Flekaskil
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
0
Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri ræða flekaskil í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur. Þau fjalla um hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands í öryggis- og varnarmálum, samskiptum við bandalagsríki, Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.
Jaksot
-
Flekaskil - 14. þáttur 14.07.2026 1t 5minHeimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda. Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð breyttrar stöðu og mikilvægi þess að uppfæra mat á ógnum gagnvart fullveldi Íslands í víðu samhengi. Hann bendir á þann súrrealíska veruleika "að danski forsætisráðherrann þurfi að lýsa því yfir að Danir séu tilbúnir að verja konungsríkið reyni Bandaríkin - sem hafa hingað til verið helsti bandamaður þeirra - að hernema Grænland." Þetta og fjölmargt fleira er á dagskrá í þessum fjórtánda þætti.
-
Flekaskil - 13. þáttur 08.07.2026 54minVið förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast.Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn virðist mega búast við efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum ef marka má orð forsetans. Vægi alþjóðalaga er áfram umræðuefni en nú eru heilagar reglur fótboltans brotnar líka.Brothætt staða Íran og Bandaríkjanna versnar á nýjan leik og samantekt á fjölþáttaógnum og árásum Rússa varpar óhugnanlegu ljósi á stöðuna.Frétt í New Yorker: https://www.newyorker.com/magazine/2026/06/22/inside-the-ludicrous-deadly-serious-plan-to-take-over-greenland?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEeSlK-xp04wPxTRBCT2CXtbEbCVOei3GuaMJGPf3FmU-6djSDi5w2f5NFDsqA_aem_QeGzuROKcxamuDGwz4DvHQFrétt um Rússland: https://www.iiss.org/research-paper/2026/06/russias-uav-campaign-over-europe/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEe92XIQiWZdNoVNVTyLp6bWBX-olvzJ5I4P9oAJ9DhdVuuVzMfac-5ASwMmM8_aem_zLwOT7YhJ69uCjOFN8WCaA
-
Flekaskil - 12. þáttur 29.06.2026 1t 11minNATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti Bandaríkjanna. Rifjum upp yfirlýsingar um NATO og einstök aðildarland. Greinum stöðuna í Íran, samkomulagið um vopnahlé og áhrif átakanna á heiminn, hagkerfið, Íran og ekki síður Bandaríkin.
-
Flekaskil - 11. þáttur 22.06.2026 58minÍ ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og hernaðartengdum málum þar sem spjótin stóðu á Dönum og Grænlandi, - og Íslandi. Það að setja á svið atburðarrás vekur fjölda spurning um hvað dugir í alþjóðasamskiptum og bandalögum þegar til kastanna kemur. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
-
Flekaskil - 10. þáttur 15.06.2026 52minAfleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og glænýr íslensk skýrsla um hættuna af drónum. Höfum við verið sofandi?Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn
-
Flekaskil - 9. þáttur 08.06.2026 1t 4minOpið bréf Zelenskís til Pútin.Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt.Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
-
Flekaskil - 8. þáttur 01.06.2026 56minTuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila.Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn HjartarsonTónlist: Halldór Eldjárn
-
Flekaskil - 7. þáttur 25.05.2026 44minÞað hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en Evrópu og fleira og fleira.
-
Flekaskil - 6. þáttur 18.05.2026 54minDagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræða um stöðu Úkraínu.
-
Flekaskil - 5. þáttur 11.05.2026 49minVarnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og klofningi í samfélaginu og hvernig stendur hann í dag, nú þegar allir flokkar á Alþingi styðja hann og aðildina að NATO? Með samningnum hófst nýr kafli í sögu Íslands þar sem alþjóðamál, stórveldapólitík og íslensk fullveldisumræða fléttuðust saman á áður óþekktan hátt. Áhrif varnarsamningsins hafa verið pólitísk, efnahagsleg og samfélagsleg. Hann hefur kallað fram sterkar skoðanir um sjálfstæði Íslands, hervæðingu og stöðu landsins í alþjóðakerfinu. Hvaða áhrif hafa breytt Bandaríki á stöðu hans og okkar?
-
Flekaskil - 4. þáttur 04.05.2026 48minLeiðir Íran-stríðið til heimskreppu?Innrás Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hefur alls ekki farið eins og Bandaríkjaforseti hafði væntingar til. Trump hefur brugðist hart við gagnrýni evrópskra bandamanna á stríðið og hefur lýst því yfir að 5.000 hermenn verði fluttir frá Þýskalandi. Gengið hefur á vopnabúr og hátækni loftvarnir bæði Bandaríkjamanna og samstarfsríkja þeirra við botn Miðjarðarhafs. Fjallað er um stöðuna í stríðinu og afleiðingar þess frá mörgum hliðum í þessum fjórða þætti Flekaskila.Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trump og Evrópu.
-
Flekaskil - 3. þáttur 27.04.2026 41minFlekaskil innan NATO. Spenna milli Bandaríkjanna og Evrópu og staða Íslands.Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.
-
Flekaskil - 2. þáttur 20.04.2026 55minÚkraínu-stríðið og nýafstaðnar kosningar í Ungverjalandi.Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.Mynd, hljóð og eftirvinnsla: Þórarinn HjartarsonTónlist: Halldór Eldjárn
-
Flekaskil - 1. þáttur 13.04.2026 53minFlekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.
Suosittu maassa
Tämä podcast esiintyy myös näiden maiden podcast-listoilla.