thott. Meðal þeirra gersema sem hann lét eftir sig voru yfir 30 olíumálverk af íslensku landslagi eftir óþekktan höfund sem hafði greinilega aldrei komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í verkunum. Listasafn Íslands fékk þessi verk að gjöf árið 1928 en eru þau nú sýnd saman í fyrsta sinn í Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Sýningin kallast Ísland í fjarska, við heyrum meira um hana í þættinum. Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, fjallar um ljóðabók sem kom kom út á vordögum, Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Einnig hugum við að austuríska ljóðskáldinu Ingeborg Bachmann. En í ár 2026 eru hundrað ár liðin frá fæðingardegi hennar og af því tilefni birtast þýðingar á tíu ljóðum hennar í nýjasta hefti Skírnis. Kristján B. Jónasson, bókmenntafræðingur, þýðir og ritar stuttan kafla um ævi Bachmanns. Hann heimsækir okkur í hljóðstofu og segir frá þessu mikla skáldi.
-
Samfélag í bleyti til Feneyja, Sinfóárið framundan, Haukur Þorgeirs pistill #11 08.06.2026 56minSinfóníuhljómsveit Íslands sendi frá sér dagskrárbækling fyrir næsta tónleikaár og verður þar ýmsu til tjaldað. Nýr Aðalhljómsveitarstjóri, Barbara Hannigan, tekur við. Nýr staðarlistamaður og staðartónskáld taka til starfa og margar stórstjörnur sígildrar tónlistar koma að utan. Guðni Tómasson, framkvæmdarstjóri sveitarinnar, heimsækir okkur og segir frá tónleikaárinu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor fræðir okkur um sagnakvæðið Gullkársljóð en þar segir frá konungsdótturinni Æsu sem verður ástfangin af álfi í skarlatsklæðum. En við byrjum á arkitektúr. Í síðustu viku var tilkynnt hverjir fara fyrir Íslands hönd á tvíæringinn í arkitektúr í Feneyjum, en verkefni Basalt arkitekta, Samfélag í bleyti, hefur verið valið framlag Íslands. Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, kemur í heimsókn og segir frá því sem koma skal.
-
James Merry, Rót/rýni og Maístjarnan 04.06.2026 52minVið lítum við á sýningu James Merry, sem opnaði um liðna helgi í Listasafni Íslands og hefur yfirskriftina Ummyndlingar. Þar eru til sýnis grímur sem James hefur búið til á 15 ára tímabili, að stórum hluta í samstarfi við Björk Guðmundsdóttur, en sýning hennar, Echolalia er sýnd í safninu samhliða. Við heyrum líka umfjöllun Trausta Ólafssonar um brúðuleiksýninguna Rót, sem sýnd er í Tjarnarbíói í tilefni af Listahátíð í Reykjavík, og rifjum upp umfjöllun og lestur úr vinningsbók Maístjörnunnar, Mara kemur í heimsókn, eftir Natöshu S.
-
Fischersund / Svipmynd 03.06.2026 48min„Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út. „Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þetta frelsi sem að þau veita okkur sem gerir þetta að verkum. Þau eru ofboðslega skapandi og án þess að vera beint að skapa listaverk, þá eru þau lausnamiðuð og gera hlutina sjálf.“ Fischer systur eru gestir Víðsjár í dag og við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur en líka allt milli himins og jarðar; æskuna í Mosfellssveti, landasala, húsanda, útiveru og skapandi leiki. Lyktina af náttúru Íslands, minningarnar sem hún kveikir og lífið sem hún hefur gefið fjölskyldunni í formi sköpunarverka en einnig samveru og nýrra minninga.
