Þetta helst

Þetta helst

RÚV
Negara USA
Genre News
Bahasa IS
Episode 694
Terbaru 01.06.2026

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Episode

  • Þar sem pappírsslóðin endar: Börn voru vistuð í Bakkakoti í trássi við lög 2005 02.06.2026 17mnt
    Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess að eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess frá sveitarfélaginu að taka að sér fósturbörn. Þetta var brot á nýjum barnaverndarlögum sem samþykkt voru árið 2004. Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, að taka að sér fleiri fósturbörn. Þessar upplýsingar koma fram í gögnum um starfsemi Bakkakots frá Þjóðskjalasafninu sem fréttastofa fékk frá safninu. Í gögnunum er að finna síðustu fyrirliggjandi samskipti sveitarfélagsins við Þóru í Bakkakoti um fósturheimilið. Rætt er við lögmann Bakkakotsmannanna, Bjarka Heiðar Bjarnason um þessi gögn og stöðuna á Bakkakotsmálinu í dag eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um ofbeldið á heimilinu í febrúar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Saga og sálfræði vítaspyrnunnar 01.06.2026 14mnt
    Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að vítaspyrnum - sögu og sálfræði vítaspyrnunnar - bæði í ljósi helgarinnar og heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem hefst í næstu viku. Rætt er við Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking, og Daða Rafnsson, íþróttasálfræðing. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Ört stækkandi risi Jóns Ásgeirs kaupir 25 fasteignir af kaupfélagi 29.05.2026 15mnt
    Í byrjun mánaðarins var sagt frá því að Kjörbúðin í Bolungarvík, sem er í eigu smásölufyrirtækisins Dranga, myndi loka. Degi áður en þessi frétt var sögð sendu Drangar frá sér tilkynningu um að fyrirtækið ætlaði sér að kaupa 25 fasteignir af dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja víða um allt. Ein af þessum eignum er fasteignin á Bolungarvík sem hefur hýst starfsemi Kjörbúðarinnar. En hvað liggur á bak við þessi viðskipti hjá Dröngum og Kaupfélagi Suðurnesja? Rætt er við Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, og Sigurbjörn Gunnarsson, stjórnarformann Kaupfélagsins á Suðurnesjum, um það. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Endurskoðun samgöngusáttmála í kjölfar kosninga 28.05.2026 16mnt
    Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarmál í þætti dagsins - og beinum nú sjónum að mögulegum breytingum á framkvæmdum sem tengjast samgöngum á höfuðborgarsvæðinu - en þau mál voru mikið rædd í aðdraganda kosninga og breytingum lofað. Rætt er við Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Héraðsdómurinn í plastbarkamálinu og tregða sænska ríkisins til að greiða skaðabætur 27.05.2026 16mnt
    Einn af uppljóstrurunum í plastbarkamálinu svokallaða í Svíþjóð, Oscar Simonson brjóstholsskurðlæknirinn og blaðamaðurinn Bosse Lindqvist furða sig á því að sænska ríkið hafi ekki haft frumkvæði að því að greiða skaðabætur í málinu. Þeir eru til viðtals vegna dómsins sem féll í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Þar fékk eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans, Andemariams Beyene, Mehrawit Tesfaslase, viðurkennda skaðabótaskyldu íslenska ríkisins gegn henni og sonum þeirra þremur. Mehrawit segist vera þakklát fyrir dóminn og viðurkenningu á skaðabótaskyldunni en að hingað til hafi hún hvorki engið afsökunarbeiðni né bætur frá sænska ríkinu. Rætt er við Mehrawit og þá Oscar og Bosse um dóminn í Reykjavík og sænskt og alþjóðlegt samhengi plastbarkamálsins sem talið er eitt stærsta hneykslismál í læknavísindum samtímans. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Óvissa um samning milli Írana og Bandaríkjamanna 26.05.2026 14mnt
    Í þætti dagsins er sjónum beint að samningi milli Írana og Bandaríkjamanna. Rætt er við Gísla Jónsson, sérfræðing hjá Geislavörnum ríkisins, Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans.
  • Sagan af þyrlu Jims Ratcliffes og rörinu á kókómjólkinni 22.05.2026 16mnt
    Hvaða áhrif hefur það á lítið samfélag eins og Vopnafjörð á Austfjörðum þegar einn ríkasti maður heims hefur stundað fjárfestingar þar í áratug? Þarna er rætt um Jim Ratcliffe, milljarðamæringinn enska, sem er sennilega bæði ríkasti og þekktasti athafnamaður sem hefur stundað fjárfestingar á Íslandi. Samkvæmt lista tímaritsins Forbes er hann í 153 sæti yfir ríkustu menn í heimi. Hann á eignir upp á rúmlega 2200 milljarða króna. Ratcliffe er leigutaki Hofsár og Selár í Vopnafirði og eins landeigandi fjölda jarða við árnar og víðar á norðausturhorni landsins. Rætt er við Bjart Aðalbjörnsson, rúmlega þrítugan Vopnfirðing og sveitastjórnarmann til átta ára, og Rögnvald Þorgrímsson, formann Ungmennafélagsins Einherja á Vopnafirði, um um samfélagsleg áhrif Ratcliffes í sveitinni. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Þjóðarsátt þá og nú 21.05.2026 15mnt
