Rokkland

Rokkland

RÚV
Maa Islanti
Genret Musiikki
Kieli IS
Jaksot 105
Viimeisin 11.10.2026

Rokkland er músík-magasín í útvarpi sem fjallar um tónlist líðandi stundar, segir sögur af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallar við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson.

Jaksot

  • Stríð og friður 11.10.2026 1t 50min
    Það er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður er rauði þráðurinn í þessum þætti í dag. Séra Hildur Eir segir nokkur orð - Við minnumst leiðtogafundarins í Höfða 1986 Tölum um kjarnorkuvopn Ræðum við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í Viðey Yoko Ono talar ujm friðarsúluna og Ísland Jón Gnarr talar um Yoko Ono og frðarsúluna Vanessa O´Mara segir frá Power to the people festival í Maryland USA Tölum um Tom Morello sem stóð fyrir hátíðinni um síðustu helgi Sigurgeir Sigmundsson segir frá nýja laginu sínu sem hann kallar Kaos Og við heyrum hvað Hildur borgarstjóri sagði í Viðey við tendrum friðarsulunnar á föstudaginn. Þessi tónlist var leikin í þættinum: John Lennon / Imagine Strax / Moscow Moscow Sting / Russians Radiohead / 4 minute warning Yoko Ono / Walking on thin ice Yoko Ono Plastic Ono Band / Take me to the land of hell John Lennon / Love Plastic Ono Band í Háskólabíó / Give peace a chance John & Yoko / Happy Xmas war is over Plastic Ono Band / Power to the people Jack Sabbath / War pigs Foo Fighters / My hero Dave Matthews / Mercy mercy me Tom Morello / Power to the people Tom Morello / Soldier in the army of love Tom Morello / They can´t kill us all Sigurgeir Sigmundsson / Kaos Neil Young / Rockin in the freeworld
  • Á Móti Sól í 30 ár 04.10.2026 1t 50min
    Hljómsveitin Á Móti Sól á 30 ára afmæli um þessar mundir og tekur yfir Rokkland vikunnar. Hljómsveitin var upphaflega stofnuð af vinunum bassaleikaranum Þóri og hljóðborðsleikaranum Heimi og tilgangurinn var að spila á böllum. Á Móti Sól hefur gefið út talsvert af sínum eigin lögum og spilað um allt land í 30 ár. Þeir komu í Rokkland í std. 12 í Útvarpshúsið - sögðu sögur og spiluðu vel valin lög.
  • U2 50 27.09.2026 1t 50min
    U2 er 50 ára – föstudaginn 25. september voru liðin 50 ár – HÁLF ÖLD síðan Larry Mullen 14 ára og nokkrir aðrir strákar – 15 og 16 ára í Mount Temple Comprehensive School í norður-Dublin hittust í eldhúsinu heima hjá Larry og U2 varð til. Öllum þessum árum síðar eru sömu fjórir strákarnir í þessari hljómsveit. U2 er langlífasta hljómsveit heims með sömu liðsskipan. Það eitt er virðingavert. Það Þarf sérstaka og einstaka karaktera til að halda út svona „hjónaband“ með þremur öðrum í hálfa öld. Á föstudaginn sagði U2 að það væri ný plata (16. Hljóðversplatan) að koma í nóvember – Carnaval de luz (Karnival ljóssins) og nýtt lag (Silencio) frumflutt – bæði á streymiveitum – í írska Ríkisútvarpinu RTÉ og á tvennum óvæntum og fríum tónleikum heima í Dublin. U2 mætti nefnilega í gamla skólann sinn og spilaði þar - á nákvæmlega sama stað og þeir spiluðu síðast 1978 – í þetta skiptið fyrir 1000 manns – krakkana í skólanum og kennara. Síðar um daginn spiluðu þeir á svölum veitingahúss við Crafton street í miðborg Dublin fyrir þúsundir sem söfnuðust saman. Rokkland vikunnar er helgað U2.
  • Hörður Torfason 20.09.2026 1t 49min
    Tónlistarmaðurinn - leikarinn og leikstjórinn Hörður Torfason er gestur Rokklands vikunnar. Hann mætti í std. 12 í vikunni sem leið - við spjölluðum saman og hann spilaði nokkur lög. Við ræðum í þættinum um ástina - gamlar kærustur - búsáhaldabyltinguna - stofnun samtakanna 78 - foreldra og margt fleira. Hörður sem er fæddur árið 1945 hefur ekki mikið verið að halda tónleika undanfarið en brást vel við þegar við báðum hann um að koma og spila fyrir okkur - og spjalla.
  • Rokkland mælir með / Deus kemur / Oasis í bíó 13.09.2026 1t 49min
    Rokkland mælir með: september 2026 Belgíska hljómsveitin Deus kemur til landsins og spilar í Austurbæ - rifjum upp viðtal við Tom Barman úr DEUS frá 2006 þegar sveitin kom síðast til Íslands. Oasis - tölum um myndina Don´t look back in anger sem er verið að sýna í bíó um allan heim þessa dagana - líka á Íslandi.
  • Magnús Jóhann 06.09.2026 1t 48min
