Fjármálakastið

Fjármálakastið

Fjármálakastið
Maa Islanti
Genret Liiketoiminta
Kieli IS
Jaksot 107
Viimeisin 11.09.2026

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Jaksot

  • Þáttur 118 - Reynslumikill fjármálastjóri mætir í settið 11.09.2026 22min
    Gestur vikunnar í Fjármálakastinu er Ólafur Þór Jóhannesson fjármálastjóri ÞG verks og systurfélagsins Arcusar ehf, eignarhaldsfélags sem eru í fullri eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Ólafur er reynslumikill fjármálastjóri en hann hefur starfað sem fjármálastjóri, forstjóri, endurskoðandi, kennari við Háskólann í Reykjavík, stjórnarmaður og ráðgjafi í ýmsum atvinnugreinum.Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og hér að ofan.Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
  • Þáttur 117 - Umræður um frumútboð Anthropic, rafmyntamarkaði og efnahagsmálin 03.09.2026 38min
    Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt var um fyrirhugað frumútboð hjá gervigreindarfyrirtækinu Anthropic, það helsta sem er að eiga sér stað á rafmyntamörkuðum þessa dagana, horfurnar í efnahagslífinu og sitthvað fleira.-------------------Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
  • Þáttur 116 - Viðtal við Hönnu Kristínu um gervigreind í fyrirtækjarekstri 26.08.2026 29min
    Í þessum þætti er rætt við Hönnu Kristínu Skaftadóttur, doktor í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum og fagstjóra viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst. Hún er einnig hópstjóri gervigreindarhóps Reykjavík Fintech. Í þessum þætti er rætt um þau tækifæri sem felast í nýtingu gevigreindar í rekstri, hvar Ísland stendur á því sviði og einnig hópastarfið hjá Reykjavík Fintech.Umræddur þáttur er undir liðnum Sviðið en það er vettvangur þar sem samstarfsaðilar Fjármálakastsins fá aðgang að sviðsljósinu. ---------------------Samstarfsaðilar:Bella BooksReykjavik FintechAkademias
  • Þáttur 115 - Viðtal við Ernu Björgu Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka 21.08.2026 20min
    Gestur þáttarins er Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka. Farið var yfir efnahagshorfur og stýrivaxtahækkunina síðastliðinn miðvikudag.Samstarfsaðilar:Reykjavík FintechAkademias Bella Books
  • Þáttur 114 - Viðtal við Ragnar Árnason prófessor í hagfræði 11.08.2026 45min
    Í þessum þætti er rætt við Ragnar Árnason prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands. Rætt er um áhrif þess á sjávarútveginn ef Ísland myndi ganga í ESB, áhrif aukinnar skattlagningar stjórnvalda á sjávarútveginn, gang greinarinnar, ETS kerfið og fleira. ------------SamstarfsaðilarReykjavík FintechBella BooksAkademias
  • Þáttur 113 - Viðtal við Má Wolfgang Mixa prófessor við HÍ 06.08.2026 50min
    Í þessum þætti er rætt við Má Wolfgang Mixa prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um efnahagsmálin en stýrivaxtaákvörðun verður tilkynnt í lok mánaðar, einnig var rætt um hvort sameiningar á bankamarkaði séu mögulegar eftir að Samkeppniseftirlitið gaf út sína afstöðu til málsins og margt fleira.-----------SamstarfsaðilarAkademiasReykjavík Fintech
  • Þáttur 112 - Rætt um horfur í ferðaþjónustunni við framkvæmdastjóra SAF 20.07.2026 49min
    Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðu og horfur í greininni. Rætt er um fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda á greinina, boðaða neytendamarkaðssetningu, hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst blasir við greininni og margt fleira.-------------Þátturinn er í samstarfi við Reykjavík Fintech.
  • Þáttur 111 - Spjall við Val Þór, meðstofnanda Taktikal 17.07.2026 41min
    Í þessum þætti er rætt við Val Þór Gunnarsson meðstofnanda tæknifyrirtækisins Taktikal. Rætt er um vöxt og rekstur fyrirtækisins, nýsköpunargeirann, þá hröðu tækniþróun sem er að eiga sér stað um þessar mundir og hvaða áhrif hún mun hafa á rekstur fyrirtækja og margt fleira.----------Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.
  • Þáttur 110 - Viðtal við Hermann Guðmundsson forstjóra Kemi 09.07.2026 27min