    Við höldum áfram að ræða vexti og verðbólgu í þætti dagsins - en það kom líklega fáum á óvart að peningustefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði stýrivexti út 7,5 í 7,75 prósent í gær - enda í takt við spár greiningardeilda - og meiri þungi hefur færst í umræðuna um nýja þjóðarsátt. Við ræðum þjóðarsáttina 1990 og stöðuna núna við Guðmund Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, og Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Þýskt stórfyrirtæki kaupir þrjá dýraspítala á Íslandi 20.05.2026 15mnt
    Þýska stórfyrirtækið Altano keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi. Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Altano á í dag meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn. Fyrirtækið er í eigu svissnesks fjárfestingarsjóðs. Af hverju hefur Altano áhuga á Íslandi og dýraspítölum á Íslandi? Einhverjir bændur á Norðurlandi hafa spurt sig að þessu. Rætt er við dýralækninn Gest Pál Júlíusson um Altano en hann er einn af þeim dýralæknum sem hefur selt hlut sinn í dýraspítala til þýska fyrirtækisins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Yfirvofandi vaxtahækkun 19.05.2026 14mnt
    Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands á morgun er til umfjöllunar í þætti dagsins. Rætt er við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseta ASÍ, og Má Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Heilbrigðisráðherra svarar spurningum um Sóltúnsmálið 18.05.2026 15mnt
    Alma Möller heilbrigðisráðherra telur mikilvægt að peningar frá ríkinu sem renna til einkarekinna hjúkrunarheimila eins og Sóltúns fari eingöngu í reksturinn en ekki í vasa eigenda. Alma var spurð að því hvað henni finnist um það sem heilbrigðisráðherra að eigendur Sóltúns hafi á síðustu árum greitt út 3,2 milljarða króna til hluthafa fyrirtækisins með lækkun á hlutafé þess. Síðasta útgreiðslan upp á 1,2 milljarða króna var síðla árs í fyrra. Í svari Ölmu kemur fram að slíkar útgreiðslur séu að hennar mati ekki heppilegar. Rætt er við Ölmu og heilsuhagfræðinginn Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðing um samning ríkisins um Sóltún sem var einstakur að mörgu leyti og var mikið um hann fjallað í fjölmiðlum um aldamótin. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Skemmtanavæðing stjórnmálanna 15.05.2026 15mnt
    Kosið verður í sveitarstjórnir á morgun og í þætti dagsins beinum við sjónum að því sem kalla mætti skemmtanavæðing stjórnmálanna. Fjölmiðla- og samfélagsmiðlaumhverfið hefur breyst hratt að undanförnu og frambjóðendur hafa þurft að laga sig að því – ná í gegn á samfélagsmiðlum, oft með leikjum eða almennum léttleika, og gefa af sér í skemmtiþáttum. Viðmælendur: Andrés Jónsson, almannatengill Ingunn Lára Kristjánsdóttir, fréttamaður Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Baksaga Blikastaðalandsins í einu ólögmætu einkavæðingunni 13.05.2026 18mnt
    Uppbygging á Blikastaðalandinu svokallaða sem er í eigu Arion banka er eitt af stóru málunum sem er til umræðu í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Þetta er 98 hektara óbyggt landsvæði sem liggur á milli Reykjavíkur og byggðarinnar í Mosfellsbæ. Um er að ræða eitt stærsta, ef ekki stærsta, óbyggða byggingarland á Íslandi í dag eins og fjármálagreinandinn Alexander Hjálmarsson hjá ráðgjafafyrirtækinu Akki orðaði það í fyrra. Mosfellsbær hefur nú samþykkt fyrsta áfanga deiliskipulags svæðisins og kannar nú hvort selja eigi landið í heild sinni eða skrá það á markað. Til stendur að byggja 3500 til 3700 íbúðir á þessu landsvæði. Rætt er við Þóru Hjaltested, settan bæjarstjóra í Mosfellssveit, um þessa uppbyggingu og fjallað um baksögu Blikastaðalandsins. Þetta land var lykilatriði í dómsmáli um einkavæðingu Íslenskra aðalvertaka sem endaði með því að framkvæmd íslenska ríkisins á útboði fyrirtækisins var dæmd ólögmæt. Íslenska ríkið seldi Íslenska aðalvertaka á undirverði sem aðallega fólst í því að Blikastaðalandið var verðmetið á um 1/5 hluta af raunvirði í einkavæðingunni. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Óeining um Eurovision 12.05.2026 14mnt