    Magnús Jóhann lenti í þriðja sæti í Músíktilraunum fyrir áratug og síðan hefur hann gert ansi margt. Hann er búinn að spila inn á ótal plötur með hinum og þessum – stjórna upptökum á plötum hjá Flóna og Bubba Morthens - spila oftar en 30 sinnum í Gísla Marteini með allskonar fólki – gefa út margar plötur – þar af tvær með GDRN – spila með Stuðmönnum og Moses Hightower - gera tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og nú eru framundan stórónleikar í Háskólabíó á afmælisdaginn þegar hann verður 30 ára. Magnús Jóhann er gestur Rokklands í dag. Tónlist frá útsendingarlogg 2026-09-07 SCRITTI POLITTI - The word girl.
  • Liverpool 04.08.2026 1t 47min
    Rokkland með Hljómum og The Beatles í Liverpool.
  • Download 2010 19.07.2026 1t 44min
    Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 20. Júní 2010 og hann stendur undir nafni í dag vegna þess að í dag er Rokklandið tileinkað Rokk-hátíð með stóru R-i – nefnilega Download þungarokkshátíðinni 2010. Þar komu fram margar af stærstu rokksveitum sögunnar - AC/DC – Rage Against The Machine - Motörhead, Megadeth og Aerosmith - Lamb Of God  - Stone Temple Pilots - Stone Sour - Bullet For My Valentine - Saxon, Slash og Billy Idol t.d. Rokkland var á Download.
  • Sálin hans Jóns míns 05.07.2026 1t 42min
    Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 14. desember 2008 og gestir þáttarins eru þeir Stebbiog Gummi úr Sálinni hans Jóns Míns. Þegar þátturinn var frumfluttur var Sálin að fagna 20 ára starfsafmæli og af þvi tilefni gaf útgáfufyrirtæki þeirra -  Sena frá sér þrjár afurðir sem allar bera heitið “Hvar er draumurinn”. Sálin kom fram í fyrsta skipti í mörg ár á 60 ára afmælistónleikum Stebba í Eldborg í Hörpu um síðustu helgi.
  • Queens of the Stone Age 28.06.2026 1t 51min
  • David Byrne 21.06.2026 1t 53min
  • Bergmál Kaleo 14.06.2026 1t 51min
  • Bubbi og við 07.06.2026 1t 50min
    Bubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag. Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg – hann er alltaf þarna- eins og Esjan. Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum – alveg eins og hann hefur skoðun á öllu. Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær: "Tónlistina þarf ekkert að ræða. Hún er fyrir löngu handan þess að vera góð eða slæm – við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumarsólin, óaðskiljanlegur hluti af tilverunni hér". Rokkland vikunnar er þannig að samferðafólk Bubba – gamlir samstarfsfélagar og nýjir, og vinir eins og Guðmundur Pétursson, Jakob Smári Magnússon, Jón Óskar, Elín Hall, Ragga Gröndal, Ólafur Egill og Esther Talía, Þorleifur Guðjónsson, Stefán Jón Hafstein, Sigrún Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Inga Sólveig, Silja Aðalsteinsdóttir og Halla Tómasdóttir forseti íslands segja okkur frá sínum Bubba – Bubbi og ég - Bubbi og við.
  • Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP 31.05.2026 1t 51min
    Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit. Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og Dóraog Döðlurnar. Rokkland heimsótti Miðstöðina í vikunni. Saxófónleikarinn Sonny Rollins lést í vikunni sem leið og Sigurður Flosason segir okkur aðeins frá Sonny Rollins sem var einn af þeim allra bestu og mikilvægustu – við höfum öll heyra hann spila án þess kannski að hafa pælt í því. En byrjum á Ívari Klausen (Ívar Andri Klausen) sem var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu um daginn. Ívar er að austan – tók þátt í Músíktilraunum á sínum tíma með hljómsveitinni Dopamine Machine, er að spila með hinum og þessum og er búinn að vera bassaleikari í MÚR árum saman.
  • Bob Dylan í 85 ár - Hver er þessi maður eiginlega? 24.05.2026 1t 50min
    Bob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík. Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil. Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta – og líka um ástina. Síðan þá hefur margt gerst og Dylan hefur verið meira og minna á tónleikaferðalagi í næstum 40 ár – hann er t.d. að spila í allt suma í Bandaríkjunum. Plöturnar eru margar eins og raddirnar og karekterarnir sem hann hefur sýnt okkur gegnum tíðina. Hver er hann eiginlega þessi maður? Guðmundur Andri Thorsson er Dylan maður og hann er gestur Rokklands á morgun. Guðmundur þýddi sjálfsævisöguna Chronicles sem kom út fyrir nokkrum árum og þar er í bókarlok viðauki frá Guðmundi Andra – lagalisti sem hann setti saman. Við skoðum hann í Rokklandi og förum hingað og þangað.
