Heimsborgarar

Heimsborgarar

Hljóðkirkjan
アイスランド
ジャンル Society & Culture, Places & Travel
言語 IS
エピソード数 7
最新 05.06.2026

Við ferðumst mikið. Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn. En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar. Við höfum burrito í matinn, borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt og horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn. Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi. Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi, þar sem Baldur og Haukur skoða allt sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.

エピソード

  • #6 Þrjár ferðir til fjár 05.06.2026 1時間 25分
    Heimsborgarar flugu út í heim — og svo aftur til baka með öll koffort stútfull af góssi og góðum minningum. Einnig er kynntur til sögunnar nýr dagskrárliður: Útsláttarkeppni þjóðsöngva!Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
  • #5 Biðin langa 22.05.2026 1時間 10分
    Á eldfjallaeyjunni Tanna í Suður-Kyrrahafi hefur hópur fólks beðið í næstum heila öld eftir heimsókn frá dularfullum dáta að nafni John Frum. Eða var það Broom?
  • #4 Ófreskjan og einræðisherrann 08.05.2026 1時間 19分
    Hvað gerir vitfirrtur þjóðarleiðtogi þegar kvikmyndaiðnaðurinn í ríki hans er í niðursveiflu? Jú, hann auðvitað rænir kvikmyndaleikstjóra frá nágrannaríkinu og pínir hann til að leikstýra sjö kvikmyndum í fullri lengd á tveimur árum. Heimsborgarar fjalla um þetta glórulausa plan, sem þér er að sjálfsögðu meira en velkomið að tjá þig um í Heimsborgarar - Umræðuhópur.
  • #3 Landsleikur! 24.04.2026 1時間 37分
    Hvernig verða lönd til? Jú, með slembivali á internetinu auðvitað. Heimsborgarar fara í sinn fyrsta „landsleik“ og reyna að fá úr því skorið hvort landið sé betra – Haukstópía eða Baldland.Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.
  • #2 Bobbi í Berlín 24.04.2026 1時間 5分
    Þjóðverjar eru þekktir fyrir vandvirkni, verkvit og stundvísi. Einhvern veginn klikkaði þetta samt allt þegar ákveðið var að byggja nýjan flugvöll í Berlín eftir fall múrsins 1989. Baldur leiðir okkur í gegnum söguna af þessu ævintýralega klúðri, sennilega því næstvandræðalegasta í sögu Þýskalands.Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.
  • #1 Skepnuskapur 10.04.2026 1時間 30分
    Heimurinn er fullur af alls konar framandi furðuskepnum, en við Íslendingar fengum öll lélegu dýrin. Í þessum fyrsta „alvöru“ þætti Heimsborgara ræða þeir Baldur og Haukur um það hvernig fríska mætti upp á íslensku dýraflóruna. Afsakið ... fánuna.Umræður eru velkomnar í Heimsborgarar – Umræðuhópur.
  • #0 Velkomin í heiminn 09.04.2026 42分
    Heimsborgarar! Hvað er nú það? Í þessum fyrsta þætti, sem við flokkum sem þátt númer núll, ætlum við að gera okkar besta til að útskýra það fyrir ykkur. Það er ekkert víst að það takist, en leyfið okkur að reyna.Annars megið þið líka spyrja að nokkurn veginn hverju sem er inni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.

人気の国

このポッドキャストはこれらの国のポッドキャストチャートにも登場します。