    Í dag beinum við sjónum okkar að Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrra undankvöld keppninnar í ár er í kvöld. Ár hvert skapast mikil stemning í kringum Eurovision hér á landi og keppnin - og aðdragandinn - litar samfélagið mjög - en ekki núna. Enda ákvað Ríkisútvarpið í desember - eftir töluverð mótmæli og ákall um sniðgöngu - að Ísland tæki ekki þátt í keppninni í ár sem haldin er í Vínarborg í Austurríki. Rætt er við Höllu Ingvarsdóttur, gjaldkera Fáses, og Val Gunnarsson, sagnfræðing, um keppnina og sniðgöngu.
  • Byggingaréttur sem verðmæt markaðsvara 11.05.2026 17mnt
    Pétur Ármannsson arkitekt skrifaði nýlega grein sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann gagnrýndi veitingu byggingaréttar til lóðahafa hér á landi á þeim forsendum að litið væri á þennan byggingarétt sem eign viðkomandi. Hann kallaði slíka veitingu byggingaréttar ,,gjafakvóta”. Hvað á Pétur við þessu? Rætt er við hann í þætti dagsins og gagnrýni hans sett í samhengi við bensínstöðvalóðina á Egilsgötu 5 sem fasteignaþróunarfélagið Klasi seldi með miklum hagnaði árið 2024. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsosn
  • Flókin meirihlutamyndun í borginni 08.05.2026 16mnt
    Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarmál í þætti dagsins - enda stutt í kosningar - og rýnum í dag í mögulegan meirihluta í borginni út frá skoðanakönnunum og kosningaprófi RÚV, sem opnað var almenningi í upphafi vikunnar. Rætt er við Stíg Helgason, ritstjóra kosningaumfjöllunar RÚV, og Hafstein Einarsson, nýdoktor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Flugmaður ræðir um fyrirhuguð kaup Icelandair á flugrekstarleyfi á Möltu 07.05.2026 16mnt
    Flugmaðurinn Ágúst Håkansson starfaði hjá Icelandair í 43 ár, frá því 1983 og þar til í febrúar á þessu ári. Hann hefur skrifað grein um fyrirætlanir Icelandair að fjárfesta í flugrekstrarleyfi á Mötlu. Hann mu birta greinina á næstunni í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Ágúst segir í greininni og viðtali við Þetta helst að helsta ástæðan fyrir Möltuviðskiptum Icelandair sé líklega að flugfélagið ætli sér að stunda félagsleg undirboð til að lækkka starfsmannakostnað. Hann segir að eitt sem veki mikla athygi sé að aðeins eitt annað evrópskt flugfélag sem bera má saman við Icelandair sé með starfsemi á Möltu. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Lífeyrisskuldbindingar sveitarfélaga 06.05.2026 15mnt
    Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarkosningarnar sem verða í næstu viku - og beinum nú sjónum sérstaklega að rekstri sveitarfélaganna sem nokkuð er deilt um í aðdraganda kosninga. Sveitarfélög hafa verið að birta ársreikninga fyrir síðasta ár og eitt og annað hefur vakið athygli, þar á meðal áhrif lífeyrisskuldbindinga. Rætt er við Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðing Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Gylfa Magnússon, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór
  • Undanþágurnar sem Ísland getur fengið frá ESB um fiskinn í sjónum 05.05.2026 19mnt
    Í viðtali við breska viðskiptablaðið Financial Times í lok apríl sagði Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, að ambandið gæti boðið Íslandi undanþágur frá fiskveiðistefnu sambandsins til að flýta fyrir umsóknarferli Íslands að sambandinu. Álíka skýr skilaboð frá stjórnendum sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu hafa ekki komið frá þeim nýlega. Costas Kadis sagði orðrétt að klárlega væri svigrúm fyrir sveigjanleika í viðræðunum. En hvað þýðir þetta hugtak sveigjanleiki, eða flexibility á ensku, í þessu samhengi? Í lok ágúst fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ef samþykkt verður að hefja þessar aðildarviðræður aftur í þjóðaratkvæðagreiðslunni munu þær fara í gang og semja þarf um mikilvæg mál eins og sjávarútveg. Rætt er við lögfræðingana Gunnar Þór Pétursson. sem er sérfræðingur í Evrópurétti, og Bjarna Má Magnússon, sem er sérfræðingur í hafrétti, um hvað kunni að felast í þessum mögulegu undanþágum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Sjálfkjörið í fjórum sveitarfélögum 04.05.2026 14mnt
    Ljóst er að engar kosningar verða til sveitarstjórnar í Snæfellsbæ, Vopnafjarðarhreppi, Kjósarhreppi og Tjörneshreppi í næstu viku því yfirkjörstjórnum barst aðeins einn framboðslisti í þessum sveitarfélögum. Rætt er við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor og sérfræðing í sveitarstjórnarmálum, Auði Kjartansdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Snæfellsbæ, Írisi Eddu Jónsdóttur, oddvita Sterkrar stoðar á Vopnafirði, Jóhönnu Hreinsdóttur, oddvita Íbúa í Kjós og Aðalstein J. Halldórsson, oddvita Tjörneslistans. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Populer di

Podcast ini juga muncul di daftar podcast negara-negara ini.