Stílbrot
Maya & Andrea
0
Stílbrot er hlaðvarp þar sem tvær vinkonur til 25 ára með enn lengri bakgrunn úr tískubransanum leyfa hlustendum að skyggnast bakvið tjöldin. Farið er yfir tískuna og trendin, vináttuna, þráhyggjurnar og bransann sem þær lifa og hrærast í alla daga. Þátturinn er unninn í samstarfi við Blue Lagoon Scincare, Vitamin Well, Mercedes Benz, Emmessís og GIGGÓ.
Epizodai
-
#19 - Hot or not, Aldís Páls & RHOBH update 29.05.2026 1val 13minÞáttur 5 í seríu 2. Við fáum Aldísi Páls ljósmyndara og verslunarstjóra Evu á Laugavegi í spjall og boy hefur hún frá mörgu skemmtilegu að segja. Andrea fer yfir skemmtilegar staðreyndir um RHOBH og áframhaldið á þeim. Maya er með tuðhornið á sínum stað og nú er farið yfir opnunartíma sundlauga og lokanir þeirra á sumrin. Er eitthvað meira pirrandi? Vara vikunnar er Sumarísinn frá Emmessís - guð minn góður hvað hann er góður!! Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson
-
#18 - Trend fyrir tilefni, draumadagur, Maya 🐸 Andrea 🐈 og tuðhornið 22.05.2026 1val 3minÞáttur 4 í seríu 2 Maya & Andrea fara yfir trendin fyrir öll tilefnin framundan eins og útskriftir og brúðkaup. Þær fara yfir Swatch x Ap maníuna sem er nýgengin yfir og fara aðeins yfir hvað gekk þar á. Maya fer í taste test og Andrea segir frá því þegar hún bað Chat að lýsa okkur sem dýrum og það má segja að Maya hafi ekki verið glöð með þær niðurstöður. Draumadagurinn er negldur niður og tuðhorn Mayu hækkar aðeins blóðþrýstinginn hjá henni. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís GIGGÓ Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#17 - "Carpool" með Önnu Margréti, Met gala, afbrýðisemi & hantaveiran 15.05.2026 1val 1minMaya og Andrea fara í "carpool" með Önnu Margréti sem vinnur hjá Almannarómi við PR og marketing. Hún rekur sína einnig sína eigin stofu Altso og sérhæfir sig í almmanatengslum og vann lengi hjá H&M í Noregi og Svíþjóð við almmannatengsl. Hún hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Maya fer yfir nýja þætti sem hún er að horfa á og þær fara aðeins yfir Met gala. David Attenborough er 100 ára og má gera Lego. Hantaveiran aðeins rædd og er Benji Barnes Jeff Bezo?? Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson
-
#16 - The Devil Wears Prada, Mother, dagbókarblæti & endalaus "viskubit" 08.05.2026 1val 4minÞáttur 2 í seríu 2. Maya & Andrea fara yfir The Devil Wears Prada 2 myndina og markaðssetninguna á myndinni sem er svokölluð "multi-stack-branding" og er einstaklega áhugaverð. Þær fara yfir vöru vikunnar sem dásamlega varan BL+ Cleansing Balm sem var að koma á markað. Mother á tiktok er rædd - if you know, you know. Tuðhorn Mayju um sumarfríið endalausa í skólunum og Andrea ræðir dagbókarblæti sína og furðar sig á dagbókarleysi Mayu. Svo er mál málanna - öll "viskubitin" sem við þjáumst af en þau eru endalaus. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Nói Síríus Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson
-
#15 - Anna Fríða, markaðsbrellur, kosningasvindl & afsláttarkóði 01.05.2026 1val 9minÞá er hafin sería 2 af Stílbrot. Stílbrot fær sinn annan gest í settið og er það engin önnur en Anna Fríða Gísladóttir framkvæmdarstjóri markaðssviðs Nóa Síríus. Ótrúlega skemmtilegt að spjalla við hana um bransann og tísku. Maya segir frá þegar hún fann þýfi í garðinum og ásakar Andreu um að svindla í könnunum. Við förum yfir sögu markaðssmála og vel heppnaðar markaðsbrellur og eins nokkrar sem fóru illa. Spurning vikunnar á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Nói Síríus Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sá Ylva Þórsdóttir Planman um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson
-
#14 - Elísabet Gunnars, MJ king of pop & facebook stadusar 24.04.2026 1val 9minMaya & Andrea fá Elísabetu Gunnars í heimsókn sem segir okkur frá lífinu í útlöndum og sínum uppháldsflíkum meðal annars. Förum yfir sögu Michael Jackson og spurjum manst þú hvar þú varst þegar MJ dó? Förum yfir "hot take" áfram sem eru fermingarveislurnar góðu. Gamlir facebook stadusar rifjaðir upp og við spyrjum okkur hvað ætli hafi verið að manni?? Spurningar vikunnar á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Optical Studio Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#13 - 80's, Power dressing & overpackers 17.04.2026 52minMaya & Andrea fara yfir 80´ tískuna og trendin, tónlistina og kvikmyndirnar. Þær fara vel yfir power dressing og hvort maður fái öðruvísi þjónustu eftir því hvernig maður er klæddur. Fara yfir Bieberchella og heitar umræður um skemmtanagildi fermingarveislna. Einnig ber á góma ást Mayu á Grétari Örvars og símtalið heim til hans í den. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#12 "Coco Chanel, sumartískan & skyndihjálp" 10.04.2026 51minMaya og Andrea fara yfir sögu Coco Chanel sem hefur haft einna mest áhrif á tísku samtímans. Þær fara vel yfir sumartískuna og afhverju gulur er litur páskanna. Skyndihjálp ber á gómana og segja þær sögur af near death experience í Berlín. Vara vikunnar er Blue Lagoon skinscience augnserumið sem er einhver mesta snilldarvara í heimi að okkar mati. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
