Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafsson
Šalis Iceland
Žanrai Society & Culture, Leisure
Kalba IS
Epizodų 32
Naujausias 01.06.2026

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

Epizodai

  • 32.þáttur: Helga Möller 01.06.2026 1val 35min
    Helga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands.  Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég.   Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi.  Helga á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf langað til að gera.
  • 31.þáttur: Guðmundur Pétursson 20.05.2026 1val 44min
    Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall.  Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir.  Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu.  
  • 30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir 12.05.2026 1val 47min
    Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við.  Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim.  Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins.  Í dag er það "Mannlegi þátturinn" sem hún stýrir ásamt Gunnari Hanssyni á Rás 1. 
  • 29.þáttur: Andrea Jónsdóttir 28.04.2026 1val 45min
    Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands.  Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist.  Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli.  Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki.  Andrea hefur starfað sem plötusnúður á Dillon í 26 ár og er hvergi nærri hætt, 77 ára gömul. 
  • 28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason 17.04.2026 1val 41min
    Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari.  Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn.  Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt  og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður.   Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul.  Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík.  
  • 27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson 09.04.2026 1val 39min
    Þið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar.  Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns.  Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var farinn að spila með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gamall.  Jóhann byrjaði í MH en ætlaði að fresta náminu um einn vetur því það var svo mikið að gera í spileríinu.  Stúdentsprófið bíður enn og listinn yfir tónlistarfólkið og hljómsveitirnar sem hann hefur unnið með er ógnarlangur og glæsilegur.   
  • 26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa) 27.03.2026 1val 28min
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun.  Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og brilleraði næstu árin í hverju hlutverkinu á fætur öðru.   Frammistaða hennar í söngleikjum eins og Mary Poppins, Kysstu mig Kata og Mamma Mia er eftirminnileg þeim sem sáu . Hansa er með burtfararpróf bæði í klassíkum píanóleik og söng og telur tónlistina æðsta allra lista.  Svo vippaði hún sér í MBA nám líka - svo sannarlega sterkur námsmaður.  Hún greindist með MS sjúkdóminn fyrir tæpum þremur árum en kvartar ekki og lætur hvergi deigan síga. 
  • 25.þáttur: Róbert Marshall 17.03.2026 1val 51min
    Flestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega.  Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem hann hefur ekki rölt upp á.  Einnig sinnir Róbert tónlistarsköpun þegar tími vinnst til og er m.a. forsöngvari og helsti lagahöfundur hljómsveit sem kallast Hvítá.  Einu sinni talaði Leonard Cohen beint til hans á tónleikum og í kjölfarið tók Róbert sína bestu ákvörðun.
  • 24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson 05.03.2026 1val 23min
    Enginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson.  Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að útskrifast úr Versló vegna splattermyndar sem sýnd var í skólanum. Sveinn er kvæntur úkraínskri konu og hefur farið yfir 120 sinnum til heimalands hennar;  hinnar stríðshrjáðu Úkraínu sem honum þykir svo vænt um. 
  • 23.þáttur: Kristín Þóra Haraldsdóttir 24.02.2026 1val 13min
    Kristín Þóra er ein eftirsóttasta og besta leikkona landsins.   Hún segist hafa tekið miklum framförum sem ökumaður á síðustu árum þó hún kunni ekki að bakka í stæði.  Örmögnun í starfi og leik varð uppistaða í leiksýningunni Á rauðu ljósi sem hún ákvað að skrifa og setja upp því hún átti ekki fyrir jólagjöfum.  Þetta vatt upp á sig og sýningarnar eru orðnar á annað hundrað.  Þessa dagana stúderar Kristín sálfræði þegar hún er ekki að brillera á sviði eða fyrir framan myndavélarnar.  
  • 22.þáttur: Mist Rúnarsdóttir 18.02.2026 1val 21min
    Mist er goðsögn í heimi íslenskrar kvennaknattspyrnu og hefur verið óþreytandi við að leggja henni lið hvort heldur sem þjálfari eða íþróttafréttakona.  Ferðalög eru hennar líf og yndi og fljótlega eftir stúdentspróf heimsótti hún bæði Kúbu og Kína.  Einnig hefur hún nokkrum sinnum komið til Namibíu og Palestínu sem dæmi.  Mist er mannfræðingur að mennt og hefur dálæti á köttum. 
