Spegillinn

Spegillinn

RÚV
Zemlja Island
Žanrovi Vijesti
Jezik IS
Epizode 795
Najnovija 15.10.2026

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Epizode

  • Að vera eða vera ekki þingmaður Viðreisnar & átök í verkalýðshreyfingunni 15.10.2026 20min
    Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í dag og bar við ólíkum áherslum og ágreiningi um forgangsmál. Hann segist þó ætla að vera áfram í Viðreisn og styðja hvorutveggja flokkinn og ríkisstjórnina áfram, og hefur gert um það skriflegan samning við flokk sinn. Samkvæmt honum heldur Jón nánast óbreyttri nefndarsetu, auk þess sem hann hefur sama aðgang að stoð- og sérþjónustu þingflokksins og áður. Ævar Örn fer yfir þessa óvenjulegu stöðu með Evu Heiðu Önnudóttur, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands. Átök og núningur milli formanna tveggja stærstu verkalýðsfélaga í Alþýðusambandi Íslands, Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar og Höllu Gunnarsdóttur formanns VR hefur verið áberandi í aðdraganda þings sambandsins sem lýkur á morgun. Þar verður kosin ný forysta og nýr forseti sambandsins. Ágreiningur í verkalýðshreyfingunni er ekki nýr af nálinni. Sigurður Pétursson sagnfræðingur telur að segja megi að tvær blokkir hafi myndast í síðustu kjarasamningum. Öðrum megin sé VR og hins vegar Efling og SGS, iðnaðarmannafélögin skiptist á milli en ekki gott að greina ástæðurnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurð. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
  • Vondar fréttir frá Úkraínu, haustráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar vegna loðnuveiða, sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun 14.10.2026 19min
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir vondar fréttir berast frá Úkraínu og um margt sé ástandið þar eins og á fyrstu dögum stríðsins fyrir fjórum árum. Haustráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir komandi loðnuvertíð olli vonbrigðum. Fólk með þroskahömlun er fullfært um að taka eigin ákvarðanir með réttum stuðningi segir formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun á Íslandi. .
  • Landspítalann skortir milljarða í reksturinn og björgunarskip Landsbjargar 13.10.2026 19min
    Fjármálaráðherra lagði fram hallalaus fjárlög þegar þing kom saman, tekjurnar sem þar var gengið út frá hafa þegar skerst um einn og hálfan milljarð vegna aðgerða stjórnarinnar til að stuðla að kjarasamningum og rekstrargatið sem blasir við Landspítalanum á næsta ári er upp á um tvo milljarða. Og það vantar víðar fé; til að ljúka fjármögnun á nýjum björgunarskipum Landsbjargar vantar um einn og hálfan milljarð.
  • Ólga í verkalýðshreyfingunni ekkert ný og fjölgar hægt í STEM- greinum 12.10.2026 19min
    Finnbjörn Hermannsson kveður ASÍ í vikunni, en hann hefur verið forseti ASÍ síðan vorið 2023. Hann segir að óstyrk hagstjórn og sveiflur á vinnumarkaði séu erfiðasta verkefnið en styrkur Alþýðusambandsins felist í samtakamættinum. Forsetar Tæknisviðs HR og Verkfræði og náttúruvísindasviðs HÍ segja báðir að gjá hafi myndast á milli framhaldsskóla og háskóla. Nemendur komi nú verr undirbúnir en áður sem geti haft áhrif á aðsókn í svokallaðar STEM-greinar í háskólunum.
  • Samskipti á vinnumarkaði, einmanaleiki og fæðingarþunglyndi 09.10.2026 20min
    Ólga og spenna eru ábyggilega þau orð sem hvað oftast koma upp þegar fjallað er um íslenskan vinnumarkað og kjarasamninga. Mikilli spennu var aflétt þegar loks varð ljóst í gær að samningum á almennum markaði yrði ekki sagt, upp þrátt fyrir að forsendur um verðbólguviðmið hefðu brostið. Niðurstaðan er sú að samningar halda næsta árið og svo kemur í ljós hvað tekur við. Einmanaleiki er vaxandi meinsemd víða og Ísland ekki undanskilið. Mæður í fæðingarorlofi segjast oftar einmana en áður og hlutfall þeirra sem sýna einkenni fæðingarþunglyndis hefur tvöfaldast á rúmlega áratug.