# 11 "Signý á Óskarnum, Rachel Zoe og útilegu wannabe" 03.04.2026 1val 5minStílbrot kynnir nýjan lið og fær fyrsta gestinn sinn í settið til sín en við munum af og til fá gesti til okkar til að ræða hinar ýmsu hliðar tískubransans. Fyrsti gesturinn okkar er hún Signý Björg en hún er ljósmyndari og stafrænn hönnuður sem hefur búið erlendis síðustu 20 ár og unnið fyrir stór stúdíó í gegnum tíðina. Hún hefur farið fjórum sinnum á Óskarinn og gefur okkur innsýn í þennan heim frá öðru sjónarhorni en við sjáum. Við fjöllum einnig um stílistann Rachel Zoe sem er þessa dagana að slá í gegn í RHOBH og förum yfir ferilinn hennar. Maya fer yfir útilegusögu sem endaði illa og þrá hennar að vera hlaupagella. Tölum meira um Kennedy og förum yfir þráhyggjur og slúður eins og venjulega. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#10 "Hippar, málshættir & maski" 27.03.2026 56minAndrea spyr Mayu út í ferilinn í London og spyr hana spurningu sem hún getur ekki svarað. Við tölum um hippatískuna og allt sem er svo fallegt við hana og það tímabil enda friðarsinnar sér á ferð. Förum yfir slúður í Hollywood og að sjálfsögðu eru þráhyggjur á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#9 "Frú Vigdís, Óskarinn & Facebook grúbbur" 20.03.2026 1val 2minMaya spyr Andreu út í brúðarkjóla sem hún hefur hannað og við heyrum skemmtilegar sögur í kringum þá og hennar eigin brúðarkjól. Við tölum um Frú Vigdísi og hversu þakklátar við erum að hafa alist upp með hana sem fyrirmynd og forseta Íslands. Förum að sjálfsögðu yfir klæðnaðinn hennar og glæsilegheit einnig. Mayu verður heitt í hamsi að ræða bílastæðamál miðbæjar RVK og farið er vel yfir tískuna á Óskarnum. Blæti Mayu fyrir Facebook grúbbum ber einnig á góma. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#8 "Princess Di & basic er best" 13.03.2026 57minMaya & Andrea taka fyrir Díönu prinsessu og áhrifin sem hún hafði á tískuna. Þær fara yfir á hverju stóru tískuhúsin eru að búa til peningana sína og hvernig tískuhúsin og merkin lokka mann inn á fallegum en ópraktískum vörum sem fáir kaupa. Vangaveltur um raunveraleikasjónvarp og hvor þeirra eiga að fórna sér í það verkefni þar sem ákall er um slúður frá því. Spurning vikunnar og þráhuggjurnar aldrei langt undan. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#7 "90´s Love Story & Kate Moss" 05.03.2026 1valAndrea og Maya fara yfir 90´s minimalism sem er allsráðandi í þáttunum Love Story sem fjallar um ástarsögu JFK jr og konu hans Carolyn Bessette. Farið er yfir þetta skemmtilega tímabil í tísku og stiklað á stóru hvað þessi áratugur hafði upp á margt skemmtilegt að bjóða. Farið er yfir sögu Kate Moss sem skaust uppá stjörnuhimininn eftir hina alræmdu Calvin Klein auglýsingar með Mark Wahlberg. Spurning vikunnar, slúðrið og þráhyggjurnar alltaf á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#6 "Hip Hop, ljótumyndir & gúmmístígvél" 27.02.2026 56minAndrea og Maya fara yfir hvernig Hip Hop hefur mótað tískuna í gegnum árin og afhverju það sé að íslendingar klæða sig síður eftir veðri en nágrannaþjóðir okkar. Þær fara yfir ljótumynda-albúmið hennar Andreu og spurt er fyrir hvern við klæðum okkur. Slúðrið og þráhyggjurnar alltaf á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#5 "Áttavilt & klæðaburður í breyttum aðstæðum" 20.02.2026 43minMaya og Andrea fara yfir hvernig við klæðum okkur öðruvísi í breyttum utanaðkomandi aðstæðum. Þær velta því líka fyrir sér hvort einhver nái að vera áttaviltari en Maya. Slúðurhornið og þráhyggjurnar á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Scincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Stúdíó og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#4 "Loddaralíðan & PIP brjóstapúðar" 13.02.2026 53minMaya og Andrea ræða um loddaralíðan og PIP brjóstapúða. Spurning vikunnar og þráhyggjurnar eru á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Stúdíó og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#3 "Tískuvika & mammviskubit" 06.02.2026 42minAndrea og Maya fara yfir nýafstaðna tískuviku í Kaupmannahöfn, mammviskubitið og þráhyggjurnar góðu. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Stúdíó og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
# 2 "Tískan fer í hringi" 29.01.2026 1valAndrea og Maya ræða til dæmis hvernig þær byrjuðu báðar á gólfinu, þjónustu í verslunum og tískuna sem fer hring eftir hring. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Stúdíó og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
-
#1 "Tik Tok trends" 23.01.2026 53minStílbrot er hlaðvarp þar sem tvær vinkonur til 25 ára með enn lengri bakgrunn úr tískubransanum leyfa hlustendum að skyggnast bakvið tjöldin. Farið er yfir tískuna og trendin, vináttuna, þráhyggjurnar og bransann sem þær lifa og hrærast í alla daga. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Stúdíó og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.
Populiari šalyje
Ši tinklalaidė taip pat patenka į šių šalių tinklalaidžių topus.