Seinni níu

Seinni níu

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Zemlja Island
Žanrovi Sport, Golf
Jezik IS
Epizode 115
Najnovija 13.07.2026

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson.

Epizode

  • #120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt 13.07.2026 1h 11min
    Hörður Magnússon kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er einn harðasti aðdáandi Phil Mickelson á landinu, en Bandaríkjamaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við fórum vel yfir stöðuna og fengum kraftröðun yfir bestu sigra Mickelson á ferlinum.Höddi Magg byrjaði að spila golf um þrítugt og spilar lítið um þessar mundir. Raunar svo lítið að hann gaf syni sínum golfsettið sitt fyrir ekki svo löngu. Hann er því minna á vellinum en fylgist þeim mun ástríðufyllra með íþróttinni í sjónvarpinu.Bryson DeChambeau fékk einnig smá pláss í þættinum, en Höddi er ekki sérlega hrifinn af þeim kylfingi. Við hituðum líka upp fyrir Opna breska og fórum yfir ýmislegt fleira.Draumahollið er á sínum stað og að sjálfsögðu ræðum við líka örlítið um fótbolta.Frábær þáttur að venju!
  • #119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver 06.07.2026 1h 3min
    Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni.Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ólöglegur. Keli er félagi í Golfklúbbi Grindavíkur og hann leikur mikið golf á Suðurnesjum.Það kom á daginn að Keli er mikilli aðdáandi okkar í Seinni níu og við fengum hann til að kraftraða sínum uppáhaldsþáttum af Seinni níu sem reyndist mjög áhugaverður listi. Sömuleiðis fengum við tvö draumaholl.Frábær þáttur þar sem komið er víða við og auðvitað á léttu nótunum.
  • #118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube 29.06.2026 1h 6min
    Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir.Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á Álftanesi og við ræðum aðeins um golfvöllinn á Álftanesi og einnig Opna álftneska mótið sem Fannar stendur árlega að.Fannar er ekki í golfklúbbi. Þess í stað spilar hann aðallega með vinum sínum sem starfa í bönkum eða ráðgjafafyrirtækjum og eiga greitt aðgengi að helstu golfvöllum landsins. Hann er með 20 í forgjöf og hefur verið fastur í þeirri forgjöf undanfarin ár - ekki hjálpaði þegar hann fékk brjósklos í hálsinn fyrir tveimur árum.Í þættinum er auðvitað komið víða við. Við fáum draumaholl og skemmtilega kraftröðun þar sem Youtube golfkennarar koma við sögu.Frábær þáttur á skemmtilegum nótum.
  • #117 - Gunnu Dís er farið að dreyma um golf á nóttunni 23.06.2026 1h 12min
    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu, því útvarps- og sjónvarpsstjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir tók sig til og ræddi við okkur um golf. Hún byrjaði af krafti í golfíþróttinni fyrir örfáum árum og er hreinlega farin að dreyma um golf á nóttunni.Gunna Dís er með 37 í forgjöf, er meðlimur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og leikur talsvert golf yfir sumartímann. Það er margt við golfíþróttina sem hefur komið henni á óvart og fer hún yfir það í skemmtilegri kraftröðun. Sömuleiðis kemur hún með mjög skemmtilegt draumaholl.Við komum víða við í þættinum. Meðal annars kemur í ljós að Gunna hélt vitlaust á kylfunni allt síðasta sumar. Hún notar einnig 7-tré mikið í kringum flatirnar með frekar sérstökum hætti.Frábær þáttur þar sem við förum yfir Opna bandaríska meistaramótið og þátttöku Gunnlaugs Árna í mótinu.
  • #116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið 15.06.2026 1h 3min
    Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari.Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helgi en hann er að fara sem áhorfandi á Opna bandaríska meistaramótið þar sem félagi hans úr GKG, Gunnlaugur Árni Sveinsson, mun fyrstur Íslendinga taka þátt í mótinu.Opna bandaríska fær gott pláss í þættinum en við förum um víðan völl í spjalli okkar við Aron. Hann segir okkur aðeins frá því hvernig hann byrjaði í golfi. Við tökum stöðuna á ferli Arons sem atvinnumaður og svo segir Aron okkur frá því hvernig honum tókst að leika nokkuð stutta par3 braut á 8 höggum en standa samt uppi sem sigurvegari.Mjög áhugaverður og skemmtilegur þáttur með einum besta kylfingi Íslands.
  • #115 - Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum 07.06.2026 1h 5min
    Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Það var svo sannarlega glatt á hjalla.Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær yfirleitt betur þegar hann fær að heyra það frá meðspilurum sínum. Við fáum stórskemmtilega kraftröðun hjá Fannari og draumahollið er á sínum stað. Við komum víða við í þættinum og ræðum meðal annars aðkomu Fannars að Körfboltakvöldi sem lyfti umfjöllun á íslenskum körfuknattleik til mikilla muna.Í þættinum greinir Fannar líka frá sex vikna sjúkralegu sinni eftir að hafa fengið sýkingu í annan fótlegg eftir slys í hesthúsi.Frábær þáttur á sérstaklega léttum nótum.
  • #114 - Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvell 05.06.2026 1h 6min
    Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet.Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði enda var hún öflug í handbolta sem átti betur við hana á unglingsárum. Baddý fékk hins var golfdelluna á nýjan leik fyrir sex árum og er í dag með um 16 í forgjöf.Baddý segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á 18. holu Öndverðarnesvallar en svo kom í ljós að öll fjölskylda hennar hefur tekist að fara holu í höggi á þeim velli. Það er í raun alveg magnað.Við fáum líka að heyra hvernig golfið er í Þýskalandi en fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni við Frankfurt. Frábær þáttur sem kemur á óvart!
  • #113 - Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð 25.05.2026 1h 2min
    Við fengum til okkar athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri alltfrá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto.Sindri hóf að leika golf fyrir sex árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf.Í þættinum er aðeins farið yfir ferð Sindra ásamt góðum mönnum til Írlands þar sem leiknir voru margir af bestu völlunum á Dublin svæðinu. Sindri kom með frábært draumaholl og fór einnig yfir þá kylfinga sem honum þykir vera svalastir í atvinnumannagolfinu.Einnig ræðum við aðeins íslenska golffatamerkið Brutta en þar er Sindri stór hluthafi.Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf.
  • #112 - Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach 19.05.2026 1h 10min
    Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár.Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en einnig sagði hann okkur frá ótrúlegum golfvelli í Skotlandi sem toppar allt.Við fórum einnig aðeins yfir þær metnaðarfullu breytingar sem eru að eiga sér stað í Grafarholti og munu bæta völlinn til muna. Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við kraftröðun yfir fimm bestu golfbækurnar sem Óli hefur lesið.Svo fengum við að heyra frábæra sögu þar sem saklaus lygasaga fór aðeins úr böndunum í Myrtle Beach.Frábær þáttur á léttum nótum að venju!
  • #111 - Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag 11.05.2026 1h 23min
    Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni Hannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli.Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotlandi í þeim fræðum.Í þættinum fer Bjarni yfir þessi fólknu fræði sem grasvallaumhirða er í raun. Hann segir okkur frá því hvað fer mest í taugarnar á golfvallarstarfsmönnum þegar kemur að framgöngu kylfinga á golfvellinum. Bjarni valdi einnig stórmerkilegt draumaholl þar sem nokkrir af helstu frumkvöðlum golfsins koma við sögu.Einn lengsti þátturinn í sögu Seinni níu en á fræðilegum og léttum nótum.
