Lífæðar landsins

Lífæðar landsins

Samorka
Šalis Islandija
Žanrai Technologija
Kalba IS
Epizodų 18
Naujausias 25.06.2026

Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku um orku- og veitumál. Það fjallar um mikilvægi orku og veitna fyrir íslenskt samfélag. Hlaðvarpið kynnir viðfangsefni tengd orkuframleiðslu, dreifingu og nýtingu. Markmiðið er að fræða hlustendur um þau mál sem snerta daglegt líf.

Epizodai

  • Orkan í efnahagsljósi 25.06.2026 40min
    Orkumálin eru krufin í hagfræðilegu samhengi í þessum þætti Lífæða landsins. Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku og Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair á Íslandi kafa ofan í þau mál með Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.
  • Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa 19.12.2025 30min
    Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir.Rafn Magnús Jónsson yfirverkefnisstjóri HS Orku og Yngvi Guðmundsson yfirverkfræðingur HS Orku ræða við Lovísu Árnadóttur um þetta ótrúlega verkefni í þessum þætti Lífæða landsins.
  • Vestfirðir eru heitur reitur 10.11.2025 45min
    Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá OrkubúiVestfjarða, ræðir uppganginn og stemninguna á Vestfjörðum við Lovísu Árnadóttur og hvernig Vestfirðir eru að verða heitur reitur, líka hvað varðar jarðhita.
  • Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig 10.10.2025 19min
    Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind. Sveinn Helgason sat ráðstefnuna fyrir hönd Samorku og talaði við nokkra úr íslenska hópnum fyrir Lífæðar landsins. Viðmælendur Sveins lögðu áherslu á gagnsemi þess að sækja alþjóðlega ráðstefnu af þessu tagi, til að kynna hvað þau og þeirra fyrirtæki og stofnanir eru að gera. Þau undirstrikuðu líka mikilvægi þess að byggja upp sterkt tengslanet þvert á landmæri sem skilar sér margfalt til baka.
  • Hreint vatn er ekki heppni 02.10.2025 30min
    Mikilvægt er að standa vörð um neysluvatnið okkar því það er okkar mikilvægasta auðlind. Í nútímasamfélagi verður það sífellt flóknara verkefni. Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumanneskja vatnsmiðla hjá Veitum, ræðir við Lovísu Árnadóttur um vatnsveituna á höfuðborgarsvæðinu og minnir okkur rækilega á að hreint vatn er ekki heppni. Þátturinn kemur út 2. október, en þann dag árið 1909 var vatnsleiðsla frá Gvendarbrunnum fyrst tekin í notkun og telst dagurinn upphafsdagur vatnsveitu í Reykjavík.
  • Mikilvægast að styrkja bakbeinið í flutningskerfi raforku 06.08.2025 27min
    Orkuskipti og aukin eftirspurn eftir raforku kallar á mikla samvinnu í uppbyggingu raforkuinnviða. Kerfisáætlun Landnets hefur það hlutverk að áætla hvar og hvenær nýjar línur verða byggðar upp eða styrktar og þannig tryggja öruggan flutning raforku á milli landshluta. En uppbyggingin er umfangsmikil og mikilvægt að forgangsraða þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi.Í þættinum fara þær Arngunnur Einarsdóttir sérfræðingur í viðskiptaþróun hjá Landsneti og Guðrún Margrét Jónsdóttir sérfræðingur í kerfisþróun hjá Landsneti yfir hvernig sú forgangsröðun verður til og mikilvægi samráðsvettvangsins sem kerfisáætlun er.
  • Djúpborun: Tæknilegt ævintýri sem getur skipt sköpum 16.07.2025 35min
    Að bora djúpt ofan í jarðlögin til að ná í orku er eitthvð sem unnið hefur verið að árum saman hér á landi. Með þessu væri hægt að ná í meiri orku á sömu jarðhitasvæðum og þannig nýta jarðhitaauðlindina enn betur. En það fylgja því tæknilegar áskoranir að ætla sér að bora svona djúpt ofan í jörðina. Í þættinum ræðir Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, um djúpborunarverkefnin hér á landi og hvernig árangur í þeim efnum getur skipt sköpum, ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur á alþjóðavísu.
