Tengivagninn
RÚV
0
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar. Þættirnir taka á ýmsum menningarviðburðum, listum og skemmtunum sem eiga sér stað á Íslandi. Hver þáttur kynnir áhugaverða viðburði og viðtöl við þátttakendur. Markmiðið er að halda hlustendum upplýstum um menningarlífið yfir sumartímann.
Episode
-
Europe 2031, tomi g og feminísk þýðing á Ódysseifskviðu 05.08.2026 1j 43mntEurope 2031 er skálduð sviðsmynd um framtíð Evrópu ef álfan breytir ekki um stefnu í gervigreindarmálum. Framtíðarsýn höfunda er svört. Evrópa verður vanmáttugur eftirbátur Bandaríkjanna og Kína og Evrópubúar ófærir um að verja gildi sín og viðhalda hinu evrópska velferðarkerfi. En er eitthvað til í þessari framtíðarsýn? Við ræðum málin við Halldóru Mogensen, sem á sæti í vísindanefnd Evrópusambandsins um gervigreind. Við heimsækjum líka unga tónlistarmanneskju sem heitir tomi g og flytjum pistil frá Guðrúnu Úlfarsdóttur um feminíska þýðingu Emily Wilson á Ódysseifskviðu. -
Heimsókn til Maó og kattarins Kókos, Hinsegin dagar, Skálda, lestur 04.08.2026 1j 47mntMaó Alheimsdóttir, skáld, leiðsögumaður, tungumálakennari og kattaeigandi, tekur á móti okkur og kynnir okkur fyrir kettinum sínum Kókos. Kókos er lítil og sæt læða, sem kann best við sig uppi á skáp. Stundum kíkir hún út í garð og leikur sér þar. Hún á sér nokkuð dramatíska upprunasögu, en hefur það ansi gott í dag. Við fáum pistil frá Arndísi Þórarinsdóttur, að þessu sinni er hún að velta fyrir sér lestri í nútímanum. Flettum í dagskrá Hinsegin daga, sem voru settir í dag og ræðum við Önnu Gyðu Sigurgísladóttur og Uglu Stefaníu Kristjönudóttur, sem taka báðar þátt í dagskránni í ár. Kíkjum líka í bókabúðina Skáldu á Vesturgötu og fáum meðmæli frá bóksalanum Einari. -
Megas jarðsunginn, írsk list og Meðan borgin blánar 30.07.2026 1j 28mntÍ dag, 30. júlí, er Magnús Þór Jónsson, jarðsunginn. Að því tilefni ætlum við að minnast hans. Við ræðum við Diddu skáldkonu um Megas, lífið og dauðann. Við ræðum við Jakub Stachowiak um nýja ljóðabók sem kom út hjá Forlaginu í síðustu viku og heitir Meðan borgin blánar. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, listfræðingur, sýningarstjóri og pistlahöfundur fjallar um samband írskrar og íslenskar listar. -
Skriða á Patreksfirði, Barn í skólabíl á Flateyri 29.07.2026 1j 25mntPétur heimsækir Birtu Ósmann prentsmiðjuna og bókaútgáfuna Skriðu á Patreksfirði. Lóa ræðir við Harald Jónsson, myndlistarmann, um verkið Barn, sem var fyrst innsetning í leikskólanum Tjarnarborg í Reykjavík en hefur nú öðlast nýtt líf í gömlum skólabíl á Flateyri. -
Hundalabb með Spessa, Bóksala Stúdenta og tíminn 28.07.2026 1j 18mntLóa hittir ljósmyndarann Spessa og hundinn Múskat í Laugardal. Pétur spjallar við bóksala um glæpasögur, rómantasíur og sumarlestur í Bóksölu Stúdenta. Arndís Þórarinsdóttir flytur pistil um tímann. -
Ódysseifskviða, bútasaumsteppi í Hrísey, bókumbók og menningartengsl Írlands og Íslands 23.07.2026 1j 28mntÍ þætti dagsins förum við til Hríseyjar og ræðum við Dröfn Teitsdóttur, sem var að setja upp sýningu á bútasaumsteppum með myndum af fuglum. Við heimsækjum bókaverslunina Bókumbók í miðborg Reykjavíkur. Kolbeinn Rastrick rýnir í stórmynd Christophers Nolan, Ódysseifskviðu. Við heimsækjum bókabúðina Bókumbók í miðbæ Reykjavíkur og flytjum pistil eftir Þórhildi Tinnu Sigurðardóttur um menningartengsl Írlands og Íslands. -
