Popparasögur

Popparasögur

Vignir Egill Vigfússon
Šalis Islandija
Kalba IS
Epizodų 13
Naujausias 14.07.2026

Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.

Epizodai

  • #20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir 14.07.2026 50min
    Flestar hljómsveitir verða vinsælar eftir að lag frá þeim slær í gegn í útvarpi eða á streymisveitum. En Stuðlabandið fór aðra leið. Í stað þess að byggja ferilinn á útvarpsspilun og vinsælum lögum hefur hljómsveitin skapað sér sterkt orðspor sem ein allra besta sveitaballahljómsveit landsins. Frá fyrstu æfingum í bílskúr í Ölfusi, þar sem unga stráka dreymdi um það að verða eins og Skítamórall, SSSól og Sálin hans Jóns míns, hefur leiðin legið á stærstu svið landsins. Í dag er Stuðlabandið ein þekktasta hljómsveit þjóðarinnar og fastur liður á hátíðum eins og Þjóðhátíð, Lopapeysunni og Kótelettunni. En á bak við gleðina, sviðsljósið og stóru augnablikin er saga um metnað, þrautseigju og vinnusemi. Í þessu viðtali ræða þeir Marinó G. Lillendahl og Magnús Kjartan Eyjólfsson um ferðalagið frá bílskúrnum að stærstu hátíðum landsins, breytingar á sveitaballamenningunni, kraftinn í lifandi tónlist og hvernig bandið hélt áfram eftir að Magnús greindist með krabbamein árið 2024.  Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita 07.07.2026 54min
    Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð. Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir, Land og synir og Sólstrandargæjarnir. Auk þess verða margs konar viðburðir í bænum í vikunni fyrir Bræðsluna. Í þessum þætti verður rætt við Magna Ásgeirsson, heimamann og einn af stofnendum og skipuleggjendum Bræðslunnar, um hvernig hátíðin varð til, hvernig hún hefur þróast í gegnum árin og hvernig hún hefur haldið í sinn einstaka anda þrátt fyrir sívaxandi vinsældir. Við förum yfir undirbúninginn fyrir hátíðina í ár, hvernig dagskráin verður til og hvað þarf að gerast áður en fyrstu tónarnir hljóma í gömlu bræðslunni. Við rifjum upp eftirminnileg tónlistaratriði, ræðum áhrif Bræðslunnar á samfélagið á Borgarfirði eystri, lítum á dagskrá ársins og veltum fyrir okkur framtíð hátíðarinnar. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar 30.06.2026 1val 1min
    Einar Björnsson hefur verið viðloðinn íslenskt tónlistarlíf í næstum 40 ár og óhætt að segja að hann hafi unnið með flestu, ef ekki öllu, vinsælasta tónlistarfólki landsins á þessum tíma. Hann var aðeins 17 ára gamall þegar Björgvin Halldórsson heitinn gaf honum tækifæri sem hljóðmaður og þar með var leið hans í lífinu ákveðin. Síðan þá hefur hann stýrt hljóði fyrir flestar af stærstu hljómsveitum Íslands, séð um tæknimál á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í rúman aldarfjórðung, átt hljóðkerfaleigu, skemmtistað, útvarpsstöð og nú síðast setti hann af stað tónlistar- og matarhátíðina Kótelettuna á Selfossi sem er orðin ein best sótta tónlistarhátíð landsins á hverju ári. Einar ræðir hér áratugalanga reynslu sína úr íslenska tónlistarbransanum, gullöld sveitaballanna, og hvernig bransinn hefur breyst með nýjum tíma, breyttum venjum og stærri viðburðum. Hann fer yfir tíma sinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og segir frá stofnun Kótilettunnar á Selfossi og hvernig fyrsta hátíðin varð til á aðeins 11 dögum. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #17 | Botnleðja og engar málamiðlanir 23.06.2026 57min
    Það hafa fáar íslenskar hljómsveitir komið inn á íslenskan tónlistarmarkað með jafn miklum látum og Botnleðja gerði árið 1995. Það ár sigruðu þeir Músíktilraunir og gáfu út plötuna Drullumall og hvort tveggja vakti verðskuldaða athygli. Rúmum 30 árum og fjölmörgum plötum síðar eru strákarnir úr Hafnarfirði enn að, og nú stíga þeir aftur á svið á heimavelli sínum í Bæjarbíói, í Hjarta Hafnarfjarðar. Í þættinum á eftir ræða Halli og Heiðar um upphaf Botnleðju og sigurinn í Músíktilraunum, fyrstu árin og viðhorfið til tónlistarbransans, óvænt kynni og tónleikaferð með Blur, samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands, tilraunir erlendis og útgáfu á ensku, Eurovision-ævintýrið og hvernig málamiðlanir, eða skortur á þeim, hafa mótað ferilinn, mögulega nýja plötu og tónleikunum í Bæjarbíói. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #16 | Greifarnir og síðasta sveitaballið 16.06.2026 40min
