Lestin

Lestin

RÚV
Negara Islandia
Bahasa IS
Episode 448
Terbaru 02.07.2026

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Episode

  • Bókaklúbbur: Hyperpolitics, og hægrisveifla í Rómönsku Ameríku. 02.07.2026 38mnt
    Nú um helgina kusu íbúar Perú sér nýjan forseta, Keiko Fujimori, og um viku áður kusu Kólumbíumenn sér nýjan forseta, Abelardo de la Espriella, en þetta eru fimmta og þriðja fjölmennasta ríki rómönsku ameríku. Báðir sigurvegararnir eru hægrisinnaðir og bætast þar með við nokkra íhaldsbylgju í stjórnmálum suður og mið-ameríku, þar sem jafnvel róttækir hægrimenn hafa náð völdum í nokkrum löndum og þá oftar en ekki með stuðningi Donalds Trump. Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í bókmenntum og menningu Rómönsku Ameríku við Háskóla Íslands ræðir um hægribylgjuna. Og í bókaklúbbi Lestarinnar lesum við skærgula bók um pólitískt ástand heimsins. Hyperpolitics er poppstjórnmálafræði eftir ungan belgískan sagnfræðing sem heitir Anton Jäger.
  • Ósamhverfur fótbolti, Boards of Canada, Primavera Sound og sumarmenning 01.07.2026 33mnt
    Lestin er á leiðinni í sumarfrí eftir vikuna og Lóa og Kristján nefna það menningarefni sem hefur setið á hakanum á tímabilinu. Halldór Armand Ásgeirsson fjallar um HM 2026 og að þessu sinni fjallar hann um assymetrískan fótbolta eins og hans birtist í sigri Paragvæ á Þýskalandi og assymetrískan hernað eins og hann birtist í stríði Bandaríkjanna og Írans. Við fáum svo tónlistarpistil um Primavera Sound tónlistarhátíðina og nýja plötu Boards of Canada. Það er Davíð Roach Gunnarsson sem segir frá.
  • Popplagakrufning: Gera sitt besta með Hasar 30.06.2026 35mnt
    Í þætti dagsins er aðeins eitt á dagskrá: við kryfjum, undir handleiðslu Friðriks, lagið Gera sitt besta með reykvísku rokkhljómsveitinni Hasar. Hvað hljóma þeir eins og? Hvað fjallar textinn um? Eiga þeir heima fyrir ofan læk eða neðan?
  • Mat Dryhurst, Midillinn.com, fótboltabullur og útlendingar 29.06.2026 55mnt
    Fyrir tveimur vikum tókum við upp Lestina í lifandi flutningi með áhorfendum í Iðnó. Þá sögðum við frá sýningunni Strange Rules sem var opnuð í Feneyjum í maí, sýning sem tekst á við nýja tækni og kynnir til leiks hugtakið reglulist, protcol-art. Í þætti dagsins ræðum við nánar við einn sýningarstjóranna, breska listamanninn Mat Dryhurst. Við ræðum um regluverk heims, tvíhöfða orma og höfundarétt á tímum gervigreindar. Við leitum svo uppi íslenska protcol-list og ræðum við aðstandendur grínfréttasíðunnar og samfélagsmiðilsins, Midillinn.com. Þetta eru listamennirnir Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius Finnsson. Einar Már Jónsson sendir okkur svo pistil frá París um fótboltabullur, útlendingaandúð og ömmu sem var borin á kóngastól milli gatna í miðjum óeirðum.