Þýðandinn Larissa Kyzer, Hómer og hexameter, á rúntinum með borgarstjóra 22.07.2026 1j 19mntLarissa Kyzer er bandarískur bókmenntafræðingur og þýðandi úr íslensku yfir á ensku. Hún hefur þýtt fjölda íslenskra skáldsagna, sem margar hverjar hafa hlotið góðar viðtökur, þar má nefna Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Elínu, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Við hringjum til Brooklyn og ræðum þýðingarvinnuna, hvers vegna hún kemur til Íslands, og erindi íslenskra bókmennta við hinn enskumælandi heim. Svo fáum við annað innslag frá Magnúsi Sigurði Jónassyni, nema í MH, í dag fer hann á rúntinn með borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, og tekur tímann hvað hún er lengi að fá stæði í miðborginni. Við fræðumst einnig um Hómer og kviður hans í tilefni þess að kvikmynd Christopher Nolan, The Odyssey, er nú í bíó. -
Kómedíuleikhúsið, hvaða lag fær þig til að dansa? Og Steven Spielberg 21.07.2026 1j 17mntElfar Logi Hannesson, leikari, rekur Kómedíuleikhúsið í Haukadal, ásamt Marsibil G. Kristjánsdóttur, listakonu, en þau eru einnig hjón. Elfar og Pétur Magnússon ræða leikhúsið, Act Alone, dýrfirskar draugasögur og nýlega endurvakið félag vestfirskra listamanna. En sá félagsskapur fer stækkandi. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, rekur upphafið að ferli Stevens Spielberg, en saga hans er samofin sögu Hollywood. Og svo hlustum við á tónlist sem fær fólk til að dansa. Dagmar Lilja Stefánsdóttir, nemi í versló og dansari, fer um bæinn og spyr fólk þessarar einföldu spurningar: Hvaða lag fær þig til að dansa? -
Leitað að bílastæði, Íslandssaga, gervigreind og Skruggubúð 16.07.2026 1j 19mntÍ dag fer Magnús Sigurður Jónasson í bíltúr með Silju Sóleyju Birgisdóttur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins, til að leita að bílastæði og ræða samgöngumál. Við fáum pistil frá Arndísi Þórarinsdóttur, þar sem hún fjallar um gervigreind. Við ræðum við Jón Kristin Einarsson, doktorsnema í sagnfræði, um nýtt hlaðvarp um sögu Íslands frá landnámi til bankahruns. Að lokum rifjum við upp umfjöllun um Medúsuhópinn og galleríið Skruggubúð. -
K.Óla og ungurorri 15.07.2026 1j 17mntVið tölum við tvo tónlistarmenn í þætti dagsins. Katrín Helga Ólafsdóttir kemur gjarnan fram undir listamannsnafninu K.Óla en hefur líka verið í hljómsveitum á borð við Milhouse og Arfa. Við heimsækjum stúdíóið hennar í Hafnarfirði í fyrri hluta þáttar. Við fáum líka til okkar ungan rappara sem heitir Evald Orri Sæmundsen, kallaður ungurorri. Hann er 17 ára og var að gefa út sína fyrstu plötu. -
Hundalabb með Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Garg 14.07.2026 1j 21mntÍ dag göngum við um Búrfellshraun með Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og hundunum hennar, Bellu og Lottu. Við heimsækjum líka tvo bóksala í bókabúðinni Garg við Hofsvallagötu og ræðum sumarlestur. -