    Árið 2026 voru 40 ár síðan hljómsveitin Greifarnir sigraði Músíktilraunir og varð á skömmum tíma ein vinsælasta hljómsveit landsins. Stuttu síðar kom lagið Útihátíð út og varð allra vinsælasta lagið á Íslandi það sumar. Greifarnir ferðast nú um landið á tónleikaferðalagi eða sveitaballaferðalagi sem þeir kalla Síðasta sveitaballið. Í þessum þætti tala þeir um hvernig sveitaballa- og tónlistarbransinn hefur breyst á síðustu 40 árum, sigurinn í Músíktilraunum 1986 og hvernig hann breytti lífi þeirra á skömmum tíma, fyrstu árin, mikla spilamennsku, kostnaðinn við frægðina, áhrif hennar á fjölskyldu- og einkalíf, vinsælustu lög sveitarinnar, endurkomuna árið 1995, um pressuna sem fylgdi vinsældunum og framtíð Greifanna eftir þetta sumar. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #15 | Sigurður Guðmundsson og maðurinn með marga hatta 09.06.2026 1val 6min
    Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson er svo sannarlega maður margra hatta. Hann er söngvari, píanóleikari, gítarleikari, bassaleikari, upptökumaður, laga- og textahöfundur og eflaust margt fleira. Hér á eftir talar hann um hljómsveitirnar sínar, Hjálma, Góss, Mefismafíuna, Senuþjófana og fleiri. Hann segir frá samstarfinu með Megasi, Sigríði Thorlacious, Braga Valdimar og fleirum. Hann segir líka frá því hvernig hann fór til Ítalíu til að læra ljósmyndun en endaði sem tónlistarmaður á Íslandi, hvernig það er að vera tónlistarmaður á Íslandi og fer yfir ferilinn. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #14 | Haraldur Ari og leiðin frá Retro Stefson í sólóplötu 02.06.2026 44min
    Haraldur Ari Stefánsson sló í gegn með hljómsveitinni Retro Stefson. Hann hefur síðan getið sér gott orð sem leikari og mun gefa út sína fyrstu sólóplötu í haust. Í þessum þætti talar hann um tímann sinn með Retro Stefson, tímabilið sem þau bjuggu í Berlín, lokatónleikana, come-back, sviðsframkomu, ferðalögin um Evrópu, leikhúsið, söngleikina, áhrifavaldana, áskoranirnar, sólóplötuna, framtíðina og fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila 27.05.2026 1val 4min
    Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist allt frá því hann sló í gegn með plötunum Lucky One og Bein leið, snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Hann varð nýverið 70 ára og hefur verið að fagna þeim áfanga með tónleikum víða um land að undanförnu og mun gera það út árið. Í þessu spjalli segir hann frá því þegar hann þróaðist úr því að vera Kristur á Frakkastígnum yfir í það að vera KK. Frá buskinu í Skandinavíu, frá Vegbúanum, KK-bandinu, vináttunni og samstarfinu við Magga Eiríks, blúsinum, áhrifum í tónlist, ferðalögunum, samstarfinu við unga fólkið og mörgu fleira.Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #12 | Hrafn Thoroddsen og mæting er bæting 12.05.2026 48min
    Hrafn Thoroddsen hefur farið víða á síðustu rúmlega 30 árum í íslensku tónlistarlífi og verið í hljómsveitum eins og Ensími, Jet Black Joe og Warmland, Hérna segir hann frá því hvernig hann hætti í skóla 19 ára gamall eftir að hafa gengið til liðs við Jet Black Joe, þegar hann fór sveitaballarúntinn með Helga Björns og SSSól, stofnaði Ensími sem hann hefur verið í forsvari fyrir í 30 ár, upptökurnar með Steve Albini, samstarfið við Bubba, spillerí með Egó, túrana erlendis með Barða í Bang Gang, dúettinn Warmland, sólóplöturnar, Heima með Helga og margt fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #11 | Erna Hrönn og að taka stjórn á eigin lífi 05.05.2026 59min