  • Lionel Messi, Our hero Balthazar og bókaklúbbur: Lausaletur 25.06.2026 54mnt
    Vikulegur bókaklúbbur Lestarinnar í Júní tekur fyrir nýjustu skáldsögu Þórdísar Helgadóttur, Lausaletur, sem kom út fyrir síðustu jól. Aðalpersónurnar er starfsfólk á prentsafni í ónefndri borg í miðjum heimsfaraldri, þar sem dularfull heilabilun herjar á fólk. Sölvi Halldórsson, skáld, er gestur bókaklúbbsins. Senn lýkur riðlakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu karla sem fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Einhver allra besti knattspyrnumaður sögunnar, Lionel Messi, hefur skorað 5 mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu - þrátt fyrir að vera orðinn 39 ára gamall. Halldór Armand Ásgeirsson reynir að setja fingurinn á snilligáfu Messi. Kolsvarta komedían Our hero Balthazar sem er nú sýnd í Bíó Paradís tekst á við stór og alvarleg málefni eins og byssuofbeldi og samfélagsmiðla. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.
  • Aðildarviðræður við ESB, fyrsti billjarðamæringurinn 24.06.2026 53mnt
    Við ætlum að kíkja í Kringluna og Smáralind og heyra hvað mun ráða ákvörðun fólks hvernig það mun kjósa í ágúst, hvort ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hvað ræður skoðunum fólks á Evrópusambandinu og hvaða mál skipta mestu máli þegar fólk sest niður og ákveður hvort það segir já eða nei. Eiríkur Örn Norðdahl veltir fyrir sér hvað það þýðir að mannkynið hafi eignast sinn fyrsta billjarðamæring , Elon Musk, og hvort að tækniauðmenn nútímans þurfi nokkuð á okkur hinum að halda. Sjónvarpsþættirnir Better Call Saul og hitabylgja í Evrópu koma meðal annars við sögu.
  • Brostin loforð tækninnar, leikritið Leikritið 23.06.2026 57mnt
    Inga Steinunn Henningsdóttir setti sér það markmið að setja upp leikrit fyrir þrítugt. En um hvað á leikritið að vera? Í sýningunni Leikritið, sem er sett upp í sumarleikhúsinu Afturámóti í Háskólabíói, fáum við svarið við því. Á hverri sýningu fær Inga Steinunn nýjan mótleikara, sem veit ekkert um hvað sýningin er og er að sjá línurnar sínar í fyrsta skipti. Einar Már Jónsson, pistlahöfundur Lestarinnar í París, vogar sér að gera samanburð. Samanburðurinn er á því sem tæknin lofaði að gera og breyta heiminum, og svo hvernig hún hefur raunverulega breytt heiminum.
  • Kier kveður, Half Man 22.06.2026 55mnt
    Kier Starmer varð í morgun sjötti forsætisráðherra Bretlands á tíu árum til að segja af sér. Við hringjum til London og ræðum við Sigrúnu Davíðsdóttur um feril þessa lánlausa leiðtoga Verkamannaflokksins. Hinn skoski Richard Gadd sló í gegn með óvæntu eltihrellisþáttunum Baby Reindeer fyrir tveimur árum. Nú er hann mættur aftur með nýja þætti sem hann skrifar og leikur aðalhlutverkið í, Half Man. Brynja Hjálmsdóttir segir okkur frá þessum átakanlegu þáttum.
  • Midnight Sun fær krufningu, sagnfræðingurinn Marc Bloch 18.06.2026 54mnt
    Lagið Midnight Sun með Zöru Larsson kom út í fyrra á samnefndri plötu, en nýtur enn þvílíkra vinsælda þetta sumarið. Við kryfjum þetta lag sænsku poppprinsessunar undir dyggri leiðsögn Friðriks Margrétar Guðmundssonar. Svo fáum við pistil sendan með flugi frá París, Einar Már Jónsson, rithöfundur, segir frá merkum manni. Marc Bloch var afkastamikill fræðimaður en á miðjum aldri tók hann svo þátt í frönsku andspyrnuhreyfingunni. Hann á sér því merka ævi sem Einar Már rekur í þætti dagsins.