  • Sameining og sundrung í Suðurnesjabæ, mótmæli gegn nátturugjaldi og stækkunarstefna Evrópusambandsins 08.10.2026 19min
    VIðræður um nýjan meirihluta. í Suðurnesjabæ eru farnar af stað og sagðar ganga vel. Fyrri meirihluti sprakk eftir fjögurra mánaða samstarf og á miðju síðasta kjörtímabili þurfti líka að mynda nýjan meirihluta. Má kannski segja að það hafi verið frekar róstusamt í sveitarstjórninni í þessu tiltölulega nýja sveitarfélagi sem varð til fyrir um átta árum þegar Garður og Sandgerði gengu í eina sæng. Í bæði skiptin hefur verið vísað til ágreinings um hvort nýr gerfigrasvöllur eigi að vera í Sandgerði eða Garði. Róbert Ragnarsson sem hefur verið ráðgjafi við sameiningu margra sveitarfélaga neitar því að þetta sýni að sameiningin hafi ekki tekist. Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt náttúru- og innviðagjald rann út í gær. Alls bárust 35 umsagnir, langflestar neikvæðar. Sveitarfélög á Suðurlandi benda meðal annars á að ósanngjarnt sé að gjald sem þetta sé eingöngu lagt á þá ferðamenn sem fara Gullna hringinn. Umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar er ítarlegust, alls 39 blaðsíður. Rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra þeirra. Stækkunarmál Evrópusambandsins verða ofarlega á dagskrá leiðtogafundar sambandsins í Brussel í næstu viku. Framkvæmdastjórn ESB leggur til varnagla fyrir verðandi aðildarríki, og Úkraínumenn eru ekki sáttir við hugmyndir um að takmarka aðgang þeirra að innri markaðnum.
  • Launaþróun, vextir, verðbólga og samningar; mótmæli í Frakklandi 07.10.2026 20min
    Á fundi Seðlabankans í morgun, þegar sagt var frá ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%, var ítarlega fjallað um launaþróun hér á landi og hún borin saman við launaþróun erlendis. Þar kom fram að bæði nafnlaun og raunlaun hafa hækkað mun meira hér en til dæmis á öðrum Norðurlöndum. Launakostnaður á hverja unna stund er jafnframt sá mesti í Evrópu ef launatengd gjöld eru tekin með. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, lagði mikla áherslu á að ekki væru forsendur til að hækka laun hér frekar. Ekki eru allir sammála honum um það. Rúnar Pálmason tók saman. Á milli 250 og 500 þúsund manns, fyrst og fremst menntskælingar og stuðningsfólk þeirra og þá ekki síst foreldrar þeirra og háskólastúdentar, mótmæltu víða um Frakkland í gær og kröfðust betri aðbúnaðar í framhaldsskólum. Þetta voru fjölmennustu mótmælin frá því að ungmenni byrjuðu að loka aðgangi að menntaskólum um miðjan september. Lokuðu skólarnir skipta nú hundruðum. Og það sér ekki fyrir endann á þessum fjölmennu mótmælum, sem hófust sem stuðningsaðgerð við kennara í einum skóla en eru löngu farin að teygja sig langt út fyrir skólakerfið. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Torfa Túliníus prófessor og sérfræðing í frönskum þjóð- og stjórnmálum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
  • Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum 06.10.2026 20min
    Gengi íslensku krónunnar, sem var sterkt fyrir, hefur styrkst enn meira frá því í sumar. Frá áramótum nemur styrkingin um fjórum komma sjö prósentum og meira en helmingurinn hefur komið fram síðan í júlí. Ein evra kostaði rúmlega 147 krónur um áramótin en stendur nú í 137 krónum - er sem sagt um 7 prósentum ódýrari - en hafa verður í huga að evran hefur almennt gefið eftir gagnvart öðrum gjaldmiðlum - stórum og smáum. Heimsókn Marcos Rubios utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands staðfestir náin og góð tengsl ríkjanna að dómi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem var á sameiginlegum blaðamannafundi með kollega sínum í Safnahúsinu í morgun. Rubio sagði að það sýndi sig enn og aftur að landafræði skipti máli. Frumvarp sem átti að bregðast við lakri stöðu námsgagna á Íslandi, og hefur í fjórgang verið sett á þingmálaskrá, verður ekki tekið fyrir á þessu þingi. Tveir fyrrverandi ráðherrar menntamála úr jafnmörgum ríkisstjórnum reyndu að fá frumvarpið samþykkt, en höfðu ekki erindi sem erfiði.
  • Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir 05.10.2026 20min
    Veltan í íslensku kauphöllinni hefur ekki verið minni og viðskipti ekki verið færri frá árinu 2020. Ávöxtunin hefur heldur ekki verið upp á marga fiska, svona almennt séð og OMX 15-vísitalan sem mælir gengi á bréfum 15 stærstu félaganna, lækkað um 11 prósent það sem af er ári. Rúnar Pálmason þýfgaði Magnús Harðarson, forstjóra kauphallarinnar, um ástæður þessa og horfurnar. Mikla eftirspurn eftir mjólkurkvóta má rekja til þess að færri yfirgefa greinina, að mati kúabónda. Vatnaskil urðu í mjólkurframleiðslu þegar gömlu básafjósin voru bönnuð fyrir rúmum tíu árum. Á aðlögunartímanum sem á eftir fylgdi fækkaði kúabúum mikið en bú þeirra sem uppfærðu í ný fjós stækkuðu fyrir vikið. Mjólkurbóndi segir jafnvægi að komast á geirann en fjármagnskostnaður sé töluverður hluti af útgjöldum bænda. Gréta Sigríður Einarsdóttir forvitnaðist um þetta og ræddi við þau Atla Má Traustason og Sigurbjörgu Ottesen. Ísbjörninn er mögulega sú dýrategund sem hvað oftast er nefnd - og fjallað um - í tengslum við yfirstandandi loftslagshamfarir og afleiðingar þeirra, enda hvítabirnir miklar og tignarlegar skepnur þar á ferð, sem augljóslega verða illilega fyrir barðinu á þeim. Sérstakur stofn á suðausturodda Grænlands er þó undantekning þar á og hefur aðlagað sig breyttum heimi. Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
  • Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína 02.10.2026 20min
    HMS - eða Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Yfir fjögur þúsund manns hafa dáið í ebólufaraldrinum sem geisað hefur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan í maí og rúmlega 8.300 smit hafa verið staðfest í sjö héruðum landsins. Kínverjar héldu upp á þjóðhátíðardag sinn og forseti Kína hefur gert víðreist.
  • Staða kjarasamninga og angist friðelskandi Norðmanna 01.10.2026 20min
    Eftir rétta viku rennur út sá frestur sem aðilar atvinnulífsins hafa til að ákveða hvort hin svonefndi stöðugleikasamningur Samtaka atvinnulífsins og margra stærstu stéttarfélaga landsins fái að standa, þrátt fyrir að verðlagsforsendur hans séu brostnar. Verðlagsforsendur samninganna eru þær að 12 mánaða verðbólga mælist ekki yfir 4,7 prósent í ágúst á þessu ári. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár og mælist nú rétt undir sex prósentum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði í dag tillögu að sameiginlegri yfirlýsingu allra hagsmunaaðila, um aðgerðir til að ná niður verðbólgu og tryggja að samningar haldi. Þessa tillögu hyggst hún leggja fram á ríkisstjórnarfundi á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ, um hvað þurfi að vera í þessari tillögu til að þetta markmið forsætisráðherra náist. Í vikunni hafa verið opnir fundir í eftirlits- og stjórnskipunarnefnd norska Stórþingsins þar sem fjöldi ráðamanna hefur mætt fyrir nefndina til að svara fyrir peningastreymi, venjur og menningu í utanríkisráðuneytinu. Hvort kunningskapur og óformleg tengslanet ráði þar miklu og Jeffrey Epstein kemur líka við sögu. Kveikjan er hvort fjárstreymi frá norska utanríkisráðuneytinu til hugveitu í New York sem stjórnað var Terje Röd-Larsen hafi verið óeðlilega mikið. Anna Kristín Jónsdóttir kynnti sér málið, sem gæti jafnvel leitt af sér bresti í sjálfsmynd norsku þjóðarinnar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.