Evrópsk hugmyndasaga, Ellefistar, Sagrada Familia 09.07.2026 1j 28mntHenry Alexander Henrysson er gestur þáttarins í dag. Við ræðum við hann um hugmyndasögu Evrópu, hvað teljast sem evrópskar hugmyndir og eru sameiginlegir þræðir sem binda hugmyndir þessarar álfu saman? Guðrúnu Úlfarsdóttur er tíminn hugleikinn, tímasjónarhornið, Gaudi og Sagrada Familia. Við fáum pistli frá henni um það. Og svo heyrum við raddir frá síðustu öld. Ellefestar, fastakúnnar Ellefunnar, á sjötta áratugnum, lýsa stemmingunni á þessum stað, eftir að honum hafði verið lokað. Laugavegur 11 var samkomustaður listafólks, skálda og háskólafólks, og nokkuð alræmdur staður í huga sumra, en nánast eins og annað heimili margra. Þátturinn er í umsjón Páls Heiðars Jónssonar og er frá 1974. -
Íslenskur grínisti í New York og 17 ára tónsmiður 08.07.2026 1j 23mntÍ þætti dagsins setjumst við niður með Hrannari Björnssyni, sem skrifar sketsa og gerir grín í New York. Hann hélt uppistandssýningu í Reykjavík í síðustu viku og er núna á túr um Bandaríkin með sketsahópnum Tiny Idea. Við ræðum hversdaginn um New York, alternative-grínsenuna í borginni, sketsa, og handritaskrif. Við ræðum líka við Láru Eggertsdóttur, sem er að hefja sitt lokaár í menntaskóla. Hún er bæði í MH og í Menntaskólanum í tónlist, þar sem hún er að læra tónsmíðar. Hún er búin að gefa út tónlist á SoundCloud (hlekkurinn) og Spotify, spila á Prikinu og Kaffibarnum, Hátíðni og Sampl í Iðnó og hefur vakið athygli. Við ræðum tónsmíðarnar, gigginn, fyrirmyndirnar innlendar og erlendar og kannski aðeins um kynjaðar hugmyndir um tónlistarfólk. -
Hundalabb með Ófeigi og Greifa, Kanínuholan mælir með... 07.07.2026 1j 22mntVið höldum upp á Hólmsheiði, lausagöngusvæði fyrir hunda, og hittum þar Ófeig Sigurðsson rithöfund og skuggan hans, Greifa. Greifi er 7 og hálfs mánaðar gamall þýskur fjárhundur, sætur, loðinn og góður. Í hundalabbinu á Hólmsheiðinni ræðum við samband manns og hunds, hvort hundar eigi að sofa uppí og hvort störf þýska fjárhundsins eigi eitthvað sameiginlegt með störfum rithöfundarins. Í síðari hluta þáttarins förum við á stúfana og reynum að fá svör við því hvaða bækur við eigum að lesa í sumar. Við munum heimsækja nokkrar sjálfstæðar bókabúðir og byrjum í Holtunum í Kanínuholunni. Þar tekur á móti okkur bóksalinn og bókaunnandinn, Móeiður Hlíf Geirsdóttir. -
Ástin sem eftir er, sveppir, einleikir og Laxness í Hollywood 14.08.2025 1j 48mntÍ síðasta Tengivagni sumarsins ræðum við Hlyn Pálmason og Anton Mána Svansson um kvikmyndina Ástin sem eftir er, sem frumsýnd er í dag. Katla Ársælsdóttir rýnir í einleiki á Act alone-hátíðinni á Suðureyri, Kolbeinn Rastrick pælir í Hollywood-för Halldórs Laxness og Halla Harðardóttir fer í sveppamó. Tónlist: Ana Lua Caiano - Deixem O Morto Morrer Charlotte Adigéry & Bois Pupul - Blenda -
Dínamískt jafnvægi, stuttbuxur og Safnasafnið 13.08.2025 1j 49mntÍ dag heimsækjum heimsækjum við Þórbergssetur á Hala í Suðursveit og ræðum við Maríu Sjöfn, myndlistarmann, um samsýninguna Dínamískt jafnvægi. Sýningunni er fléttað inn í umhverfi Hala og aðrar sýningar í Þórbergssetri, einna helst fyrirferðamikla sýningu um líf og verk Þórbergs Þórðarsonar. Við fáum líka pistil frá Ásdísi Sól Ágústsdóttur um sumarið og sumarfatnað. Að lokum heyrum við frá heimsókn Tengivagnsins í Safnasafnið við Svalbarðseyri í Eyjafirði. Tónlist úr þættinum: Locust - No one in the world Emilíana Torrini - Heartstopper Amaarae - Girlie-Pop! Oracle Sisters - Marseille -
