HR Hlaðvarpið
Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
0
HR-hlaðvarpið er vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík þar sem vísindafólk, kennarar og sérfræðingar fjalla um rannsóknir sínar og verkefni. Þátturinn miðlar þekkingu út fyrir veggi skólans og veitir innsýn í líf nemenda og starfsemi háskólans. Umsjón með hlaðvarpinu hefur samskiptasvið HR.
Jaksot
-
Íþróttarabb HR // 28. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Kristínu Guðmundsdóttur 16.09.2026 30minÍþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík veitti á dögunum viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum og sundi, þar sem sjónum var sérstaklega beint að yngsta stiginu og innleiðingu nýrra hæfniviðmiða. Kennarar úr Engjaskóla, Sjálandsskóla og Rimaskóla hlutu viðurkenninguna í ár. Í þætti dagsins fáum við til okkar Kristínu Guðmundsdóttur, íþróttakennara úr Engjaskóla, í einlægt og faglegt spjall. Kristín segir okkur frá starfinu í Engjaskóla og rýnir með okkur í umsögn dómnefnd... -
Verkfræðivarpið// 45. þáttur - Martin Drews 10.09.2026 42minHelgi Þór og Haukur Ingi ræddu við við Martin Drews, prófessor í loftslagsáhættustjórnun við Danska tækniháskólann (DTU), um hvernig samfélög og mikilvægir innviðir geta aðlagast loftslagsbreytingum og aukinni óvissu. Martin var gestur Sjálfbærniseturs HR (SIF) og Verkfræðingafélagsins á Degi sjálfbærni við HR þann 9. september. UM VERKFRÆÐIVARPIÐ Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fr... -
Sjálfbærni í HR: Hvernig mótum við framtíðina saman? 09.09.2026 1t 16minÍ þessum þætti af Hlaðvarpi Háskólans í Reykjavík köfum við dýpra í það hvernig HR nálgast sjálfbærni frá öllum hliðum – allt frá stefnumótun og stjórnun til náms, félagslífs, kennslu og velsældar. Sjálfbærni í HR er ekki bara orð á blaði heldur er hún höfð til grundvallar við ákvarðanatöku í kennslu, rannsóknum og rekstri. Markmiðið er að áhrif skólans séu augljós og hvetji samfélagið allt til að gera betur, með hliðsjón af UFS-viðmiðunum (umhverfi, félagslegum þáttum og stjórnarháttum). Stj... -
Verkfræðivarpið// 44. þáttur - David Finger 29.07.2026 37minÍ þessum þætti Verkfræðivarpsins ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur við David Christian Finger, dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. David er vísindamaður, kennari og ráðgjafi með doktorspróf í náttúruvísindum frá ETH Zürich í Sviss og hefur gegnt fjölmörgum alþjóðlegum trúnaðarstörfum, meðal annars sem varaforseti International Ecological Engineering Society. Rannsóknir hans hafa einkum beinst að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, vatnsauðlindum og vistkerfum fjalla... -
Verkfræðivarpið// 43. þáttur - Sveinbjörn Jónsson 29.06.2026 44minÍ þessum þætti Verkfræðivarpsins ræðum við við Sveinbjörn Jónsson, verkefnisstjóra hjá ÍAV, um nýju farþegamiðstöðina Vör við Skarfabakka í Reykjavík, sem afhent var Faxaflóahöfnum í mars 2026. Sveinbjörn er byggingarverkfræðingur með MSc-gráðu frá Háskóla Íslands og MPM-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hluti þáttarins var tekinn upp í mannvirkinu sjálfu, en í meginviðtalinu ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Sveinbjörn um verkefnið, áskoranir í framkvæmdinni, samstarf ólí... -
Íþróttarabb HR // 27. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Davíð Má Sigurðssyni 18.06.2026 41minGestur þáttarins að þessu sinni er Davíð Már Sigurðsson, íþrótta- og sundkennari í Rimaskóla. Hann, ásamt samstarfskonu sinni Sigrúnu Blomsterberg, hlaut viðurkenninguna fyrir einstaklega vel skipulagt verkefni í aukakennslu í sundi. Davíð segir okkur frá því hvernig þau styðja við nemendur sem glíma við vatnshræðslu eða óöryggi í vatni. Við ræðum meðal annars: Skref fyrir skref: Hvernig áfangamiðuð viðmið leiða nemendur áfram þar til þeir eru tilbúnir í almenna bekkjarkennslu.Skýrleika í fyr... -