-
Samfélag heilagra, Franziscuskóli á Skriðuklaustri, Haukur Þorgeirs pistill #10 02.06.2026 50minÍ Víðsjá dagsins rennum við upp að herrasetrinu á menningar- og sögustaðnum Skriðuklaustri og hittum þar Oddnýju Eir Ævarsdóttur, nýjan forstöðumann Gunnarsstofnunar, sem tók við því starfi í janúar síðastliðnum. Meðal þess sem hún er með í farvatninu er glænýr skóli fyrir skrifandi fólk sem hún kallar Franziscuskóla. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkue frá Kálfi munki á 14. öld sem orti ekki bara helgikvæði heldur samdi líka barnaefni. Og við kynnum okkur nýútkomið bókverk úr smiðju Birtings, hóps rithöfunda í Ritlist við Háskóla Íslands og tveggja ritstjóra úr Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við sama skóla. Bókin Samfélag heilagra er sagnasveigur sem hverfist um rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin.
-
Í beinni á Listahátíð 01.06.2026 51minSameiginleg bein útsending Víðsjár og Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Viðmælendur í þættinum eru Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
-
Heyr himna og glænýir nýræktarstyrkhafar 28.05.2026 52minVið lítum í heimsókn í sögufrægt hús hér í borg, Englaborg við Klambratún, þar sem myndlistarmaðurinn Sigtryggur Bjarni Baldvinsson býr ásamt fjölskyldu sinni. Jón Engilberts og eiginkona hans Tove Engilberts byggðu húsið eftir heimkomu frá Kaupmannahöfn en örlögin höguðu því þannig að Sigtryggur og fjölskylda keyptu Englaborg af Engilberts-fjölskyldunni. Stór hluti hússins er vinnustofa og í dag opnar Sigtryggur Bjarni sýningu á vinnustofunni. Við fáum líka innlit frá glænýjum handhöfum nýræktarstyrkja frá Miðstöð íslenskra bókmennta, en tilkynnt var um styrkhafa þeirra í Gunnarshúsi kl 16 í dag.
-
Svipmynd af Skaftfelli á Seyðisfirði 27.05.2026 54minMenningarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði var stofnuð árið 1998 og er ein langlífasta sjálfstæða listamiðstöð á landinu. Skaftfell hefur frá upphafi staðið fyrir öflugu sýningahaldi með áherslu á samtímalist og þar hefur líka verið starfrækt veitingahús og gestavinnustofa, sem að öllum líkindum er sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Að baki stofnun Skaftfells stóð öflugur hópur einstaklinga úr ólíkum áttum sem lagði til ómælda vinnu og mikla ástríðu til þess að sjá Skaftfell verða að veruleika. Við ætlum í svipmynd dagsins að huga að þessari merkilegu listamiðstöð, menningarhjarta Austurlands. Rætt er við Tinnu Guðmundsdóttur, myndlistarkonu, fyrrum forstöðukonu og höfund nýrrar bókar um tilurðarsögu Skaftfells, en auk þess Þóru Guðmundsdóttur, arkitekt og frumkvöðul, Pétur Kristjánsson, þjóðfræðing, myndlistarmann og fyrrum forstöðumann Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði, Unu Björgu Magnúsdóttur, myndlistarkonu, Þóri Höskuldsson, myndlistarmann og Önnu Margréti Ólafsdóttur, verkefnastjóra í Skaftfelli.
-
Bókmenntir Venesúela, viðgerð á brothættri skál, Haukur Þorgeirs pistill #9 26.05.2026 52min„Það sem bókmenntin hefur er að draga fólk saman. Við getum ekki elskað það sem við kunnum ekki. Þannig að það er minn heiður að geta gefið eitthvað út frá Venesúela, sem kannski kynnir fyrir Íslendingum hvernig við erum sem þjóð í Venesúela,“ segir Helen Cova rithöfundur og bókaútgefandi hjá Karíba útgáfunni, en hún var að gefa út fyrstu íslensku þýðinguna á skáldsögu frá Venesúela, Mamma mjöll og minningar hennar eftir Teresu da la Parra í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur. Þær verða báðar gestir okkar í dag en á morgun verða þær einnig með erindi í Veröld á viðburði um bókmenntir Venesúela og svo aftur um helgina á Bókmenntahátíð Flateyrar. Meira um hana og Mömmu Mjöll í þætti dagsins. Einnig er sviðslistakonan Steinunn Knúts Önnudóttur heimsótt og Haukur Þorgeirsson flytur pistil um rímur frá 15.öld um frúna Ólíf
Populaarne riigis
See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.