Pönkplata frá BKPM, Skaftfell og LungA-skólinn á Seyðisfirði, 100 ára afmæli Thors Vilhjámssonar 12.08.2025 1j 51mntMeðlimir post-pönk hljómsveitarinnar BKPM segja frá sinni fyrstu hljómplötu, Bíddu ha? og ræða pönkið, hinsseginleikann og streymisveitur. Við heimsækjum Skaftfell, myndlistarmiðstöð Seyðisfjarðar og LungA-skólann. Synir Thors Vilhjálmssonar segja frá bókinni Og þaðan gengur sveinninn skáld sem gefin er út í tilefni af 100 ára afmæli höfundarins. Maó Alheimsdóttir veltir fyrir sér hafinu bláa og Auður Emilsdóttir les ljóð sitt Orðsifjar, sem bar sigur úr býtum í ljóðasamkeppni Hinsegin daga. Tónlist flutt í þætti: Hayley Williams - Ego Death At A Bachelorette Party The New Eves - Cow Song -
Úr fullkomnu samhengi, endurkoma Of Monsters and Men og Shakespeare í Tjarnarbíó 07.08.2025 1j 48mntÍ dag heimsækjum við sýningarrýmið Verksmiðjuna á Hjalteyri við Eyjafjörð, ræðum við Gústav Geir Bollason og skoðum sýninguna Úr fullkomnu samhengi með verkum Julie Tremble og tvíkeykisins Philippe-Aubert Gauthier og Tönyu St-Pierre. Við bregðum okkur líka í Tjarnarbíó og spjöllum við tvo nýútskrifaða leikara sem setja upp leikrit eftir William Shakespeare í leikhúsinu. Svo setjast hjá okkur Nanna Bryndís og Ragnar, meðlimir hljómsveitarinnar heimsfrægu Of Monsters and Men, sem gáfu út nýtt lag í dag og eru á leiðinni á túr með nýja plötu. Tónlist: Of Monsters and Men - Television Love Of Monsters and Men - Ordinary Creature Of Monsters and Men - Dirty Paws Obongjayar - Holy Mountain Cornelia Murr - Different this time -
Venus í Ásmundarsal og Flóra, Hringmyrkvi og söfnin á Húsavík 06.08.2025 1j 42mntBjartey Elín Hauksdóttir og Anna Guðrún Tómasdóttir segja frá danssýningunni Venus sem þær undirbúa og sýna í Ásmundarsal á næstunni. Við heimsækjum sýningu byggða á dómi Guðmunds Sigurjónssonar glímukappa í Safnahúsinu á Húsavík, fáum leiðsögn um safnið og kynnumst starfsemi Flóru menningarhúss á Akureyri. Helga Lára Þorsteinsdóttir fjallar um Hringmyrkva, listasýningu í Síldartönkunum á Raufarhöfn. Tónlist flutt í þætti: Anna Erhard - Botanical Garden Inspector Spacetime - Catch planes Saskia - Shine A Light -
GIV MÍ TYGGIGÚMMÍ, Ljóðaunnendur á Austurlandi og Steinunn Eldflaug Harðardóttir 05.08.2025 1j 53mntVið heimsækjum tónlistarkonuna Steinunni Eldflaug Harðardóttur, sem einnig er þekkt sem DJ Flugvél og Geimskip, í hljóðver hennar á Grandanum. Við ræðum við Magnús Stefánsson, formann félags ljóðaunnenda á Austurlandi um ljóðlistina og nýjustu útgáfur félagsins á austfirskum ljóðum. Við lítum komum við á Korpúlfsstöðum í Mosfellsveit þar sem fyrsta einkasýning Ingibjargar Rannveigar Guðlaugsdóttur, 86, stóð yfir um helgina. Sýningin ber heitið GIV MÍ TYGGIGÚMMÍ og sýningarstjórinn er Silfrún Una Guðlaugsdóttir, sonardóttir Ingibjargar. Tónlist úr þættinum: Dj. Flugvél Og Geimskip - Zosimos Nino Rota - Mi ha anche dato 10,000 lire... Yma Sumac - Chuncho Martin Denny - Quiet Village Dj. Flugvél Og Geimskip - Hjari veraldar Dj. Flugvél Og Geimskip; Skuggasveinn - Náttdrottning Hlökk - Mosagræna
Populer di
Podcast ini juga muncul di daftar podcast negara-negara ini.