Verkfræðivarpið// 42. þáttur - Atli Snær Ásmundsson 17.06.2026 41minSpunagreind býður upp á ótal möguleika og þar á meðal til kennslu og fræðslu. Í Verkfræðivarpinu er tekinn tali Atli Snær Ásmundsson doktorsnemi við Verkfræðideild HR. Atli Snær segir frá doktorsverkefninu sínu sem gæti valdið straumhvörfum þegar kemur að kennslu og stjórnendaþjálfun. Hugmyndin er að nýta gervigreind til að lesa í tilfinningar nemenda og aðlaga kennsluna að þörfum hvers og eins. Allir nemendur eru sérstakir og allir nemendur tileinka sér þekkingu með ólíkum hætti.... -
Verkfræðivarpið// 41. þáttur - Jónas Ketilsson 03.06.2026 42minGestur Verkfræðivarpsins að þessu sinni var Jónas Ketilsson, yfirverkefnisstjóri stækkunar ÞeistareykjastöðvarLandvirkjunar. Á síðustu þremur árum hefur hann gegnt lykilhlutverki í þróun nýrrar tækni, leitt umbreytingu fjölþættra leyfis- og umhverfisstjórnunarþátta, þróun og innleiðingu alþjóðlegra viðmiða auk samþættingar fjölmargra verkefna og hagsmunaaðila tengdri stækkun virkjunarinnar. Nýverið hlaut hann svonefnda A vottun IPMA, hæstu alþjóðlegu viðurkenningu IPMA fyrir forys... -
Íþróttarabb HR // 25. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Tryggva Jóhanni Heimissyni 02.06.2026 30minVorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025. Tryggvi Jóhann Heimisson fékk viðurkenningu fyrir sína umsókn vorið 2025 og hann er gestur þáttarins. Í viðtalinu fóru þ... -
Verkfræðivarpið// 40. þáttur - Florence Kennedy 29.04.2026 44minFlorence Kennedy er framkvæmdastjóri Negotiate Ltd. Hún er dóttir Gavin Kennedy sem var prófessor við Heriot-Watts háskólann í Edinborg og einn virtasti fræðimaður heims á sviði samingatækni. Florence tók við kefli föður síns og kennir, þjálfar og skrifar bækur um samingatækni. Hún hefur kennt í MPM-náminu frá upphafi þar sem fræðilegur bakgrunnur hennar auk víðtækrar alþjóðlegrar reynslu gerir vinnustofur hennar alveg einstakar. Í viðtalinu ræðir Haukur Ingi við Florence um samingatækn... -
Verkfræðivarpið// 39. þáttur - Gervigreind sem einkakennari? Hinrik Jósafat Atlason segir frá Atlas Primer 28.04.2026 42minHinrik Jósafat Atlason er stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer og hefur unnið að þróun gervigreindarlausna síðan árið 2005. Árið 2018 þróaði hann gervigreindareinkakennara sem hjálpar fólki að læra í gegnum talviðmót. Í dag leiðir hann alþjóðlega uppbyggingu Atlas Primer á þremur heimsálfum, en fyrirtækið hefur verið til umfjöllunar í Forbes og hlotið viðurkenningu frá TIME og Statista sem eitt af fremstu EdTech fyrirtækjum heims. UM VERKFRÆÐIVARPIÐ Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þei... -
Verkfræðivarpið// 38. þáttur - Guðmundur Pálsson tónlistarmaður og fjölmiðlamaður um verkefnastjórnun og MPM námið 14.04.2026 52minGuðmundur Pálsson er fjölmiðlamaður og tónlistarmaður með fjölbreyttan bakgrunn. Hann er BA í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands og starfaði meðal annars hjá Hafrannsóknarstofnun og Íslenskri erfðagreiningu áður en hann sneri sér að fjölmiðlum. Margir þekkja rödd hans eftir áralangan feril hjá RÚV, þar sem hann hefur komið að dagskrárgerð á Rás 1 og Rás 2 sem og í sjónvarpi. Guðmundur er jafnframt einn af stofnendum og lykilmaður í hinum landsþekkta fjöllistahópi Baggalúti, sem hefur sett m... -
Íþróttarabb HR// 26. þáttur - Afreksvæðing barna og unglinga í brennidepli 13.04.2026 1t 1minIn this episode, Daði Rafnsson from Reykjavík University discusses the professionalization of children’s and youth sports with internationally renowned experts. It was recorded in connection with the Reykjavik International Games in January 2026. Guests are Mark O’Sullivan, Martin Camiré and Siubhéan Crowne. Professionalization in youth sport refers to the increasing adoption of adult professional sport structures, practices, and expectations within youth and junior sport environments, ... -