  • Bókun 35 og málshöfðun ESA gegn íslenska ríkinu, tómar íbúðir í Hafnarfirði 30.09.2026 20min
    Hin margumtalaða Bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið er orðin að dómsmáli, eftir að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, tilkynnti í morgun að stofnunin hefði vísað þessu máli til EFTA dómsstólsins. ESA hefur um langt skeið krafist þess að bókun 35 yrði innleidd í íslenskt lagaumhverfi, en málið er umdeilt; frumvarp um bókunina hefur í fjórgang verið lagt fram á Alþingi - nu síðast fyrir nokkrum dögum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem var þá utanríksráðherra Sjálfstæðisflokks lagði fyrst fram frumvarp um hana vorið 2023 en það kom aldrei til annarar umræðu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur tvisvar áður lagt fram frumvarp um bókun 35 og mælir væntanlega fyrir því fjórða sinni í byrjun næstu viku. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Árna Pál Árnason, einn þriggja stjórnarmanna í ESA um ákvörðun stofnunarinnar um málsókn og tímasetningu hennar, og Ævar Örn Jósepsson ræðir við Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík um málsóknina og bókunina sjálfa. Eins og fram hefur komið í Speglinum ríkir mikið ójafnvægi á byggingamarkaði. Í nýlegri skýrslu HMS kom fram að á landinu eru um 1.900 íbúðir sem eru fullbúnar en hafa ekki selst og standa tómar. Margar þeirra hafa staðið tómar í meira en eitt ár - og slíkar íbúðir eru hvergi fleiri en í Hafnarfirði, eða 213. Rúnar Pálmason ræðir þessa óvenjulegu stöðu við Orra Björnsson, formann bæjarráðs Hafnarfjarðar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
  • Erfið staða á byggingamarkaði, lögmannafélagið um breytingar á hegningarlögum 29.09.2026 19min
    Um 1.900 nýjar og tilbúnar íbúðir tómar - 85% fleiri en fyrir ári. Margar hafa verið til sölu í heilt ár. Atvinnuleysi í bygginga- og mannvirkjagerð fer vaxandi, dæmi eru um að öflug fyrirtæki séu að draga verulega úr starfseminni og í gær bárust fréttir af því að 20 manns hefði verið sagt upp hjá Íslenskum aðalverktökum. Tólf umsagnir bárust við frumvarpsdrög um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum sem sett voru inn í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðar
  • Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, Marel og loftmengun i Kína 28.09.2026 20min
    Leiðtogar heims flykktust til New York í síðustu viku á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að ræða helstu áskoranir í alþjóðasamfélaginu, og leiðtogavikunni lýkur í dag. Það var setið þétt á bekknum þegar þingið var sett og Antonio Guterres aðalritari Sameinuðu þjóðanna flutti sína síðustu ræðu á allsherjarþingi. Um næstu áramót verða tvö ár liðin frá því bandaríska fyrirtækið JBT tók Marel yfir - en Marel hafði lengi verið eitt af allra öflugustu fyrirtækjunumm á Íslandi. Höfuðstöðvar Marel eru ekki lengur í Garðabæ heldur í Chicago í Bandaríkjunum og starfsfólki í Garðabæ hefur fækkað. Fyrir fjórtán árum sást fjallahringur Peking ekki nema örsjaldan í gegnum mengunarmistrið en bláhimnna eða heiðskírir dagar voru þar þrjú hundruð í fyrra.
  • Átök í Flokki fólksins, náttúru- og innviðagjald 25.09.2026 20min
    Í byrjun árs sagði Guðmundur Ingi Kristinsson af sér sem mennta- og barnamálaráðherra. Nokkrum dögum síðar sagði Guðmundur Ingi að Inga Sæland formaður flokksins hefði krafist afsagnar hans á meðan hann var á sjúkrahúsinu eftir aðgerðina. Inga hefur ítrekað sagt að upplifun þeirra Guðmundar af aðdraganda þess að hann sagði af sér sé ólík. Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn - það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi - verður lagt á frá og með 1. maí á næsta ári, samkvæmt drögum að frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem var kynnt í vikunni.