    Í þessum þætti er rætt um rekstur og vöxt fyrirtækisins Kemi sem Hermann Guðmundsson hefur stýrt um langt skeið. Rætt er um nýleg kaup Kemi á Fálkanum-Ísmar, vaxtartækifærin í geiranum á næstunni, nálgun Hermanns á rekstur og stjórnun fyrirtækja, efnahagsástandið og margt fleira.Vek athygli á fréttabréfi Fjármálakastsins en lesa má eldri bréf á fjarmalakastid.substack.com.Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.
  • Þáttur 109 - Viðtal: Fjártækni á Íslandi í sókn 02.07.2026 42min
    Í þessum þætti er rætt við Gunnlaug Jónsson stofnanda og stjórnarformann Reykjavík Fintech. Rætt er um vöxtinn sem hefur átt sér stað í fjártæknigeiranum, einkum að undanförnu, starfsemi Fjártækniklasans, tækifærin í fjártækni og á sviði gervigreindar og margt fleira.Ég vil einnig vekja athygli á nýju fréttabréfi Fjármálakastsins. Hægt er að lesa bréfin og gerast áskrifandi á fjarmalakastid.substack.com.Fjármálakastið er í samstarfi við Reykjavik Fintech. Beiðnir um auglýsingar, styrki eða annars konar samstarf má senda á [email protected].
  • Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd 19.06.2026 42min
    Í þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, vöxt hins opinbera og efnahagsmálin.
  • Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion 11.06.2026 39min
    Í þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira.
  • Þáttur 106 - Efnahagsspjall við Agnar Tómas Möller 21.05.2026 30min
    Í þessum þætti er rætt um ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 25 punkta. Einnig er rætt um efnahagsmálin, Opinber fjármál, sjávarútveginn og skuldabréfamarkaðinn.
  • Þáttur 105 - Viðtal við Hreiðar Má Hermannsson, forstjóra Eikar 08.05.2026 34min
    Í þessum þætti er rætt við Hreiðar Má Hermannsson forstjóra fasteignafélagsins Eikar. Rætt er um stöðu og horfur í rekstri Eikar, atvinnuhúsnæðismarkaðinn, horfur í efnahagsmálum og fleira.
  • Þáttur 104 - Efnahagsspjall með Unu Jónsdóttur hjá Landsbankanum 21.04.2026 25min
    Í þessum þætti er rætt um nýja Hagspá Landsbankans og efnahagsmálin. Rætt er við Unu Jónsdóttur aðalhagfræðing Landsbankans.
  • Þáttur 103 - Spjall um tækni og hugverkaiðnaðinn 17.04.2026 27min
    Í þessum þætti er rætt við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rætt er um nýja atvinnustefnu stjórnvalda, framþróun á sviði gervigreindar og vöxt hugverkaiðnaðarins en Samtök iðnaðarins gáfu út skýrslu um það málefni á dögunum.----------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
  • Þáttur 102 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson 26.03.2026 32min
    Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson sem starfaði lengi vel sem forstjóri Ölgerðarinnar sem nú heitir Bera. Rætt er um þær breytingar sem eru í farvatninu hjá fyrirtækinu, vaxtartækifærin hjá fyrirtækinu, nýtt hlutverk Andra Þórs innan fyrirtækisins, efnahagshorfur og ýmislegt fleira.----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
  • Þáttur 100 - Praktísk ráð í rekstri frá Sólveigu í Strata Advisory 20.02.2026 27min
    Í þessum þætti er rætt við Sólveigu Gunnarsdóttur fjármálaráðgjafa og eiganda Strata Advisory. Rætt er um rekstur fyrirtækja, námskeiðið Praktík í rekstri sem ráðgjafarfyrirtækið stendur fyrir, efnahagsástandið, hvernig skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru að hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri og margt fleira.--------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
  • Þáttur 99 - Efnahagsspjall við Þórð Pálsson 09.02.2026 40min
    Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt var um vaxtaákvörðunina í síðustu viku, stöðuna á vinnumarkaði, ríkisfjármálin, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á efnahagslífið, fjártækni og samruna á bankamarkaði.-----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
  • Þáttur 98 - Viðtal við Daða Kristjánsson hjá Visku sjóðum 03.02.2026 32min
    Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt er um tækifærin á sviði gervigreindar um þessar mundir bæði fyrir fyrirtæki og starfsmenn, vaxtaákvörðun Seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun og fleira.-----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Suosittu maassa

Tämä podcast esiintyy myös näiden maiden podcast-listoilla.