  • Vaðölduver verður til 04.07.2025 25min
    Hingað til hafa jarðvarmi og vatnsafl verið meginuppsprettur raforkuframleiðslu á Íslandi. Nú er breyting fram undan, því Vaðölduver Landsvirkjunar – fyrsta vindorkuver landsins – er komið á framkvæmda- eða rekstrarstig.Að mörgu er að huga þegar hafist er handa við að byggja eitthvað alveg nýtt og í þættinum fáum við að heyra meira um ferlið, undirbúning og upphaf framkvæmda, auk þess sem hægt er að sjá hvernig Vaðölduver kemur til með að líta út. Gestur þáttarins er Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers hjá Landsvirkjun. Umsjón þáttarins er í höndum Lovísu Árnadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.
  • Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands 23.06.2025 28min
    Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að ný stefna ESB um viðnámsþrótt vatns (European Water Resilient Strategy)  sé yfirgripsmikil enda við margvíslegar áskoranir að glíma.  „Stærsta markmiðið með stefnunni er að laga þessa brotnu hringrás vatnsins,“ segir í Birna í viðtali við Svein Helgason í Brussel, í hlaðvarpi Samorku. Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn ESB. Birna segir að Íslendingar standi svolítið með pálmann í höndunum á þessu sviði því landið sé ríkt af vatni. Hinsvegar sé mikilvægt að þekkja vel auðlindina og gera sér grein fyrir hvert skuli stefna í framtíðinni. Sveinn Helgason ræðir við Birnu í þættinum. Birna starfar á umhverfissviði framkvæmdastjórnarinnar í teymi sem vinnur að ferskvatnsstjórnun og hefur átt töluverðan þátt í að móta stefnuna um viðnámsþrótt vatns sem kynnt var 4. júní s.l. Stefnan hefur m.a. tengingar við svokallaða vatnatilskipun og fráveitutilskipun ESB.
  • Snjöll samvinna er sterkasta vopnið 28.05.2025 9min
    Netárásum á mikilvæga inniviði hefur fjölgað mikið sem kallar á öflugar varnir um tæknibúnað. Kristrún Lilja Júlíusdóttir, forstöðukona hjá Orkuveitunni, ræddi við Svein Helgason á Samorkuþingi 2025 um öryggismál og hvernig samtal, traust og samvinna getur skipt sköpum í að verja innviði á Íslandi. Sveinn og Kristrún Lilja ræða saman á Samorkuþingi 2025.
  • Öryggi og áfallaþol innviða 26.05.2025 16min
    Karl Steinar Valsson yfirlögreglustjónn hjá ríkislögreglustjóra var annar frummælenda í lokamálstofu Samorkuþings 2025 þar sem fjallað var um áfallaþol mikilvægra innviða hér á landi og orkuöryggi í ljósi þróunar í Evrópu. Í viðtali við Svein Helgason, verkefnastjóra erlends samtarfs hjá Samorku, leggur Karl Steinar m.a. áherslu á virkt samtal og samvinnu milli lögreglu og orku- og veitugeirans til að efla enn frekar vernd innviða og öryggi. Karl Steinar segir það hafa verið mjög gagnlegt að heyra sjónarmið háttsettra stjórnenda í geiranum í málstofunni og sömuleiðis hvað Kristian Ruby, framkvæmdastjóri Eurelectric, hafði að segja í sinni framsöguræðu. Viðtalið var tekið síðdegis þann 23. maí. Karl Steinar flytur erindi sitt á Samorkuþingi 2025
  • REMIT: Hvað er það? 11.04.2025 30min
    REMIT er umfjöllunarefni í nýjasta hlaðvarpsþætti Samorku. Þar ræðir Katrín Helga, lögfræðingur Samorku, við þær Hönnu Björgu Konráðsdóttur og Ninnu Ýr Sigurðardóttur hjá Raforkueftirlitinu, um nýjar reglur sem munu taka gildi á næstunni um viðskipti á raforkumarkaði. Þær fjalla um tilurð reglnanna og uppruna þeirra í Evrópu og hvaða þýðingu þær hafa fyrir íslenskar aðstæður.  Frá upptöku þáttarins.
  • Áhrif loftslagsbreytinga á veituinnviði 21.01.2025 40min
