Bomban Podcast

Bomban Podcast

bombanpodcast
Riik Island
Žanrid Sport
Keel EN
Osad 41
Viimane 21.08.2026

Velkomin í Bomban Podcast þar sem við tökum fótboltann og íþróttirnar alveg í gegn. Hér er ekkert bull, engin sykurhúðun og engin feimni við að segja hlutina beint út. Við förum í klefann, á völlinn, í sögurnar sem aldrei komast í viðtölin og í umræðurnar sem allir eru að pæla í en enginn þorir að tala um. Ef þú lifir og hrærir í íþróttum, eða bara fílar alvöru passion… þá ertu kominn heim.

Osad

  • Bomban Podcast: Damir Muminovic - Chelsea, KA/Stjarnan, Grindavík og Blikar í einni sprengju 21.08.2026 51min
    Bomban og Damir Muminovic leikmaður Grindavíkur og stuðningsmaður Chelsea fóru yfir komandi tímabil hjá Chelsea væntingar og vonir. Einnig var farið yfir ráðiningu Eiðs Smára hjá KA, brottrekstur Jóns Þórs, gengi Grindavíkur í sumar og rýnt í fyrrum lið hans Breiðablik en þar gengur ekkert upp eins og sakir standa.   KHG Þjónustan, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, SEN & SON Arkitektar
  • Bomban Podcast: Gunnar (BOMBAN) Kristinsson Manchester United Stuðningsmaðurinn 20.08.2026 26min
    Bomban tók Manchester United umræðuna með smá ranti um hvað eru mörg Hlaðvörp á Íslandi og rantaði um hitt og þetta.    
  • Bomban Podcast: Litla Flugvélin - Tottenham Hotspurs Stuðningsmaðurinn 17.08.2026 29min
    Ingimar Helgi Finnsson er maður sem lifir og hrærist í Tottenham Hotspur. Ættaður frá Suðurlandinu, með rætur sem móta hann, og með ástríðu sem brennur óslökkvandi fyrir sínu liði. Hann er stuðningsmaður sem horfir á hvert einasta smáatriði, fylgist með öllum leikjum og er alltaf bjartsýnn sama hvernig stormarnir blása í norður Lundúnum. Í þessum þætti fer Ingimar yfir komandi tímabil, styrkleika og veikleika liðsins, hvað þarf til að Tottenham nái loksins að brjóta múrinn og af hverju hann sjálfur er svona heltekinn af klúbbnum. Hann talar af krafti, húmor og heiðarleika og ástríðan smitar út frá sér. KHG Þjónustan, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, SEN & SON Arkitektar   Fullur þáttur hér fyrir neðan:
  • Bomban Podcast: Siggi "SÖR" Jónsson - Newcastle United Stuðningsmaðurinn 16.08.2026 37min
    Sigurjón Jónsson eða Siggi Sör er lifandi goðsögn í íslenska Newcastle samfélaginu. Hann er maðurinn sem þekkir allt um klúbbinn, lifir með honum og andar með honum. Í þessum þætti sest hann niður og fer yfir komandi tímabil, styrkleika liðsins, veikleika og hvað þarf til að gera Newcastle að alvöru toppliði. KHG Þjónustan, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, SEN & SON Arkitektar   Fullur þáttur hér fyrir neðan:
  • Bomban Podcast: Gaui Gunner -Arsenal Stuðningsmaðurinn 14.08.2026 45min
    Bomban fékk  veikasta Arsenal stuðningsmann á ÍSLANDI Guðjón Óskarsson í KHG.IS stúdíóið. Guðjón Gunner lifir fyrir Arsenal. Hann byrjaði að horfa með afa sínum og í dag er þetta eina sem hann hugsar um. Í þessum þætti er rifist, hlegið og farið yfir allt sem skiptir máli fyrir komandi tímabil. Þetta er hrátt, heiðarlegt og ótrúlega skemmtilegt, eitthvað sem þú vilt ekki missa af! Í lokin velur svo Guðjón sitt Arsenal DREAM TEAM !    KHG Þjónustan, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, SEN & SON Arkitektar    
  • Bomban Podcast: Gummi Dalglish - Liverpool Stuðningsmaðurinn 12.08.2026 20min