  • Ísland, losun og loftslagsmálin, samningur Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna 24.09.2026 19min
    Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir að gera þurfi miklu meira miklu hraðar, ef Ísland á að ná settu markmiði um 41% samdrátt á samfélagslosun fyrir árið 2030, og segir margt þegar hafa veið gert og fleira í bígerð til að auka líkur á því. Hins vegar er hann efins um að lögbundið markmið um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040 sé raunhæft. Ekki hefur enn verið skilgreint hvað í þessu hugtaki felst, og það sé því í raun nánast marklaust. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jóhann Pál. Jens-Frederik Nielsen formanni landsstjórnar Grænlands og Múte B. Egede utanríkisráðherra landsins var vel fagnað þegar þeir komu til Nuuk frá New York í gærkvöld. Þeim var létt: Eftir ítrekaðar yfirlýsingar Donalds Trumps um að Grænland væri öryggi Bandaríkjanna nauðsynlegt og þau þyrftu að ráða því, var samningur milli ríkjanna þriggja um varnir og öryggi í höfn. En hvað felst í honum? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
  • Skammvinnt verkfall flugvirkja og aðstæður vestrænna fréttamiðla í Moskvu 23.09.2026 19min
    Ljóst varð í morgun að ríkisstjórnin ætlaði sér að setja lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair. Ekki kom þó til þess því flugvirkjar aflýstu verkfallinu. Icelandair og flugvirkjar lýstu því yfir að næstu fjórar vikur yrðu nýttar til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara. En þó að verkfallið hafi verið stutt, hafði það töluverðar afleiðingar. Rætt við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson, prófessor og Finnbjörn A. Hermannsson forsta Alþýðusambands Íslands. Bæði viðskiptaþvinganir Vesturlanda gegn Rússlandi og svo ýmsar skorður sem Rússar leggja sjálfir á fjölmiðlun og fjarskipti í landinu gera það að verkum að fyrir erlent fjölmiðlafólk er erfitt að ferðast til Rússlands og að senda þaðan fréttir um lífið í landinu eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV fékk þó vegabréfsáritun til að fylgjast með nýafstöðum þingkosningum, í Moskvu.
  • Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og kólnun á byggingamarkaði 22.09.2026 19min
    Rætt við Nicole Simone Keller, teymisstjóra losunarbókhalds Umhverfis- og orkustofnunar um nýja skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi. Rætt við Jónas Má Gunnarsson, aðalhagfræðing Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um kólnun á byggingamarkaði.
  • Umbrotatímar í þýskum stjórnmálum, lóðamál trúfélaga og breytt staða Svalbarðabúa 21.09.2026 20min
    Katastrófa er hugtakið sem hvorutveggja þýskir stjórnmálaskýrendur og Friedrich Merz Þýskalandskanslari nota um úrslit þingkosninganna í sambandslandinu Mecklenburg-Vorpommern í gær. Með því er í senn átt við sögulega mikið fylgi þjóðernisöfgaflokksins Alternative für Deutschland, AfD, og enn frekar þá staðreynd að flokkur kanslarans, Kristilegir demókratar, CDU, náðu ekki inn manni, í fyrsta sinn í sögunni. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir stjórnmálafræðingur í Berlín ræðir stöðuna í þýskum stjórnmálum við Ævar Örn Jósepsson. Í liðinni viku bárust þær fréttir að meirihlutinn í borgarstjórn vildi afturkalla lóðir sem Rússneska rétttrúnaðarkirkjan og Félag múslima fengu úthlutað fyrir alllöngu síðan, án endurgjalds, enda hefðu framkvæmdir ekki hafist innan tilskilinna fresta. Þriðja trúfélagið, Ásatrúarfélagið, sem fékk úthlutað lóð um svipað leyti, byrjaði að byggja fyrir ellefu árum. Þar hafa framkvæmdir gengið hægt - en ólíkt hinum trúfélögunum þarf Ásatrúarfélagið ekkert að flýta sér. Rúnar Pálmason kynnti sér málið og talaði við Öldu Völu Ásdísardóttur hjá Ásatrúarfélaginu. Norrænir ríkisborgarar, þar á meðal Íslendingar, hafa getað öðlast norskan ríkisborgararétt eftir búsetu á Svalbarða án þess að hafa búið á norska meginlandinu - en nú gæti það breyst. Ástrós Signýjardóttir fjallar um þettal Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Rúnar Pálmason.
  • 9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind 18.09.2026 19min
    80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni. Sífellt fleiri nýta sér gervigreind og áhyggjur af þróun hennar aukast. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hjá Fenris Creations segir eðlilegt að áhyggjur fylgi hröðum tæknibreytingum en hefur efasemdir um að ábyrgasta nálgunin sé að hægja á. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir Stjórn útsendingu: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Popularan u

Ovaj podcast pojavljuje se i na podcast ljestvicama ovih zemalja.