    Veituinnviðir og þá sérstaklega fráveituinnviðir eru viðkvæmir fyrir flóðum, aukinni rigningu og öðrum loftslagsbreytingum. Í þættinum heyrum við dæmi um nýleg áhlaup á fráveitur vegna öfga í veðurfari, fræðumst við um þær aðgerðir sem verið er að ráðast í til að aðlagast eða draga úr áhrifum loftslagsbreytinga, heyrum um mikilvægi þess að styrkir til fráveituframkvæmda verði áfram veittir og virku samtali þegar kemur að skipulagsmálum og frekari uppbyggingu veituinnviða. Gestir þáttarins eru: Aðalsteinn Þórhallsson, framkvæmdastjóri HEF Veitna, Ágúst Þór Bragason, deildarstjóri þjónustumiðstöðvar hjá Árborg pg Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafi í fráveitumálum. Þáttastjórnandi er Almar Barja, fagsviðsstjóri Samorku. Aðalsteinn, Hlöðver, Ágúst og Almar við upptöku þáttarins
  • Kosið um græna framtíð 01.11.2024 48min
    Orku- og veitumálin verða sennilega í brennidepli fyrir alþingiskosningarnar í lok mánaðarins, enda mörg brýn verkefni í málaflokknum á borði stjórnvalda. Kosningabaráttan mun snúast um hver hefur grænu sýnina, sýnina sem leggur grunninn að næsta vaxtarskeiði fyrir Ísland, því orka er súrefni atvinnulífsins og forsenda allrar verðmætasköpunar. Þetta segja þau Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku og Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulifsins, sem eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni.
  • Jarðhræringar I: Þegar verstu sviðsmyndir raungerast 16.07.2024 47min
    Góður undirbúningur fyrir jarðhræringar skipti sköpum þegar eldgos á Reykjanesskaga hófust. Enginn átti þó von á að verstu sviðsmyndirnar myndu raungerast. Í þættinum er farið yfir þá miklu vinnu sem farið hefur í undirbúning, viðbragð og lausnir til að verja mikilvæga orku- og veituinnviði á fyrsta eldgosatímabili í þúsundir ára. Viðmælendur eru þeir Guðmundur Helgi Albertsson verkstjóri á rafmagnssviði á Suðurnesjum, Halldór Halldórsson öryggisstjóri Landsnets og Jóhannes Steinar Kristjánsson umsjónarmaður viðhalds hjá HS Orku.
  • Jarðhræringar II: Hamfarir fyrir fólk og fyrirtæki 16.07.2024 44min
    Jarðhræringar á Reykjanesi hafa reynt gríðarlega á orku- og veituinnviði þjóðarinnar, en hafa ekki síður reynt á fólkið sem staðið hefur í ströngu við að halda þeim gangandi. Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri HS Orku er gestur þáttarins og ræðir hún við Lovísu Árnadóttur um mannleg áhrif hamfaranna á starfsfólkið og á daglegan rekstur fyrirtækisins.
  • Jarðhræringar III: Upplýsingamiðlun þegar mikið liggur við 16.07.2024 46min
    Þegar fyrirtæki glíma við krísur er mikilvægt að réttar og ábyrgar upplýsingar komist hratt og vel til hagaðila, fjölmiðla og almennings. Það getur verið krefjandi í mikilli óvissu og undir miklu álagi eins og í jarðhræringunum á Reykjanesi og hvað þá þegar allir eru orðnir sín eigin fréttastofa með snjallsíma í vasanum. Upplýsingafulltrúarnir Birna Lárusdóttir hjá HS Orku, Sigrún Inga Ævarsdóttir hjá HS Veitum og Steinunn Þorsteinsdóttir hjá Landsneti, fara yfir mikilvægi góðra samskipta í þættinum og reynslu sína af að miðla upplýsingum til réttra aðila þegar mikið liggur við. Myndböndin sem vísað er til í þættinum má sjá á Vimeo síðu Samorku.
  • Ný tækifæri til orkuöflunar 03.07.2024 40min
    Er eitthvað vit í að nýta sólarorku á Íslandi?Hvað er vindorka á smærri skala?Munu heimili og fyrirtæki í framtíðinni hafa eitthvað hlutverk í nýrri orkuöflun? Þetta eru nokkrar spurningar sem starfshópur á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherrra tókst á við í nýrri skýrslu sem út kom fyrr á árinu. Í þessum þætti Lífæða landsins eru niðurstöður skýrslunnar ræddar við Ásmund Friðriksson þingmann og Gunnlaugu Helgu Ásgeirsdóttur Msc. í sjálfbærum orkuvísindum, en þau sátu bæði í starfshópnum. Þáttastjórnendur eru Finnur Beck og Lovísa Árnadóttir. Skýrsluna má lesa á heimasíðu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.

Populiari šalyje

Ši tinklalaidė taip pat patenka į šių šalių tinklalaidžių topus.