    Erna Hrönn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu 20 ár. Henni hefur verið lýst sem ríkisbakrödd, hún hefur tekið þátt í 60 lögum í undankeppni Eurovision, tvisvar sinnum tekið þátt í keppninni sjálfri og syngur núna 80´s lög um land allt með hljómsveitinni Hr. Eydís svo fátt eitt sé nefnt. Hér fer hún yfir ferilinn og hvernig henni hefur aldrei liðið betur eftir að hafa tekist á við andlega og líkamlega erfiðleika. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #10 | Skálmöld og Börn Loka 28.04.2026 48min
    Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um samstarfið við Sinfó, sögurnar, textana, aðdáendurnar, samstarfið, framtíðina, mögulega plötu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #9 | Skálmöld og ótrúleg byrjun 28.04.2026 40min
    Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um e-mailið sem kom þessu af stað, fyrstu tónleikana, tónleikaferðirnar, markaðssetningu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #8 | Jónas Sig og Hafið er svart 21.04.2026 45min
    Þriðji og síðasta hluti viðtalsins við Jónas Sig.   Hér er rætt um hans langvinsælasta lag, Hafið er svart, hljómsveitina Dranga, Áhöfnina á Húna, tónleikamaraþon, Milda hjartað, textana, sögumanninn og nýju plötuna sem kemur vonandi út á þessu ári.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #7 | Jónas Sig og leiðin aftur á toppinn 21.04.2026 55min
    Annar hluti af þremur í viðtalinu við Jónas Sig.   Hérna segir hann frá leiðinni aftur á toppinn. Hvernig hann þurfti að takast á við sjálfan sig, fyrstu tónleikaferðinni um Ísland, lögin sem urðu til, Ritvélum framtíðarinnar og mörgu fleiru.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #6 | Jónas Sig og endurkoma Sólstrandargæjanna 14.04.2026 44min
    Jónas Sigurðsson hefur verið mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi.   En áður, fyrir rúmum 30 árum, sló hann í gegn með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum og þá sérstaklega laginu Rangur maður. Sú hljómsveit spilaði síðast saman árið 2001 en ætlar að koma saman á ný á Bræðslunni í sumar.Þetta er fyrsti hluti af þremur af viðtalinu við Jónas.Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #5 | Guðrún Árný Karlsdóttir 07.04.2026 1val 3min
    Guðrún Árný Karlsdóttir hefur verið ein vinsælasta söngkona landsins undanfarna áratugi. Hérna ræðir hún um Sing-Along, Söngkeppni framhaldsskólanna, Eurovision, Brekkusönginn, jarðarfarir, plöturnar sínar, tónmenntakennslu, framtíðina og fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon  
  • #4 | Hreimur Örn og endurkoma Lands og sona 02.04.2026 59min
    Seinni hluti viðtalsins við Hreim í Landi og sonum.Hérna ræðir hann um það fer að hægjast um hjá Landi og sonum, hvernig hann þurfti að enduruppgötva sig sem tónlistarmann, Þjóðhátíðarlögin og fyrstu viðtökunum á laginu Lífið er yndislegt, vinamissi og endurkomu Lands og sona í sumar.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #3 | Hreimur Örn og ævintýri í Bandaríkjunum 02.04.2026 59min
    Hreimur Örn Heimisson, Hreimur í Landi og sonum, hefur farið víða á sínum tónlistarferli.Í þessum fyrri hluta ræðir hann um það þegar Land og synir slógu í gegn á einni nóttu með laginu Vöðvastæltur, hvernig hljómsveitin fékk fimm plötu samning við útgáfufyrirtæki í Bandaríkjunum og misstu fljótt eftir árásina 11. september, hvernig honum bauðst að svíkja aðra meðlimi hljómsveitarinnar og hvernig þeim gekk að takast á við breyttan veruleika.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
  • #2 | Aldrei fór ég suður 2026 | Seinni hluti 29.03.2026 46min
    Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.   Í þættinum er rætt við Skítamóral (Adda Fannar), Amabadama (Sölku Sól), Úlfur Úlfur (Arnar Freyr) og Spacestation (Björgvin).   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
  • #1 | Aldrei fór ég suður 2026 | Fyrri hluti 29.03.2026 44min
    Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.   Í þættinum er rætt við Friðrik Dór, Pál Óskar, Kristján Frey, rokkstjóra Aldrei fór ég suður, og Kusk og Óvita, Kolbrúnu og Hrannar.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Populiari šalyje

Ši tinklalaidė taip pat patenka į šių šalių tinklalaidžių topus.