Verkfræðivarpið // 37. þáttur: Vinningshafar nemendaverðlauna SIF 18.03.2026 28minRætt var við hóp verkfræðinemenda sem vann nemendaverðlaun SIF - Rannsóknaseturs í sjálfbærni haustið 2025. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni sem hópurinn vann í sjálfbærninámskeiði undir handleiðslu Dr. David Finger. Í námskeiðinu er nemendum gert að takast á við raunveruleg vandamál í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, með áherslu á sköpunargáfu, kerfishugsun og slagkraft. Verðlaunaverkenfið nefnist Kolefnisfótspor Krónunnar og hópurinn samanstendur af ... -
Verkfræðivarpið // 36. þáttur: Sveinn V. Ólafsson vélaverkfræðingur 27.01.2026 40minSveinn V. Ólafsson er vélaverkfræðingur með langa og fjölbreytta starfsreynslu. Hann starfar sem sjálfstæður ráðgjafi og fyrirlesari á sviði gæðastjórnunar. Hann lauk meistaraprófi (MSc) í flug- og kerfisverkfræði við Virginia Tech í Bandaríkjunum og hefur komið víða við á starfsferli sínum og m.a. unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir sem tengjast flugrekstri - þar sem mikil áhersla er lögð á notkun staðla og gæðastjórnun. Sveinn hefur einnig unnið að þróun ISO 9001 gæðastaðalsins fyrir Íslands... -
Verkfræðivarpið // 35. þáttur: Ásdís Sigurðardóttir gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni 20.01.2026 25minÁsdís Sigurðardóttir er gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni. Hún er vélaverkfræðingur með sérhæfingu í framleiðslu- og gæðastjórnun frá NTNU í Noregi. Ásdís hefur víðtæka starfsreynslu, meðal annars hefur hún starfað við mannvirkjagerð og við verkfræðiráðgjöf, bæði á Íslandi og í Noregi. Einnig hefur hún átt farsælan íþróttaferil sem handknattleikskona, hún var um tíma í íslenska landsliðinu og hefur leikið með félagsliðum bæði hérlendis og erlendis. Sú reynsla hefur mótað sýn hennar á mikilvæg... -
Íþróttarabb HR// 23. þáttur - Á toppinn með Kjartani Stefánssyni 19.01.2026 38minGestur þáttarins er Kjartan Stefánsson, margreyndur grunnskólakennari og knattspyrnuþjálfari með meiru. Kjartan hefur kennt skólaíþróttir við Árbæjarskóla við góðan orðstír og stundar meistaranám við íþróttafræðieild HR. Í þættinum ræðir Sveinn Þorgeirsson, umsjónarmaður meistaranáms til kennsluréttinda (MEd) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, við Kjartan um valfag í unglingadeild sem hann kom af stað fyrir þó nokkrum árum ásamt kollega sínum og kallaðist Á toppinn. Verkefnið ... -
Verkfræðivarpið // 34. þáttur: Um iðnaðarverkfræði og aðgerðarannsóknir á Íslandi - Rætt við Pál Jensson prófessor við HR. 16.01.2026 28minPáll Jensson prófessor er einn af mikilvægustu fræðimönnum hérlendum í hópi verkfræðinga. Hann byggði upp kennslu og rannsóknir í iðnaðarverkfræði á Íslandi með félaga sínum Pétri heitum Maack prófessor, en þeir voru lykilmenn í Verkfræðideild Háskóla Íslands. Páll kom til HR 2011 og hefur komið ótrúlega miklu í verk í starfi sínu sem fræðimaður og kennari og mjög margir þekkja Pál sem afburðagóðan kennara. Í spjallinu ræddi Helgi Þór við Pál um iðnaðarverkfræði og aðgerðarannsóknir á Í... -
Sálfræðispjallið//Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-seinni hluti 15.01.2026 41minÍ þessum þætti má hlýða á hlaðvörp nemenda við sálfræðideild sem unnin voru í réttarsálfræði. Í þættinum taka nemendur fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er seinni þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu. Vinsamlegast athugið að efni þáttarins er ekki við hæfi barna. Þáttur 2: Steinunn Eva Hauksdóttir og Ísabe... -
Sálfræðispjallið// Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði -fyrri hluti 15.01.2026 45minÍ þessum þætti má hlýða á hlaðvörp nemenda við sálfræðideild sem unnin voru í réttarsálfræði. Í þættinum taka nemendur fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er fyrri þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu. Vinsamlegast athugið að efni þáttarins er ekki við hæfi barna. Þáttur 1: Grímur Steinn Vilhjálmsson Magnú...
Suosittu maassa
Tämä podcast esiintyy myös näiden maiden podcast-listoilla.