  • Fullkomnun Berlínarhipstersins, Bloomsday, rauð spjöld á HM 16.06.2026 54mnt
    Parið Tom og Anna hefur flust til Berlínar á öðrum áratug 21. aldarinnar til að lifa hinni fullkomnu tilveru. Þau starfa í skapandi greinum, búa innan um fallega hluti í fallegri íbúð, og deila myndum af lífi sínu á samfélagsmiðlum. Þau eru aðalpersónur skáldsögunnar Le perfezioni eftir ítalska rithöfundurinn Vincenzo Latronico sem kom út árið 2022. Íslensk þýðing á bókinni kemur út hjá bókaforlaginu Benedikt í haust, en enska útgáfan verður til umræðu í bókaklúbbi Lestarinnar þessa vikuna. Gestur klúbbsins er Björn Halldórsson rithöfundur. Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer fram í Mexikó, BNA og Kanada hófst í síðustu viku. Halldór Armand Ásgeirsson mun gera mótinu skil fyrir hönd Lestarinnar næstu vikur. Í sínum fyrsta pistli veltir hann fyrir sér merkingu rauðu spjaldanna þriggja sem fóru á loft í opnunarleik mótsins. Og við höldum 16. júní hátíðlegan, en dagurinn er tileinkaður skáldsögunni Ulysses eftir írska rithöfundinn James Joyce sem gerist öll þennan dag. Eiríkur Örn Norðdahl útskýrir aðdráttarafl bókarinnar.
  • Lestin í lifandi flutningi 15.06.2026 55mnt
    Föstudaginn 12. júní var Lestin tekin upp í Klúbbi Listahátíðar í Iðnó. Við veltum fyrir okkur stöðu listarinnar í samtímanum - á tímum snjallsíma, samfélagsmiðla, gervigreindar, á tímum þegar lýðræðið á undir högg að sækja, á stríðstímum, verðbólgutímum, á tímum Trump og tækni-kapítalisma. Getur listin sagt eitthvað nýtt og áhugavert um þessa tíma, getur hún haft einhver alvöru áhrif, þegar hún þarf stöðugt að keppa við alla aðra afþreyingu á netinu, á samfélagsmiðlum, í athyglishagkerfinu. Við ræðum við tvo listamenn, Cristophe Meierhans og Mat Dryhurst.
  • Umræðuþáttur um Feneyjatvíæringinn 11.06.2026 54mnt
    Þátturinn Mollhljómar og mótmæli sem áður var á dagskrá á Hvítasunnudag. Kristján Guðjónsson stýrir umræðum um alþjóðlegu myndlistarhátíðina í Feneyjum sem fer nú fram í sextugasta og fyrsta sinn. Mótmæli hafa sett sinn svip á Feneyjatvíæringinn í ár en yfirskrift hátíðarinnar er In Minor Keys, Í mollhljómum. Myndlistarfólkið Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Tumi Georgsson og Sigrún Inga Hrólfsdóttir ræða við þáttastjórnanda um stefnur, strauma og pólitísku hitamálin sem hafa litað hátíðina í ár.
  • Ástin í tímum tinder #10, og Brottfararstöð 10.06.2026 55mnt
    Í gær samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Brottvísunarstöðinni er ætlað að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi. Henni verður fundið húsnæði á Suðurnesjum en lögin taka gildi 1. Desember. Frumvarpið hefur verið gagnrýnt, umfram allt fyrir það að börn skuli vistuð í lokuðu úrræði. En í þinginu var nokkur samhljómur, 42 þingmenn kusu með en restin sat hjá. Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, situr hins vegar ekki hjá í pistli dagsins. Við beinum sjónum okkar svo aftur að ástinni á tímum Tinder og annarra snjalltækja ástarlífsins. Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari er viðmælandi Lóu í þætti dagsins.