  • #110 - Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum 04.05.2026 1h
    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína.Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í flest sín samtöl.Þó hún hjálpi meðal annars afrekskylfingum við að auka liðleika þá skilur hún ekki hversu langan tíma það tekur að verða góð í golfi.Í þættinum velur Lilja sitt draumaholl og kemur með kraftröðun yfir þau fimm atriði sem fara mest í taugarnar á henni.Frábær þáttur og mjög fróðlegur. Lilja fer meðal annars yfir þær teygjur sem kylfingar ættu stunda til að bæta liðleika og leysa úr læðingi aukinn kraft úr golfsveiflunni.Frábær þáttur og á léttum nótum að venju!
  • #109 - Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni 27.04.2026 1h 7min
    Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar.Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og það frelsi sem fylgir því að komast nær alltaf í golf.Hrafnhildur segir okkur frá uppáhalds golfholunum sínum í Eyjum, hún kemur með skemmtilegt draumaholl og einnig mjög áhugaverða kraftröðun yfir þau golfsvæði sem hún væri til í að heimsækja í golfferðum á næstu árum.Stórskemmtilegur þáttur!
  • #108 - Jón Halldórsson vill langa golfhringi 19.04.2026 1h 2min
    Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar.Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og því verkefni sem er framundan þar. Við ræddum þó aðallega um golf og þar kom í ljós Jón er með um 18 í forgjöf og byrjaði í golfi eftir veðmál við kunnan handboltaþjálfara.Við fórum að sjálfsögðu yfir draumahollið sem var mjög óvænt að þessu sinni. Jón kom einnig með kraftröðun á þeim landsliðsmönnum í handbolta sem hann telur líklegt að séu bestir í golfi í landsliðshópi karla.Frábær þáttur á mjög léttum nótum að venju.
  • #107 - Sigmundur gerði jafntefli við Rory árið 2005 13.04.2026 1h 13min
    Við gerðum upp Masters með frábærum gesti því Sigmundur Einar Másson kom í heimsókn til okkar. Hann er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og mikill tölfræðigrúskari.Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters annað árið í röð og Sigmundur sagði okkur frá því þegar hann mætti honum í Evrópumóti landsliða árið 2005. Keppni þeirra á milli endaði með jafntefli og við fórum aðeins yfir það afrek.Simmi er mikill tölfræðipælari og því var þátturinn á frekar tæknilegum nótum að þessu sinni. Hann kom með stórskemmtilega kraftröðun yfir erfiðstu par-3 holur landsins miðað við tölfræði PGA-leikmanna.Draumahollið á sínum stað og ýmislegt stórskemmtilegt!
  • #106 - Golf er kvíðalyfið hjá Rikka G 08.04.2026 1h 29min
    Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Útvarpsmaðurinn og íþróttalýsandinn Ríkharð Óskar Guðnason var gestur þáttarins sem var að hluta helgaður Masters. Rikki er ljómandi góður kylfingur með rétt tæpa fimm í forgjöf og byrjaði ungur að spila golf í Öndverðarnesi. Rikki átti að verða múrari og sagði okkur skemmtilega frá því hvernig hann endaði sem útvarpsmaður.Við spáðum í spilin fyrir Masters, Rikki kom með eitt draumaholl og annað alls ekki draumaholl, spurningar frá hlustendum og svo fengum við frábæra kraftröðun þar sem Rikki valdi topplista yfir hrun kylfinga á Masters.Frábær þáttur þar sem víða er komið við. Rikki fór yfir golfið sitt á mjög einlægum nótum.
  • #105 - Seinni níu x Steve Dagskrá 29.03.2026 1h 24min
    Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, sem skipa tvíeykið í hlaðvarpinu Steve dagskrá, komu í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þeir hafa haldið úti sínu vinsæla hlaðvarpi frá árinu 2018 og hafa verið að færa sig upp á skaftið á golfvöllum landsins að undanförnu.Í þættinum er komið víða við enda er þetta lengsti þáttur af Seinni níu frá upphafi. Við hitum aðeins upp fyrir Masters, draumahollið á sínum stað og svo velja þeir félagar fimm bestu golfholur Hafnarfjarðar enda miklir Hafnfirðingar.Villi gerir upp átakanlega frammistöðu sína í ferð til Portúgal sem að Brutta sýndi á Youtube. Andri segir frá fjögurra daga fögnuði eftir að hafa farið holu í höggi á Hvaleyrinni.Frábær þáttur í alla staði og léttleikinn í fyrirrúmi.
