Út að hlaupa

Út að hlaupa

Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson
Šalis Iceland
Žanrai Sports, Running
Kalba IS
Epizodų 128
Naujausias 27.05.2026

Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!

Epizodai

  • #125 Þú fokkar ekki í landsliðinu! 27.05.2026 1val 40min
    Andrea Kolbeins mætti í Bose stúdíóið í dag og gerði upp Golden trail ferðina á Ítalíu. Við tókum hlaupauppgjör síðustu hlaupa á íslandi og svöruðum spurningum úr sal! 
  • #124 Tove Tvennan! 18.05.2026 1val 34min
    Tove Alexanderson mætir í Laugarveginn, stærstu fréttir ársins! Gerðum upp hlaup síðustu daga hér heima og snertum á Zegama veislunni miklu. 
  • #123 Búinn að krakka hlaupin! 13.05.2026 1val 29min
    Allt það helsta á dagskrá úr Bose stúdíóinu að vanda. Uppgjör á öllu því helsta úr hlaupum hérlendis og erlendis.
  • #122 Bolirnir mættir! 08.05.2026 1val 22min
    Við strákarnir mættum í Bose stúdíóið til að gera upp Puffin run og Trabuco trail. Við heyrðum í Elísu og fengum prerace skýrslu frá La Palma og fórum yfir það sem framundan er í hlaupasenunni um heim allann! 
  • #121 Puffin run upphitun! 29.04.2026 1val 19min
    Uppgjör síðustu hlaupa, Víðavangshlaup ÍR, Vecct Mílan, Vormaraþonið og hið ótrúlega London maraþon. Upphitun fyrir Puffin run og góð ráð til fellow hlaupara inn í sumarið! 
  • #120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli! 28.04.2026 1val 34min
    Magnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo margt margt fleira. Maggi er rosalega fróður á sínu sviði, algjör skyldu hlustun fyrir alla hlaupara landsins!
  • #119 Gott hugarform! 22.04.2026 1val 33min
    Nú er komið að því að hleypa af og blasta vetrarforminu því Víðavangshlaup ÍR er í fyrramálið! Við fengum hlaupadrottninguna Andreu Kolbeins í Bose stúdíóið til að fara yfir fyrstu keppni sumarsins! 
  • #118 Apríl þrennan! 09.04.2026 1val 13min
    Í þættinum í dag ræddum við um komandi hlaup hér heima. Við fengum skýrslu frá Guðmundi í Vecct, fórum yfir orðabók hlauparans, ræddum beinar útsendingar í hlaupum á Íslandi og ræddum Evrópumet í götuhlaupi! 
  • #117 Konur í íþróttum með Láru Hafliða! 31.03.2026 1val 17min
    Hin sprenglærða Lára Hafliðadóttir kíkti á okkur í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um konur í íþróttum (aðallega hlaupum). Lára er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun KSÍ-B þjálfaragráðu. Hún er í doktorsnámi í líkamlegri þjálfun knattspyrnukvenna. Lára sérhæfir sig í mælingum, álagsstýringu, styrktar- og þolþjálfun og hefur kennt á KSÍ þjálfaranámskeiðum sem leiðbeinandi með KSÍ A leiðbeinendagráðu. Hún starfar sem fitnessþjálfari meistaraflokks kvenna Víkings og U23 landsliðs kvenna, sinnir rannsóknum við Háskólann í Reykjavík og kennir íþróttavísindi við grunnskólann NÚ. Lára hefur margra ára reynslu í líkamlegri þjálfun og knattspyrnu, bæði sem þjálfari og leikmaður yngri landsliða Íslands.  
  • #116 DNF aftur elskan mín? 27.03.2026 51min
    Chianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur! ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun!  15 mín upphitun 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti með 2 mín rólegu á milli setta Tekið á zone 3 ákefð og farið upp í zone 4, byrja frekar of hægt en of hratt. Halla æfingar eru erfiðar, byrja rólega og sá hraði getur verið orðinn erfiður í lokin. Byrjar í 9% halla í 3 mín, 6% halla í 3 mín og svo 3% halla í 3 mín. Eykur hraðann eftir því sem brettið hallar minna þannig að ákefðin sé alltaf sú sama. 15 mín niðurskokk
  • #115 Tilbúinn að slá Íslandsmet! 20.03.2026 55min
    Við fengum glóðvolga skýrslu út partýbílnum í Flórens. Sá var ekki illa skipaður, Andrea, Elísa, Gréta og Raggi á rútunni ræddu við okkur um Chianti sem fram fer um helgina. Einnig heyrðum við í Hlyni Andréssyni sem ræddi við okkur um nýjasta Íslandsmetið sitt, puffin run og næstu áskorun sína sem er heilt maraþon í Hannover! 
  • #114 Orðlaus á Azores! 19.03.2026 1val 11min
    Hugleiðingar, hlaupauppgjör síðustu hlaupa, íslandsmet og endurkomur. Glóðvolg skýrsla frá Azores eyjum. Hvað viljið þið meira?
  • #113 Winter is where it starts! 26.02.2026 59min
    Við Út að hlaupa bræður fórum yfir síðustu æfingar og það sem framundan er. Heyrðum í Arnari Péturs sem er að undirbúa sig fyrir 100 km hlaup í Slóveníu eftir mánuð og fórum yfir góð ráð fyrir þá sem vilja ná árangri!
  • #112 Spikfeitur Latsi - Return of the king! 18.02.2026 1val 50min
    King Latsi mætti í Bose stúdíóið og lokaði næringarþríleiknum stóra með spikfeitum þætti um fitu! 
  • #111 Kóngamove að vera með rennt frá! 14.02.2026 1val 5min
    Við ræddum landsliðsvalið fyrir EM í Kamnik, fórum yfir síðasta powerade, vorum með spikfeitann Strava lið og fórum yfir góð ráð hvað varðar næringu fyrir stóru keppnina þína! 
  • #110 Strava, snilld eða kvíðavaldandi montsíða? 03.02.2026 1val 4min
    Fengum sjóðandi hot takes úr hlaupaheiminum frá Árdísi Ilmi, fórum yfir síðustu hlaup og ræddum spennandi keppnir framtíðarinnar! 
  • #109 Hjólahjónin mætt í hlaupaskóna! 27.01.2026 1val 48min
    Ágústa Edda Björnsdóttir og Eyjólfur Guðgeirsson mættu til okkar í Bose stúdíóið og ræddu það hvernig umbreyting úr hjólara yfir í hlaupara á sér stað, gáfu hlaupurum frábær ráð varðandi það að æfa á hjóli og rifjuðu upp stórskemmtilegar keppnissögur frá ferlinum! 
  • #108 Hlaup, mikilvægasti hlutur í heimi sem skiptir engu máli! 21.01.2026 1val 13min
    Við fengum skýrslu frá Gurru Magg, ræddum Youtube rás Út að hlaupa og framhaldið þar, ræddum kórónusjúka Elísu á Tene og fórum yfir heilræði frá Zach Miller! 
  • #107 Smart íslandsmet 12.01.2026 47min
    Mættir aftur í Bose stúdíóið eftir dvöl erlendis. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima og erlendis. Ræddum ótrúlegt íslandsmet Baldvins í Valencia, fórum yfir góð ráð hvernig best er að æfa yfir vetrartímann og slóum á hina margfrægu léttu strengi! 
  • #106 Hlaupaannállinn mikli 2025! 30.12.2025 2val 17min
    Marteinn fékk Guðfinnu og Bibbu til að gera upp hlaupaárið með sér. Þau fóru um víðan völl, ræddu meðal annars samfélagsmiðla, hlaupasumarið, spáðu fyrir tímabilinu 2026 og slógu á rosalega marga létta strengi, enda enga þunga strengi að finna í Bose stúdíóinu! 

Populiari šalyje

Ši tinklalaidė taip pat patenka į šių šalių tinklalaidžių topus.