  • SORI-manifestó, Njálssaga fyrir börn 09.06.2026 59mnt
    Árið 1967 kom út eitthvað alræmdasta og öfgafullasta rit feministahreyfingarinnar, SCUM manifesto (eða SORI á íslensku) eftir Valerie Solanas. Hún leggur til að öllum karlmönnum verði eytt af jörðinni, en glasafrjóvganir og sjálfvirknivæðing muni viðhalda samfélagi kvenna. Við ræðum bókina við Kristínu Svövu Tómadóttur, sagnfræðing og þýðanda bókarinnar, í bókaklúbbi Lestarinnar. Við ræðum svo um íslenskan sagnaarf og barnamenningu. Við ræðum við Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur um nýja útgáfu hennar af Njálssögu fyrir börn - Njála hin skamma.
  • Hasar og Nýjasta tíska, list og velferð í Klúbbnum 08.06.2026 55mnt
    Örn Gauti er forsprakki og söngvari rokkhljómsveitarinnar HASAR, sem eru nýbúnir að senda frá sér plötu, Nýjasta tíska. Við ræðum pönk, Kalla á þakinu og skeitera á göngutúr um hverfið með Erni Gauta. Listir og velferð er nýtt nám á meistarastigi í Listaháskóla Íslands og nokkrir nemendur í því námi munu standa fyrir dagskrá á morgun í Klúbb Listahátíðar, sem fer fram undir yfirskriftinni Samfélag, listir og líðan. Alexía Björg kom í Lestina, en hún mun leiða leiki í Klúbbnum á morgun.
  • Backrooms, Obession og popplagakrufning 04.06.2026 53mnt
    Við kryfjum slagarann Gleymmérei með Bríeti og KK, lag sem að má svo sannarlega glamra á gítarinn í útilegu í Básum í sumar. Er þetta vel samið kántrý eða kúrekablæti Bríetar komið úr böndunum? Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, ræðir þetta við umsjónarmenn Lestarinnar. Um þessar mundir njóta tvær hryllingsmyndir eftir unga menn mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum. Báðir fengu þeir tækifæri til að gera mynd í fullri lengd eftir að hafa slegið í gegn á Youtube. Myndirnar eru Obsession og Backrooms, en leikstjóri þeirrar síðarnefndu er einungis 20 ára gamall.
  • Björk í Listasafni Íslands, pistill um liti 03.06.2026 54mnt
    Björk Guðmundsdóttir og James Merry opnuðu um helgina sýningu í Listasafni Íslands, Echolalia og Ummyndlingar. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og stendur yfir fram á haust. Við fáum Björk í heimsókn og ræðum við hana um samstarfið við James, sköpunarferlið, umhverfisbaráttu og gervigreind. Svo fáum við heyra nýtt lag með Skröttum, Stressed, og pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem er að þessu sinni að rífast um liti.
  • Kæri fáviti, Patti Smith og Einar Már Jónsson 02.06.2026 57mnt
    Bókaklúbbur Lestarinnar verður í gangi í júní. Fyrsta bókin sem við tökum fyrir er Kæri Fáviti eftir franska rithöfundinn Virginie Despentes. Bókin gerist á internetinu í tölvupóstssamskiptum, og fjallar um Metoo, fíkn, stéttaklifur og ótal margt fleira. Rokkgoðsögnin Patti Smith kom fram í Eldborg í Hörpu um helgina og brunaði svo beint á Akureyri til að spila í Hofi. Við ræðum við Andreu Jónsdóttur, útvarpskonu á Rás 2, um Patti. Einar Már Jónsson sendir okkur pistil frá París.
  • Í beinni á Listahátíð 01.06.2026 54mnt
    Sameiginleg bein útsending Víðsjárog Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Viðmælendur í þættinum eru Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
  • Lestin á Feneyjatvíæringnum 28.05.2026 53mnt
    Við röltum um Feneyjatvíæringinn, eina elstu og vinsælustu myndlistarhátíð heims, sem hófst í byrjun maí. Við kíkjum inn í nokkra þjóðarskála, ræðum við listafólk og hátíðargesti, og veltum fyrir okkur pólitísku hitamálunum.

Populer di

Podcast ini juga muncul di daftar podcast negara-negara ini.