  • 21.þáttur: Björgvin Páll Gústavsson 11.02.2026 1val 47min
    Björgvin Páll hefur verið besti handboltamarkvörður landsins um árabil og slær hvergi slöku við, 40 ára gamall.  Æskan var erfið og áföllin mörg en hann vil meina að íþróttirnar hafi bjargað sér.  Björgvin hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum og m.a. gefið út tvær bækur sem vöktu mikla athygli.  Hann er óþreytandi við að hjálpa öðrum og notar eigin lífsreynslu í því skyni.  
  • 20.þáttur: Máni Svavarsson 06.02.2026 1val 12min
    Hróður Mána hefur borist víða enda hefur tónlist hans í þáttunum um Latabæ heyrst í velflestum löndum þar sem rafmagn er að finna.  Foreldrar hans, þau Svavar Gests og Elly Vilhjálms, löttu hann frekar en hvöttu þegar kom að tónlistinni en á endanum lét Máni hjartað ráða.  Tengsl hans við AHA og meðlimi hennar koma við sögu rétt eins og aflitað hár og frekar löng skóladvöl í Versló. 
  • 19.þáttur: Ellen Kristjánsdóttir 30.01.2026 2val
    Ellen fæddist í Bandaríkjunum og talaði ekki stakt orð í íslensku þegar hún fluttist til Íslands.  Hún hefur þurft að glíma við ansi mörg áföll á lífsleiðinni og meðal annars varð eitt slíkt uppsprettan að lagi sem hún syngur reglulega til að hughreysta annað fólk.  Ellen er ein ástsælasta söngkona landsins og vakti fyrst athygli með Ljósunum í bænum og síðan Mannakornum.  Hún brennur fyrir réttlæti og velferð þeirra sem minna mega sín og hefur aldrei látið sitt eftir liggja í þeim efnum.
  • 18.þáttur: Róbert Þórhallsson 17.01.2026 1val 3min
    Það munaði minnstu að Húsvíkingurinn Róbert yrði trommuleikari Greifanna en örlögin ætluðu honum annað hlutverk.  Eftir að hafa prófað að læra á hin ýmsu hljóðfæri tók hann ástfóstri við bassann og var óvenju fljótur að komast í hóp þeirra fremstu á hljóðfærið.  Það kom mörgum á óvart þegar hann tók við skólastjórastöðu við Tónlistarskóla FÍH sem hefur ungað út afburða tónlistarfólki undanfarna áratugi og þar situr hann enn og kann vel við sig. 
  • 17.þáttur: Þórir Baldursson 08.01.2026 1val 44min
    Þórir leysti fyrst af með hljómsveit pabba síns aðeins 10 ára gamall.  Hann gerði sig fljótt gildandi í íslenskum tónlistarheimi sem meðlimur Savanna tríósins auk þess sem hann samdi lög fyrir Dáta og Hljóma sem áttu eftir að verða ódauðleg.  Örlögin drógu hann til Svíþjóðar og síðan til Þýskalands þar sem hann vann með helstu stórstjörnum diskótónlistarinnar.  Kreppa í Bandaríkjunum kippti Þóri heldur betur niður á jörðina og hann kom aftur til Íslands niðurbrotinn maður en auðvitað var ljós við enda ganganna og afrek hans, heima og að heiman eru óvéfengjanleg.
  • 16.þáttur: Halla Gunnarsdóttir 30.12.2025 1val 23min
    Halla Gunnarsdóttir er alþjóðastjórnmálafræðingur og kennari að mennt og hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum. M.a. var hún aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í tíð vinstri stjórnarinnar 2009–2013 og starfaði síðar sem ráðgjafi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í jafnréttismálum.  Áður starfaði Halla m.a. sem blaðamaður á Morgunblaðinu.  Hún hefur þjálfað fótboltalið og sent frá sér ljóðabækur.  Í dag er hún formaður VR.  Halla ætlar að vera mýkri í öxlunum á árinu 2026.
  • 15.þáttur: Egill Helgason 19.12.2025 1val 31min
    Egill Helgason er einn áhrifamesti fjölmiðlamaður landsins.  Honum hugnaðist ekki  framhaldsskólanámið og tók blaðamennsku fram yfir stúdentspróf.  Við tók fjölbreyttur ferill þar sem flestir fjölmiðlar landsins koma við sögu.  Þættir hans, Silfur Egils (Silfrið) og Kiljan, eru tímamótaþættir sem enn eru á dagskrá.  Þrátt fyrir allt hefur Egill tiltölulega lítinn áhuga á pólitík á meðan listir og sagnfræði eiga svo sannarlega upp á pallborðið.  Fyrir skemmstu komst hann að því hvert hrekkjusvínið er sem eyðilagði fyrir honum píanónámið. 
  • 14.þáttur: Sif Atladóttir 09.12.2025 1val 57min
    Sif Atladóttir er í dag framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands.  Hún hefur fyrir löngu skráð nafn sitt á spjöld sögunnar sem ein okkar fremstu knattspyrnukvenna og á að baki glæsilegan feril á Íslandi, í Þýskalandi og Svíþjóð.  Hún fæðist inn í mikla íþróttafjölskyldu og það var ekki alltaf dans á rósum að vera dóttir knattspyrnumannsins Atla Eðvaldssonar sem lést um aldur fram fyrir nokkrum árum. Hafa skal aðgát í nærveru sálar.
  • 13.þáttur: Bogi Ágústsson 02.12.2025 1val 41min
    Bogi er dáðasti fréttamaður þjóðarinnar eftir áratuga starf hjá Ríkissjónvarpinu.   Sagnfræði- og íslenskunám við Háskóla Íslands hefur reynst honum vel í starfi og þessa dagana alveg sérstaklega.  Bogi er grjótharður stuðningsmaður KR og og hefur sérstakt dálæti á Norðurlöndunum.  Bítlarnir skipta hann miklu máli og hann á Höfner bassa, alveg eins og Paul. 

Populiari šalyje

Ši tinklalaidė taip pat patenka į šių šalių tinklalaidžių topus.