  • #104 - Kristín Elfa er golfsjúkasta kona landsins 23.03.2026 1h 7min
    Við fengum golfsjúkustu konu landsins, að eigin sögn, í heimsókn í Seinni níu. Kristín Elfa Axelsdóttir, kylfingur í GKG, hóf að leika golf fyrir fimm árum og nú snýst líf hennar að stórum hluta um að komast í golf.Hún starfar hjá Festi, þar sem ríkir mikil golfmenning sem varð til þess að hún prófaði golf. Það var ekki aftur snúið og á síðasta ári lék Kristín yfir 100 átján holu golfhringi.Kristín er með um 24 í forgjöf og stefnir hún að því að komast undir 20 á árinu. Kristín sagði okkur frá þeirri merkilegu staðreynd að hún notar 8-járnið í löng pútt, sem hefur vakið mikla undrun meðal meðspilara hennar.Draumahollið er á sínum stað og svo kom Kristín með Powerrank, þar sem hún fer yfir þá hluti sem fara í taugarnar á henni á golfvellinum.Frábær þáttur sem kemur svo sannarlega á óvart!
  • #103 - Broddi er hnitmiðaður kylfingur 16.03.2026 1h 1min
    Við fengum heimsmeistara og ólympíufara í Seinni níu því badmintonmeistarinn Broddi Kristjánsson kom í heimsókn til okkar. Hann keppti á Ólympíuleikunum árið 1992 og var nánast ósigrandi í íþróttinni hér á landi á sínum tíma.Núna á golfið hug hans allan og leikur hann bæði í Nesklúbbnum og á Flúðum. Við ræðum um ferilinn bæði í badminton og hvað var það sem dró hann yfir í golfíþróttina. Broddi segir okkur skemmtilega sögu af því hvernig hann eignaðist fyrsta golfsettið.Boddi velur draumahollið og kom svo með frábært powerrank þar sem hann valdi fimm bestu pallanna við golfskála landsins.Stórskemmtilegur þáttur sem er auðvitað á léttu nótunum.
  • #102 - Golfneistinn hvarf hjá Ólöfu Maríu á hátindi ferilsins 10.03.2026 55min
    Við fengum fjórfaldan Íslandsmeistara í heimsókn til okkar í Seinni níu. Ólöf María Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í golfi, kom í heimsókn til okkar og við fórum yfir ferilinn hennar.Ólöf María var brautryðjandi í íslensku golfi en hún var fyrst til þess að vinna sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna árið 2005. Hún spilaði í nokkur ár meðal þeirra bestu í Evrópu áður en hún ákvað að leggja golfkylfurnar á hilluna og spilar sáralítið golf í dag þar sem hún býr í Texas í Bandaríkjunum.Ólöf fer í þættinum yfir það hvernig hún missti hreinlega áhugann eða neistann fyrir golfíþróttinni þegar hún var á hátindi ferilsins. Mjög áhugaverð frásögn í meira lagi.Við rekjum sögu Ólafar og fáum hana til að tala um afrek sín í íþróttinni, slæman golfþjálfara á háskólaárunum, að vera eina stelpan að æfa með strákum á unglingsárum og margt fleira.Við fáum að heyra draumahollið hjá Ólöfu og einnig það helsta sem hún lærði á frábærum ferli.
  • #101 - Oddur var óvænt með 1,9 í forgjöf 03.03.2026 1h 16min
    Við fengum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Oddur Þórðarson, fréttamaður á RÚV, kom í heimsókn til okkar og það kom okkur skemmtilega á óvart hversu hversu öflugur hann er í golfi. Oddur er með 7 í forgjöf og er að eigin sögn góður í að redda sér í kringum flatirnar. Hann byrjaði ungur í golfi og ólst upp á Korpúlfsstaðavelli. Um tíma vann Oddur einnig á Korpunni sem golfvallastarfsmaður og hefur verið meðlimur í GR lengi.Í þættinum er komið víða við en það stóð upp úr þegar Oddur valdi fimm bestu og fimm verstu merki golfklúbba landsins. Þar kom ýmislegt forvitnilegt í ljós og svigrúm til bætinga hjá mörgum golfklúbbum landsins.Frábær þáttur að venju og á sérstaklega léttum nótum.

Popularan u

Ovaj podcast pojavljuje se i na podcast ljestvicama ovih zemalja.