Krakkaheimskviður

Krakkaheimskviður

RÚV Hlaðvörp
Maa Islanti
Kieli IS
Jaksot 76
Viimeisin 12.09.2026

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.

Jaksot

  • Nýr kóngur í Noregi 12.09.2026 15min
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas norsku konungsfjölskylduna. Haraldur fimmti Noregskonungur lést í lok ágúst og á miðvikudaginn í síðustu viku var hann jarðaður. Hver var hann og hver er það sem tekur við? Allt um það í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sumarfréttir, ráðuneytiskötturinn Larry og hvað er framundan í haust? 05.09.2026 12min
    Í þessum fyrsta Krakkaheimskviðuþætti sumarsins fara Karitas og Birta yfir helstu fréttir sumarsins, kynnast forsætisráðuneytiskettinum Larry og skoða hvaða fréttamál eru framundan í haust. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Ránið á Louvre 29.08.2026 16min
    Í næstu viku hefst ný þáttaröð af Krakkaheimskviðum. Í dag ætla ég þess vegna að rifja upp uppáhaldsfréttina mína frá síðasta vetri, um ránið á Louvre. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Evrópusambandið 22.08.2026 15min
    Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu núna í lok ágúst um það hvort við viljum skoða inngöngu í Evrópusambandið. Það er því ekki úr vegi að rifja upp umfjöllun frá því í vor um ESB, eftir sögulegar kosningar í Ungverjalandi. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Saga símans 15.08.2026 15min
    Vissuð þið að í dag, 16. ágúst, eru nákvæmlega 32 ár frá því að fyrsti snjallsíminn var kynntur  til sögunnar? Í mars voru svo 150 ár frá allra fyrsta símtalinu, við rifjum upp þáttinn um sögu símans í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Sólmyrkvi 08.08.2026 15min
    Á miðvikudaginn verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á stórum hluta Íslands. Stjörnu-Sævar sagði okkur allt um hann í júní. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Aðför gegn transfólki 01.08.2026 13min
    Næstu helgi er Reykjavík Pride, Gleðigangan sjálf. Af því tilefni er gott að kynna sér aftur bakslagið sem hefur orðið í réttindum hinsegin fólks, umfjöllun frá því í maí 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Eftirnöfn í Færeyjum 25.07.2026 15min
    Í næstu viku - nánar tiltekið 28. og 29. júlí,  er þjóðhátíð Færeyinga og því er tilvalið að heyra aftur umfjöllun um eftirnafnahefð Færeyinga frá því í mars 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Umhverfisáhrif gervigreindar 18.07.2026 14min
    Í lok mánaðar, 28. júlí, er alþjóðadagur náttúruverndar. Af því tilefni rifjum við upp hver umhverfisáhrif gervigreindar eru í þætti frá því í febrúar 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Pöndur 11.07.2026 15min
    Hvers vegna eru pöndur mikilvægar í samskiptum milli landa og hvað er eiginlega dýradiplómasía? Við rifjum upp það sem við lærðum um þessa ofurkrúttlegu sendiherra í vetur í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: AirBNB-bann 04.07.2026 15min
    Sumarið er tími ferðamanna en mörg hafa skoðanir á því hvar og hvernig þeir dvelja á fjölförnum stöðum. Við rifjum upp umfjöllun um AirBNB-bann í Barcelona í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Samfélagsmiðlabann í Ástralíu 27.06.2026 15min
    Breska þingið tilkynnti það fyrr í mánuðinum að það íhugaði samfélagsmiðlabann fyrir börn undir 16 ára aldri. Lög af sama tagi tóku gildi í Ástralíu í desember, við rifjum upp þáttinn um þau í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • SUMAR: Saga Kóreu og K-Pop 20.06.2026 15min
    20. júní, var liðið heilt ár frá því að Netflix-myndin K-Pop Demon Hunters kom út. Af því tilefni ætlum við að rifja upp sögu Kóreu og K-Pop frá því í haust. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar 13.06.2026 15min
    Í þessum síðasta þætti Krakkaheimskviða fyrir sumarfrí fræðist Karitas um almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi í ágúst. Stjörnu-Sævar er gestur þáttarins og segir okkur allt um sólmyrkva. Hvers vegna þarf maður sérstök sólmyrkvagleraugu og hvernig tengist norræn goðafræði sólmyrkvum? Allt um það í þætti dagsins! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Stærsta HM í fótbolta sögunnar 06.06.2026 14min
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða ræðir Karitas við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur um HM karla í fótbolta, breytingar sem gerðar hafa verið á mótinu, nýliðana og spennandi leiki framundan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Breytingar í Hollywood 30.05.2026 13min
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru breytingar í Hollywood í brennidepli. Hvað er samruni og samkeppni? Allt um yfirvofandi kaup Paramount á Warner Bros. í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Feneyjatvíæringurinn 23.05.2026 12min
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við á Ítalíu þar sem Feneyjartvíæringurinn fer fram um þessar mundir. Dagskrárgerðarmaðurinn Kristján Guðjónsson veit allt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 17. maí og þjóðhátíðardagar um víða veröld 16.05.2026 14min
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða heldur Karitas upp á þjóðhátíðardag Noregs sem er í dag. Við skoðum líka aðra þjóðhátíðardaga, hvers vegna þeir eru þegar þeir eru og um hvað þeir snúast. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Eurovision og Attenborough 09.05.2026 15min
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í heimi sjónvarpsins. Gísli Marteinn Baldursson er gestur þáttarins og ræðir við Karitas um Eurovision sem hefst á þriðjudaginn. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við fjölmiðlamanninum David Attenborough sem varð 100 ára á föstudaginn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Hvað er Evrópusambandið? 02.05.2026 15min
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við Evrópusambandið, ESB. Það hefur verið mikið til umræðu, bæði í fyrri þáttum Krakkaheimskviða og meðal Íslendinga. Hvers vegna? Og hvað gerir þetta samband eiginlega? Fréttamaðurinn Þorgils Jónsson er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Suosittu maassa

Tämä podcast esiintyy myös näiden maiden podcast-listoilla.