KILROY kastið: Á áætlun

KILROY kastið: Á áætlun

KILROY ferðir
Valsts Islande
Žanri Leisure
Valoda IS
Epizodes 8
Jaunākā 25.07.2025

Á áætlun er hlaðvarp fyrir ferðalanga sem langa að sjá meira, fara lengra og gera meira úr ferðunum sínum. Hér heyrir þú skemmtilegar sögur, nytsamleg ferðaráð og heiðarlegar frásagnir frá ferðaráðgjöfum KILROY (fólki sem hefur farið út um allt) og góðum gestum! Vilt þú fara í þitt eigið ferðalag? Fáðu fría ferðaráðgjöf á www.kilroy.is.

Epizodes

  • Námspása (Gap Year) – Ertu að missa af? 25.07.2025 40min
    Í lokaþætti þessarar sumarseríu af KILROY kastinu: Á áætlun, ræða Rebekka og Sóla það sem margir hugsa en kannski þora ekki alltaf að framkvæma: að taka sér pásu frá námi til að ferðast. Hvort sem þú kallar það námspásu, gap year eða bara „ég þarf smá tíma fyrir sjálfan mig“, þá getur þessi tími verið ein sú besta ákvörðun sem þú tekur. Við förum yfir ástæðurnar fyrir því að fólk ákveður að stíga út úr skólastofunni og inn í heiminn, hvað þarf að hafa í huga og af hverju þetta er ...
  • Júlí Heiðar og Dísa 17.07.2025 44min
    Í þessum þætti fá Rebekka og Sóla til sín í KILROY stúdíóið þau Dísu og Júlí Heiðar, sem margir landsmenn ættu nú að þekkja vel. Þau fóru fyrr á þessu ári í ævintýraferð til Tælands með litlu stelpuna sína, og eins og sannir ferðalangar lentu þau í ýmsum óvæntum uppákomum á leiðinni. Við ræðum hvernig það er í raun og veru að ferðast með ungt barn, hvað gekk vel, hvað gekk alls ekki og hvað þau tóku með sér heim, bæði þegar kemur að reynslu og minningum. Langar þig að fara í þína drauma...
  • Brottför – Allt sem þú þarft að vita áður en þú leggur af stað 10.07.2025 40min
    Hvað þarftu virkilega að vita áður en þú ferð í stóra ævintýraferð? Í þessum þætti fara Rebekka og Sóla yfir það helsta sem allir ferðalangar ættu að hafa í huga áður flugið flýgur og draumurinn breytist í veruleika. Við ræðum algengustu mistökin og gefum góð ráð. Þetta er þátturinn sem þú vilt hlusta á áður en þú pakkaðir síðasta sokknum og heldur út í heiminn. Langar þig að fara í þína drauma ævintýraferð? Kíktu á kilroy.is og skoðaðu hvað er í boði.
  • Kara Hólm og sjálfboðastörf: Ævintýri með tilgangi 03.07.2025 51min
    Í þessum þætti fá Rebekka og Sóla til sín Köru Hólm sem margir þekkja af samfélagsmiðlum. Kara hefur sjálf farið í sjálfboðastörf erlendis og deilir með okkur sinni reynslu, bæði því fallega, því óvænta og því sem hún hefði viljað vita áður en hún lagði af stað. Við ræðum hvað sjálfboðastörf fela raunverulega í sér, hvernig þau geta breytt manni og hvort þetta sé fyrir alla. Þátturinn er stútfullur af sögum, praktískum ráðum og innblæstri fyrir þá sem langar í ævintýri með tilgangi.&nbs...
  • Þegar allt fer úrskeiðis 27.06.2025 47min
    Það er ekki alltaf allt bara sól og kokteilar á ferðalögum... stundum fer allt hressilega úrskeiðis! Í þessum þætti rifja Rebekka og Sóla upp skemmtilegar (og neyðarlegar) sögur úr sínum eigin ævintýrum þar sem hlutirnir fóru alls ekki eftir áætlun. Við tölum um stress, mistök, týndar töskur, skrítnar aðstæður og minningar sem voru kannski ekki fyndnar í mómentinu, en eru það svo sannarlega í dag. Ef þú vilt hlæja, tengja eða bara heyra að þú ert ekki ein/n/tt sem lendir í klúðri á ferðalög...
  • Ljóskureisan 20.06.2025 50min
    Í þessum þætti taka Rebekka og Sóla á móti sínum fyrstu gestum sumarsins. Þær Bella og Birna mæta brakandi ferskar úr sinni fyrstu (en örugglega ekki síðustu) heimsreisu sem margir kannast eflaust við sem „Ljóskureisan“. Þær ferðaðust saman í gegnum ólíka heimshluta og deildu ferðalaginu með fylgjendum á samfélagsmiðlum. Við ræðum við þær um ferðalagið. Hvað kom mest á óvart? Hverjir voru hápunktarnir? Og hvernig er að ferðast saman svona lengi? Við fáum að heyra sögur sem eru bæði fyndnar, l...
  • Ein en ekki einmana: Sólóferðalög 13.06.2025 43min
    Í þessum þætti ræðum við það af hverju sólóferðalög eru svona sérstök og hvers vegna þú ert aldrei ein/n í raun og veru. Rebekka og Sóla deila hugmyndum, persónulegum reynslum og skemmtilegum sögum úr sínum sóló ferðum. Vertu með og fáðu innblástur fyrir þína eigin ferð! Fáðu svo fría ferðaráðgjöf á kilroy.is.
  • Ferðin sem breytti öllu 06.06.2025 38min
    Í þessum fyrsta þætti af KILROY kastinu: Á áætlun, kynnumst við þáttastjórnendunum Rebekku og Bergrúnu Sólu. Þær hafa séð og upplifað ýmislegt á sínum mörgu ferðalögum síðastliðin ár og ætla að deila því helsta með hlustendum. Við ætlum að byrja að kynnast þeim örlítið, áður en þær deila sögum frá sínum eigin ferðalögum sem breyttu öllu. Vertu með frá byrjun – og fáðu innblástur fyrir þína eigin ferð!

Populārs valstī

Šis podkasts parādās arī šo valstu podkastu topos.