    Í þessum þætti af Bomban Podcast ræðum við við einn sannkallaðan Liverpool stuðningsmann Guðmund Hjört Jónsson. Hann deilir persónulegri sögu sinni, hvernig ástríðan kviknaði, stærstu hápunktunum, sárustu augnablikunum og hvað það raunverulega þýðir að lifa og hrærast í rauðu. Við förum yfir taktík, leikmenn, væntingar til tímabilsins og hvernig það er að fylgja liðinu í gegnum allt,  gleði, stress, vonbrigði og ógleymanlegar minningar. Þetta er hreinskilin og skemmtileg umræða sem sýnir Liverpool hjartað í sinni tærustu mynd.
  • Bomban Podcast: KA í Rauðu, Blikar í Rústi & Ívar Power Rankar Nýju Félagaskiptin 10.08.2026 1t 18min
    Í þessum Bombuþætti er allt á suðupunkti: KA á rauða svæðinu, Blikar í algjöru rústi, og íslenski boltinn logar af spurningum um hvað sé eiginlega að gerast hjá þessum tveimur risum. Við förum yfir fallbaráttuna, baslið, ákvarðanirnar sem hafa klikkað og hvort hugurinn sé jafnvel annars staðar. Svo tekur Ívar við sviðinu og hendir í power‑ranking á nýjustu og mest spennandi félagaskiptum í enska boltanum. Hverjir eru að fara á réttan stað? Hverjir gætu sprungið út? Og hvaða move er algjört steal? Einnig farið yfir sænska boltann. KHG Þjónustan - Bifreiðaverkstæði Grafarvogs - Senson Arkitektar
  • Bomban Podcast: Villi Rúnars umboðsmaður : Frá lífsreynslu til samninga 30.07.2026 2t
    Vilhjálmur Rúnarsson umboðsmaður kom til Bombunnar í KHG.IS Studios í Mosó. Í þessum þætti sest Bomban niður með Villa Rúnars, einum umtalaðasta umboðsmanni landsins. Við förum í gegnum lífsreynslu, mistök, stóru samningana, smáu sögurnar og allt sem gerist á bak við tjöldin í bransanum. Villi talar opinskátt um hvernig hann byrjaði, hvað mótaði hann sem manneskju og hvernig hann lærði að stýra bæði sínum eigin lífi og ferli annarra. Þátturinn er blanda af persónulegum sögum, bransatali, skemmtilegum atvikum og Bomban‑húmor sem heldur tempóinu uppi. Hlustendur fá að heyra hvernig samningar verða til, hvað gerist þegar allt fer á hliðina, og hvernig lífið í umboðsmennsku er í raun og veru ekki bara það sem sést á samfélagsmiðlum.
  • Bomban Podcast: Afturelding í bikarúrslit og EL Normale is back! Gula Spjaldið jarðsett 25.07.2026 50min
    Bomban og EL Normale. Gula Spjaldið jarðsett - Afturelding í bikarúrslit og rætt um stuðningsmenn - Besta Deildin - EL Normale með hreina íslensku á Val og Brazell/Owen brothers - Heimsmeistaramótið - Íþróttirnar á Álftanesi Körfuboltinn og Fótboltinn.  
  • Bomban Podcast: Lögreglurannsókn, Forföll og leiðinlegir Englendingar 12.07.2026 1t 7min
    Big Balls BÚI og Bomban. Það sem var rætt um:  Heimsmeistaramótið, Besta deildin og spáð í leikina, Lengjudeildin, 2 deildin og sektin sem Hvíti Riddarinn á von á, Lögreglurannsókn á málningarmálinu, Argentína og tólfti maðurinn og Spurningar úr Sal.  
  • Bomban Podcast: Argentínumenn sluppu fyrir horn, Messi er hann mannlegur eða geimvera? 07.07.2026 1t 36min
    Ívar hinn Austfirski og Bomban. Það sem PIRRAR Bombuna þessa dagana - Besta deildin - Lengjudeildin og síðan ræddum við nýjustu úrslit í leik Eygypta og Argentínumanna og er MESSI mannlegur er hann geimvera? Þetta er ráðgáta!
  • Bomban Podcast: Stóra Bond málið og Valur í fullri trúðasýningu. 30.06.2026 1t 45min
    Schjetne hinn norski, Búi Big Balls og Bomban. Power Rank Búa BB - Stóra BOND málið - Mjólkurbikarinn - Besta Deildin og Valur Hemma málið - Lengjudeildin - Lauslega farið yfir 2,3,4,5 deild - Schetjne slúðrið - Búi hraunar yfir hornið - Heimsmeistaramótið - Spurningar úr SAL.