  • G! 2025 17.05.2026 1t 54min
  • Baldvin Hlynsson - Bjössi Basti og The Hangmen - Angine de Poitrine og Iron Maiden 10.05.2026 1t 52min
    Í Rokklandi vikunnar kynnumst við rokkhljómsveitinni The Hangmen frá Los Angeles sem spilar á tónleikum í Tjarnarbíó næsta föstudagskvöld ásamt Dr. Gunna (Hljómsveitin Dr. Gunni – hOFFMAN og Bleiku Böstunum. Bjössi Basti (Bjorn Helgi Baldvinsson sem t.d. stofnaði X-ið á sínum tíma og er söngvari Bleiku Bastanna stendur að tónleikunum og segir okkur frá The Hangmen. Við skoðum aðeins kanadísku hljómsveitina Angine De Poitrine sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir skemmtilegt stærfræði-jazz-proggrokk – feluleik og áhugaverða búninga. Svo er það Baldvin Hlynsson sem er hljómsveitarstjóri í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu – upptökustjóri – lagasmiður og hljómborðsleikari í 70 ára afmælisbandi Bubba Morthens þar sem Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir er hljómsveitarstjóri. Við kynnumst Baldvin en það er margt í gangi hjá honum alla daga. Svo kemur Iron Maiden aðeins við sögu en splunkunýrri heimildarmynd um Iron Maiden sem var frumsýnd síðasta föstudag.
  • Björgvin Halldórsson kvaddur 03.05.2026 1t 53min
    Rokkland dagsins er dálítið sérstakt vegna þess að þar verður útvarpað styttri útgáfu af útför Björgvin Halldórssonar sem var mikil tónlistarveisla eins og við var að búast. Björgvin (Bo Halldorson var lagður til hinstu hvílu á þriðjudaginn síðasta og mörg hundruð manns fylgdu honum síðustu metrana í Hallgrímskirkju. SÝN sá um beina útsendingu frá útförinni á Visi og við á Rás 2 fengum leyfi hjá Sýn og fjölskyldu Björgvins til að útvarpa hluta af útöförinni í Rokklandi í dag. Þau sem sungu í útförinni voru landslið og vinir Börgvins: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Páll Rósinkranz, mugison, Daníel Ágúst, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius– Fóstbræður og svo börnin hans 2 af þremur – Krummi Bjorgvinsson og Svala Björgvins. Andrea Ingvarsdottir söng með þeim. Óskar Einarsson spilaði á píanó og var tónlistarstjóri og Guðmundur Pétursson spilaði á gítar. Jakob Frímann talar og líka Ari Eldjárn. Prestur var Guðni Már Harðarsonsem stjórnaði öllu saman. Í lok þáttar eru svo brot frá nokkrum heimsóknum Björgvins í Rokkland gegnum tíðina ❤ 🎵
  • Jesse Welles og MÚR 26.04.2026 1t 50min
    Í Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð. Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg. Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana.
  • Akranes krú - Tíbrá - Gaddavír - Bubbi - Falinn Gjóður 19.04.2026 1t 52min
    Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi er jafn gömul U2 – var stofnuð árið 1976 og hefur verið starfandi með hléum síðan þá en var öflugust milli 1980 og 1990. Núna næsta laugardag ætlar Tíbrá að fagna 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi og Rokkland fór og hitti þá Eirík trommara og Flosa hljómborðsleikara á æfingu í vikunni! Rokkland spjallaði líka lítillega við sigursveit Músíktilrauna eftir sigurinn í Hörpu um daginn. Þetta eru þrír stákar í 10unda bekk sem kalla sig Galinn Gjóður og þeir hlusta aðallega segja þeir á Frank Zappa og Þursaflokkinn. Halldór Gunnars Pálsson segir okkur frá nýja laginu hans Bubba sem kom út í gær og heitir Við föllum – og Halldór er líka hljómsveutarstjóri Bubba á afmælistónleikunum sem verða í Laugardalshöll 6. Júní. Svo er það grjótmulningsvélin frá Akranesi – hljómsveitin Gaddavír sem sigraði í Wacken Metal Battle 2025 og tók þátt í Músíktilraunum fyrir áratug. Gaddavír fór út til þýskalands til að spila á Wacken Open Air – ásamt hljómsveitum frá 30 öðrum löndum í fyrra og var líka að senda frá sér plötuna Akranes krú. Brynjólfur Þór Guðmundsson Skagamaður og fréttamaður hér á RÚV er Wacken maður og hann ræddi við Gaddavír fyrir Rokkland.

Suosittu maassa

Tämä podcast esiintyy myös näiden maiden podcast-listoilla.