  • Bomban Podcast: Völlarar Remontada, HM Gleði og Nico Djuric Týndur 18.06.2026 1t 29min
    Bomban og Ívar hinn Austfirski! gestir á línunni: Frankarinn (Ásgeir Frank), Litla Flugvélin (Ingimar Helgi), AI (Albert Ingason) og Siggi Sör (Sigurjón Jónsson). Topp 5 bestu leikmenn í sögu Austfjarða, Slúður og fréttir, Mosó HORNIÐ, Besta deildin, Lengjudeildin (Völsungur og Nico Djuric) , Heimsmeistaramótið uppgjör fyrstu umferðar!, 
  • Bomban Podcast: Séð og heyrt Mosó! og spáð í HM 07.06.2026 56min
    Bomban, Daníel Búi og Ísak Schjetne Daníel Búi og Bubba ferðin Power Rank topp 5 Mosó skyndibiti og leikmenn 360 gráður á það sem er að gerast í Mosó samfélaginu! Spáum hverjir vinna riðlana á HM og annað sem tengist heimsmeistaramótinu!
  • Bomban Podcast: Uppgjörið á enska boltanum 2026 – Verðlaunin og lið ársins 28.05.2026 59min
    Bomban, Ási Bliki nr.1 og Maxo 09 Við strákarnir fórum yfir enska og veittum eftirfarandi verðlaun: Leikmaður tímabilsins  Besta kaup tímabilsins  Versta kaup tímabilsins  Stjóri tímabilsins  Uppgötvun tímabilsins  Besti ungi leikmaðurinn  Mark tímabilsins   Hvað var þetta?“ verðlaunin Óvæntasti leikmaðurinn Hann er ennþá í deildinni?“ verðlaunin Besti „ÓÞOLANDI“ leikmaðurinn Drama tímabilsins  Taktísk nýjung ársins  Besti varnarveggurinn  Besti miðjumaðurinn  Besti „super-sub“ Val gestsins Óvinsæl skoðun tímabilsins Ég hafði rangt fyrir mér“ verðlaunin Moment sem breytti öllu  LIÐ ÁRSINS
  • Bomban Podcast: Arsenal spilaði eins og Stoke og eru meistarar! 20.05.2026 1t 28min
    Bomban og Ívar Sören Vilhjálmsson Á línunni Theodór Ingi Óskarsson, Heimir Þór Árnason og Ásgeir Frank sérstakur sérfræðingur Bomban Podcast sagði sína skoðun á Arsenal sem vert er að hlusta á. Besta Deildin, Lengjudeildin, sænski boltinn og landsliðiðsvalið hjá Svíþjóð, Arsenal og enski boltinn.! Takk fyrir að Hlusta.!
  • Bomban Podcast: Schjetne Hjarta Mosó! X-M í ruglinu og var þetta brot á Raya? 11.05.2026 1t
    Bomban og Ísak Orri Leifsson Schjetne Power Rank á Mosfellingum - 5 deild, 4 deild, 3 deild, 2 deild, Lengjudeildin, Besta deildin, enski boltinn, Bæjarpólitík í Mosfellsbæ og Miðflokks fíaskóið rætt og kláruðum þetta svo á Blind Ranking á leikmönnum!
  • Bomban Podcast: Hvað er að gerast í Mosó! Kristján Atli hitti Benedikt Waren í Krónunni. 03.05.2026 47min
    Bomban og Kristján Atli. Fórum yfir 2.deildina, Lengjudeildina og hluta úr Bestu Deildinni, Kristján Atli hitti Benedikt Waren í Krónunni. Upptakan fór til helvítis og ég nenni ekki að taka upp aftur.  
  • Bomban Podcast: Lengjudeildarspáin 2026 20.04.2026 1t 52min
    Bomban, Niko Djuric og Búi Vilhjálmur Guðmundsson. Lengjudeilarspáin 2026  Aðrar gestir: Viggó Kristjánsson, Eyjólfur Héðinsson, Albert Ingason, Pálmi Rafn Pálmason, Ásgeir Frank Ásgeirsson, Valur Gunnarsson, Guðfinnur Þórir Ómarsson, Daði Berg Jónsson, Eyjólfur Örn Eyjólfsson, Sigurður Freyr Þórðarson, Arnór Gauti Ragnarsson, Eiður Gauti Sæbjörnsson og Valtýr Már Michaelson,
  • Bomban Podcast: Tískuslys í Víkinni! Hver er Pabbinn á Hlíðarenda og er Tottenham að falla? 13.04.2026 1t 9min
    Bomban, Nico Djuric og EL Normale Fórum yfir 1.umferðina í Bestu Deildinni, enski boltinn og svo voru spurningar úr sal. Einnig sendi AI Albert Ingason einkaskilaboð á Bombuna eftir hann setti út á bláa Björgunarvestið hjá Landhelgisgæslunni. 

Populaarne riigis

See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.